Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2002, Síða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2002, Síða 21
21 ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 2002 DV Tilvera Angelina Jolie 26 ára Angelina Jolie á af- mæli í dag. Jolie á ekki langt að sækja leik- hæfileikana, hún er dóttir leikarans Jon Voight sem ávallt hef- ur verið talinn meðal betri leikara sinnar kynslóðar. Hún var snemma ákveðin i að feta í fótspor fóður síns og á unglingsaldri sótti hún leiknám í hinum þekkta skóla Lees Strasbergs, Theatre Institute, þar sem hún fékk reynslu í sviðsleik. Áður en hún sneri sér alfarið að kvikmyndum varrn hún fyrir sér sem sýningarstúika. Eigin- máður hennar er leikarinn og leik- stjórinn Billy Bob Thornton. Gildir fyrir miövikudaginn 5. júní Vatnsberinn (20. ian.-18. febr.l: I Vertu tillitssamur við " vin þinn sem hefur orðið fyrir óhappi eða vonbrigðum. Gefðu þér meiri tíma fyrir einkalifið. Happatölur þínar eru 5, 12 og 28. Fiskarnir (19. febr.-20. mars': Ástvinur þinn þarfnast Imeiri athygli. Þú færð hrós í vinnunni fyrir vel unnið starf og verður við það afar kátur. Happatölur þinar eru 9, 10 og 35. Hrúturinn (21. mars-19. apriP: k Reyndu að skipuleggja 'daginn vel svo að þú komist yfir allt sem þú þarft að gera og náir einnig að slappa af seinni hluta dagsins. Nautið (20. apríl-20. maí): / Þú mætir góðvild og jákvæðu hugarfari hjá vinum þínum í dag. xsact’ Þú nýtur þess að vera f margmenni. Happatölur þínar eru 3, 7 og 8. Tvíburarnir (21. maí-2i. iúníi: Einhver er að reyna að /^N'ná betra sambandi við mmf / Þig en þú hefur ekki \ sýut þessari mann- eskju næga athygli. Kvöldið verður mjög ánægjulegt. Krabbinn (22. iúní-22. iúiíi: Víæaðu þig á þeim sem k sýna vinum þínum ' óvirðingu. Líklegt er að þú hittir fólk í dag sem kemur þannig fram. Happatölur þínar eru 15, 18 og 38. Liónið (23. iúlí- 22. áeústl: i Að eiga góða og sam- heldna fjölskyldu skiptir miklu máli og þú verður að gæta þess að vanrækja hana ekki. Forðastu að gera úlfalda úr mýflugu. Mevian (23. áeúst-22. sept.i: Ekki láta það fara í <\VS\ taugamar á þér þótt samstarfsfólk þitt sé ^ f svartsýnt. Reyndu að skapa betra andrúmsloft í vinnunni. Vogin (23. sept.-23. okt.): J Vinur þinn segir þér Oy fréttir sem eiga eftir \ f að hafa mikil áhrif á / f þig á næstunni. Þú hefur mikið að gera í dag. Happatölur þínar eru 2,10 og 17. Sporðdrekinn (24. okt.-2l. nðv.): í kringum þig er fólk sem þú gætir fengið ^góð ráð hjá ef þú ein- ungis gæflr þér meiri tíma til að hlusta á það. Happatölur þínar eru 6, 13 og 15. Bogmaðurinn (22. nóv.-?i. ries.i: jForðastu óhóflega reyðslu í dag og hugaðu að fjármálunum. Þetta er ekki besti timinn til að gera fjárfestingar. Happatölur þinar eru 1, 2 og 7. Steingeitin (22. des.