Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2002, Síða 29
ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 2002
29
Sport
Dóra á réttum stað
- skoraði tvö mörk og lagði upp eitt í 3-1 sigri Vals á ÍBV
1.DE1LD KVENNA
A-riöill
Þróttur R.-ÍR..............12-0
Anna Björg Bjömsdóttir 4, Heiða Sól-
ey Haraldsdóttir 3, Ólöf Dröfh Matt-
híasdóttir 2, Hrafnhildur Kristins-
dóttir, Jóna Soffia Baldursdóttir,
Tínna Sigurðardóttir.
RKV-HK/Víklngur.............4-3
Ágústa Jóna Heiðdal 2, Bima Eiríks-
dóttir, Lilja íris Gunnarsdóttir -
Hansina Gunnarsdóttir, Lára Hafliða-
dóttir, Salóme Ingólfsdóttir.
Bikarkeppni Coca-Cola
ÍA(u-23)-HK.................1-0
Hermann Geir Þórsson.
FH (u-23)-Breiðablik (u-23) . . 3-1
Benedikt Egill Ámason 3 - Rannver
Sigurjónsson.
Fjölnir-Njarðvík ...........1-5
Pétur Björn Jónsson - Eyþór
Guðnason 2, Sigurður Karlsson 2,
Snorri Már Jónsson.
Reynir S.-Afturelding ......1-2
Eysteinn Guðvarðsson - Þorvaldur
Már Guðmundsson 2.
ÍBV sótti Val heim í gærkvöld i 1.
deild kvenna og var hart barist um
stigin þrjú enda þurftu bæði lið á
þeim að halda til að eiga einhvem
möguleika á að vera í alvöru toppbar-
áttu. Heimastúlkur reyndust sterkari
og unnu sanngjaman 3-1 sigur og var
það hin unga og efnilega Dóra María
Lárasdóttir sem gerði út um leikinn
með tveimur mörkum í seinni hálf-
leik eftir að staðan hafði verið jöfn
1-1 í hálfleik.
Valur byrjaði leikinn með stórsókn
en uppskar ekki mark. Fyrsta mark
leiksins kom á 10. mínútu og var það
fyrrum leikmaður Vals, Rakel Loga-
dóttir, sem það gerði. Hún lét vaða á
markið af 25-30 m færi og boltinn
hcifnaði í markinu rétt undir þver-
slánni og átti Þóra Reyn Rögnvalds-
dóttir, markvörður Vals, litla mögu-
leika á að verja skotið. En Adam var
ekki lengi í Paradís því aðeins þrem-
ur mínútum seinna jafnaði Ema Er-
lendsdóttir fyrir Val með marki af
stuttu færi. Dóra María kom boltan-
um á Ernu sem beið við fjarstöng og
átti Ema ekki i vandræðum með að
skora jöfnunarmarkið.
Valur var sterkari aðilinn í fyrri
hálfleik og vantaði nokkram sinnum
aðeins herslumuninn að liðið næði að
komast yfir fyrir hlé. Besta færið
fékk Soffia Ámundadóttir sjö mínút-
um fyrir hlé en hún skaut fram hjá í
finu færi.
Eftir 11. minútna leik í seinni hálf-
leik átti Dóra Stefánsdóttir frábæra
sendingu fram á nöfhu sína Láras-
dóttur sem afgreiddi boltann vel i
markið með því að vippa yfir mark-
vörð gestanna. Þessar tvær hafa
margoft gert þetta í gegnum tíðina og
upp alla yngri flokkana og gaman að
sjá að þær eru byrjaðar að vinna eins
vel saman í meistaraflokki. Elísabet
Gunnarsdóttir er vön að fagna þegar
þessar tvær skora svona mörk en í
þetta skiptið var hún ekki eins
ánægð.
ÍBV sótti í sig veðrið eftir markið
og var líklegt til að jafna um tíma en
eitthvað vantaði upp á. Dóra María
gerði síðan út um leikinn á 77. mín-
útu með sínu öðru marki og þriðja
marki Vals eftir að vörn ÍBV mistókst
að hreinsa boltann frá eftir horn-
spymu. Boltinn barst til Dóru Maríu
sem þakkaði fyrir sig með góðu
marki.
Það er ljóst að Dóra María kann
betur við sig í framlínunni en á kant-
inum þar sem hún var í fyrsta leik
liðsins gegn FH. Málfríður Sigurðar-
dóttir byijar sumarið vel og virðist
vera laus við meiðsli sem háðu henni
síðasta sumar. Þá léku íris Andrés-
dóttir og Rósa Júlía Steinþórsdóttir
einnig vel i vörninni.
