Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2002, Side 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 2002
DV
Fréttir
DV kannar viðhorf kjósenda til hvalveiða:
Þeim fjölgar sem
vilja hvalveiðar
- 86,4 prósent vilja veiðar að nýju
Hátt í 9 af hverjum 10 kjósendum
vilja að hvalveiðar verði hafnar að
nýju. Kjósendur á landsbygðinni eru
ákveðnari í afstöðu sinni en einungis
5 prósent þeirra eru óákveðin eða
svara ekki spumingunni á móti 16
prósentum kjósenda á höfuðborgar-
svæðinu. Þetta eru helstu niðurstöður
skoðanakönnunar DV sem gerð var
sunnudaginn 2. júní.
Úrtakið í könnuninni var 600
manns, jafnt skipt á milli höfuðborg-
arsvæðis og landsbyggðar sem og
kynja. Spurt var: Ertu fylgjandi eða
andvíg(ur) því að hvalveiðar verði
teknar upp að nýju?
Af öllu úrtakinu sögðust 77,3 pró-
sent vera fylgjandi því að hvalveiðar
yrðu hafnar á ný, 12,2 prósent sögðust
andvíg, 8,8 prósent voru óákveðin og
1,7 prósent neituðu að svara spuming-
unni. Afstöðu tóku því 89,5 prósent.
Ef einungis er litið til þeirra sem af-
stöðu tóku sögðust 86,4 prósent fylgj-
andi því að hvalveiðar yrðu hafnar á
ný en 13,6 prósent andvíg.
Fleiri fylgjandi en 1997
Stuðningur við hvalveiðar
mælist meiri en í sambærilegri
skoðanakönnun sem DV gerði í
mars 1997 eða fyrir rúmum 5
árum. Þá sögðust 83 prósent vera
fylgjandi því að hvalveiðar hæfust
á ný en 17 prósent á móti. Óá-
kveðnir og þeir sem ekki svöruðu
voru þá 13 prósent, 2,5 prósentu-
stigum fleiri en nú.
Meiri stuðningur úti á landi
Þegar niðurstöðurnar eru greind-
ar eftir búsetu og aðeins horft til
þeirra sem afstöðu tóku kemur í
ljós að ekki er marktækur munur á
afstöðu til hvalveiða. Hins vegar
eru mun fleiri óákveðnir eða svara
ekki á höfuðborgarsvæðinu, 16 pró-
sent á móti 5 prósentum á lands-
bygðinni. Þegar afstaða alls úrtaks-
ins er skoðuð eru 72 prósent kjós-
enda á höfuðborgarsvæðinu fylgj-
andi því að hvalveiðar verði hafnar
að nýju, 12 prósent á móti en 16 pró-
sent óákveðin eða svara ekki. Á
landsbyggðinni eru hins vegar 82,7
prósent fylgjandi, 12,3 prósent á
móti og einungis 5 prósent sem eru
óákveðin eða svara ekki.
Ekki er marktækur munur milli
kynjanna nema stuðningur við
veiðar er meiri meðal karlmanna
en kvenna. Skýrist það af því að að-
eins 6 prósent karla eru óákveðin
eða svara ekki á móti 15 prósentum
kvenna.
í könnun DV í mars 1997 var stuðn-
ingur við hvalveiðar einnig meiri úti
á landi. Þá voru hins vegar tvöfalt
fleiri á landsbyggðinni sem voru
óákveðnir eða svöruðu ekki. Þar eru
kjósendur nú ákveðnari i afstöðu
sinni, hvalveiðum í hag. -hlh
Fannst heill á húfi
Maður, sem björgunarsveitir leituðu
að á Álftaversafrétti í Skaftafellssýslu í
gær, fannst heill á húfi. Björgunarsveit-
ir frá Vík, Kirkjubæjarklaustri, Álfta-
veri og Skaftártungu leituðu mannsins
auk þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Ekki skoðanakúgun
Þorsteinn Már Baldvinsson, fram-
kvæmdastjóri Sam-
heija, vísar því á bug
að fyrirtækið hafi
beitt þrýstingi í þeim
tilgangi að Ámi
Steinar Jóhannsson,
þingmaður VG, flytti
ekki ræðu i hátíðar-
höldum vegna sjó-
mannadagsins á Akureyri. Valgerður
Sverrisdóttir iðnaðarráðherra flutti
ræðuna í í stað Áma. mbl.is sagði frá.
