Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2002, Qupperneq 27
ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 2002
27
DV
Sport
Þaö eru ekki allir á því aö
senegalski framherjinn sé á leið-
inni til Liverpool þó að hann sjálf-
ur segi að
allt hafi ver-
iö orðið
klappað og
klárt fyrir
Frakkaleik-
inn.
„Ég samdi
við Liverpool
fyrir Frakka-
leikinn og
spila örugg-
lega á Anfl-
* eld næsta
E HaÍd' Dl0Uf- vetur. Ég gat
alveg hugsað mér að spila áfram
hjá Lens en ég vO leika fyrir
stærra félag,“ sagði Diouf en Lens
hefur greinOega hug á að fá meira
fyrir sinn snúð og félagið lét í gær
hafa eftir sér eftirfarandi yfirlýs-
ingu. „Lens vill hafa það á hreinu
að E1 Hadji Diouf hefur ekki verið
seldur tO Liverpool og engir samn-
ingar hafa verið undirritaðir".
Nú hafa félögin ákveðið að bíða
með að ganga frá málunum þar
tO riðlakeppninni er lokið en
næst verður hann i sviðsljósinu
gegn Dönum á flmmtudag.
-ÓÓJ
Houllier dáist
að Diouf
Gerard Houllier, framkvæmda-
stjóri Liverpool, hefur ekki farið
leynt með aðdáun sína á hinum 21
árs E1 Hajdi Diouf frá Senegal sem
lék vöm heimsmeistara Frakka
svo grátt í fyrsta leik heimsmeist-
arakeppninnar. Allt bendir líka tO
þess að kappinn sé á leiðinni á An-
field þótt frammistaða hans í
leiknum hafi kveikt peninga-
glampa í augum Lens-manna þar
sem þessi besti knattspymumaður
Afríku á síðasta ári lék við góðan
orðstir í vetur.
Á heimasíðu Liverpool segist
Houllier bjóða Diouf velkominn í
ensku úrvalsdeOdina og gera það
glaður í bragði. „Ég dáðist að leik
hans gegn Frökkum þar sem hann
gaf skýr dæmi um hæfileOca sína
en ég hrífst mest af baráttuanda
hans og hve hann heldur uppi
sterkum liðsanda. Diouf fómar sér
fyrir liðið - það sýndi hann um
leið og skOaði þessu erfiða hlut-
verki gegn Frökkum," sagði
HouOier sem hefur ekki áhyggjur
af því hversu oft Diouf var dæmd-
ur rangstæður. „Það er góður gaOi
og það er aOtaf hægt að kenna
mönnum að forðast það að verða
rangstæðir."
„Spila örugglega á Anfield
næsta vetur“
Á myndinni hér að ofan fagna þeir Rivaldo,
Edmilson og Denilson sigurmarki Brasilíu-
manna gegn Tyrkjum sem Rivaldo skoraöi úr
vafsamri vítaspyrnu en á myndinni til vinstri
sést snillingurinn Ronaldo í baráttu við tyrk-
neska varnarmanninn Alpay Ozalan en hlut-
skipti þeirra var ólíkt í leiknum. Ronaldo
skoraði en Alpay fékk rauöa spjaldiö. Reuters
Iðrast ekki
- segir Unsal hafa átt rauða spjaldið skilið
BrasOlumaðurinn Rivaldo segist ekki
iðrast þess að hafa látið sig detta með tO-
þrifum undir lok leiks BrasOiumanna og
Tyrkja í gær með þeim afleiðingum að
tyrkneski vamarmaðurinn Hakan Unsal
fékk að líta rauða spjaldið fyrir að
sparka boltanum í hann.
Rivaldo fékk boltann í síðuna en tók
um andlit sér þegar hann datt - sérlega
lúaleg framkoma hjá nnars frábærum
leikmanni.
„Ég iðrast ekki. Ásetningurinn skiptir
öOu og hann átti spjaldið skOið. Það
verður að vemda hæfileikaríka leik-
menn og loksins kom dómari sem þorði
að taka af skarið. Það er vonandi að
fleiri dómarar taki hann tO fyrirmynd-
ar,“ sagði Rivaldo og átti við
Kóreumanninn Kim Young-joo, sem
dæmdi oft á tíðum skrautlega. -ósk
Rivaldo umdeildur fyrir leikaraskap:
^^]<^REA)AmN
C-riðill
Úrslit:
Brasilla-Tyrkland ...2-1
0-1 Hasan Sas (45.), 1-1 Ronaldo (50.),
2-1 Rivaldo, víti (87.).
