Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2002, Side 12
12
Helgarblað
LAUGARDAGUR 20. JÚLÍ 2002
DV
Bush boðar hertar aðgerðir gegn fjármálaspillingu:
Erlendar fréttir vikunnar
Erlingur
Kristensson
blaöamaöur
Fréttaljós
Eins og að láta refinn
gæta hænsnahússins
George W. Bush Bandaríkjaforseti
á nú mjög undir högg að sækja heima
fyrir, eftir að upp hefur komist um
röð af meintum fjármálasvikamálum
sem leitt hafa til mesta hruns á banda-
rískum fjármálamörkuðum og víðar í
langan tíma. Við þau mál hafa síðan
bæst vafasamar viðskiptakúnstir
hans sjálfs og fleiri háttsettra ráða-
manna eins og Dick Cheneys varafor-
seta, Thomas Whites hermálaráð-
herra og Tom DeLays, leiðtoga repú-
blikana í fulltrúadeild þingsins, sem
jafnvel tengjast stórsvikamálum eins
og Enron-málinu.
Það sem snýr að Bush sjálfum er
frá þeim tíma þegar hann var í for-
svari fyrir orkufyrirtækið Harken
Energy Corporation á níunda ára-
tugnum, en þá fékk hann sjálfur 180
þúsund dollara að láni hjá fyrirtæk-
inu á 5% vöxtum sem voru mun lægri
vextir en viðgengust á lánamarkaði á
þeim tíma. Þetta þótti í meira lagi
óeðlilegt og töldu sumir að þar hefði
Bush notið eigin góðvildar eða vina
sinna.
Sakaöur um tvöfeldni
Nú er málið aftur komið í hámæli
eftir að Bush sagði í ræðu í síðustu
viku að banna ætti slík lán og í kjöl-
farið hafa stjórnarandstæðingar sak-
að hann um tvöfeldni eftir að banda-
ríska fjármálaeftirlitið staðfesti mála-
vexti. Talsmenn forsetans neita að
hann hafi gert rangt með því að taka
lánið á niðursettum vöxtum og full-
yrti Scott McClellan, helsti talsmaður
Hvíta hússins, að lántakan hefði verið
fyllilega eðlileg og málið lægi ljóst fyr-
ir að öllu leyti.
Aðspurður um fyrirhugaöar að-
gerðir gegn tjár- og bókhaldssvikum,
sagði hann að ásakanimar gegn Bush
hefðu ekkert með það að gera og að
augljós þörf fyrir hertar reglur væri
nýlega til komin. „Fjársvik hafa færst
í aukana síðustu ár og það er ástæðan
fyrir því að nú verður að grípa til
hertra aðgeröa," sagði McClellan.
Allt of viðriðinn spillinguna
Talsmenn demókrata í þinginu eru
þó á öðru máli og segja það augljóst að
Bush hafi misnotað aðstöðu sina til að
komast yfir ódýrari lán og það sé í
meira lagi vandræðalegt að hann vilji
nú banna öðmm að gera það sem
hann sjálfur varð uppvís að. Þetta
sanni tvöfeldni og ótrúverðugleika
hans.
Tom Daschle, leiðtogi demókrata í
öldungadeild bandaríska þingsins,
sagði að Bush væri þess vegna í engri
aðstöðu til að boða hertar aðgerðir
gegn spillingunni. „Hann er sjálfur
allt of viðriðinn spillinguna til að geta
gagnrýnt aðra,“ sagði Daschle og Ric-
hard Gephardt, leiðtogi demókrata í
fulltrúadeild þingsins, bætti við að
það væri erfitt fyrir Bush að setja
leikreglur sem hann hefði sjálfur brot-
ið.
Ekki farið að lögum
Þetta er ekki eina vandræðamálið
sem Bush stendur sjálfur frammi fyr-
ir þessa dagana, því fyrr í mánuðin-
um viðurkenndu talsmenn Hvíta
hússins að hann hefði ekki að öllu
leyti farið að lögum né heldur gert
nánari grein fyrir sölu hlutabréfa
meðan hann var yfirmaður Harken
Energy. Þeir kenndu um skriffmnsku-
mistökum og sögðu lögfræðinga fyrr-
irtækisins bera ábyrgöina á því að
hluti tilskilinna pappíra hefðu ekki
borist í tæka tíð áður en hlutabréfin
voru seld.
