Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2002, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2002, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 20. JÚLÍ 2002 DV Fréttir Fór frá Litla-Hrauni kl. 10 - tekinn í mikilli vímu á 134 km hraða á stolnum bíl með þýfi kl. 11.30: Segir búálf hafa rétt sér bíllyklana - gæslu krafist - gagnrýnivert hvernig afbrotamönnum er sleppt, segir verjandi 27 ára Reykvíkingur sat fyrir framan héraðsdómara á Selfossi í gær þar sem hann greindi frá því að búálfur hefði afhent sér lykla að ný- legum bíl sem hann stal þar í bæ á fimmtudag. Hann var tekinn á 134 km hraða á klukkustund í Ölfusi og talinn augljóslega í mikilli vímu. í bílnum var þýfi, m.a. veski konu um áttrætt sem hafði verið að versla í Bónus á Selfossi er hún uppgötvaði að veskið hennar var horfið. Lögreglan fann meira þýfi í bílnum, sem tilheyrir starfsfólki Hótel Selfoss, veski, lykla, geisla- spilara og fleira. Manninum hafði verið sleppt út af Litla-Hrauni aðeins rúmri klukkustund áður en lögreglan tók hann fyrir hraðaksturinn. Hún var þá að hafa afskipti af honum í ann- að skiptið eftir að hann gekk út um fangelsisdymar á Eyrarbakka en þá var verið að sleppa honum úr gæsluvarðhaldi. Hilmar Ingimundarson, réttar- gæslumaður mannsins, segir að þar sem lögreglan i Reykjavik hafi feng- iö manninn hnepptan í gæsluvarð- hald í byrjun vikunnar sé gagnrýni- vert að slíkum fóngum sé svo „hent út“ úr fangelsi á landsbyggðinni þegar vistinni ljúki. í þessu tilfelli hefði átt að láta aðstandendur mannsins vita fyrst lögregl- an gat ekki komið mannin- um í sitt heimahérað. Hilm- ar kveðst ætla að fá úr því skorið hvað umbjóðandi hans tók inn i fangelsinu á Litla-Hrauni, hvort læknir gaf honum lyf og hvenær. Veski og bíll Síðastliðinn laugardag handtók lögreglan í Reykja- vík umræddan mann, grun- aðan um þjófnaði og innbrot. Á sunnudag úrskurðaði dómari hann í gæsluvarð- hald á Litla-Hrauni með til- liti til rannsóknarhagsmuna. Á fimmtudagsmorgun, klukkan liðlega tíu, var manninum svo sleppt. í fang- elsinu hafði honum verið afhentur rútumiði til að komast til Reykja- víkur. Einungis fáum mínútum eft- ir þetta var tilkynnt að maðurinn væri að sniglast í kringum búa á Eyrarbakka. Lögreglan sótti mann- inn og ákvað að aka honum að Foss- nesti á Selfossi þar sem rútustöðin er. En maðurinn var greinilega ekk- ert á leiðinni í bæinn - a.m.k. ekki í rútu. Skömmu siðar var kona um áttrætt að versla í Bónus þegar hún Ut að morgni en í annan stein eftir hádegi Maöurinn var í svo mikilli vímu aö lögreglan á Selfossi gat ekki tekiö af honum skýrslu fyrr en daginn eftir. í hinu rúmlega klukkustundarlanga frelsi haföi hann framiö afbrot sem líklega flestum þætti nóg um. tók eftir að veski hennar var horfið. Eitthvað hafði hún séð tO viðkom- andi manns en ekki gert sér ljóst strax að veskið hennar var horfið. Eftir þetta er maðurinn talinn hafa farið inn á Hótel Selfoss. Þar hafi hann látið greipar sópa og m.a. náð í lykla að nýlegum bíl. Á ofsahraða óviðræðuhæfur Þegar maðurinn settist upp í bíl- inn ók hann frá Selfossi. í Ölfusinu, á milli Selfoss og Hveragerðis, var lögreglan m.a. að mæla hraða bíla. Skipti engum togmn að umræddur maður var nú mældur á 134 km hraða á klukkustund og var stöðvað- ur. Bæði veski konunnar og aðrir hlutir sem tilheyrðu starfsfólki Hótel Selfoss fund- ust í bílnum. Var nú rúm klukkustund