-19. ian.): Vertu bjartsýnn varð- andi frama í vinnunni. Þú nýtur æ meiri virð- ingar og fólk treystir þér. Þér gengur vel að vinna fram úr vandamálum. Flöskuskeyti með fornum upplýsingum: í þessu húsi gisti Lindberg Maður lifandi mmmm Boltinn hefur forgang Þetta hús var flutt frá Bíldudal 1909 og byggt upp í Viöey af Millj- ónafélaginu sem starfaöi þar. Ég bjó í því í 19 ár í Viöey, reif þaó 1943 og flutti þaó hingaö og byggöi þaö mest sjálfur. Byggingarmeistari var Berg- sveinn Guðmundsson, Ránargötu 14. í þessu húsi gistu Lindberg og kona hans þegar þau komu fljúg- andi frá Ameríku, meó viökomu á Grœnlandi, 1933, 15. ágúst, og stóð húsið þá í Vióey og var ég þá eigandi þess eins og nú og er ég aö klára aö smíöa þaö með meistaranum sem fyrr er nefndur. Ég bý á Túngötu 36/A á meðan verið er að byggja. Björn Bjarnason verkstjóri 19/1 1944 Reykjavík. Svohljóðandi bréf, skrifað með blekpenna og fomlegum rithætti, (þaug, jeg), fannst í flösku í fjörunni við Ægisíðu nýlega. Finnandi var Margrét Eliasdóttir sem þar var á rölti með tveimur bömum sínum, sex ára, og fyrrverandi tengdadóttur. „Flaskan var dálítið langt uppi í fjör- unni og að mestu grafin í sand en stúturinn stóð upp úr. Ég byrjaði á að sparka í hana, dró hana svo upp og sá þá að eitthvað var I henni. Forvitni okkar fjörulallanna var vakin og þar sem við gátum ekki með nokkra móti náð tappanum úr þá brutum við flösk- una og bréfið kom í ijós. Auð örk af sömu sort var vafin utan um tO hlífð- ar og blöðin voru bæði svolítið rök en þornuðu við gustinn ffá miðstöðinni á heimleiðinni upp í Breiðholt," segir Margrét. Veit hvaöa hús þetta er Þar sem Viðey kemur við sögu í bréflnu hafði DV samband við „Viðey- Þau fundu floskuna Margrét Elíasdóttír og tvíburarnir hennar, Björgvin Andri og Þorbjörg Jónína Þorfinnsbörn, ásamt Önnu Dóru Ólafsdóttur. ing númer eitt“, eins og einhver kall- aöi hann, Örlyg Háifdánarson bókaút- gefanda. Hann kannaðist vel við mál- ið og það skrítna er að hann á afrit af þessu sama bréfi. „Björn Bjamason verkstjóri var móðurbróðir minn og ég þekkti hann vel,“ segir hann og heldur áfram: „Ég veit líka hvaða hús þetta er og á myndir af því. Bjöm reisti það við Langholtsveginn, þar sem bílastæðið við Landsbankann er nú. Þetta var lítið hús og síðar var það flutt í heilu lagi suður tO Grinda- víkur, þar sem það stendur enn að Austurvegi 48, en nú autt.“ Sögustund hjá Orlygi „MOijónafélagið rak fiskverkunar- hús og bryggjur í Viðey, einu haf- skipabryggjuna við Faxaflóa á þeim tíma. Hlutafé félagsins nam einni mOljón, sem svaraði tO ríkisútgjald- anna á Islandi, en þó fór félagið á hausinn árið 1914. Stöðin var rekin af bankanum sem eignaðist hana og átti þar tO Kárafélagið kom tO sögunnar 1924 og keypti stöðina með öllu tO- heyrandi. Þá flutti Bjöm Bjamason tO Viðeyjar. Hann hafði verið verkstjóri hjá félaginu í Reykjavík og hélt því áfram í Viðey tO 1931, þegar Kárafé- lagið var gert upp. En þótt félagið Gamla húsiö Svona var þaö í Viöey. Endurbyggt Viö Langholtsveginn. legðist af hafði Björn umsjón með eignum þess í Viðey og var ferjumað- ur mOli lands og eyjar. Meðal annars ferjaði hann Lindberg og hans konu sem hann getur um í bréfinu. En svo fluttu allir úr Viðey upp úr 1940 og Bjöm þar á meðal. Hann dó árið 1957. Nokkrum árum sfðar, þegar Bjöm Kári, sonur hans, var vitavörður á Reykjanesi og var að koma akandi sunnan að, mætti hann húsi fóður síns á bOpaOi á Keflavíkurveginum. Hann hélt hann væri að verða vitlaus en þama var verið að flytja húsið einn ganginn enn, og nú suður í Grindavík. Þess má geta að þessi Björn Kári, sem nú er látinn, var heiðraður á sjómannadag er nýr björgunarbátur var skírður eftir hon- um.