Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2002, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2002, Blaðsíða 25
25 LAUGARDAGUR 20. JÚLÍ 2002 H e Iga rh lctð lOfSf I)V-myndir E.Ol Björn Bragi steikir svínakjötið rólega á öllum hliðum áður en liann bregður því í ofn í 5-7 mínútur. Það fer vel um meðlætið í litl- um koparpottum meðan á eld- un þess stendur. Gulrótarmaukið er ljósgult á litinn, enda soðið í matreiðslu- rjóma og smjörklípu bætt út í. Ifér mokar Björn Bragi því í plastsprautu til að forma það fallega á diskinu. Frískandi hvítvín og bragðmildð rauðvín - frá Suður-Afríku og Ghile er val Kristjönu Sveinbjömsdóttur hjá Austurbakka Vín frá Suður-Afríku og fleiri fjarlægum lönd- um hafa verið að öðlast æ meiri vinsældir hér heima enda hlotið ágætis viðtökur þeirra sem kunna að meta hina dýru dropa, þ.e. vín. Og þeir virðast fjölmargir, mun fleiri en margir gera sér grein fyrir. Um það vitna tölur Hagstof- unnar um áfengisneyslu síðustu ára sem sýna að neysla léttra vína, þ.e. rauðvina, hvítvína, rósavina, freyðivina og kampavína hefur aukist jöfnum skrefum. Er neysla léttra vína nú um 17 prósent af heildarneyslunni, eða tæpir 10 lítrar á mann. Áhugamenn um vín fagna þeirri þróun, einfald- lega þar sem þessar tölur endurspegla „heil- brigðari“ neysluvenjur en áður. Ástæðu þessar- ar þróunar má að stórum hluta rekja til aukins áhuga á mat og matargerð en hann fer gjarnan saman við áhuga á vínum eða einfaldlega áhuga á að drekka gott vín og láta sér líða vel. Njóta lífsins. Þessi mataropna er ágætis dæmi um þessa tengingu. En aftur að vínum vikunnar að þessu sinni. Kristjana Sveinbjörnsdóttir hjá víndeild Austur- bakka fór á fjarlægar slóðir þegar hún valdi vín með svínakjötinu hér á siðunni. Fyrst ákvað húna að mæla meö hvítvíni, hinu suður-afríska Bon Courage Chardonnay Prestige Cuvée sem kemur frá vínframleiðandanum W.O. Robert- son. Angan af þroskuðum sítrónum, ristaðri eik með vanillu og hnetutónar eru einkenn- andi fyrir þetta frískandi og kraftmikla vin sem auk þess státar af bragðeigind- um er minna á suðræna ávexti, kókos og ferskju. Eftirbragðið er langt og \ flókið. Þetta chardonnay-vín fæst í I ÁTVR og verðið er gott: 1.270 krónur. Ef rauðvín verður fyrir valinu vill Kristjana vekja athygli á Canepa Cabernet Sauvignon frá Chile. Þetta vín frá Canepa, gert úr Cabernet Sauvignon þrúgunni, þekkja margir af góðu einu. Þetta er bragðmikið vín og með góða mýkt. Bragð- ið einkennist af nokkuð miklum ávexti ásamt þroskuðum berjum eins og sólberj- um, brómberjum og plómum. Canepa Cabernet Sauvignon er kryddað, með miðlungsfyllingu en ríkulegu eftirbragði. Maður smjattar ósjálfrátt. Canepa Caber- net Sauvignon fæst í verslunum ÁTVR og kostar 1.390 krónur. Umsjón Haukur Lárus Hauksson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.