Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2002, Qupperneq 13
13
ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 2002_________________________________________________________________________________________________
DV____________________________Útlönd
CIA vissi af tveimur flugræningjanna löngu fyrir árásirnar 11. september:
Liðsmenn al-Qaeda töl-
uðu um árásir á dulmáli
REUTERSMYND
Viö lok hreinsunarstarfsins
Síðasti stálbitinn úr World Trade Center sem uppi stóð eftir árásirnar í fyrra
var fluttur á brott fyrir helgi, sveipaður bandaríska fánanum. Þar með var lok-
ið hreinsunarstarfinu eftir hryðjuverkaárásirnar 11. september síðastliðinn.
REUTERSMYND
Dansaö fyrir drottninguna
Maður klæddur að hætti lífvarðasveitar Englandsdrottningar dansar við nágrannakonu sína í götuveislu í austurhluta
Lundúna í gær. Veislan var haldin til að minnast 50 ára krýningarafmælis Elísabetar drottningar.
Alþjóðasamfélagið hefur
brugðist Afgönum
Starfsmenn bandarlsku leyni-
þjónustimnar heyrðu samskipti
liðsmanna hryðjuverkasamtakanna
al-Qaeda þar sem þeir ræddu um
stórfellda árás áður en til árásanna
á New York og Washington kom
þann 11. september síðastliðinn. Að
sögn bandaríska dagblaðsins USA
Today í morgun kom þó hvergi
fram, hvorki í þeim samræðum né í
skýrslum leyniþjónustumanna,
hvar og hvenær árás yrði gerð.
Blaðið haíði eftir ónafngreindum
embættismönnum að upplýsingar
þessar sé að finna meðal þeirra 350
þúsund blaðsíðna sem leyniþjónust-
an CLA afhenti þinginu vegna rann-
sóknar þess á því hvort viðvaranir
um árásimar hafi farið fram hjá
mönnum.
Meðal visbendinganna eru sam-
ræður al-Qaeda-manna á dulmáli
frá 10. september um stórárás þar
sem meðal annars á að hafa komið
fram að næsti dagur yrði merkur.
Yfirheyrslur í Bandaríkjaþingi
m
Jean-Marie Le Pen
Franski stjórnmálaleiðtoginn neitar
að hafa tekið þátt í pyntingum í
frelsisstríði Alsírbúa gegn Frökkum.
Le Pen sakaður
um pyntingar
Franska dagblaðið Le Monde birti
í gær staðhæfingar um að
hægriöfgamaðurinn Jean-Marie Le
Pen, leiðtogi Þjóðfylkingarinnar,
hefði pyntað alsírska fanga í al-
sirska frelsisstríðinu gegn franska
hemum. Le Pen vísaði ásökununum
á bug og sagðist aldrei hafa verið
þar sem pyntingarnar eru sagðar
hafa farið fram.
Ásakanimar í Le Monde komu
fram aðeins sex dögum fyrir fyrri
umferð þingkosninganna þar sem
flokkur Le Pens býður fram. Le Pen
kom löndum sinum í opna skjöldu
þegar hann komst í síðari umferð
forsetakosninganna í síðasta mán-
uði og keppti við Chirac forseta.
Le Pen gegndi herþjónustu í Alsir
á 6. áratugnum og hann er sakaður
um að hafa tekið þátt í pyntingum á
liðsmönnum alsírsku þjóðfrelsis-
fylkingarinnar.
Samráð haft við
Grænlendingana
Svend Aage Jensby, landvama-
ráðherra Danmerkur, vísar á bug að
hann hafi fyrir fram gefið samþykki
sitt fyrir því að herstöðin í Thule á
Grænlandi verði hluti af eldflauga-
vamakerfi Bandarikjamanna.
Á fundi í danska þinginu í gær
sagði Jensby að fyrst þyrfti að ber-
ast erindi þar um frá Bandaríkja-
mönnum og síðan yrði að heyra í
Grænlendingum sjálfum.
Anders Fogh Rasmussen forsætis-
ráðherra lofaði við sama tækifæri
að Grænlendingar yrðu hafðir með í
ráðum þegar fjallað verður um ut-
anrikis- og vamarmál sem snerta
Grænland.
Landvamaráðherrann sagði það
misskilning ef Grænlendingar teldu
að um stefnubreytingu væri að
ræða hjá stjóm Venstre og íhalds-
flokksins.
Talsmenn Sameinuðu þjóðanna
segja loforð alþjóðasamfélagsins um
hundruð milljóna dollara styrki til
uppbyggingar í Afganistan hafa
brugðist og segir Nigel Fisher, sendi-
fúlltrúi SÞ í Afganistan, að stjómvöld
i landinu hafi aðeins fengið greiddar
um 45 milljónir dollara frá sérstökum
uppbyggingarsjóði Alþjóðabankans, af
þeim 400 milljónum sem áætlað var aö
þyrfti til að reka ríkissjóð.
Afgönum hafði verið lofað 4,5 millj-
arða dollara styrk tii uppbyggingar-
starfsins í landinu frá alþjóðasamfé-
laginu á ráðstefnunni sem haldin var
í Tokyo í Japan í janúar sl., eftir að
talibanastjómin hafði verið hrakin
frá völdum í landinu og höföu Sam-
einuðu þjóðfrnar farið ffarn á að 1,8
milljarðar bærust til verkefnisins á
tímabilinu október 2001 til desember
2002.
Þörfin fyrir hjálp er mikil.
