Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2002, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2002, Side 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 2002 Fréttir JOV Hallur Helgason, stjórnarformaður Leikfélags íslands: Viö steyttum á skerjum - lína úr menntamálaráðuneyti að selja hljóðverið, segir stjórnarformaðurinn Tjaldiö falliö Starfsemi Leikfélags ísiands er hætt og félagiö komiö í þrot. Hiuthafar þurfa aö axla þungar þyröar. „Meirihluti stjórnar sam- þykkti að selja hljóðverið. Við Stefán Hjörleifs- son sátum hjá þar sem við til- heyrðum hvor sínum hópnum sem voru að bjóða í eignina. Fyrir þessa eign fékkst hæsta mögu- lega verð,“ segir Hallur Helgason, stjómarformaður Leikfélags ís- lands, sem nú er komið í gjaldþrot. Meðal þess sem gagnrýnt hefur verið er sala félagsins á fullkomnu hljóðveri sem var í eigu Spaugstofu- manna og fleiri en var langverð- mætasta eignin sem kom inn í sam- einað leikfélag fyrir tveimur árum þegar Hljóðsetning ehf. rann inn í sameininguna. Þegar hljóðverið var selt nýverið til Lótus-hljóðsetningar voru aðilar gamla félagsins ósáttir og könnuðu leiðir til riftunar án þess þó að að- hafast. Nú er horft til þess hvort sal- an á hljóðverinu fyrir rúmar 40 milljónir króna sé lögleg í ljósi hagsmuna þrotabúsins. Hallur segir að ástæður þess að gengið hafi verið til sölu á hljóðver- inu hafi verið meðal annars þær að menntamálaráðuneytið hafi talið að meðan hljóðverið væri hluti af rekstrinum gæti ráðuneytið ekki fallist á að leikfélagið fengi styrk frá ríkinu. „Okkur var nauðsynlegt að gera þríhliða samning um styrk við ríki og borg til að standast samkeppni. Við fengum línu frá menntamála- ráðuneytinu um að þessi hluti rekstrarins kynni að vera á sam- keppnismarkaði og því ekki styrk- hæfur. Þess vegna gripum við til þessa ráðs og stjórnarmenn voru sammála,“ segir Hallur. Hann segir nokkrar meginástæður hafa orðið til þess að félagið lenti í gjaldþroti. í fyrsta lagi hafi hlutafjár- markaðurinn brugðist. Þá hafi ekki tekist að gera umræddan þríhliða samning. Þá hafi einnig brugðist af framangreindum ástæðum að gera stuðningsamninga við fyrirtæki. „Örlagavefurinn spannst um Leikfélagið og því fór illa. Við þurft- um á því að halda að fá styrki frá ríki og borg þar sem slíkt hefði orð- iö rekstrinum ákveðið öryggisnet. I Hafnarfirði er rekið leikhúsið Her- móður og Háðvör sem fær sam- kvæmt samningi á þriðja tug millj- óna króna árlega. Þeir peningar hefðu dugað okkur fyrir grunnþátt- um í rekstrinum en náðust ekki. Stóru leikhúsin fá niðurgreiðslur á hverjum miða sem nema frá tveim- ur og upp i 13 þúsund krónum á meðan við fengum frá 30 til 215 krónur á miða. Þegar forráðamenn Borgarleikhússins og Þjóðleikhúss- ins sáu hvar okkur gekk best hófu þeir sókn inn á það svið og yfirbuðu hráefni og niðurgreiddu aðgöngu- miða. Gjaldþrot Leikfélagsins er áfall fyrir leikhúsgesti, skattborgara og greinina í heild,“ segir hann. Meöal þess sem er ógreitt hjá stjómendum Leikfélags Islands eru vörslugjöld að upphæð um 14 millj- ónir króna. Það varðar við lög að greiða ekki vörslugjöld og stjórn ásamt framkvæmdastjóra bera þar fulla ábyrgð. Hallur segir að vissu- lega sé þetta áhyggjuefni fyrir hann sem stjómarformann. „Þetta er slæmt en ég mun ekki víkja mér undan ábyrgð. Þarna er um að ræða áætlanir og ekki víst að talan sé þetta há. Við erum að láta skoða hver raunveruleg