Þetta gerðist árið 1990, en þá seldi
Bush verulegt magn hlutabréfa í
Harken, fyrir allt að 850 þúsund doll-
ara, rétt áður en tilkynnt var um
skyndilegt veröfall þeirra, en á sama
tíma átti hann sæti í endurskoðunar-
nefnd fyrirtækisins og hefði þess
vegna átt að vita allt um stöðuna.
Tvelr frá Texas
Þeir Bush Bandaríkjaforseti og Cheney varaforseti hafa báöir átt undir högg aö sækja aö undanförnu vegna meintrar
aöildar aö fjársvikamálum sem leitt hafa til mesta hruns á bandarískum fjármálamarkaöi í langan tíma.
verk að elta uppi og koma lögum yfir
fjárglæpamenn.
Hann sagði einnig að vaxandi hag-
sæld og skjótfenginn gróði í byrjun tí-
unda áratugarins í stjómartíð Clint-
ons hefði leitt til spillingar og óhófs.
„Við verðum að hraða siðvæðingunni
og snúa viö blaðinu. Það er óþolandi
að lesa vikulega um ný fjármálamis-
ferli á viðskiptasíðum dagblaðanna,"
sagði Bush sem einnig leggur til 100
milljóna dollara fjáraukningu til efl-
ingar fjármálaeftirlitsins SEC.
Veröur aö láta verkin tala
Andstæðingar forsetans lýstu sum-
ir ræðunni sem innihaldslausu orða-
gjálfri, en demókrataleiðtoginn Tom
Daschle leyfði sér að hæla forsetanum
fyrir viðleitnina, en bætti við að hann
yrði að láta verkin tala.
„Hann talaði digurbarkalega en
hafði í raun lítið fram að færa. Við
þurfum allt annaö en fóðurlegan fyrir-
lestur gegn fjárglæpum. Við þurfum
aðgerðir og þeir sem bera ábyrgðina
eiga að fara bak við lás og slá,“ sagði
Daschle.
Ræða Bush hlaut misjafnar undir-
tektir hjá áheyrendum og auðheyrt að
hún þótti ekki trúverðug. Sumir við-
skiptajöframir fögnuðu þó kalli hans
um aukið siðferði, en einn þeirra tók
svo til orða að þetta væri eins og að
láta refinn gæta hænsnahússins.
Cheney fremstur í flokki
Það með er öll sagan ekki sögð því
eins og áður sagði hafa fleiri ráða-
menn verið grunaðir um aðdd að
sukkinu. Þar fer Dick Cheney, vara-
forseti Bandaríkjanna, fremstur í
flokki, en hann hefur verið sakaður
um bókhaldssvik á meðan hann
stjómaði verktakafyrirtækinu Halli-
burton í Texas á tíunda áratugnum.
Það eru samtökin „Réttarvaktin"
sem tekið hafa aö sér að höfða mál
gegn Cheney i umboði nokkurra hlut-
hafa Halliburton, sem halda því fram
að Cheney hafi staðið fyrir bókhalds-
svindli sem leiddi til þess að verð-
mæti hlutabréfa í fyrirtækinu var í
meira lagi ofmetið og varð til þess að
margir töpuðu stórfé.
Óeölilegur upplýsingaleki
Þá hefur „Réttarvaktin" einnig far-
ið fram á dómsúrskurð tU aö fá að-
gang að gögnum varðandi undirbún-
ing við gerð orkustefnu yfirvalda, sem
Cheney stjómaði, en þar er hann
grunaður um að hafa gefið vinveittum
orkufyrirtækjum, eins og Enron,
óeðlUegan aðgang að upplýsingum og
jafnvel haft þau með í ráðum.
Þá hefur Cheney verið velt upp úr
því að hann hafi árið 1996 komið fram
á myndbandi þar sem hann hrósar
endurskoðunarfyrirtækinu Andersen
í hástert og hvernig það hafi opnað
augu hans fyrir ýmsum rekstrarleg-
um möguleikum, en hann var þá í for-
svari fyrir HaUiburton. Síðan hefur
Andersen verið sakaður um víðtækt
bókhaldssvindl og falsanir í Enron-
málinu og þykja þræðir Andersens
því liggja nokkuð nálægt varaforset-
anum.