Skipaður skólameistari
Halldór Páll Halldórsson hefur verið
skipaður í embætti skólameistara
Menntaskólans á Laugarvatni til flmm
ára, frá 1. september á þessu ári. Hall-
dór hefur gegnt stöðu skólameistara að
Laugarvatni síðastliðið ár í fjarveru
Kristins Kristmundssonar sem fengið
hefur lausn frá embætti að eigin ósk.
Aukiö fylgi við ríkisstjórn
Rikisstjómin eykur lítillega fylgi sitt
samkvæmt nýrri könnun Gailups. Alls
sögðust 59% aðspurðra styðja ríkis-
stjómina samanborið við 57% í sam-
bærilegri könnun frá þvi í apríl.
Lést af völd-
um áverka
Magnús Freyr
Sveinbjörnsson.
Ungi maðurinn sem varð fyr-
ir fólskulegri líkamsárás í Hafn-
arstræti þann 25. maí síðastlið-
inn lést af
völdum
áverka sinna
á gjörgæslu-
deild Land-
spítalans á
sunnudags-
morgun.
Hinn látni
hét Magnús
Freyr Svein-
björnsson, til
heimilis að Sundstræti 34 á ísa-
firði. Magnús Freyr var fæddur
3. mars 1980.
Tveir menn hafa játað að hafa
ráðist á Magnús Frey að morgni
laugardagsins 25. maí. Magnús
Freyr hlaut alvarlega höfuð-
áverka í árásinni og komst aldrei
til meðvitundar. Gæsluvarðhald
yfir mönnunum tveimur rennur
út eftir hádegi í dag. Verði þeir
ákærðir fyrir manndráp geta þeir
átt yfir höfði sér allt að sextán
ára fangelsi. -aþ
DV-WYND GVA
Sest á milli sekta
Blessaðir stöðumælaverðirnir þurfa að hvíla sig eins og aörir vegfarendur, en það varir stutt, enda tíminn peningar.
Náttúruvernd ríkisins:
Leggst gegn Norðlingaölduveitu
- enn mikilvægara eftir Kárahnjúka að vernda svæðið að mati NR
Náttúruvemd ríkisins leggst ein-
dregið gegn því að virkjað verði við
Norðlingaöldu sunnan Hofsjökuls í
Þjórsárverum. Skipulagsstofnun
óskaði í lok apríl sl. eftir umsögn
NR um mat á umhverfisáhrifum
veitunnar og er niðurstaða NR sam-
hliða ályktun Þjórsárveranefndar.
Búið sé að raska verum austan
Þjórsár og með framkvæmdum við
Norðlingaöldu mundi náttúruvernd-
argildi Þjórsárvera rýma óhæfilega.
Náttúruvemd ríkisins og áður
Náttúruvemdarráð hefur fallist á
allar virkjanir og lón í Þjórsá og
Tungná sem hafa farið i mat á um-
hverfisáhrifum. Má þar nefna Sult-
artangavirkjun, Búðarhálsvirkjun,
Vatnsfellsvirkjun og Há-
göngumiðlun. Einnig sam-
þykkti Náttúruverndarráð
1.-5. áfanga Kvíslaveitna en
NR telur að nýting á efri
hluta Þjórsár, sem hafi í fór
með sér frekari skeröingu á
Þjórsárverum, sé ekki
ásættanleg.