skuld er,“ segir Hallur. Fjöldi hluthafa Leikfélagsins er í persónulegum ábyrgðum vegna rekstrarins. Samkvæmt heimild- um DV eru dæmi um að einstak- lingar þurfi að selja íbúð eða bíla til að losa um fé svo þeir geti stað- ið við Skuldbindingar. Allt að 18 hluthafar hafa með þessum hætti þurft að axla byrðar auk þess að yflr stjórnarmönnum vofa ógreidd vörslugjöld. Hallur staðfestir að margir þurfi að taka á sig skell en vill ekki ræða það nánar. „Við steyttum harkalega á skerj- um og verðum nú að borga," segir hann. -rt Hallur Helgason. Ný herbergjaálma tekin í notkun við Hótel Selfoss: Verður fullbúið eitt full- komnasta hótel landsins Ný 100 herbergja álma við Hótel Selfoss var vígð á laugardag. Aðeins hefur tekið eitt ár að reisa bygging- una sem nú er komin i gagnið. Hótel Selfoss var búið að vera lengi í rekstri en fá herbergi stóðu því fyrir þrifum i Hótel Selfoss. að verða öflugt hótel með fjölbreyttri afþreyingu. Nú hefur verið stigið stórt skref í að gera hótelið eitt fullkomn- asta og best búna hótel landsins. I því eru 100 herbergi og fundar- og veit- ingasalir. Eftir er að klára viðbygginguna þar sem verða veitingasalir. Þá er i hótel- inu stór salur en um hann var nýlega stofnað félag í þeim tilgangi að klára hann. Þá er gert ráð fyrir bíósölum í húsinu. Eignarhaldsfélagið Brú sá um fram- kvæmdir við hótelið, en á laugardag tók KÁ formlega við lyklunum að hús- inu. KÁ mun reka hótelið undir merkjum Icelandair Hotels. -NH Frá vígslu hótelsins Karl Björnsson og Drífa Hjartardóttir kliþþa á boröa og opna meö því formlega gistiálmu nýja hótelsins. Ný verslanakeðja í burðarliðnum hérlendis: Stefnt aö opnun „Europrice" á næstunni - mun keppa við aðrar lágvöruverðsverslanir Niðurlagning Parísarstofu: Veikir ekki markaðinn Niðurlagning skrifstofu Ferða- málaráðs í Frakk- landi og flutningur hennar til Þýska- lands þýðir ekki að fjámunir til mark- aðsverkefna í Frakklandi muni dragast saman, að sögn Magnúsar Oddssonar ferða- málastjðra. „Rétt er að minna á að Mark- aðsráðið ákvað á sínum tíma að leggja áherslu á norðaustursvæði íslands og hef- ur m.a. fjármagnað heimsóknir fjölmiðla- fólks og ferðaskrifstofuaðila frá Frakk- landi og fleiri löndum, ekki síst utan há- annar til þessa svæðis á síðustu árum,“ segir Magnús. DV greindi frá því að Atvinnuþróunar- félag Eyjaflarðar teldi miöur að loka ætti skrifstofunni í Frakklandi enda góður og vaxandi markaður ferðamanna þaöan til landsins. Magnús segir að þeim markaði verði áfram sinnt af krafti. -BÞ Verið er að undirbúa stofnun nýrrar verslanakeðju á lágvöru- verðsmarkaði hér á landi. Sam- kvæmt heimildum DV mun þar vera um keðju í tengslum við er- lendu verslanakeðjuna Europrice að ræða. Mun ætlunin að koma fyrstu versluninni í gang á næstu vikum. Sömu heimildir herma að náin tengsl séu einnig við norskan anga keðjunnar sem mun vera í helming- seigu Terje Höili A.S. í Friðriksstað. Hafa Lárus Guðmundsson og Ottó Guðmundson í Bein kaup og sala verið nefndir meðal helstu aðstand- enda Europrice á íslandi. Auk þeirra hefur verið nefndur til sög- unnar Matthías Sigurðsson, fyrrver- andi framkvæmdastjóri Nóatúns. Matthías sagði í samtali við DV í gær að hann vildi á þessu stigi ekki staðfesta hvort verslanir yrðu settar upp hér á landi undir nafni Europrice eða einhverju öðru. Þar væri þó um að ræða aðila sem væru vel samkeppnisfærir á lágvöruverðsmarkaði. „Hugmyndin er að setja upp verslanakeðju með allt að fjórum verslunum á Reykjavíkursvæðinu. Þetta yrðu lágvöruverðsverslanir I sérvöru og matvöru." Segir Matthi- as að hér sé um nýja samsetningu á verslun að ræða sem sé ekki stefnt gegn neinum einstökum aðila á ís- lenskum markaði. „Það verður þó vel samkeppnis- hæft við það verð sem þekkist á markaði hér i dag.