“ Flaskan aö finnast í annað sinn Það skrítna er að Örlygur á afrit af bréfrnu sem fannst í flöskunni á Ægi- síðu. Hann fékk það sent frá Grinda- vík fyrir nokkrum árum þegar breyt- ingar á húsinu stóðu yfir. Þá fannst flaska mOIi þOja með samhljóða lín- um. Örlygur fékk afrit og líka Sigurð- ur, sonur Bjöms, og báðir gæta þeirra vel. Hvemig á flöskuskeytinu í fjörunni við Ægisíðu stendur er því talsverð ráðgáta. -Gun. Síðastliðinn fostudag gerði ég mér ljósa grein fyrir því að ég myndi eiga í erfiðleikum með að mæta í vinnu á mánudag. BrasO- ía átti að spOa klukkan níu, ítal- ía klukkan eflefu og leikur Króa- tíu, sem hófst klukkan sex að morgni, yrði endursýndur klukk- an tvö. Ég hóf því leit að yfir- mönnum mínum tO að segja þeim að ég gæti unnið milli eitt og tvö þennan mánudag. Ég fann þá í bakherbergi þar sem þeir voru aö fylgjast með Senegölum vinna Frakka. Ég sagði þeim er- indi mitt. Þeir eru komnir á þann aldur að vera löngu hættir að leggja eyran við erindum kvenna svo þeir sögðu strax í fyrsta orði mínu: „Já, KoUa mín“ og sneru sér svq að leiknum sem ég ætlaði að horfa á í endursýn- ingu seinna um daginn. Ég var eiginlega bara fegin að þeir höfðu ekki heyrt orð af því sem ég sagði. Ég áttaði mig nefni- lega á því að þar sem sjónvarp væri á staðnum gæti ég plantað mér þar á mánudegi og horft á leik- ina. Miðað við venjulegan dag yrðu vinnuafköst rýrari en vanalega, en samt gæti ég þotið að skrifborðinu í kortershálfleik (sem voru þrír þenn- an dag) og setið síðan i einni lotu mOli eitt og tvö, ef ég fómaði mat- artíma mínum. Ég gæti því sam- tals unnið í einn klukkutima og fjörutíu og fimm mínútur þennan mánudag. Með góðri einbeitingu gæti ég komið þónokkru í verk. Mánudagur kom en á undan honum laugardagur og sunnudag- ur. Þeim dögum var eytt við sjón- varpið. Kamerún, Nígería, Senegal eru mín lið. Já, og ég hélt með Úr- úgvæ gegn Dönum. Vegna þessa stuðnings míns við svörtu menn- ina hef ég uppskorið kuldalegt, jafnvel fjandsamlegt viðmót ís- lenskra karlmanna. Mér líður eins og ég sé komin í ástandið. Mánudagurinn leið samkvæmt áætlun og Brasilíumenn unnu Tyrki. SkemmtOegur leikur en ís-. lensku þulimir voru ekki nógu já- kvæðir í garð BrasOíumanna. Það sama má segja um nokkra félaga mína hér á DV sem halda með Englendingum og eru ekki enn búnir að jafna sig á lélegri frammistöðu þeirra. Samt óþarfi af mönnum að láta skap sitt bitna á BrasOíumönnum og stuðnings- konum þeirra. Ég er búin að finna fyrsta kyn- „Mánudagurínn leið sam- kvæmt áætlun og Brasilíu- menn unnu Tyrki. Skemmtilegur leikur en ís- < lensku þulirnir voru ekki nógu jákvæðir í garð Bras- ilíumanna. Það sama má segja um nokkra félaga mína hér á DVsem halda með Englendingum og eru ekki enn búnir að jafna sig á lélegri frammistöðu þeirra. Samt óþarfi af mönnum að láta skap sitt bitna á Brasilíumönnum og * stuðningskonum þeirra. “ tákn þessarar keppni (en örugglega ekki það síðasta). Sá er þjálfari Senegala. Hann er með lokka niður á herðar og er alveg eins og ég ímynda mér riddara úr miðalda- sögu. Senegalar verða að komast v áfram í keppninni því ég verð að sjá meira af þessum manni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.