Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2002, Blaðsíða 22
22
Helg orb lo ö I>'V LAUGARDAGUR 20. JÚuT 2002
Ómótstæðilegur maskari
„Ég nota alveg frábæran maskara frá Urban Decay sem
lengir og þykkir augnhárin og gerir mann alveg
ómótstæðilegan. Það er eins með maskarann
og símann minn, báðir eru algjör nauð-
synjavara og fer ég ekkert án þess
að hafa bæði símann og maskarann % ‘
með.“
Diesei
■tf vj&áP ilmvatn
„Ég nota tvær
** . ' V | mÆT 8erðir af ilmvatni, annars
vegar Diesel ilmvatn í svona
töskustærð, sem er mjög hent-
ugt. Lyktin af því er mjög fersk,
klassísk og góð, klikkar aldrei. Ég er búin að
nota þetta ilmvatn í svona ár ásamt Poison frá Christian
Dior, sem er geggjuð lykt, en ég nota
hana svona við fínni tækifæri.
jjjr Bleikt gloss
.A, „Gloss er alveg möst að hafa við
jmTy höndina til þess að gera sig sæta svona á
daginn. Ég er yfirleitt í þessum bleiku litum
og nota þá gloss frá Urban Decay eða Hard
Candy en mér finnst þær vörur alveg sérstaklega
góðar og töff.“
Ilard Gandy púður
„Púður er að mínu mati alveg
ómissandi og því mjög slæmt að .
gleyma því heima, ég held að I
flestar konur geti verið sam- jmk
mála mér í því. Sjálf nota
ég Hard Candy púðrið, það
er mjög gott. Svo nota ég
undirfarða í sömu línu, aðallega
þegar ég fer út á kvöldin eða þegar ég vil
að farðinn endist lengi.“
kíkt í snvrtibudduna
Fyrirsætan Ásdís Rán Gunnarsdóttir er mjög hrif-
in af sngrtivörunum frá Hard Candy oq Urban
Decay, ekki síst glossum íbleikum tónum. Það var
alla vega niðurstaða DV eftír að hafa fenqið að
gramsa ísnyrtibuddu hennar en þar fannst reynd-
ar ýmisleqt annað en bara snyrtivörur. Þar á með-
al var Low Carb próteinsúkkulaði, þvíÁsdís huqs-
ar ekki bara vel um andlitið heldur línurnar í
heild. Það er annars nóg að gera hjá Ásdtsi þessa
daqana þvíhún rekursinn eigin módelskóla eins
og lesa má um á www.model.is. Þar er stúlkum
m.a kennd framkoma, sjálfstyrkinq, vímuvarnir,
nærinqarfræði, sjálfsvörn og förðun.
Skemmtilegri
skapahár
Skapahár kvenna hafa þurft að þola ýmsa meðferð frá hár-
eyðingarkremum, rakvélum og vaxi upp á síðkastið. Nú
geta konur einnig litað þessi líkamshár sín alveg eins og
hárin á höfði sínu því á markaðinn eru komnir sérstakir
skapaháralitir.
Það er heildsalan íflex sem flytur inn glo glo-skapa-
háralitinn en hann á ættir sínar að rekja til Spánar.
Liturinn er þó einungis seldur í netverslun femin.is
enn sem komið er þar sem apótek og snyrtivöruversl-
anir hafa verið eitthvað feimnar
við að bjóða upp á slíkar vörur.
„Við erum hins vegar framandi og
ögrandi og okkur finnst ekkert
feimnismál að vera með svona lit i
versluninni hjá okkur,“ segir Bóas
R. Bóasson, starfsmaður Femin.is,
og er viss um að þessi nýjung eigi
eftir að falla íslenskum konum vel
í geð.
Skapaháralitun er svo sem ekki
nein ný bóla, þvi sögur hafa verið
á kreiki um það að Marlyn Monroe
hafi litað þessi hár á sér á sínum
tíma með vægast sagt vondum ár-
angri því hún á að hafa fengiö sýk-
ingu af þeirri tilraun. Hvað svo
sem er satt í þeim sögum þá hefur
víða erlendis verið boðið upp á
píkuhársnyrtingu á snyrtistofum
og þar með litun á skapahárum.
Slík þjónusta hefur t.d verið vin-
sæl fyrir brúðkaup þar sem brúö-
urin hefur farið og látið lita píku-
hárin rauð og látið búa til hjarta
úr þeim.
Nú geta íslenskar brúðir bara dundað við þessa
snyrtingu heima því það eru til fjögur litbrigði af lit-
unum frá glo glo, þar af einn rauður. Hinir litirnir
eru: mjög ljós, dökkbrúnn og golden-ljós.
Skapaháraliturinn er enn sem koniið er
eingöngu seldur á heimasíðunni
www.femin.is en hann er kjörinn til lit-
unar á ýmsum öðruin líkamshárum eins
og t.d gráunt karlmannsbringum.
„í rauninni eru þessir litir ekki svo ólíkir þeim lit-
um sem notaðir eru til háralitunar nema hvað þeir
eru ofnæmisprófaðir og viðkvæm húö’ á að þola þá,“
segir Bóas. Litirnir eru algjörlega Skaðlausir, þeir
erta ekki húðina og lita hana ekki
heldur. 100 konur voru látnar
prófa þá áður en liturinn var sett-
ur á markað með góðum árangri.
Litirnir innihalda Monoi-olíu frá
Tahiti, lífræn aukaefni og eru
lausir við ammóníak. Hver pakki
inniheldur plasthanska, lit og festi
og tekur litunin um 20-30 mínútur
en ljósu litirnir þurfa lengri tíma
tii að virka. Liturinn á að haldast
á í um tvo mánuði.
Þar sem það má í raun nota
skapaháralitinn á öll líkamshár er
það bara hugmyndaflugið sem
stoppar framkvæmdimar. Það er
t.d. alveg kjörið að nota litinn til
þess að lita dökk hár sem vaxa oft
niður á læri á konum en ljósi litur-
inn er svo sterkur að hann nær að
aflita slik hár. Einnig mætti hugsa
sér að karlmenn hefðu kannski
áhuga á að flikka upp á grá bringu-
hár sín með honum. Ef skapahára-
litun nær einhverjum vinsældum
hér á landi mætti hugsa sér að skapahár kvenna fari
að sikka í kjölfarið þar sem tískan undanfarið hefur
verið sú að vera með sem minnst hár á kynfærunum
og þar af leiðandi hefur ekki verið mikið til þess að
lita. -snæ