Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2002, Síða 13
13
ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 2002
DV_______________________________________________ Útlönd
Handtekinn fyrir að leggja á ráðin um smíði geislavirkrar sprengju:
Talið að gera hafi átt
árás á Washington DC
Bandarísk yfirvöld tilkynntu í gær
að þau hefðu t haldi bandarískan liðs-
mann al-Qaeda-hryðjuverkasamtak-
anna sem grunaður er um að hafa ver-
ið að skipuleggja árás’á Bandaríkin
með geislavirkri sprengju.
Hinn 31 árs gamli Abdullah al
Mujahir, bandarískur ríkisborgari,
ættaður frá Puerto Rico, sem hét áður
José Padilla, var handtekinn af liðs-
mönnum alríkislögreglunnar FBI i
Chicago i maíbyrjun þegar hann kom
til landsins frá Pakistan. Hann var
hnepptur í varðhald án þess að hon-
um væri birt ákæra þar til George W.
Bush forseti lýsti hann „óvinaher-
mann“ á sunnudag. Maðurinn var þá
fluttur í fangelsi sjóhersins.
Á umræðustiginu
„Við höfum hleypt upp samsæri
hryðjuverkamanna um að gera árás á
Bandaríkin með geislavirkri
sprengju," sagði John Ashcroft dóms-
málaráðherra þegar hann greindi frá
handtökunni í Moskvu, þar sem hann
var til að ræða við rússneska embætt-
ismenn.
Robert Mueller, forstjóri FBI, sagði
siðar í Washington að samsærið hefði
Óvinur ríkisins
Abdullah al Mujahir var handtekinn
viö komuna til Chicago frá Pakistan í
síöasta mánuði. Honum ergefiö aö
sök aö hafa ætlaö aö skipuleggja
árás meö geislavirkri sprengju.
ekki verið komið lengra en á umræðu-
stigið.
Geislavirk sprengja, eða „skítum
sprengja" eins og Bandaríkjamenn
sjálfir kalla hana, er hefðbundin
sprengja sem geislavirk efni eru sett í.
Ashcroft sagði að slíkar sprengjur
gætu valdið dauða fjölda manna. Sér-
fræðingar sögðu aftur á móti að þær
myndu valda meiri ótta en manntjóni.
Bandarískur embættismaður sem
ekki vildi láta nafns síns getið sagði
að al Mujahir hefði sennilega verið að
skipuleggja árás á Washington DC,
höfúðborg Bandaríkjanna.
Hitti foringja al-Qaeda
Embættismenn sögðu að al Mujahir
hefði farið til Pakistans og Afganist-
ans í fyrra og hitt háttsetta foringja al-
Qaeda til að ræða áformin. Ekki vildu
þeir segja hvort það var fyrir eða eft-
ir árásirnar 11. september sem al-Qa-
eda er kennt um.
Að sögn lögreglunnar á al Mujahir
langan glæpaferil að baki. Á unglings-
árunum var José Padilla eins og hann
hét þá félagi í glæpagengi í Chicago.
Hann var meðal annars dæmdur fyrir
morð sem hann framdi aðeins þrettán
ára gamall.
Talið er að Padilla hafi snúist til ís-
lamstrúar á meðan hann sat í fang-
elsi. Ljóst er að minnsta kosti að hann
hóf að kalla sig Abdullah al Mujahir
eftir að hann var handtekinn í Flórída
1991 og ákærður fyrir líkamsárás og
ólöglegan vopnaburð.
Það mun hafa verið leyniþjónustan
CIA sem sagði FBI frá al Mujahir en
upplýsingar um hann fengust í yflr-
heyrslum al-Qaeda-liða. Þessar stofn-
anir hafa sætt harðri gagnrýni að
undanfórnu fyrir að bregðast ekki við
viðvörunum um hugsanlegar hryðju-
verkaárásir á Bandarikin sem bárust
nokkru fyrir árásirnar 11. september.
A1 Mujahir var síðast i Bandarikj-
unum árið 1998. Frá þeim tíma hefur
hann aðallega haldið til í Mið-Austur-
löndum.
„Á meðan al Mujahir var í Pakist-
an og Afganistan þjálfaði hann sig
með óvininum. Hann lærði meðal
annars að tengja sprengjur og rann-
sakaði leiðir til að dreifa geislavirk-
um efnum,“ sagði Ashcroft dómsmála-
ráðherra.
