Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2002, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2002, Blaðsíða 12
12 Útlönd ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 2002 DV Bush horfir til himins. Bandarísk stjórn- völd viðurkenna mengunarvandann Bandarísk stjómvöld hafa í fyrsta skipti viðurkennt að hækkandi hita- stig á jörðinni sé til komið vegna mannlegrar mengunar. Þrátt fyrir það hafa þau ítrekað neitað að undirrita Kyoto-bókunina, sem er alþjóðlegt samkomulag um aðgerðir gegn vandanum og haldið því fram að nægilegar vísindalegar sannanar til að kenna iðnaðarmengun um vandann hafi ekki legið fyrir. í 268 blaðsíðna skýrslu Um- hverfisstofnunar Bandaríkjanna, EPA, tU Sameinuðu þjóðanna, tekur stofnunin undir álit ýmissa sérfræðinga, um að mengun vegna mannlegra þarfa m.a. við olíuvinnslu, orkuframleiðsla og ekki síst útblástursmengun bifreiða, séu helstu orsakir hækkandi hitastigs á jörðunni. Borað eftir heitu vatni í Kóngsins Kaupmannahöfn Dönsk orkufyrirtæki hafa hafið boranir eftir heitu vatni í jörðu í sjálfri Kaupmannahöfn og hefur það ekki gerst í meira en eitt hundrað ár. Að sögn danska blaðsins Politiken hefur jarðbor verið komið fyrir á odda Amager og gera vís- indamenn sér vonir um að þar megi finna mikið af heitu vatni. Borinn hatði i gærmorgun komist niður á um 450 metra dýpi. Heita vatnið er talið vera á um 2,7 kílómetra dýpi. Ef það reynist í nægilegu magni munu um fjögur þúsund heimili 1 Kaupmannahöfn geta nýtt sér það til húshitunar frá og með árinu 2005. Kyoto-bókunin staöfest Junichiro Koizumi, forsætisráöherra Japans, staöfesti samninginn frá Kyoto um gróöurhúsaáhrifin. Japansstjórn staðfestir Kyoto Japanska ríkisstjómin staðfesti í morgun Kyoto-bókunina um gróður- húsalofttegundir frá 1997 og sagði við það tækifæri að hún ætlaði að hvetja aðrar þjóðir, þar á meðal Rússa og Bandarikjamenn, til að gera slíkt hið sama. „Samningurinn frá Kyoto er mik- ilvægt skref í baráttunni við gróður- húsalofttegundimar. Það er einlæg ósk min aö önnur lönd gangi í lið með okkur sem fyrst,“ sagði Jun- ichiro Koizumi forsætisráðherra. Pútín og Zemin reyna aö miðla málum í Kasmírdeilunni: Engar líkur á að deiluaðilar fundi Til harðra orðaskipta hefur komið milli leiðtoga Pakistana og Indverja á öryggisráðstefnunni í Kasakstan þar sem þeir kenna hvorir öðrum um stríðsástandið í Kasmír. Atal Behari Vajpayee, forsætisráð- herra Indlands, kenndi Pakistönum um og sagði að þeir hefðu ekki staðið við loforð sín um að stöðva straum skæruliðahópa aðskilnaðarsinna yfir landamærin til árása í indverska hluta Kasmírs, en bætti þó við að hann væri strax tilbúinn til friðarvið- ræðna við stjómvöld í Islamabad, ef farið yrði að þessum kröfum Indverja. Hann sagði einnig að straumur skæruliða yfir landamærin hefði auk- ist að undanfórnu og að þeir fengju að halda æfingabúðum sínum opnum handan landamæranna án afskipta stjórnvalda. Pervez Musharraf, forseti Pakist- ans, sagði að Pakistanar myndu aldrei heQa stríð að fyrra bragði, en bætti við að þeir myndu bregðast við með Jiang Zemin Jiang Zemin, forseti Kína, viö komuna tii Kasakstan i gær. viðeigandi hætti af á þá yrði ráðist. Hann sendi indverskum stjómvöldum tóninn og fordæmdi það sem hann kallaði ríkisrekna hryðjuverkastarf- semi og gagnrýndi þá einnig fyrir að standa gegn eðlilegri og réttmætri lýð- ræðræðisþróun í Kasmír í baráttu íbúanna fyrir frelsi. Vladimir Pútín, forseti Rússlands, hafði gert sér góðar vonir um að geta miðlað málum á ráðstefnunni í Kasakstan og fá leiðtogana til að setj- ast niður til sátta, en svo virðist sem það muni ekki takast. Jiang Zemin, forseti Kína, sem einnig situr ráðstethuna, mun hitta leiðtogana á aðskildum fundum í dag og var búist við að hann geröi sitt til að miðla málum. Ekki er þó búist við að Vajpayee, forsætisráðherra Ind- lands, muni breyta afstöðu sinni og haldi fast við fyrri kröfu sína um að Pakistanar stöðvi straum aðskilnaðar- sinna yfir landamærin áður en viðræður komi til greina. B‘*S REUTERSMYND Rósablöö tínd aö morgni dags íbúar þorpsins