Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2002, Qupperneq 14
14
ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 2002
Skoðun DV
Hvernig líst þér á nýjan
meirihluta D- og B-lista?
(Spurt á Akureyrí):
Þorstelnn Guðbjörnsson
þjónustustjóri:
Mér líst djöfullega á hann. Ég vil
enga framsóknarmenn í stjórn
þessa bæjar.
Ekki nógu vel. Ég heföi kosiO aOra
samsetningu.
Aðalsteinn Hreinsson bóndi:
„Mér líst þokkalega á hann. ViO
megum ekki dæma þá fyrir fram.
Slgríður Pálsdóttir verslunarstjóri:
Mér líst mjög vel á hann.
Margrét Sigurðardóttir
afgreiðsludama:
Bara alveg þokkalega. Ég vona aO
þau standi sig vel.
Eva BJörk Heiöarsdóttir neml:
Mér líst ágætlega á hann. Ég kaus
framsókn þannig aö ég er sátt.
Fyrir sig - ekki
S amfylkinguna
Gunnar Gunnarsson
skrifar:________________________
Margir setja eins konar samasem-
merki á milli R-listans og Samfylk-
ingarinnar. Líklega má rekja þetta
til þess að forystumenn Samfylking-
arinnar og R-listans eru venslaðir.
En R-listinn og Samfylkingin eru að
öðru leyti tvö aðskilin stjómmálaöfl
- þótt náskyld séu pólitískt. Án
máttarstólpans Ingibjargar Sólrún-
ar Gísladóttur væri R-listinn
einskis virði. Fylgismenn R-listans
bera því kvíðboga fyrir framvindu
mála eftir því sem nær dregur al-
þingiskosningum ef fara mun sem
horfir að kallað verði eftir liðsinni
Ingibjargar Sólrúnar við Samfylk-
inguna.
Og fylgismenn Samfylkingarinn-
ar búast við verulegu fylgishruni
berist henni ekki nýr liðstyrkur í
forystuna - raunar nýr formaður
sem er þess umkominn að stýra
flokki sem þá er einn og óstuddur
en ekki í skjóli annarra likt og í
borgarstjómarkosningunum.
Formaður Samfylkingarinnar
hefur ekki reynst sú pólitíska drif-
fjöður til að halda fylginu, hvað þá
auka það. Pólitískur forgrunnur
hans úr Alþýðubandalaginu og á rit-
stjórastóli Þjóðviljans þykir mörg-
um samfylkingarmönnum ekki
beysin undirstaða þegar höfða á til
almennra kjósenda nú - segja hann
vinna meira fyrir sig en flokkinn í
heild. Til alþingiskosninga gengur
Samfylkingin þvi verulega löskuð
með núverandi forystu. Það er því
eðlilegt að gægjast inn i raðir R-list-
ans og sjá hvort hann geti séð af ein-
Össur Skarphéðlnsson og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
- vensluö en ólíkir stjórnendur.
„Þar sem telja verður nokkuð
víst að Ingíbjörg Sólrún gefi
ekki kost á sér í þriðja sinn
til borgarstjóra í Reykjavfk
og Sjálfstœðisflokkur yfirtaki
borgina eftir fjögur ár má
litlu skipta fyrir Ingibjörgu
Sólrúnu hvort hún hverfur
frá borginni eftir eitt
ár eða fjögur. “
hverjum sem gagnast megi til for-
ystu Samfylkingarinnar. En þar er
engan að sjá nema 8. mann listans,
sjálfan borgarstjórann.
Þar sem telja verður nokkuð víst
að Ingibjörg Sólrún gefi ekki kost á
sér í þriðja sinn til borgarstjóra í
Reykjavík og Sjálfstæðisflokkur yf-
irtaki borgina eftir fjögur ár má
litlu skipta fyrir Ingibjörgu Sólrúnu
hvort hún hverfur frá borginni eftir
eitt ár eða fjögur. Því verður að telja
næsta öruggt að hún muni verða
við óskum um að bjarga Samfylk-
ingunni fyrir hom í komandi kosn-
ingabaráttu að ári. Auðvitað að því
tilskildu að hún verði í fyrsta sæti
sem formannsefni - og að fráfarandi
formaður geti horfið að góðu og
tryggu embætti (ríkistryggðu að
sjálfsögðu).
Það fer því hver að verða síðastur
í borgarstjómarflokki R-listans til
aö fmna sér nýjan starfsvettvang
því eftir að Ingibjörg Sólrún hættir
sem oddamaður listans er þar ekki
einn maður eftir sem nýtur trausts
og virðingar fyrir störf sín að borg-
armálum. Raunar ekki í stjórnmál-
um yfírleitt.
Verður Hringbrautin flutt?