Rauö spjöld: Alpay Ozalan, Tyrklandi
(87.), Hakan Unsal, Tyrklandi (90.).
Brasilía Staða: 110 0 2-1 3
Kína 0 0 0 0 0-0 0
Kosta-Ríka 0 0 0 0 0-0 0
Tyrkland 10 0 1 1-2 0
G-riðill Úrslit:
Króatía-Mexíkó..............0-1
0-1 Cuauhtemoc Blanco, víti (60.).
Rautt spjald: Boris Zivkovic, Króatíu
(60.).
Ítalía-Ekvador..............2-0
1-0 Christian Vieri (7.), 2-0 Christian
Vieri (27.). Staða:
Ítalía 110 0 2-0 3
Mexíkó 110 0 1-0 3
Króatía 10 0 1 0-1 0
Ekvador 10 0 1 0-2 0
HM í dag
í dag leika Kina og Kosta-Ríka
klukkan 6.30, Japan og Belgía leika
klukkan 8.30 og klukkan 11 hefst
leikur Suður-Kóreu og Póllands.
-ósk
Góð byrjun hjá brasilíska liðinu á HM:
Sambabolti
- Brassar sýndu gamalkunna sóknartakta gegn Tyrkjum
Hafi menn haft áhyggjur af því að
Luis Felipe Scolari, þjálfari Brasil-
íumanna, myndi leggja upp með
varnarleik á HM þá hurfu þær
áhyggjur eins og dögg fyrir sólu þeg-
ar Brasilíumenn mættu Tyrkjum í
gær. Strax frá byrjun var blásið til
sóknar og var sérstaklega gaman að
sjá Ronaldo sem var í frábæru formi
og sýndi gamalkunna takta á þeim
70 mínútum sem hann lék.
„Ég skipti Ronaldo út af þar sem
hann var orðinn þreyttur. Hann var
búinn að standa sig vel og mér
fannst ekki vera ástæða til að keyra
hann út. Hann er ekki enn kominn
í sitt besta form en guð hjálpi
andstæðingum okkar þegar hann
kemst í það,“ sagði Scolari, þjálfari
Brasilíumanna, um þá ákvörðun
sina að skipta Ronaldo út af.
Óréttlæti
Tyrkir komust einnig vel frá
leiknum og sýndu að þeir geta gert
góða hluti í keppninni.
Þjálfari Tyrkja, Senol Gunes, var
ósáttur við að lið hans skyldi ekki
fá eitt stig í leiknum.
„Við mættum stoltir til leiks og
gengum stoltir af velli. Við gerðum
okkar besta en þvi miður uppskár-
um við ekki eftir þvi. Þessi úrslit
voru mjög óréttlát. Mér fannst við
eiga skilið að fá eitt stig út úr leikn-
um af ástæðum sem ég ætla ekki að
fara út i nánar,“ sagði Gunes og var
væntanlega að vitna í frammistöðu
dómarans Kim Young-joo sem var
oft á tíðum skrautleg.
Veröum bara betri
Ronaldo var í skýjunum eftir leik-
inn enda sýndi hann loks hvers
hann er megnugur eftir langa bar-
áttu við erfið meiðsli.
„Það var gaman að skora markið
sem kom okkur aftur inn i leikinn
og það gefur mér mikið sjálfstraust
fyrir næstu leiki. Ég hef mikla trú á
þessu liði. Við eigum eftir að spfia
fleiri leiki, skora mikið af mörkum
og getum i raun bara orðið betri,“
sagði þessi frábæri knattspymu-
maður eftir leikinn.
Luis Felipe Scolari, þjálfari Bras-
ilíumanna, var ánægður eftir leik-
inn.
„Þetta var erfiður leikur. Við
gerðum þau mistök að láta þá skora
rétt fyrir leikhlé og það er sérstak-
lega slæmur timi til að fá á sig
mark. Við þurftum að sigrast á því
og það var hægara sagt en gert því
Tyrkir eru með gott lið sem við ber-
um virðingu fyrir,“ sagði Scolari.
„Við mætum Kínverjum næst og
munum ekki vanmeta þá. Þeir eru
með góða leikmenn sem geta auð-
veldlega valdið usla ef þeir fá tæki-
færi tfi þess,“ sagði Scolari eftir
leikinn gegn Tyrkjum." -ósk
s?
*.<4rv
.2002
tá Jfij
Málið er ekki að vera með,
heldurað vinna!
Nú geturþú tippað
á einn leikl
í
t>Ú4ttfeí&nn'