ÍBV-liðið er ekki komið í gang enn
þá en hefur alla burði til að gera bet-
ur en liðið hefur sýnt í sumar til
þessa. Liðið lék ágætlega á köflum en
Valsliðið var einfaldlega betra að
þessu sinni. -Ben
- hefur gert 20 mörk og haldið marki sínu hreinu í fyrstu þremur leikjunum
KR-stúlkur sýndu fá veikleika-
merki á sínu sterka og skemmtilega
liði þegar þær unnu sannfærandi
0-3 sigur á Breiðabliki í Símadeild
kvenna í Kópavogi i gær. Mörkin
þrjú komu öll fyrir hlé þegar ein-
stefna var að marki Blika en Kópa-
vogstúlkur komu aðeins meira inn í
leikinn eftir hlé, þökk sé góðri inn-
komu Erlu Amardóttur, 19 ára
stelpu sem er nýkomin til liðsins frá
Svíþjóð. KR-stúlkur áttu samt sem
áður góð færi í seinni hálfleik þegar
boltinn skall þrisvar sinnum í tré-
verki Breiðabliksmarksins
KR-liðið er í sérflokki í kvenna-
fótboltanum hér á landi, boltinn
gengur vel á milli allra leikmanna
liðsins og þrátt fyrir vel skipulagðar
og mannmargar vamarlínu Blika
áttu þær fá svör við stórsókn KR-
liðsins með þær Ásthildi Helgadótt-
ur og Olgu Færseth sem lykilmenn
og aðalarkitekta.
Aðrar studdu einnig vel við bakið
á fyrmefndum tveimur, Guðrún
Sóley Gunnarsdóttir hreinsaði nán-
ast allt upp sem kom nærri teignum
og Edda Garðarsdóttir átti miðjuna.
Margrét Ólafsdóttir reyndi sitt í
liði Blika og var oft mjög nálægt því
að spila sig í gegn en fékk litla hjálp
og það var ekki fyrr en eftir hlé er
henni bættist liðsauki í Erlu Amar-
dóttur að hún fór að fá einhver færi.
En það er ekki nóg því að baki
hinnar sterku miðju og vamar var
Þóra Björg Helgadóttir enn ósigruð
og varði öll skot hennar vel. Þóra
fékk loksins að reyna við skot en
það fyrsta kom eftir 217 mínútna
leik. „Verður nokkuð skorað á þig í
sumar?" var fyrsta spumingin sem
undirrituðum datt í hug að spyrja
þennan snjalla markvörð í leikslok.
„Ég vona ekki. Ætli það sé ekki
orðin stefnan hjá mér að halda
hreinu í sumar en annars var ég
ánægð með að fá loksins eitthvað að
gera enda var þetta orðið hálfdapurt
hjá mér í markinu í síðustu tveim-
ur leikjum. Það er alltaf erfitt að
koma á gamlan heimavöll í Kópa-
vogi og við höfum spilað betur en
3-0 er stórsigur," sagði Þóra og líkt
og margar landsliðsstelpur í liðinu
hafði hún hugann við landsleikinn
á laugardaginn og fór varlega í
seinni hálfleik. „Þetta er stærsti
leikur sem við allar höfum spilað á
ferlinum og viö hugsuðum ósjálfrátt
um að passa okkur og taka ekki
óþarfa áhættu þegar við vorum
komnar með góð tök á leiknum."
Breiðabliksliðið var bitlaust fram
á viö fyrir hlé og mannmörg vörn
skilaði einnig litlum árangri því
KR-liðið gerði þá þrjú mörk. Ólafur
Þór Guðbjömsson þjálfari geröi góð-
ar breytingar í hálfleik og innkoma
þeirra Erlu Amardóttur og Ingu
Láru Jónsdóttur hjálpaði liðinu sitt
á hvorum enda vallarsins.
„Við breyttum skipulaginu í hálf-
leik og fengum færi eins og þær eft-
ir hlé og þá var þetta mikið jafn-
ara,“ sagði Ólafur Þór Guðbjöms-
son, þjálfari Blika.
Fullt hús, 20 mörk og hreint mark
er draumabyrjun hvers liðs og
hvers þjálfara. Vanda Sigurgeirs-
dóttir, þjálfari KR-liðsins, var líka
ánægð i leikslok.