Egill
skrífar:
Hringbrautin á að fara niður fyrir
Umferðarmiðstöðina samkvæmt nýju
skipulagi. Heyrst hafði að byrja hefði
átt á verkinu á síðasta ári, en ekkert
varð af flutningnum. Nú era bifreiða-
stæði á Landspítalalóðinni, við Fæð-
ingardeild og Bamaspítala yfirfull og
gatan sjálf orðin flöskuháls á anna-
tímum. Það er mál margra sem til
þekkja, ekki síst fagmanna í flug-
rekstrinum í Vatnsmýrinni, að verði
Hringbrautin flutt niður í mýrina sé
úti um allt flug frá þeim stað þar sem
nú er Reykjavíkurflugvöllur, nema
austur-vesturbrautin verði notuð sem
aðalbraut um ókomna tíð. Það þykir
þó þeim sem til þekkja ekki líklegt.
Margir vilja meina að af þessari
framkvæmd muni aldrei verða af
„Margir vilja meina að af
þessari framkvœmd muni
aldrei verða af ótta við að
þá verði flugvöllurinn ekki
lengur sá flugvöllur sem
hann á að vera og öryggis-
þœttir standist ekki lengur
alþjóðlegan mœlikvarða. “
ótta við að þá verði flugvöllurinn
ekki lengur sá flugvöllur sem hann á
að vera og öryggisþættir standist
ekki lengur alþjóðlegan mælikvarða.
Rekstraraðilar vilja hins vegar fá úr
því skorið hið fyrsta hver niðurstað-
an verður. Fróðlegt væri að fjölmiðl-
ar fæm ofan í saumana á þessu máli
og greindu frá hvort óttinn um
færslu Hringbrautarinnar á við rök
að styðjast.
Lesendasíða DV hafði samband við
skrifstofu Borgarverkfræðings. Þar
var upplýst að í raun væm þessar
framkvæmdir háðar því hve skipu-
lagsvinna gengi fljótt fyrir sig. Nýtt
Skipulagsráð tekur við eftir kosning-
arnar og eftir að það lýkur störfum
tekur við hönnunarþátturinn, þá út-
boð og aðrir skyldir þættir. Ekki em
því neinar líkur á því að verklegar
framkvæmdir hefjist á þessu ári,
hvað sem síðar verður. - Því er
kannski ekki fjarri lagi skoðun bréf-
ritara um að viss ótti (og þá pólitísk-
ur ótti) sé samfara flutningi Hring-
brautarinnar niður í Vatnsmýrina.
Allt skýrist það þó við „samanburð“
eins og annað.
Garri
Holdið selur
Garri hefur aldrei kosið Framsóknarflokkinn
en hlakkar nú mjög til að setja x við B í næstu
alþingiskosningum. Garri er hluti af þeirri fylg-
isaukningu flokksins sem mældist í síðustu
skoðanakönnun DV. Garri hafði nokkra áður
fengið upphringingu frá könnunarfyrirtæki þar
sem hann var spurður um stuðning viö stjóm-
málaflokka. „Ef það yrði kosið einmitt núna kysi
ég Framsókn," heyrði Garri sjálfan sig segja við
könnunarkonuna. Siðan lagði hann á - sat smá-
stund agndofa í símastólnum. Honum leið eins
og eftir tíma hjá vönduðum sálfræðingi sem
hefði bent honum á að æska hans væri í raun
handónýt og hann væri ekki svona heldur
hinsegin. Hvaðan kom þessi rödd sem svaraði
símakönnuninni?
Framsóknarballett
Garri las það í viðtali við Jörmund Inga alls-
herjargoöa að hann taldi að heiðnin hefði síast
inn í sig þegar amma hans hélt á honum og fór
með rímur fyrir hann og gamlan fróðleik.
Kannski átti Garri framsóknarformæður. Hann
spurðist fyrir hjá ættfræðibrjáluðum frænda sin-
um. „Nei, Garri minn,“ sagði frændinn. „Ætt þín
er öll annaðhvort helblátt íhald eða svarrauöir
kommúnistar." „Gæti þá ekki framsóknar-
mennskan verið einhver blanda af þessu
tvennu?“ spurði Garri. „Nei, því fer fjarri, góði
minn. Ekki frekar en blanda af stífkrampa og
parkinson er ballettdansari," svaraði frændi.
Hálfnakinn
Ætli Framsóknarflokkurinn hafi auglýst eitt-
hvað að undanförnu? hugsaði Garri með sér en
mundi ekki eftir neinni auglýsingu nema þeirri
er sýndi Alfreð Þorsteinsson í gallabuxum. Spes
gæi hann Alfreð. Engar aðrar auglýsingar komu
upp í hugann. Guðni Ágústsson hafði haldið sig
nokkuð til hlés að undanfómu og kannski hafði
það áhrif á framsókn Garra. Obbobobb hugsaði
hann með sér, hvar er svo Sif með vaffl? Hún
var nánast horfln úr umræðunni. Það var eigin-
lega bara Halldór sem hafði sést í fjölmiðlum. Já,
hann hafði sést, já, heldur betur hafði hann sést.