“ Matthias vildi ekki tjá sig frekar um hverjir aðrir stæðu þama að baki en sagði þó að þar væri um að ræða nokkra at- hafnamenn í samvinnu við erlend- an aðila. Samkvæmt heimildum DV er nú m.a. rætt um verslun í húsnæði Eyktar hf. á Lynghálsi. Vildi Matt- hías hvorki játa því né neita að þetta húsnæði væri inni í mynd- inni. Hann sagöi þó að verið væri að ræða við fleiri en einn aðila varðandi hugsanlegt verslunarhús- næði og það skýrðist á næstu dög- um. -HKr. Magnús Oddsson. Listahátíð: Veltan aldrei verið meiri Heildarvelta nýafstaðinnar listahá- tíðar er sem nemur um 120 milljónum króna. Þar af eru um 50 milljónir frá ríki og borg og aðrar tekjur, þar sem innifalið er m.a. miðasala, fé frá sam- starfsaðiium og fleira, eru um 70 millj- ónir. í fyrra var heildarveltan heldur minni, eða um 90 milljónir, og árið 1998 var veltan 60 milljónir. Heildar- velta listahátíðar hefur því tvöfaldast á 4 árum. Að sögn Þórunnar Sigurðardóttur, listræns stjómanda listahátíðarinnar, stóðst kostnaðurinn nokkum veginn allar áætlanir. „Af heildarveltu eru eigin tekjur um 50% sem er mjög gott ef miðað er við svipaðar hátiðir er- lendis. Miðasala er yfír áætlun og var hærri nú en nokkru sinni áður, þrátt fyrir að ýmsir atburðir hafl verið ókeypis, og það er ljóst að vel hefur verið haldið um hlutina íjárhagslega séð.“ -vig Bíóborgin: Starfsemi hætt Sambióin, Snorrabraut, sem áður hétu Austurbæjarbíó, verða líklega seld fyrir næstu mánaðamót og starfsmönnum þeirra sagt upp. Bjöm Alfreðsson, framkvæmda- stjóri Sambíóanna, segir að ef af söl- unni verði muni starfsmönnum Sambíóanna, Snorrabraut, öllum 20, þó boðin vinna í öðrum bíóum Sam- bíóanna. Hugsanlegir kaupendur eru að húsinu en ekki fékkst gefið upp hverjir þeir séu, hvað verði í hús- inu eða hversu mikið fáist fyrir það. Sambíóin reka Sambíóin Akur- eyri, Sambíóin Keflavík, Sambióin Álfabakka, Sambíóin Kringlunni og Sambíóin Snorrabraut. -ss Heimilistæki : Öllu starfsfólki sagt upp Öllu starfsfólki Heimilistækja, 29 manns, hefur verið sagt upp störf- um, en eins og kunnugt er reka Heimilistæki einnig raftækjaversl- animar Euronics. Gunnlaugur Sæv- ar Gunnlaugsson, nýr stjómarfor- maður Esjubergs, sem er móðurfé- lag Heimilistækja, segir að til standi að endurskipuleggja reksturinn og því hafl uppsagnimar verið nauð- synlegar. „Framhaldið mun síðar skýrast á næstu dögum en ég vil ekki tjá mig neitt frekar um það mál,“ sagði Gunnlaugur Sævar í gærkvöldi. -ÓSB Líkamsárás eftir bílaþvott Líkamsárás var kærð á Húsavík um helgina. Nokkrir ungir menn voru komnir saman á bíla- þvottaplani við söluskála Shell að- faranótt laugardagsins en þvottur- inn gekk ekki fyrir sig sem skyldi. Einhverjir vatnsdropar munu hafa sprautast yfir menn sem tóku því illa og gengu fjórir í skrokk á einum með þeim afleiðingum að hann lemstraðist nokkuð og braut í sér tönn. Að sögn lögreglunnar á Húsa- vík voru flestir ungu mannanna á bilinu 17-19 ára og er talið að Bakkus hafi komið við sögu. -BÞ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.