„Ég er mjög ánægð með leikinn,
þær spiluðu á köflum mjög vel,
gerðu fin mörk og viö áttum að
skora miklu fleiri mörk. Ég var líka
ánægð með baráttuna því þær börð-
ust eins og ljón og pressuðu á
Blikana. Þóra vill örugglega ekki fá
á sig mark en ég trú ekki öðru en
við fáum á okkur mark en við stefn-
um á aö halda áfram hreinu en það
getur allt gerst ef við mætum ekki
tilbúnar í leikina," sagði Vanda í
leikslok.
Eins og staðan er í dag kemur
ekkert nema þær sjálfar í veg fyrir
að KR vinni ömggan sigur á mótinu
því þær em í sérflokki. -ÓÓJ
Valur-ÍBV 3-1
0-1 Rakel Logadóttir ........10.
skot utan teigs.....30 metra færi
1- 1 Ema Erlendsdóttir.......13.
skot úr markteig . Dóra María Lárusd.
2- 1 Dóra Maria Lámsdóttir . . 56.
skot úr teig .... Dóra Stefánsdóttir
3- 1 Dóra Maria Lámsdóttir .. 77.
skot úr teig ......náði boltanum
Skot (á mark):
! 18 (6) - 18 (8) j
Horn:
5-5
í Áukaspyrnur:
í 7-n ;
j Rangstöóur:
I 5 -2
Vartn skot:
| Þóra Reyn 7 - j
• Petra Fanney 2. I
I______________I
Best á vellinum:
Dóra María Lárusdóttir, Val
@@ Dóra María Lárusdóttir, Val.
© Þóra Reyn Rögnvaldsdóttir, íris
Andrésdóttir, Rut Bjamadóttir, Mál-
fríður Sigurðardóttir, Dóra Stefáns-
dóttir, Rósa Júlía Steinþórsdóttir,
Val, Margrét Lára Viðarsdóttir,
Michelle Barr, Elena Einisdóttir,
Laufey Ólafsdóttir, ÍBV.
0 V
SÍMA
DEILDIN
Staðan:
KR 3 3 0 0 20-0 9
Valur 3 2 1 0 7-3 7
Breiðablik 3 2 0 1 6-5 6
Stjaman 3 1 2 0 4-1 5
Grindavík 3 1 0 2 2-7 3
Þór/KA/KS 3 1 0 2 4-10 3
FH 3 0 1 2 1-14 1
ÍBV 3 0 0 3 3-7 0
Markahæstar:
Olga Færseth, KR..............
Ásthildur Heigadóttir, KR.....
Eyrún Oddsdóttir, Breiðabliki . .
Lilja Kjalarsdóttir, Stjörnunni ..
Dóra María Lárusdóttir, Val ...
Ema Erlendsdóttir, Val........
Guðrún Sóley Gunnarsdóttir, KR
Hólmfríður Magnúsdóttir, KR . .
Karen Penglase, Grindavik ....
Margrét Ólafsdóttir, Breiðabliki
Sólveig Þórarinsdóttir, KR ....
Næstu leikir:
4. umferð
ÍBV-FH..............mið. 12. júní *
Þór/KA/KS-Valur .... fim. 13. júní
KR-Stjarnan................fim. 13. júni
Breiðablik-Grindavík . . íos. 14. júní
.8
. 3
.3
.3
.2
. 2
. 2
. 2
.2
. 2
. 2
5. umferð
FH-Þór/KA/KS .......sun. 16. júní
Stjaman-ÍBV..........mið. 19. júní
Valur-Breiöablik.....mið. 19. júni
Grindavík-KR.........tös. 21. júní
Breiðablik-KR 0-3
0-1 Olga Færseth................22.
skot úr teig ... Hrefna Jóhannesdóttir
0-2 Ásthildur Helgadóttlr.......22.
skot úr teig..........Olga Færseth
0-3 Olga Færseth................22.
vítaspyrna .... Ásthildur Helgadóttir
Skot (á mark): 6 (5) - 21 (14) Horn: 1-21 Aukaspyrnur: 10-8 Rangstöóur: 2 -2 Varin skot: Elsa Hlín 7 - Þóra 5. d
Best á vellinum: Olga Færseth, KR
Margrét Ólafsdóttir, Erla Amar-
dóttir, Breiðabliki, Olga Færseth, Ást-
hildur Helgadóttir, Edda Garðarsdótt-
ir, Guðrún Sóley Gunnarsdóttir, KR.
@ Björg Ásta Þórðardóttir, Ólína
Guðbjörg Viðarsdóttir, Elín Anna
Steinarsdóttir, Inga Lára Jónsdóttir,
Breiðabliki, Þóra Björg Helgadóttir, El-
ín Jóna Þorsteinsdóttir, Ásdís Þorgils-
dóttir KR.
í