Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2002, Síða 2
2
LAUGARDAGUR 20. JÚLÍ 2002
Fréttir I
Hálft ár á Kanaríeyjum vegna rannsóknar á láti sambýliskonu:
Erfiðustu mánuðir lífsins
*
- segir Bæringur Guðvarðarson, sem kom til Islands í gær
DV-MYND: E.ÓL
Stund feginleikans
„Ég held þó að ég geti sagt að þetta hafi veriö erfiðustu mánuðir lífs míns, “
segir Bæringur Guðvarðarson. Ættingjar hans og ástvinir fögnuöu honum
innilega þegar hann kom heim til íslands síðdegis í gær.
„Ég er stressaður og treysti mér
ekki til að segja mikið við þig á þess-
ari stundu," sagði Bæringur Guðvarð-
arson, íslendingurinn sem hefur verið
i fangelsi og síðar í farbanni á Kanarí-
eyjum síðustu sex mánuði vegna
grunsemda um að hann hefði átt þátt
í láti sambýliskonu sinnar.
Bæringur kom heim til íslands sið-
degis í gær og tók fjöldi ættingja á
móti honum í Leifsstöð við það tilefni.
Tár sáust blika á hvarmi þegar hann
kom í gegnum landgönguhlið flug-
stöðvarinnar; þetta var greinilega
stund feginleikans í fjölskyldunni og
fólk var sýnilega hrært.
Heldur fram sakleysi
Bæringur var hnepptur í varðhald
eftir að sambýliskona hcms féll fram
af svölum Aíoe-hótelsins á eyjunum
aðfaranótt 6. janúar síðastliðinn.
Fyrsta mánuðinn eftir þann atburð
dvaldist hann á sjúkradeild fangelsis-
ins en var síðan sleppt úr haldi með
þeim skilyrðum að hann færi ekki frá
eyjunum.
Grunur spænskra yfirvalda var
sá að maðurinn hafi ráðið sambýlis-
konu sinni bana en hann hefur æv-
inlega haldið sakleysi sínu fram og
sagt að um slys hafi verið að ræða.
Vitnisburður íslensks vitnis er á
sömu lund og styður þar með fram-
burð Bærings.
Slarkfær líöan
Utanrikisráðuneytið hefur í sam-
starfi við ræðismann sinn á eyjunum
gætt hagsmuna Bærings svo sem
hægt er - og hefur jafnframt unnið að
því að fá farbanni yfir honum aflétt.
Það hafðist í gegn fyrr í vikunni þeg-
ar rannsóknardómari kvað upp þann
úrskurð sinn að Bæringur mætti
halda heim til islands. Heimfararleyf-
ið er þó skilyrt því að hann mæti út
til Las Palmas í haust þegar málið
verður tekið fyrir í dómi.
„Líðan mín er svona slarkfær,"
sagði Bæringur við blaðamann DV.
Hann segist alls ekki hafa mætt harð-
ræði yfirvalda á Spáni. „Það voru all-
ir góðir við mig. Ég held að ég geti þó
sagt að þetta hafi verið erfiðustu mán-
uðir lífs mins. Þetta hefur verið mikil
lífsreynsla sem mig langar ekki til að
ganga í gegnum aftur,“ sagði Bæring-
ur. -sbs
Fjármálaeftirlitið:
Ekkert bann-
ar yfirtöku
áSPRON
Mengunarreglur hvað varðar kjúklinga hérlendis þær ströngustu í heimi:
Innfluttar kjúklingabringur
mengaðar camphylobacter
- segir gæðastjóri Móa - Haglcaup hafa tekið kjúklinginn úr sölu
Innfluttur, danskur, frosinn kjúklingur í Hagkaupum
Athugun dýralæknis og gæðastjóra Móa sýnir að hann er mengaður afcamp-
hylobacter. Hagkaup bíða niðurstöðu Hollustuverndar en hefur
tekið kjúklinginn úr sölu.
„Þetta er sérkennileg áfangaaf-
greiðsla,“ sagöi Jón Steinar Gunn-
laugsson um viðamikla greinargerð
sem Fjármálaeft-
irlitið sendi í gær
frá sér vegna fyr-
irspurnar fimm-
menninga um lög-
mæti yfirtökutil-
boðs á stofnf]ár-
hlutum í Spari-
sjóði Reykjavikur
uuiniidugasuii.
greiðsla Fjármala-
eftirlitsins sé ekki endanlegur úr-
skurður á erindinu lítur Jón Steinar
Gunnlaugsson, lögfræðingur funm-
menningana, svo á að þetta sé sigur
fyrir umbjóðendur sína.
„Það skiptir þó mestu máli að fallist
er á málflutning umbjóðenda minna
um að það sé ekkert í lögum sem bann-
ar mönnum að eiga viðskipti með
stofnfjárhluti sparisjóða á hærra verði
heldur en framreiknað stofnverð er.“
Jón Steinar segir að næsta skref
verði að ræða málið við umbjóðendur
sina en hann reiknar með að haldið
verði áfram að vinna að málinu á
grundvelli tilboðsins ef samband næst
við stjóm SPRON.