Þar sem al Mujahir er skilgreindur
sem „óvinahermaður" nýtur hann
ekki sömu vemdar og aðrir sakborn-
ingar í bandarískum fangelsum, eins
og að fá að hafa lögmann sér til að-
stoðar við allar yflrheyrslur.
REUTERSMYND
John Gotti
Gotti lést í fangelsi, 61 árs aö aldri
Mafíuforinginn
John Gotti látinn
John Gotti, öðru nafni „Teflon
Don“, er látinn, 61 árs að aldri.
Banamein hans var krabbamein í
hálsi en hann hefur eytt undanforn-
um áratug í fangelsi.
Áður fyrr var hann þekktur sem
„Dapper Don“ en hann öðlaðist hitt
nafnið vegna þrálátra árangurs-
lausra tilrauna yflrvalda til að
reyna að sakfella hann fyrir meinta
glæpi sína. En hann náði alltaf að
hreinsa sig. Það var svo árið 1992
sem hann var loksins fangelsaður
fyrir morð og mútur og hlaut hann
100 ára lífstíðardóm. Það var mað-
urinn sem kom honum til metorða
innan mafíunnar og nánasti sam-
starfsmaður hans, Sammy „The
BulT Gravano, sem vitnaði gegn
honum.
Hann var talinn vera mikilvæg-
asti „gangsterinn“ síðan A1 Capone
var og hét.
REUTERSMYND
Sir Paul McCartney fær á sig hnapphelduna
Fyrrum Bítillinn og Sir-inn Paul McCartney mun í dag segja Já“ við spurningunni stóru ef aiit gengur eftir og mun
Heather Mills væntanlega leika þann leik eftir en gifting þeirra fer fram í Lesiie-kastatanum í Monaghan-sýsiunni á
írlandi. Búist er viö um 300 boösgestum en Ijóst þykir að einhverjir sjái ástæöu til aö komast eins nálægt athöfninni
og mögulegt er en mikiö var lagt í hjá bresku pressunni aö komast aö því hvar brúökaupiö yröi haidiö.
Deilt um hvernig
skuli útrýma hungri
Leiðtogar heims eru ekki sam-
mála um hvernig skuli takast á við
hina mikla hungursneyð í heimin-
um þó svo að allir séu viljugir að
grípa til aðgerða. Á ráðstefnu í Róm
voru menn sammála um og staðfast-
ir í að minnka tölu þess fólks sem
býr við hungursneyð um helming.
Það vakti þó óneitanlega athygli í
gær, á fyrsta degi af fjórum, að að-
eins tveir leiðtogar vestrænna ríkja,
Ítalíu og Spánar, sáu sér fært að
mæta á ráðstefnuna sem skipulögð
er af Sameinuðu þjóðunum sem hef-
ur sagt hana vera homstein í bar-
áttunni gegn hungri.
Leiðtogar margra þróunarríkja,
hins vegar, flykktust til Rómar til
að vera viðstaddir fundarhöldin,
þar á meðal forseti Zimbabwe, Ro-
bert Mugabe, sem tókst þar með að
komast hjá því farbanni til landa
Evrópusambandsins sem hann var
og er í. Framkvæmdastjóri SÞ, Kofi
Annan, sagði í setningu ráðstefn-
unnar að það væri skammarlegt að
búa við hungursneyð í heiminum.
OKU
$KOUNN
‘ MJODD
Þarabakka 3
109 Reykjavík
Nú lokum við ekki vegna sumarleyfa !!!
Aukin ökuréttindi
Hægt er að hefja nám alla miðvikudaga (áfangakerfi)!
Kennum á leigu-, vöru- og hópbifreið, einnig eftirvagn !
Alvöru-kennslubílar og aldeilis frábærir kennarar !
Gæði og fagmennska tryggð, kennslugögn verða eign nemenda !
Greiðsluskilmálar við allra hæfi!
Athugið að flest verkalýðsfélög styrkja félagsmenn sína
í námi til aukinna ökuréttinda !
Hringið eða komið, fáið nánari upplýsingar
og látið skrá ykkur núna !!!
Sími 567-0300
Netfang: mjodd@bilprof.is Veffang: http//:www.bilprof.is
MENNTASKOLINN VIÐ SUND
NYNEMA I DAG
Sérhæfður bóknámsskéli með máiabraut, félagsfræðabraut og náttúrufræðabraut