Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2002, Qupperneq 32
ÞRIÐJUDAGUR 4. JUNI 2002
Sími: 533 5040 / www.allianz.is
DV-MYNDIR GVA
Umferð að glæðast í Grafarvogi í morgun
Vegurinn um Gullinbrú annar greinilega ekki umferðinni úr hverfinu eins og greinilega gerist þegar Víkurvegur lokast.
Litháen og Rússland utan samkomulags um notkun grænna korta:
Dæmi um tjón af völd
um otryggðra bíla
- sem fluttir hafa verið hingað til lands með skipum
Dæmi eru um að hingað til lands
komi, með skipum, bílar sem vá-
tryggingum er þannig háttað á að
þær gilda ekki hér á landi. Þessir
bílar eru því ótryggðir meðan þeir
eru hér.
Sigmar Ármannsson, hjá Alþjóð-
legum bifreiðatryggingum á íslandi
sf., sagði í samtali við DV að dæmi
væru um að ökutæki frá Litháen
hefðu valdið tjóni hér á landi og
virst vera óvátryggð miðað við akst-
ur hér.
Einkum mun vera um að ræða
ökutæki frá Litháen sem flutt eru
hingað til lands án þess að gengið
hafi verið frá tryggingum á þeim
áður. Samkvæmt upplýsingum DV
hafa tolla- og lögregluyfirvöld víða í
Evrópu sérstakar gætur á ökutækj-
um þaðan af þessum sökum, að
gefnu tilefni.
Aö sögn Sigmars er málið þannig
vaxið að fjölmargar þjóöir Evrópu
hafa verið í samstarfi um notkun
svokallaðra grænna korta. Það þýð-
ir að bifreið sem er innan þess sam-
starfs er vátryggð í heimalandi
sínu. Bifreiðin fær grænt kort hjá
tryggingafélagi sínu ef hún fer til
annars lands. í kortinu felst að bíll-
inn sé einnig tryggður í þvi ríki sem
farið er með hann til, og að valdi
hann tjóni þá verði það bætt. Ef við-
komandi bifreið lendir í tjóni, t.d.
hér á landi, leitar tjónþolinn til Al-
þjóðlegra bifreiðatrygginga á ís-
landi sf., sem gerir upp tjónið og
endurkrefur tryggingafélagið í
heimalandi viðkomandi bifreiðar.
Þetta samstarf um græna kortið tek-
ur fyrst og fremst til Evrópuríkja og
nokkurra rikja í kringum Miðjarð-
arhafið, sem hafa samskipti við Evr-
ópurikin.
Litháen er ekki aðili að þessu al-
þjóðlega samkomulagi, né heldur
Rússland, svo dæmi séu nefnd.
Það þýðir að eigandi ökutækis,
sem skráð er þar, verður að kaupa
sér tryggingu í einhverju öðru
landi, sem á aðild að þessu sam-
starfi, áður en farið er með öku-
tækið frá heimalandinu. Það eru
einkum ökutæki frá Litháen, eins
og áður sagði, sem tryggingafélög
hafa haft áhyggjur af í þessu sam-
bandi. -JSS
Sérstæður sýningargripur á Akureyri:
Lek fata með hlandi
A laugardag var opnuð í Listasafni
Akureyrar sýningin „Akureyri mynd-
list tvö“. Þetta er sýning 23 brottfluttra
listamanna frá Akureyri. Að sögn
Hannesar Sigurðssonar, forstöðu-
manns safnsins, eru verkin jafn ólík og
listamennimir eru margir. Á meðal
verkanna munu m.a. vera hjól úr
óskilamunum lögreglu, sem er verk
eftir Þorvald Flosason, og lokuð fata
með hlandi. Fatan er verk Ásmundar
Asmundssonar og er hún reyndar ör-
lítið lek. Hannes vildi lítið tjá sig um
fótuna en sagði þó að hún yrði lokuð
og innsigluð. Samkvæmt heimildum
DV mun nokkuð hafa verið tekist á um
hvort fatan fengi að vera á sýningunni
en Hannes sagðist þó ekki kannast við
nein átök um málið. Sýningin mun
standa til 21. júlí en Hannes hafði ekki
áhyggjur af því að fatan tæmdist á sýn-
ingartímanum þótt hún iæki. -HKr.