Bush tekur upp hanskann
Bush hefur heldur betur tekið upp
fyrir hann hanskann og fullyrðir að
þetta sé aðeins stormur í vatnsglasi
stjórnarandstöðunnar sem komnir
séu með kosningaskjálfta fyrir þing-
kosningarnar í nóvember nk. Hann
segist sannfærður um sakleysi
Cheneys og hrósar honum fyrir störf
hans. „Ég valdi hann í embættið af
því að ég vissi að það er mikið í hann
spunniö. Hann er að gera góða hluti
og stendur sig vel,“ sagði Bush.
Þrátt fyrir allan spillingarorðróm-
inn, hefur almenningur i Bandaríkj-
unum enn þá mikið persónulegt dá-
læti á Bush og í nýlegri skoðanakönn-
un lýsa 70% aðspuröra ánægju sinni
með frammistöðu hans.
Aftur á móti taldi mikill meirihluti
aðspurðra að bandarísk stjórnvöld
væru allt of hagsmunatengd og að
þeirra áliti hefði efnahagsástandið
ekki verið verra síðan áriö 1994. Þá
áleit þriðjungur aðspurðra að stjóm-
völd legðu allt of mikla áherslu á af-
komu stærri fyrirtækja á kostnað
þeirra smærri.
Stjórnmálaskýrendur skýra þessa
sterku stöðu Bush á þann hátt að
bandarískur almenningur blandaði
ógjaman saman persónuleika forset-
ans og stjómmálaþrasi hversdagsins,
en það gæti þó breyst á einni nóttu ef
hann nær ekki hreinsa sig af áburðin-
um. Á meðan fengi hann að njóta
ávaxtanna sem hann hefur ræktað
með þjóðinni siðasta árið í sameigin-
legri píslargöngu eftir hryðjuverka-
árásimar þann 11. september.
Undirritaðl yfirlýsingu
Samkvæmt fréttum bandarískra
fjölmiðla mun Bush hafa undirritað
yfirlýsingu þegar hann keypi bréfm,
þar sem hann lofaði að selja þau ekki
næsta hálfa árið á eftir. Hann beið þó
ekki boðanna og seldi bréfin tveimur
mánuðum síðar með dágóðum hagn-
aði, eins og áður sagði, rétt áður en
þau féllu í verði.
Sjálfur segist forsetinn hafa farið að
lögum og í tíma skilað inn öllum
nauðsynlegum upplýsingum varðandi
söluna til viðkomandi yfirvalda. Þeg-
ar bandaríska fjármálaeftirlitið skoð-
aði málið á sínum tíma var Bush ekki
kallaöur fyrir og slapp því með
skrekkinn.
Hertar refsingar
Málið fékk svo aukna athygli eftir
að upplýst var um fjármálahneykslið
hjá fjarskiptarisanum WorldCom i
lok júní, en í kjölfar þess lýsti Bush
hneykslan sinni og sagðist vera arg-
ur út í stjórnendur stórfyrirtækja
sem stæðu ekki í stykkinu. Á sama
tíma er hann sjálfur undir smá-
sjánni.
Þessu ergelsi sínu lýsti Bush á
fundi með fulltrúum fjölmiðla eftir að
hafa á fundi með um eitt þúsund
framámönnum í viðskiptalífinu á
Wall Street, kynnt nýja stefnu sína
um hertar aðgerðir og refsingar í fjár-
svikamálum í viðleitni sinni til að
endurvekja traust á viðskiptalífmu.
