Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2002, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2002, Blaðsíða 30
Helga rbictð JOV LAUGARDAGUR 20. JÚLÍ 2002 Skopmyndin er klassísk: Maður og kona ganga sitt huorum megin við húshorn, eru rétt ókomin fgrir hornið og rekast augljóslega saman ínæsta skrefi. Hvort um sig er með eindæmum ófrítt en sjá fgrir sér að hitt sé fegurðin holdi klædd. Mgndin er að upplagi skot á trúgirni bjartsgnna notenda einkamála- dálka dagblaðanna en tímarnir bregtast og tæknin með. Nafnlaus samskipti fólks, þar á meðal rómantískar þreifingar, fara nú að mestu legti fram á Netinu gegnum tölvu á ákveðnu formi sem - miðað við hversu þjált það er ímunni - gæti átt upp- runa sinn íStar Trek mgnd: Irkið er ekki ngtt af nálinni en sífellt fleiri nota það til skrafs og skemmtunar. Helgarblaðið ræddi við Finnboga Ásgeir Finnbogason, meðlim íFélagi íslenskra irkara, og Bimbi, eins og hann er kallaður, sagði meðal ann- ars frá innbgrðispörun meðal irkara, öðr- um sjálfum á Netinu og þeirri sérstöku regnslu að hafa lent ílífshættu á irkinu. Heyrðu frændi, svo þú ert bara svona mikill nörd? Nokkrir hlutir sem fólk losnar við - bæði þolendur og gerendur - með því að nota irkið í staðinn fyrir „venjuleg" samskipti: Andfyla, svitalykt, leiðinlegur eða á einhvem hátt pirrandi málrómur (hugsið: Fran Dreschner), stam, ein- kennilegir andlitskækir, handapat, fruss, slef og munn- vatnsúði; öskur og hvísl með tilheyrandi hellu og höfuðverk eða skiiningsleysi; svip- eða raddbrigði sem auka við orðin óæskilegri merkingu sem það kýs ekki að skilja og síðast en ekki síst: Munnræpa - að minnsta kosti enn um sinn þang- að til radd-ritvinnsluforrit Stephens Kings verður aðgengi- legt á almennum markaði. Eftir að hafa vetóað prívat þá hugmynd að spjalla við Bimba á irkinu og vera frekar gamaldags hittir helgarblað- ið Bimba á kaffihúsi við Rauðarárstíg. Ef þú œttir aö útskýra irkiö fyrir risaeölu á tölvuöld - ekki svo aö skilja aó þaó sé endilega hinn dœmigeröi lesandi helg- arblaðsins - hvernig myndi það hljóma? „Kaffihús á Netinu. Allir velkomnir en aðalkúnnahópur- inn óframfærið fólk sem nýtur sín kannski ekki nef í nef í margmenni og kann vel við nafhleysið. Að geta búið sér til sína eigin imynd og vera dæmt eftir því sem það segir, ekki útlitinu. Það er hægt að líta út eins og róni, raka sig ekki og fara ekki f bað allt árið án þess að það hindri innri mann- inn f að láta ljós sitt skína; innri mann sem kannski er vel viti borin og máli farin manneskja og birtist þannig á irk- inu. Nafnið irk er komið af ensku skammstöfuninni IRC sem stendur fyrir Intemet Relay Chat.“ Til em sérstök samtök irkara, Félag íslenskra irkara. Fé- lagið stofhuðu fmmheijar irksins á íslandi i kringum spjall- rás sína upp úr 1990 til að hafa stjóm á málunum og verja sig gegn skemmdarvörgum og tölvuþijótum af öllum teg- undum. í dag telur félagið nokkra tugi og segir Bimbi ágæt- is vinskap hafa tekist með virkum félagsmönnum. „Við höfum hist og djammað öðm hveiju..." Á irkinu, þá? „Nei, reyndar ekki,“ segir Bimbi og hlær „maður reynir nú að líta af skjánum svona við og við að minnsta kosti! Það er lítið fútt í því að sitja einn og sötra. Fátt segir af einum.“ Á heimasíöu ykkar má sjá aö talsvert mikið er um innbyrö- is pörun meölima og í langflestum tilvikum hefur fólk þá kynnst á irkinu. Erþetta algeng atburðarás: Tölvuspjall, trú- lofun, bleyjuskiptingar? „Samskipti með einhvers konar erótískum undirtón og spennu em ein algengasta ástæðan fyrir þvi að fólk noti irk- ið. Þetta er alveg jafngóður miðill og hver annar til að kynn- ast fólki, hversu langt sem fólk hefur hug á að kynnin gangi, einskorðist við tölvuna eða leiði til þess að fólk hittist kannski einhvem tímann í eigin persónu. Fljótvirkara en pennavinátta, hraðara og markvissara en einkamáladálkar, minna stress og einfaldara í framkvæmd en að hittast augliti til auglitis á venjulega mátann í daglega lífmu. Fólk situr bak við dulnefiiið og þarf ekki að gefa meira upp en það vill. Hefur kannski meira sjálfstraust til að opna sig og getur myndað eina setningu án þess að hiksta og stama, ef það er vandamálið. Ef því líkar ekki hinn aðilinn, þá er það bara næsti. Svipað og annars staðar. í raun er þetta bara einn valkostur í viðbót, ef illa gengur á öðmm sviðum er þetta alla vega ein leið til að hafa samskipti við annað fólk.“ Bamaníðingar í sauðargæru Praktískir lesendur taka auðvitað eftir að Bimbi gleymdi einum augljósum kosti irk-stefnumóta, sem kann að vera einhverjum mikilvægur á krepputímum: Kostnaðurinn er í lágmarki. Hann er enginn, núll fyrir utan símskrefin og bara það kynni að virka mjög sexi á aðsjálla og/eða fá- tækara fólk í makaleit. Blóma- og konfektsalar, bíó- og veit- ingahúsaeigendur (og kannski líka flugfélög og skartgripa- búðir, svo gert sé ráð fyrir uppunum) missa spón úr aski sínum meðan turtildúfumar kurra óséðar sín hvom megin við módemið. Að vísu mætti f kjölfarið færa ákveðin rök fyrir því að irk-ástir séu þjóðfélagslega óhagkvæmar en það gildir einu. Ástin hlýtur að vera hafm langt yfir markaðinn. Að minnsta kosti flögrandi yfir yfirborðinu... í öllu falh ekki alveg sokkin enn. Hvað um það. Að sögn Bimba em þó fjarri því allir notendur irksins í rómantiskum hugleiðingum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.