Hrafnkell Brynjarsson fangi í ísrael:
Gæti komið með næsta flugi
- ef hann samþykkir að yfirgefa landið sjálfviljugur
Hrafnkell Brynjarsson, sem situr í
varðhaldi í ísrael eftir að hann var
handtekinn ásamt sjö öðrum við sjálf-
boðaliðastörf í flóttamannabúðum í
Palestínu um helgina, getur annað
hvort samþykkt að yfirgefa landið af
fúsum og frjálsum vilja - og komið
heim með fýrsta flugi - eða mótmælt
ákvörðun innanríkisráðuneytisins
um að reka hann úr landi.
Ethan Alexander Naschitz, ræðis-
maður íslands í ísrael, sagði í samtali
við DV í morgun að Hrafhkell gæti
komið með fyrsta flugi heim til Is-
lands ef hann samþykkir að fara sjálf-
viljugur. Neiti hann hins vegar að
fara komi fulltrúi skipaður af dóms-
málaráðuneytinu og ræði við hann.
Sá hafl dómaravald og geti hnekkt
ákvörðun innanríkisráðuneytisins
um brottrekstur. Málalyktir gætu
hins vegar dregist fram á þamæsta
laugardag veröi þessi leið farin.
Naschitz hitti Hrafnkel í fangelsinu
í bænum Ramlí, miðja vegu milli Tel
Aviv og Jerúsalem, síðdegis í gær og
segir að honum líði vel. Raunar sé
vart hægt að tala um fangelsi því ör-
yggisgæsla sé í lágmarki. Hann segir
að Hrafnkell hafi ekki ákveðið hvom
kostinn hann taki eftir því sem hann
komist næst.
Með Hrafnkatli í Ramlí eru Dani,
Ástrali og Japani sem handteknir
voru með honum. Naschitz var fyrsti
fulltrúi sendiráðs til að hitta þessa
menn í gær. Ræðismaður Dana hitti
hópinn í morgun og kom þá á fram-
færi kveðju til Hrafnkels frá móður
hans.
Daninn í hópnum ætlar að fara
sjálfviljugur frá landinu í dag eða á
morgun. Bandarísk kona, sem einnig
var í hópnum en er í haldi annars
staðar, íhugar hins vegar að fara í
hungurverkfaU vegna málsins.
-ÓTG
Léttir á umferð
Umferð úr Grafarvogi gekk mun
greiðar í morgun en á sama tíma í gær- j
dag þegar mikil umferðarteppa mynd-j;
ast þar vegna vegaframkvæmda við
mislæg gatnamót á Vesturlandsvegi og
lokunar á Víkurvegi. Á þeim tíma vari
aðeins hægt að aka um Gullinbrú inn ’
og út úr hverfinu.
Umferðartafimar í gær ollu megnrif
óánægju vegfarenda sem þurftu aðF
dúsa í bílum sínum í löngum biðröðum
sem þar mynduðust árla dags og síö-f
degis.
Af þessum sökum lét Vegagerðin
opna hjáleið af Víkurvegi inn á Vestur-.
landsveg og virðist sem umferðin hafif
gengið mun betur út úr þessu einu’
stærsta hverfi borgarinnar eftir að
gripið var til þeirra ráðstafana. -HKr. |
Gjaldþrot ísafoldar: : V5
Skiptastjóri
skipaður
Héraðsdómur Reykjavíkur skipaði í
gær Jóhann Níelsson hrl. skiptastjóra i i
búi ísafoldarprentsmiðju hf„ en for-"
svarsmenn fýrirtækisins fóru fram á
að fyrirtækið yrði tekið til gjaldþrota-,
skipta síðastliðinn fóstudag. Auk prent- j
smiðjunnar eru fyrirtæki tengd fsafold-
arprentsmiðju; ÍT-prentþjónusta ehf. og>
Flatey bókbandsstofa ehf. einnig tekinf
til gjaldþrotaskipta.