liðin frá því maðurinn gekk út um dyrnar á Litla-Hrauni. Þegar lögregl- an fór að ræða við hinn handtekna gaf hann þær skýringar að búálfur hefði rétt honum bOlyklana. Hann taldist ekki viðræðuhæfur vegna þeirrar vimu sem hann var í. Ekki var tekin skýrsla af honum fyrr en í gærmorgun. Maðm-inn hefur dvalið í fangageymslum Selfosslög- reglunnar síðustu tvær nætur. Sýslumaðurinn á Selfossi ákvað í gær að fara fram á að maðurinn yrði úrskurðaður í gæsluvarðhald á þeim forsendum að hann væri grunaður um fjölda afbrota. „Hinn grunaði" gaf dómaranum sömu skýringar og hann hafði gefið lögreglu á tilkomu billyklanna í sínar hendur á fimmtu- dag. Dómarinn ákvað að taka sér sól- arhringsfrest, þangað til í dag, til að kveða upp úrskurð. -Ótt Hrefnukjöt í verslanir: Skárra en ekkert „Kjötið smakkast vel, ég mæli með þessu,“ sagði Árni Mathiesen sjávar- útvegsráðherra, inntur eftir því hvernig norska hrefnukjötið, sem verslanir Nóatúns hófu sölu á í gær, bragðaðist. „Það væri vissulega skemmtilegra ef kjötið væri frá okkur komið en þetta er skárra en ekkert," sagði Árni og bætti því við að það væri ekki spurning um hvort heldur hvenær íslendingar hæfu hvalveiðar að nýju. „Það er aðeins tímaspursmál hvenær veiðar hefjast. En þá verðum við að geta átt viðskipti með hval- kjötið og þetta er fyrsta skrefið í því,“ sagði Árni og ítrekaði einnig að mikilvægt væri að Islendingar gengju í Alþjóðahvalveiðiráöiö. Um 4 tonn eru í boði af hvalkjöt- inu, sem íslenskar sjávamytjar flytja inn, og er um að ræða bæði fryst og ófryst kjöt. Sigurður Markússon, innkaupastjóri Nóatúns, segir að margir hafi spurst fyrir um kjötið og ekkert sé því til fyrirstöðu að flytja inn meira af hvalkjöti ef eftirspurn verður mikil. Stefán Úlfarsson, sem sá um að elda ofan í mannfjöldann fyrir utan Nóatún í gær, sagði kjötið vera það besta sem völ væri á. „I því eru eng- in bein og engar trefjar. Þvi er ein- faldlega skellt á grillið, snöggsteikt á báðum hliðum og það er tilbúið.“-vig DV-MYND ÞOK . ~n,- Nammi namm Árni Mathiesen sjávarútvegsráðherra kom ásamt dætrum sínum tveimur og bragöaöi á norska hrefnukjötinu sem verslanir Nóatúns hófu sölu á í gær. Árni segir aöeins tímaspursmál hvenær íslendingar hefji hvalveiðar. Hafnarsamningur við Alcoa fyrir árslok Umhverfismat vegna nýrrar hafn- ar fyrir stóriðju í Reyðarfirði, sem þjónar væntanlegu álveri Alcoa þar, hefur þegar farið fram. Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra og John Pizzey, aöstoöarforstjóri Alcoa, undirrituðu vUjayfirlýsingu um ál- ver í Ráðherrabústaðnum í Tjarnar- götu í gærmorgun. Hermann Guð- jónsson, forstjóri Siglingastofnunar, segir að höfnin sé inni á gUdandi hafnaráætlun tU ársins 2004 sem Al- þingi samþykkti vorið 2001. Höfnin verður við Hraun i Reyðarfirði og verður á þessu ári varið 47 mUljónum króna vegna 260 metra langs stálþUsbakka með 14,3 metra dýpi, auk lagna og steyptra þekja, aUs 7.800 ferm. Á árinu 2003 verður varið 502 mUljónum króna til þessa verks og 114 miUjónum króna á árinu 2004, en aUs verður hlutur ríkissjóðs í þessum hluta Smárl Gelrsson. hafnarinnar 60%. Á þessu ári verður einnig byrjað á dýpkun við stálþU niður í 14,3 metra, sem er m.a. 118.000 rúmmetra dæling og gerð siglingarmerkja, og verður á þessu ári varið til verksins 43 milljónum króna og 48,5 mUljónum króna á ár- inu 2003. Alls er hlutur ríkis- sjóðs í þessum verkhluta 75%. HeUdarkostnaður