Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2002, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2002, Page 10
10 DV LAUGARDAGUR 20. JÚLÍ 2002 DV Útgáfufélag: ÚtgáfufélagiB DV ehf. Framkvæmdastjóri: Hjalti Jónsson Aftalritstjórl: Óli Bjðrn Kárason Ritstjórl: Sigmundur Ernir Rúnarsson Absto&arritstjóri; Jónas Haraldsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaóaafgreiðsla, áskrift: Skaftahlíð 24,105 Rvik, siml: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Akureyri: Kaupvangsstræti 1, sími: 462 5000, fax: 462 5001 Setning og umbrot: Útgáfufélagið DV ehf. Plötugerb og prentun: Árvakur hf. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Álver í sjónmáli John Pizzey, aðstoðarforstjóri bandaríska álfyrirtækis- ins Alcoa, sagði eftir undirritun viljayfirlýsingar um upp- byggingu álvers á Austurlandi í gærdag að þar væri ekki á ferðinni „enn eitt plaggið“. Hann kvaðst ætla að yfirlýs- ingin markaði upphaf framkvæmda. Vonandi er að orð Pizzeys gangi eftir. Bygging álvers i Reyðarfirði og stór- framkvæmdir sem tengjast þeim verkefnum eru stærsta og markverðasta aðgerð í byggðamálum frá því Háskólinn á Akureyri var stofnaður fyrir góðum áratug. Löngu er orðið tímabært að leggja frá sér skýrslur um framkvæmdir á þessu sviði og hefjast handa. Ekkert byggðaverkefni hefur verið undirbúið með viðlika hætti og uppbygging álverksmiðju austur á landi. Þar hefur nán- ast öllum steinum i fjórðungnum verið velt við. Og bið- lund Austfirðinga í þessum efnum hefur verið með ólík- indum. Stjórnvöld lofuðu þeim fyrir margt löngu að ráðast í framkvæmdir af þessu tagi og allar áætlanir i fjórðungn- um hafa tekið mið af því. Það verður ekki lengur beðið. Fleiri aðgerða en orða er þörf í byggðamálum. Enda þótt heldur hafi hægt á búferlaflutningum af landsbyggð- inni á allra síðustu mánuðum verða stjórnvöld og bæjar- yfirvöld um allt land að halda vöku sinni. Eitt meginat- riða í íslensku efnahagslífi er að halda úti öflugri byggð í hverjum fjórðungi landsins. Það verður ekki gert með því að tína ber, þó það sé ágæt dægradvöl í sjálfu sér. Upp- byggingu lítilla atvinnufyrirtækja verða að fylgja afger- andi lausnir í atvinnumálum sem duga til langs tíma. Umræðan um álver á íslandi hefur oft á tíðum verið heit. Einhverra hluta vegna hefur ekki mátt minnast á ál- ver í eyru margra málsmetandi landsmanna, rétt eins og frá álverksmiðjum stafi illir andar. Álver hafa reynst vel á íslandi. Sambúð þeirra og íbúðabyggðar hefur verið með ágætum. Fyrirtækin sem reka álbræðslur hér á landi hafa staðið í fremstu röð í umhverfismálum og hafa að mörgu leyti verið fyrirmyndir annarra fyrirtækja á því sviði. Því er tímabært að álversgrýlan hverfi til fjalla. Allt eins geta íslendingar staðið sem einn maður á móti fiskiskipaflota landsmanna eins og því að finna álverum allt til foráttu. Fiskiskipaflotinn blæs frá sér margfalt meiri mengun en álver munu nokkru sinni gera á íslandi. Það er hins vegar ekki til siðs að halda þessum staðreynd- um á lofti enda leikur ljómi um íslenska útgerð og hún er sögð vera sú best rekna í heiminum. Ólíkt skipunum eru álverksmiðjur knúðar af endurnýtanlegri orku hér á landi, vatnsorku sem nóg er af. Það er nægt landrými á íslandi fyrir stóriðjur. Vitaskuld eru aðstæður á landinu misjafnar og mikilvægt að velja ál- verum stað sem hæfir eðli starfseminnar. Náttúruvernd ríkisins hefur bent á þrengslin í Reyðarfirði en á móti kem- ur að þeim mun meiri kröfur verða gerðar til mengunar- varna á staðnum. Eins verður fylgst afar náið með verk- lagi Landsvirkjunar á heiðum uppi. Ekkert bendir til ann- ars en að Landsvirkjun standist það umhverfispróf, enda er stefna fyrirtækisins í umhverfismálum skýr. Fyrir framhald málsins skiptir sköpum að íslensk stjórnvöld hafa fengið eitt allra virtasta álfyrirtæki í heiminum að samningaborði. Alcoa er leiðandi fyrirtæki í áliðnaði. Það er stærsti framleiðandi á hrááli, áli og ál- vörum í heiminum. Síðasta vor komst það í hóp 50 bestu iðnfyrirtækja í heiminum að mati tímaritsins Fortune. Stjórnendur þess stefna að því að gera það að „besta“ fyr- irtæki í heimi, með aðaláherslu á gæði, öryggi, heilsu starfsmanna og umhverfismál. Veri það velkomið. Sigmundur Ernir Ráögjafi lofar ríkidæmi hann hefði þó ekki nýtt sér það. Eiginkona hans kinkaði kolli til samþykkis. Hún haföi líka heyrt af frelsinu. „Þetta er mjög einfalt. Þið greið- ið örfá prósent af tekjum ykkar inn í lífeyrissjóð