Heildarskuldir ísafoldarprentsmiðju
munu nema á bilinu 450 til 500 milljón-1
um króna og á Landsbankinn stærstu *
kröfúmar, eða um 250 milljónir króna.
ísafoldarprentsmiðja hefur hingað tilá
annast prentun Fréttablaðsins en tvoP
undanfama daga hefur blaðið hins veg-
ar verið prentað í prentsmiðju Morgun-,
blaðsins. Þannig era öll dagblöð lands-|
ins, DV, Morgunblaðið og Fréttablaðið
nú prentuð á sama stað. -aþ
Lúðvík verður
bæjarstjóri
Félagsfundur
Samfylkingarinn-;
ar ákvað í gær-f
kvöld að Lúðvík
Geirsson, oddviti^
flokksins, yrði
ráðinn næsti bæj-
arstjóri í Hafnar-
firði. Hann tekur
$
y
/
y
i
Lúðvík Geirsson. n-Júni nk' við
embættinu
Magnúsi Gunnarssyni. Lúðvík hef-
ur undanfarið starfað sem fram-
kvæmdastjóri Blaðamannafélagsins
auk þess sem hann hefur verið bæj-
arfuíltrúi. -Bí
aIdarar
Sportvörugerðin
Skipholt 5, s. 562 8383
Mundu að kjosa rett
Miklum hita spáð
Hiti getur farið í allt að 18 stigum
í dag. Spáð er hægri norðaustlægri
eða breytilegri átt í dag. Austlægari
átt er spáð í nótt og snýst i suðlæga
átt á morgun, fyrst vestan til. Skýj-
að verður með austurströndinni en
annars yflrleitt léttskýjað. Hiti verð-
ur á bilinu 7 til 18 stig.
Síðdegis á morgun þykknar svo
upp sunnan- og vestanlands. Hiti
verður 6 til 20 stig á landinu, Hlýjast
verður sunnanlands í dag, en inn til
landsins norðanlands á morgun og
svalast við sjóinn norðanlands. Á
fimmtudag og fóstudag er spáð rign-
ingu og skýjuðu veðri. -ss
DV-MYND IVAR
Fannst við stein
Maðurinn sem saknað var í gær-
morgun fannst síðdegis í gær heill á
húfi. Björgunarsveitir sem leitað
höfðu hans fundu hann við stóran
■ m stein á Öldufellsleið á Álftaversaf-
rétti í Skaftafellssýslu. Fjölmargir
tóku þátt í leitinni, auk björgunar-
sveitamanna, þar á meðal þyrla
Landhelgisgæslunnar. Þá voru spor-
hundar notaðir við leitina. Á mynd-
inni má sjá einn leitarmanna, Magn-
ús Kristjánsson, viö steininn sem
maðurinn fannst viö.
A MAÐUR EKKI AÐ
SKELLA SÉR Á
LEKANN
Garðabær:
Unglingar
með ólæti
Hópur unglinga safnaðist saman
á Lundi við Stekkjarflöt i Garðabæ
í gærkvöld. Töluverð ölvun var hjá
hópnum sem talinn er hafa verið að
fagna próflokum. Til stimpinga kom
hjá unglingunum og íbúum ná-
grennisins og var m.a. brotin rúða í
einu húsanna. Orðaskiptin leiddu
til þess að lögregla var kölluð á stað-
inn og stillti hún fljótlega til friðar.
Að sögn lögreglu h£ifa unglingar
gert mikiö að því að safnast saman
á þessum stað í gegnum árin, íbúum
nágrennisins til mikils ama. -vig
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
I hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555