í greinargerð með um-
sögn NR segir m.a. að Nátt-
úruvernd ríkisins hafni hugleiðing-
um um að Norðlingaöldulón sé mót-
vægisaðgerð vegna gróðurhúsa-
áhrifa. Breytingar á gróðurfari og
grunnvatni verði verulegar. Rann-
sóknir á vistfræðilegri þýðingu
smádýralífs vanti og lítið þurfi út af
að bregða til að heiðagæsa-
stofninn gæti rýmað um
allt að 50% á 20 árum ef
virkjað verður. Þá hafi
Norðlingaölduveita fyrst og
fremst neikvæð áhrif á
ferðamennsku.
Landsvirkjun á öðru
máli
Lokaniðurstaða fram-
kvæmdaraðila var hins vegar sú að
Landsvirkjun taldi matsskýrsluna
sýna að framkvæmd kæmi ekki til
með að hafa umtalsverð neikvæö
áhrif á umhverfið og að nýting og
vemdun Þjórsárvera gæti farið
samEm. Þjórsárveranefnd hafnar því
alfarið og segir: „Þjórsárver eru í
hópi örfárra svæða á landinu öllu
sem hafa sérstaklega mikla líffræði-
lega fjölbreytni sem er óvenju mik-
ilvægt þegar litið er til hversu stórt
svæðið er og búsvæði þess fjöl-
breytt. Svæðið er því óvenju mikil-
vægt til viðhalds sterkum stofnum
af dýrum og plöntum.
Það er ekkert sem bendir til þess
að í framtíðinni muni finnast ný
svæði sem hafi að geyma svipuð
náttúruverðmæti þó hægt sé að tína
saman fundarstaði einstakra teg-
unda. Verðmæti Þjórsárvera hafa
margfaldast eftir að Kárahnjúka-
virkjun var leyfð.“ -BÞ
Árni Bragason.
Lyfjalisti á rangan stað
Landlæknisemb-
ættið lítur það alvar-
legum augum að
starfsmaður eins apó-
teka Lyfju skuli hafa
sent lyfjalista læknis
með faxi en ekki
tókst betur til en svo
að listinn fór á vit-
laust númer. í stað þess að berast Ljfja-
stofriun hafiiaði listinn hjá ónefndu fyr-
irtæki. Læknirinn mun sæta rannsókn
embættisins. Haukur Valdimarsson að-
stoðarlandlæknir segir í samtali við
mbl.is vmnubrögð sem þessi ekki góð,
lyfjalista eigi að senda með ábyrgðar-
pósti en ekki í faxi.
Gæsluvarðhald framlengt
Maðurinn sem grunaður er um aðild
að hvarfi Valgeirs Víðissonar hefur
verið úrskurðaður í áframhaldandi
gæsluvarðhald eða til næstkomandi
fóstudags. Hann hefúr ekki í hyggju að
kæra úrskurðinn til Hæstaréttar.
Slasaöist í bílveltu
Bíll valt á veginum um Miðnesheiði
um fimmleytið í morgun. Ökumaður,
sem var einn i bílnum, slasaðist á öxl
og var fluttur með sjúkrabifreið á
Heilsugæsluna í Reykjanesbæ. TOdrög
slyssins eru að sögn lögreglu ókunn.
Minni búferlaflutningar
Búferlaflutningar af landsbyggðinni
til höfuðborgarinnar hafa dregist sam-
an en flutningar innanlands af höfuð-
borgarsvæðinu hafa haldist stöðugir.
Þetta kemur fram í Hagvísum Þjóð-
hagsstofiiunar en samkvæmt þeim
gæti farið svo að flutningar af lands-
byggðinni verði minni í ár en verið hef-
ur um langt árabil. -aþ/vig
Lögmaður Fréttablaðsins
í umfjöllun DV í gær um gjald-
þrot ísafoldarprent-
smiðju og Frjálsrar
fjölmiðlunar var
ranglega hermt að
Helgi Jóhannesson
væri lögmaður
Frjálsrar fjölmiðl-
unar. Hið rétta er
að hann er lögmað-
ur Fréttablaðsins. Eru hlutaðeig-
endur beðnir velvirðingar á mistök-
unum. -JSS
%