„Enn höfum við aðeins fengið
greiddar 870 milljónir dollara og þar
af 526 milljónir strax eftir ráðstefnuna
í Tokyo. Það vantar því mikið á að
staðið sé við gefin loforð og það veld-
vegna atburða þessara hefjast í dag.
Sjónir manna hafa síðustu daga
beinst að CIA eftir að tímaritið
Newsweek upplýsti á sunnudag að
CIA hefði vitað af því löngu áður að
tveir flugræningjanna sem tóku þátt
í árásunum í september væru
komnir til Bandaríkjanna. Að sögn
Newsweek vissu starfsmenn CIA
um tengsl tvímenninganna, Khalids
Almidhars og Nawafs Alhazmis, við
al-Qaeda, samtök Osama bin
Ladens. Tímaritið sagði að CIA
hefði ekki greint alríkislögreglunni
FBI frá vitneskju sinni.
CIA sagði aftur á móti í gær að
FBI hefði verið látin vita af Almidh-
ar í janúar árið 2000.
Ekki er vitað hvað gert var við
upplýsingarnar um Alhazmi.
Mennimir tveir voru í flugvélinni
sem var flogið á Pentagon, höfuð-
stöðvar landvamaráðuneytisins.
Talsmaður FBI vildi ekkert tjá sig
um málið þegar fréttamaður
Reuters leitaði eftir því í gær.
ur miklum vonbrigðum og efasemd-
um að nægilegt fjármagn muni
nokkum tíma berast,“ sagði Fisher.
Aðspurður hvort SÞ hafi vanmetið
fjárþörfina sagði hann að svo væri
ekki. „Þetta er fyrst og fremst spum-
ing um að standa við gefin loforð. Það
sem farið var fram á mun samt aldrei
duga til að bæta allt það tjón sem
stanslaus 23ja ára stríð hafa valdið
þjóðinni," sagði Fisher og bætti við aö
alþjóðlegar hjálparstofnanir, sem þeg-
ar hefðu hjálpað um 250 þúsund flótta-
mönnum aftur heim til Afganistans,
hefðu stöðvað alla fólksflutninga um
helgina vegna fjárskorts. Matvælaað-
stoð SÞ hefur séð um að fæða og
klæða níu milljónir Afgana. „Hjá
þeim em birgðir á þrotum þannig að
ástandið á eftir að versna á næstu
dögum ef ekkert verður að gert,“
sagði Fisher.
Eduardo Duhalde
Eduardo Duhalde, forseti Argentínu,
fékk kaldar kveðjur frá starfsbróður
sínum í Úrúgvæ.
Kallaði nágranna
sína ræningjalýö
Jorge Batlle, forseti Úrúgvæ, hefur
valdið miklu pólitísku uppnámi í sam-
skiptum Úrúgvæ og nágrannanna í
Argentínu, með þvi að lýsa þeim sem
versta ræningjalýð. Þetta kom fram í
nýlegu viðtali sem útvarpað var víða
um Argentínu, en þar sagði Batlle
einnig að starfsbróðir hans í Argent-
ínu, Eduardo Duhalde forseti, hefði
engin pólitísk völd og enga hugmynd
um það hvemig hann ætti að stjórna
landinu. Duhalde var að vonum
óhress með þessi ummæli Batlles og
hafa þeir nú ákveðið að hittast á fundi
í dag til að ræða málið, eftir að hafa
rætt saman í síma í gær. Að sögn
talsmanna stjómvalda í Argentínu
mun Batlles hafa beðist afsökunar á
ummælum sínum sem hafi fallið í
hita leiksins, en Úrúgvæar hafa mátt
þola miklar þrengingar vegna efna-
hagsástandisns í Argentínu.
Skotárás á
skólabíl í Taílandi
Að sögn yfirvalda í Taílandi lét-
ust tvö böm og að minnsta kosti
fimmtán særðust þegar þrír byssu-
menn hófu í morgun skotárás á
skólabíl í Ratchaburi-héraði, um 100
kílómetra vestur af höfuðborginni
Bangkok, við landamæri Burma.
Um tuttugu böm voru í bifreiðinni
sem voru á leið til Ban Kha Witt-
haya-miðskólans í héraðinu, þegar
byssumennimir hófu fyrirvaralaust
skothríð. Ekki er vitað um ástæðu
árásarinnar, en grunur leikur á að
byssumennimir séu liðsmenn Kar-
ens-skæruliða sem berjast fyrir
sjálfstæði frá Burma, en þeir hafa
haldið uppi skærum í héraðinu að
undanförnu.
REUTERSMYND
Ólga og átök í Belfast
Lögreglan hefur mikinn viðbúnað í
austurhluta Belfast vegna átaka
milli kaþólskra og mótmælenda.
Tveir urðu fyrir
skotum í Belfast
Tveir menn hlutu skotsár og allt
að því eitt þúsund manns slógust á
götum úti í austurhluta Belfast í
gærkvöld, fjórða kvöldið í röð.
Lögreglustjórinn á Norður-ír-
landi hafði fyrr um daginn varað
við því að héraðið væri eins og
„svefngengill á leið fram af
hengifluginu".
Átökin milli kaþólskra og mót-
mælenda undanfarna daga hafa
einkum verið i Short Strand-hverf-
inu, þar sem kaþólikkar búa um-
kringdir mótmælendum.
Mennimir sem urðu fyrir skotum
eru á þrítugsaldri. Aö sögn lögregl-
unnar fékk annar skot í brjóstið en
hinn í fótinn. Þrír menn urðu fyrir
skotsárum á sunnudag en meiðsl
þeirra voru ekki talin alvarleg.