Samkvæmt lögum um viðskipta-
banka og sparisjóði þarf sá er vill eign-
ast virkan hlut í slikri stofnun að fá
samþykki Fjármálaeftirlitsins fyrir þvi
fyrir fram. Á grundvelli þessa ákvæðis
sendu fnnmenningamir erindi til Fjár-
málaeftirlitsins og fyrirspum um hvort
eftirlitið samþykkti yfirtöku þeirra sam-
kvæmt greinargerð eða ekki.
Fjármálaeftirlitið tók hins vegar
þann kost að senda frá sér ítarlega
greinargerð sem sögð er liður í athugun-
um eftirlitsins á framkominni umsókn
fimmmenningana. Kallað verður eftir
frekari gögnum eftir því sem þurfa þyki.
Sem sagt þrátt fyrir lagaákvæði hyggst
Fjármálaeftirlitiö taka endanlega af-
stöðu seinna. -HKr.
Frosnar innfluttar kjúklingabringur
sem Hagkaup flytja inn frá Danmörku
eru mengaðar camphylobacter. Þetta er
niðurstaða rannsóknar sem dýralækn-
ir og gæðastjóri Móa lét gera á innflutt-
um frosnum dönskum kjúklingum í
Hagkaupum vegna umræðunnar að
undanfömu.
Finnur Ámason, framkvæmdastjóri
Hagkaupa, segist gera allar sömu kröf-
ur til innlendra og erlendra framleið-
enda kjúklinga. „Það er ekki komin
niðurstaða úr rannsókn Hollustuvemd-
ar á sýnum úr innfluttu Kjúklingunum
hjá okkur. Niðurstaða þeirra liggur
ekki fyrir fyrr en eftir helgi. Það liggur
aðeins fyrir niðurstaða úr þessu hrað-
prófi Móa. Eigi að síður höfum við gert
þá varúðarráðstöfun að taka þá
kjúklinga sem eftir voru af þessari
sendingu úr sölu.“
Skortur á kjúklingum
Skortur hefur verið á kjúklingakjöti
í verslunum síðustu vikurnar og fréttir
hafa verið af óskum fyrirtækja eins og
Hagkaupa um aukinn innflutnings-
kvóta fýrir kjúklinga. Engin trygging
virðist þó fyrir því að innfluttur fros-
inn kjúklingur sé laus við camp-
hylobacter sem fluttur er inn frá Dan-
mörku. Þeim fylgir ekki reKjanleika-
merking eins og krafa er um varðandi
íslenska framleiðslu. Dönsku kjúkling-
unum fylgir aðeins vottorð um að vera
laus við salmonellu eins og krafa er um
við innflutning. Ekki er hægt að rekja
frá hvaða framleiðanda hann kemur.
Að sögn Sigurborgar Davíðsdóttur,
dýralæknis og gæðastjóra hjá Móastöð-
inni, era engar opinberar kröfur um
sýnatöku annars staðar á Norðurlönd-
um eins og gilda hérlendis. „ísland er
eina landið í heiminum sem gerir ein-
hveijar kröfúr um rannsóknir á camp-
hylobacter og grípur til aðgerða þegar
um slíkt er að ræða.“ Um ástæður
rannsóknar sinnar sagði hún:
„Mér lék bara forvitni á að vita
hvort Hagkaup gerðu sömu kröfúr til
erlendra viðskiptavina sinna og inn-
lendra. Niðurstaðan var sú að sá inn-
flutti er camphylobacter-mengaður.
Samt gera Hagkaup þær kröfur til
Reykjagarðs að þeirra vara sé laus við
camphylobacter."
Gerum strangari kröfur
„Mér er sagt núna að vottorð vegna
camphylobacter-mengunar hafi ekki
komið með sendingunni, þrátt fyrir að
búið væri að segja okkur í þrígang að
vottorðin fylgdu,“ segir Finnur Áma-
son. „Við höfum því tekið hann úr sölu
þó heimilt sé að selja hann samkvæmt
íslenskum reglum. Ég óskaði eftir því
persónulega í þrigang að við værum
með staðfestingu á því að vera með
salmonelluvottorð og camphylobacter-
vottorð. í þrígang fékk ég staðfestingu
á að svo væri. Það er því alveg ljóst að
við flytjum ekki inn meira af fugli
nema að þeim fylgi þessi vottorð. Hag-
kaup em þvi í raun að setja sér strang-
ari kröfur heldur en embætti yfirdýra-
læknis gerir,“ sagði Finnur Ámason.
Anna Margrét Jónsdóttir hefúr með
höndum gæðaeftirlit á matvöm í Hag-
kaupum og er sérmenntuð í þeim fræð-
um. Hún segir að Hagkaup hafi þá
stefnu að selja fólki ómengaða vöra.