Skobelevo í Búigaríu fóru snemma á fætur í morgun til aö tína rósablöö. Þar á meöal var þessi ágæta kona. Búlgarar framleiöa einna mest allra af rósaolíu sem búin er til úr blööunum og er síöan notuö í ilmvatnsgerö. Mubarak á vesturleið með friðarhugmyndir í farteskinu: ísraelskir skriðdrekar rudd- ust inn í Jenín í morgunsárið Hosni Mubarak Egyptalandsfor- seti heldur vestur til Bandarikjanna í vikunni með í farteskinu nýjar hugmyndir um hvernig koma eigi friðarviðræðum fyrir botni Miðjarð- arhafs aftur af stað. Stjórnmála- skýrendur segja hins vegar hættu á að þeim verði fálega tekið af ráða- mönnum vestra vegna undansláttar ísraelsmanna. Mubarak hittir háttsetta banda- riska embættismenn á fimmtudag en á fóstudag og laugardag mun hann eiga nokkra fundi með George W. Bush á sveitasetri Bandaríkja- forseta í Camp David. ísraelskir skriðdrekar og her- menn ruddust inn í palestínsku borgina Jenín á Vesturbakkanum í morgun, skömmu áður en viðræður Georges Tenets, forstjóra leyniþjón- REUTERSMYND Yasser Arafat Forseti Palestínumanna hitti for- stjóra bandarísku leyniþjónustunnar CIA í Ramallah í morgun. ustunnar CIA, og Yassers Arafats, forseta Palestínumanna, áttu að heíjast. Sjónarvottar sögöu að israelsku hermennimir hefðu skotið úr byss- um sínum upp i loftið þegar skrið- drekamir og önnur brynvarin far- artæki fóm inn í Jenín. Hermenn- irnir drógu vígtól sín til baka um klukkustund síðar. Ekki er vitað til að neinn hafi slasast. Búist er við að forstjóri CLA muni þrýsta á að umbætur verði gerðar á palestínsku öryggissveitunum í við- ræðum hans við Arafat í höfuð- stöðvum hans í Ramallah. Tenet hitti Ariel Sharon, forsætisráðherra ísraels, í gær. Vaxandi efasemda gætir meðal ísraelskra ráðamanna um að umbætur séu mögulegar á meðan Arafat er enn við völd. ESB til varnar José Maria Azn- ar, forsætisráð- herra Spánar, sagð- ist í gær vona að á leiðtogafundi Evr- ópusambandsins síðar í mánuðinum yrðu samþykktar tillögur um aðgerð- ir gegn ólöglegum innflytjendum til aðildarlandanna. Innflytjendur hafa verið í brennidepli frá því flokkar þeim fjandsamlegir fengu gott gengi í kosningum í Evrópulöndum. Danir og Svíar semja friö Ríkisstjómir Danmerkur og Sví- þjóðar hafa samið um frið í orða- skakinu um útlendingastefnu danskra stjómvalda. Sænskir ráð- herrar höfðu lýst vanþóknun sinni á stefnunni. Kosningaúrslit staðfest Stjómarskrárráðið í Alsír stað- festi í gær niðurstöður þingkosning- anna sem fram fóru í síðustu viku. Þjóðfrelsisfylkingin, fyrram stjóm- arflokkur, sigraði en stjómarand- stæðingar og Berbar tóku ekki þátt. Andstaðan tekur undir Stjómarandstöðuflokkarnir tveir í Færeyjum sögðust í gær geta tekið undh' stóra hluta þess sem fram kemur í stjómarsáttmála nýrrar landstjómar fjögurra flokka. Þyngri refsingar fyrir Ijóta Ljótt fólk hlýtur þyngri refsingar fyrir dómstólunum en fallegt fólk, að því er fram kemur í doktorsrit- gerð sem verður lögð fyrir Stokk- hólmsháskóla síðar á árinu. Annan heitir stuðníngi Kofi Annan, fram- kvæmdastjóri Samein- uðu þjóðanna, hét því i gær í fyrstu heim- sókn sinni til Úkraínu að koma til aðstoðar þeim milljónum manna sem eiga um i eftir kjamorkuslysið mikla í Tsjernobýl árið 1986. Ekki á leið í NATO Erkki Tuomioja, utanríkisráð- herra Finnlands, sagði í gær að Finnar myndu ekki láta af hlutleys- isstefnu sinni þótt nági-annaþjóðirn- ar við Eystrasalt gengju í NATO, eins og stefnt er að. Fékk tíðindin í tölvupósti Slobodan Milo- sevic fékk fréttir af voðaverkum Serba gegn albönskum íbúum Kosovo í tölvupósti, með faxi og venjulegum pósti. Þetta kom fram i réttarhöld- unum yfir fyrram Júgóslavíuforseta í Haag í gær. Danir lifa lengur Lifslikur Dana hafa aukist jafn- mikið undanfarin fimm ár og 21 ár þar á undan. Skýringin er meðal annEus minni tóbaksreykingar og aukin hreyfing. Manntjón við húsahrun Einn maður lét lífið og nokkrir særðust þegar ibúðarblokk á Spáni hrundi í gær. Þá fórst einn maður þegar eldur kom í gistiheimili í Pét- ursborg. Hluti hússins hrundi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.