Bætt viöskiptasiöferði
„Það sem við þurfum í dag er bætt
siðferði í viðskiptum," sagði Bush og
lýsti í framhaldinu tillögum sínum
um mun strangari löggjöf gegn bók-
haldssvikum og fjárglæpum þar sem
gert er ráð fyrir allt að helmings leng-
ingu fangelsisdóma og stofhun sér-
stakrar eftirlitssveitar undir stjóm
Larry Thompsons aðstoðardómsmála-
ráðherra, sem ætlað væri það hlut-
Skotið að Chirac
Lögreglan í Par-
ís handtók 25 ára
gamlan hægriöfga-
mann eftir meinta
tilraun hans til að
myrða Jacques
Chirac Frakk-
landsforseta þegar
forsetinn tók þátt í
dagskrá Bastilludagsins, þjóöhátíðar-
dags Frakka á sunnudaginn. Atburð-
urinn átti sér stað á Champs Elyseé í
París, en þar fór Chirac fyrir hátíðar-
göngu hersins i opnum herjeppa. Til-
ræðismaðurinn, sem er þekktur öfga-
maður úr röðum nýnasista, hafði
komið sér fyrir meðal áhorfenda ná-
lægt Sigurboganum og leynt skot-
vopninu, sem var 22 kalíbera veiðiriff-
ill, í gítarkassa.
27 farast í skotárás
Stjórnvöld í Indlandi kenna Paki-
stönum um mannskæða skotárás
skæruliða aðskilnaðarsinna í einu af
fátækrahverfum Jammu í Kasmír um
síðustu helgi, þar sem að minnsta
kosti 27 óbreyttir borgarar af hindúa-
trú, mest konur og böm, létu lífið og
meira en þrjátíu særðust alvarlega.
Að sögn sjónarvotta læddust átta
skæruliðar, dulbúnir sem hindúar,
inn í Qasim Nagar-hverfið þar sem
þeir byrjuðu á því að henda hand-
sprengjum áður en þeir hófu skothríð
á óvarið fólkið.
Tíu ára fórnarlamb alsælu
Grunur leikur á að
Jade Slack, bresk tíu
ára stúlka sem lést á
sjúkrahúsi í Lancast-
er á sunnudaginn,
hafi tekið inn allt að
fimm alsælupillur.
Reynist þetta rétt er
Jade yngsta fómar-
lamb alsælu í Brctlandi. Telpan mun
hafa verið i heimsókn hjá vinkonu
sinni áður en hún veiktist og leikur
grunur á að hún hafi komist yfir lyfið
þar.
Greenspan boðar bata
Alan Greenspan, bankastjóri
bandaríska seðlabankans, hélt á
þriðjudaginn tveggja og hálfs klukku-
tíma ræðu fyrir bankanefnd öldunga-
deildarinnar þar sem hann sagði efna-
hagslífið vera á batavegi eftir að hafa
særst af árásunum 11. september og
síðan fjölda íjársvikamála. Hann til-
kynnti jafnframt að vextir skyldu
haldast í 1,75 prósentum, sem er
lægsta vaxtaprósenta í fjóra áratugi.
Þrátt fyrir ræðu Greenspans lækk-
uöu hlutabréf á Wall Street sjöunda
daginn í röð í gær.
Stuðningur Saddams
Sjónvarpsstöðin
Sky fullyrðir að
Saddam Hussein
Iraksforseti hafi gefið
milljónir dollara til
fiölskyldna palest-
ínskra sjálfsmorðs-
liða og einnig veru-
legar upphæðir til
fiölskyldna þeirra sem fallið hafi í
ófriðnum fyrir botni Miðjarðarhafs.
Þar að auki hafi hann látið af hendi
rakna 20 milljónir dollara til vopn-
aðra samtaka á síðustu tveimur árum.
Sjö létust í árás
Sjö ísraelskir borgarar létu lífið og
að minnsta kosti tuttugu slösuðust
þegar þrír palestínskir hryöjuverka-
menn gerðu sprengju- og skotárás á
fólksflutningabifreið í nágrenni land-
nemabyggðarinnar á Vesturbakkan-
um á miðvikudaginn. Að sögn sjónar-
votta voru tilræðismennimir, sem
höfðu komið fyrir öflugri sprengju í
vegkantinum, klæddir ísraelskum
herbúningum og eftir að sprengjan
hafði sprungið hófu þeir skot- og
handsprengjuárás á vamarlausa far-
þegana.
Arafat í framboð
Yasser Arafat, leiðtogi Palestínu-
manna, sagði í viðtali við egypska
sjónvarpsstöð að hann væri ákveðinn
í að bjóða sig fram í fyrirhuguðum
forsetakosningum í janúar nk. og er
það í fyrsta skipti sem hann staðfestir
það opinberlega.