Það hafi enginn sýnt ffarn á það svo
óyggjandi sé að mengaður kjúklingur
sé í lagi bara af því að hann er frystur.
Framleiösluaukning
Þrátt fyrir skort á markaði hér er
ljóst að talsverð ffamleiðsluaukning
hefur verið siðustu tólf mánuði, þó það
hafi ekki náð að halda í við söluna sem
er stöðugt vaxandi. Þó 1,8% samdráttur
hafi orðið í framleiðslunni í júní þá
nemur framleiðsluaukningin á alifugl-
um siðastliðna 12 mánuði samtals
16,9%. Söluaukningin á markaðnum
síðastliðna 12 mánuði er þó öllu meiri,
eða 18,8%, og í júni var hún 5,8%. Þetta
skýrir trúlega þann skort á kjúklingum
sem verið hefur hjá verslunum að und-
anfómu. -HKr.
Eins og að láta
refinn gæta
hænsnahússins
Erlent fréttaljós
Selur ekki
rúm heldur
stemningu
Viktor Helödal
Svelnsson
Baráttan um
brauðið
Innlent fréttaljós
Skemmtilegri
skapahár
Nýjung í
hársnyrtingu
HHHI
32 Frægðin er auðgleymd
w 1: Ugla Egilsdóttir
Kosin til að
taka slaginn
Sólveig
Pétursdóttir
Verst að það
hlakki í
Islendingum
Valgerður
Bjamadóttir
Fordæma virkjun
Þingflokkur VG
hefur sent frá sér
ályktun þar sem for-
dæmd er sú ákvörð-
un stjórnar íslenskr-
ar stjómvalda að
heíja framkvæmdir
vegna Kárahnjúka-
virkjunar þrátt fyrir
að samningar við Alcoa séu enn ekki
að fullu frágengnir.
Fjórir sækja um
Fjórir guðfræðingar sækja um emb-
ætti prests i Vestmannaeyjaprestakalli.
Þeir era: Helga Helena Sturlaugsdóttir,
Sigfús Kristjánsson, Stefán Már Gunn-
laugsson og Þorvaldur Víðisson. Emb-
ættið er veitt frá 1. september næst-
komandi.
Opnar samgöngusýningu
Nýtt sýningarhús
verður vígt við
Byggðasafnið í Skóg-
um og sýningin Sam-
göngur á íslandi
verður opnuö í dag af
Sturlu Böðvarssyni
samgönguráðherra.
Þar verða sýnd ýmis
samgöngutæki og tækniminjar ffá ár-
dögum vélaaldar á íslandi og fram yfir
miðja 20. öld.
Lyfjarisar að sameinast
Lyfjafyrirtækið Pharmaco hefur
keypt 51% hlut í Delta fyrir 8,5 millj-
arða króna. Kaupgengi bréfanna í
Delta er 77. Pharmaco greiðir fyrir
bréfin með eigin hlut að nafnverði 116
miljónir króna sem jafngildir genginu
73 í Pharmaco. Stefnt er að samruna
fyrirtækjanna.
Kátína hjá skátum
Um fimm þúsund manns vom í gær
á Landsmóti skáta sem nú er haldið í
Kjamaskógi við Akureyri. í dag er op-
inn dagur á mótssvæðinu og þangað
em allir velkomnir til að kynna sér þá
fjölbreyttu dagskrá sem skátar efna til
á þessari höfuðhátíð sinni.
Samið viö iðnnema
Ríkisstjómin hefur veitt íbúðalána-
sjóöi heimild til að ganga til nauða-
samninga við Félagsíbúðir iðnnema
svo tryggja megi áframhaldandi rekst-
ur þeirra. Til að lækka greiðslubyrði
verða skuldir við sjóðinn afskrifaðar
að hluta til. RÍTV greindi ffá.
Farþegum fækkar
Farþegum sem komu til eða frá land-
inu fjölgaði um 9,3% í júní en þeim sem
fljúga yfir Atlantshafið um ísland
fækkaði um rúman fjórðung. Farþeg-
um i millilandaflugi Flugleiða fækkaði
í heild um 7,6% í júní, borið saman við
sama mánuð á síðasta ári.
Frakkar leigja skip
Frakkar hafa tekið hafrannsókna-
skipið Bjama Sæmundsson á leigu til
næstu þriggja vikna til að fylgjast með
veiðum skipa frá þjóðum ESB á
Reykjaneshrygg. RÚV segir að Frakkar
hafi fram til þessa notað herskip úr eig-
in flota til að sinna þessu verkefhi.
Alsírskur þjófur á ferð
Alsírskur maður með norskt
vegabréf, búsettur hér á landi, var
handtekinn fyrir þjófnað á Akur-
eyri i gær. Hann var staðinn að því
að stela myndavél. Honum var veitt
eftirfór og náöist á Ráðhústorgi. Þar
handtók lögregla manninn. Hann
hefur fleira á samviskunni, sem nú
er rannsakað. -sbs