við höfnina er um einn milljarð- ur króna og þá eiga um 60 þúsund tonna skip að geta at- hafnað sig þar. Hlutur ríkisins er því nálægt 750 mUljónum króna. „Gert er ráð fyrir því að Hafnar- sjóður Rjarðabyggðar leggi hafnar- samning fyrir stjóm Alcoa eigi síðar en í lok desembermánaðar 2002. Það var búið að gera drög að þessum samningi við Norsk Hydro svo að þegar er búið aö vinna stóran hluta,“ segir Smári Geirsson, forseti bæjar- stjórnar Fjarðabyggðar. Er undirskriftardagurinn 19. júli ekki mikill hátíðisdagur Aust- firðinga? „Þetta er mjög stór dagur, eins konar þjóðhátíðardagur, ekki bara fyrir okkur Austfxrðinga heldur aUa íslendinga.“ -GG Ahugi á stöðu framkvæmda- stjóra Granda Árni VUhjálmsson, prófessor og stjómarformaður Granda hf„ mun sinna starfi framkvæmdastjóra þar tU nýr framkvæmdastjóri hefur ver- ið ráðinn að félaginu. Brynjólfur Bjamason, sem gegnt hefur starfi framkvæmdastjóra mörg undanfar- in ár, hefur fekið við starfi forstjóra Landssímans. Árni segir að þar sem þjóðfélagið sé í hálfgerðum hægagangi nú vegna sumarleyfa verði ekki tekin ákvörðun um framhaldið fyrr en síðar í sumar eða haust. Ljóst sé þó að hann verði ekki áfram í starfmu. Hann segir að ýmsir hafi gefið sig fram að undanfórnu sem sýnt hafi áhuga á framkvæmdastjórastarfmu, svo aUt eins kann að verða gengið tU samninga við einhvern þeirra eins og að auglýsa starfið. Síðasti vinnsludagur i frystihúsi Granda við Norðurgarð fyrir fjögurra vikna sumarstopp var sl. fóstudag. Sá timi verður notaður tU nauðsynlegs við- halds á tækjum og fleiru. -GG Vopnaskak á Vopnafirði Nú eru Vopnafjarðardagar að sigla inn i austfirska sumarafþrey- ingu en þeir standa frá 20. tU 28. júlí og er áhersla lögð á uppistand, böll, íþróttir, skemmtanir og almenna menningarupphafningu. Þaö er menningarmálanefnd Vopnafjarðar sem stendur fyrir Vopnaíjarðardög- um og er formaður nefndarinnar BorghUdur Sverrisdóttir. Aðspurð segir hún að hljómsveitimar trekki mikið að en auk þeirra séu aUs kyns skemmtanir, leiktæki og annað og hafi verið stefnt að því að gera Vopnaskak fjölskylduvæna hátíð þar sem aUir finni eitthvað við sitt hæfi. Vopnafjarðardagar eru hluti af verkefninu „Menning um landið“ sem er hópur áhugafólks um menn- ingu úti á landi og stuðlar að þvi að bæta menningu á landsbyggðinni og hafa hana sem fjölbreyttasta. Það er í samvinnu við hóp sem stendur að hagyrðingakvöldi sem verður 26. júlí. Vopnaskak hefur verið árlegur viðburður undanfarin ár og Aust- firðingar hafa venjulega fjölmennt á dagskrána, sem og ferðafólk. -GG Álversframkvæmdir: 650 milljóna virkjunarvegur Vegagerðin á Austurlandi er nú að ljúka við gerð vegar í Fljótsdal sem hófst fyrir tveim árum vegna virkjunarframkvæmda í tengslum við álver í Reyðarfirði. Sveinn Sveinsson, tæknifræðingur hjá Vegagerðinni fyrir austan, segir að þar sé um að ræða 18-19 km veg í Atlavík og langleiðina inn að vænt- anlegu stöðvarhúsi í Fljótsdal. „Þær framkvæmdir eru á lokastigi. Á þessum kafla eru fjórar brýr og er vegurinn lagður bundnu slitlagi." Sveinn segir að verkið kosti um 650 milljónir króna með brúm og öllu saman. Auk þessa er verið að byrja á endurbyggingu vegar á milli Reyð- arfjarðar og Eskifjarðar í tengslum við álversframkvæmdir. Sveinn seg- ir að sá vegur hafi verið gamall og hafi ekki uppfyllt þær kröfur sem gerðar eru í dag. -HKr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.