Og nánast allur hafði Halldór sést. Hann var nú
í Bláa lóninu með einhverju útlendingi, svo var
hann í sundi, svo var hann á þrekhjólinu fá-
klæddur og nú síðast lá hann nánast nakinn í
Dauðahafinu á forsíðu Moggans.
Hold selur, hugsaöi Garri, hold selur.
„Ég veit ekki hvað kom yfir hann,“ sagði ná-
inn vinur Halldórs Ásgrímssonar við Garra í
trúnaði. „Hann var ekki svona áður en hann
fékk selskinnsjakkann."
En holdið selur, hugsaði Garri, það er alveg
ábyggilegt að holdiö selur.
CyOurrl
Handtekni drengurinn
Magnús Sigur6sson skrifar:
Ekki er nú öll
vitleysan eins!
Drengur einn sem
sagður er hafa
verið sjálfboðaliði
á hættusvæðinu í
Mið-Austurlönd-
um og var hand-
tekinn er nú orð-
Brynjarssön 11111 aöalfrétt is-
sjálfboðaliði. lenskra flölmiöla.
- í umsjé utan- Og það sem meira
ríkisráöuneytis. er; öll utanríkis-
þjónustan er kom-
in í málið og útvegar lögfræðing til
að vinna aö þvi að drengurinn geti
dvalið áfram í miöri styijaldarhætt-
unni í Palestínu. Er ekki bara tími
til kominn að við íslendingar kom-
um sjálfir upp her, svo að við getum
gegnt bæði vömum fyrir okkar eig-
ið land og svo gripið inn í átök hjá
öðrum þjóðum? Hver greiðir þessi
sjálfboðaliðastörf erlendis? Erum
það við, skattborgaramir? Alla vega
er utanríkisþjónustan á fullu í þess-
um endemis- og fiarstæðukenndu
stríðsátökum ísraela og Palestínu.
Með sjómönnum sínum
Halldóra ðlafsdóttir hringdi:
Ég horfði á sjónvarpsfréttir frá
sjómannadeginum á Akureyri sl.
sunnudagskvöld. Þar greindi frétta-
maður frá helstu viðburðum dags-
ins eins og gengur. í lýsingu sinni
talaði hann um að þar nyrðra hefðu
menn komið saman með „sjómönn-
um sínum“. Þetta finnst mér skond-
ið orðatiltæki, svo ekki sé meira
sagt. Mér flnnst sjómenn, með sinn
sérstaka skattaafslátt umfram aðrar
launastéttir, ekki vera þeir vor-
menn íslands að við hin séum að
kalla þá „sjómennina okkar". Ekk-
ert frekar en við tækjum upp á því
að tala um forstjórana „okkar" eða
flugmennina „okkar", svo dæmi sé
tekið af handahófl. Sjómenn em
ekki lengur þær hetjur sem þeir
vom áður fyrr við illan aðbúnað og
bág kjör. Nú er öldin önnur, og við
erum einfaldlega „stétt með stétt“.
Þess vegna skulum við gjöra rétt og
)ola ei órétt í neinu formi.
Flugvél úti í mýri...
- og úti var ævintýri.
Línan eða flugvöllur
Elli hringdi:
Hvemig skyldi standa á því að
flugvöllur í einkaeign er útbúinn
svo skammt frá raflínum að hætta
kunni að myndast við umferð lítilla
flugvéla? Spyr sá sem ekki veit. Mér
flnnst einkennilegt ef flugvöllurinn
er svo skammt frá þessum línum
sem einkaflugvél flaug á. Spuming-
in hlýtur að snúast um það hvort
var sett upp á undan, flugvöllurinn
eða raflinumar. Hér er augljóslega
handvömm um að ræða, sem eftir á
að hyggja hlýtur að vera á ábyrgð
hins opinbera því leyfl hlýtur að
þurfa til að útbúa flugvöll fyrir al-
menna flugumferð og raflínur eru
jú á vegum hins opinbera.
Líkamsárásum linni
Miðborgarbúi skrifar:
Það verður ekki liöið lengur að
svona atburðir eins og þessar lík-
amsárásir og önnur illvirki sem
eiga sér stað helgi eftir helgi hér í
nágrenninu verði ekki stöðvaðir.
Nú verður borgin að ráða sérstaka
löggæslumenn í aðalgötur borgar-
innar til að vera á ferli allt til morg-
uns og þeir séu tveir eða þrír sam-
an, í þessum aðalgöhun sem hér er
um að ræða, Austurstræti, Hafnar-
stræti og við Lækjartorgið.
[öV Lesendur
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eöa sent tölvupóst á netfangið:
gra@dv.is
Eða sent bréf til: Lesendasíða DV,
Skaftahlíö 24, 105 ReyKjavik.
Lesendur eru hvattir til aö senda mynd
af sér til birtingar með bréfunum á
sama póstfang.