í vörslu virts fjármála- fyrirtækis," sagði hún og byrjaði að reikna af miklum móð. „Ef þið borgið samfellt í 20 ár þá eigið þið um það bil 25 milljónir við starfslok," sagði hún og sannfær- ingarkraftur hennar var sem raf- svið í stofunni. Manninum fannst eitt andartak sem hann sæi norður- ljósin í loftinu. Heimilishundurinn sem svaf undir sófa glaðvaknaði, brölti úr bæli sínu og settist beint fyrir framan ráðgjafann með sperrt eyru. Meira að segja dýrið skildi hve mikið var í húfi. Maðurinn, sem á skólaárunum þótti reikningsglöggur með afhrigð- um, vildi vita hvort engir óvissu- þættir væru varðandi milljónimar 25. Ráðgjafinn virtist eitt augnablik verða pirraður á spumingunni. Síðan opnaði hún eldsnöggt möppu sem hafði að geyma línurit í nokkrum litum. Allar línumar vis- uðu upp á við sem gat ekki þýtt annað en hagnað samkvæmt kokkabókum mannsins. „Sérðu þetta?“ spurði konan. Hann varð að viðurkenna að linuritin væm svo sannarlega tignarleg. Til þess að verða sér ekki frekar til skammar ákvað maðurinn að láta ljós sitt skina í takt við ljós ráðgjafans. „Já, þetta er þama svart á hvítu,“ sagði hann og vonaði að ráðgjafmn yrði aftur eins og móðir Teresa. Konan virtist fyrirgefa hjónun- um efasemdimar. Hún benti hjón- unum á að gegn hóflegu gjaldi til viðbótar við lífeyrisiðgjaldið gætu þau tryggt sér ham- ingjusaman dauðdaga. „Héma er ég með upp- skrift að líftryggingu sem kostar smáaura ef miðað er við að hömin ykkar fá tugmilljónir ef þið deyið fljótlega. Hjónin voru alveg rasandi. Það virtist vera sama hvort þau myndu lifa eða deyja. Gull og grænir skógar blöstu við hvert sem litið var. „Þvílík guðsgæfa að ráðgjafmn skyldi koma í heimsókn," hugsaði maðurinn með sér. Hann sló á lær sér í hrifningu sinni og krafð- ist Reynir Traustason |k ritstjórnarfulltrúi „Ef .þið verðið gömul bíða ykkar milljónir króna. Nú og ef þið deyið koma samt milljónir," sagði ráð- gjafinn, brosmild kona á óræðum aldri, og horfði á hjónin sem sátu þétt saman i stofusófanum og hlýddu andaktug á boðskapinn. Konan gestkomandi hafði vikum saman hringt og óskað eftir því að fá að koma í heimsókn og sýna þeim nokkrar valdar leiðir til lífs- hamingju. Hún kynnti sig í upphafi sem ráðgjafa líftryggingarfélags og síðan bættust fleiri ráðgjafatitlar við eftir því sem samtölunum fjölg- aði. Henni tókst með seiðandi röddu að sannfæra manninn um að hún væri að vinna hugsjónastarf hans vegna og fjölskyldunnar. Sjálf sagðist hún lítið hafa upp úr krafs- inu annað en þá ánægju að gera samborgurum sínum greiða. Eftir að konan hafði hringt tíu sinnum lét maðurinn undan og leyfði ráðgjafanum að koma í heim- sókn. Þá hafði hún talið honum trú mn að hann myndi annaðhvort deyja fljótlega og skilja stórfjölskylduna eftir i volæði eða þá að hann myndi verða bláfátækt gamalmenni og deyja eftir áralangan sult. Eftir að þessi niðurstaða blasti við honum samþykkti hann að bjargvætturinn kæmi og fyndi þeim hjónum leiðir framhjá fátækt- inni. Að kveldi þess dags er fundur- inn var ákveðinn biðu hjónin á milli vonar og ótta. „Heldurðu að hún kom1 ekki örugglega?" spurði konan og úr svip hennar mátti lesa ótta i bland við tilhlökkun þess er vonast til þess að komast af úr háska. Þau hrukku bæði við þegar dyra- bjallan hringdi. „Hún er komin," sagði maðurinn og stökk upp úr stólnum og gekk hratt til dyra. Konan á stéttinni virtist geðþekk og hún heilsaði alúðlega. Maðurinn var í feginleika sínum að hugsa um að faðma hana en hætti við. Slíkt hefði ekki verið við hæfi. „Ég er ráðgjafmn ykkar,“ sagði hún og það mátti lesa úr röddinni kærleika. Hún minnti manninn á móður Teresu eða Díönu prinsessu. Hún var eins konar bland af þeim báðum ef litið var framhjá stórri skjalatösku sem hún hélt á í hægri hendi. Út úr frumskóginum Hjónin voru sem læri- sveinar við fótskör meistara síns þegar konan hafði dreift úr plöggum sínum sem öll áttu það sameigin- legt að vera vegvísar þeirra frá fátækt til allsnægtalífs. Það hefði mátt heyra saumnál detta á meðan ráðgjafinn flokkaði skjöl sín og hummaði góðlátlega. Loks tók hún til máls. „Þetta snýst ekki um peninga heldur lifshamingju og ég ætla að hjálpa ykkur út úr frum- skóginum sem gæti annars gert ykkur fá- tæk,“ sagði hún og horfði á þau til skiptis. Hún byrjaði á langri ræðu um lífeyrissparnað. Hjónin viðurkenndu skömmustuleg að þau væru aðeins aðilar að lögbundnum líf- eyrissjóðum sem tækju til sin tí- und af öllum þeirra tekjum. „Hafið þið aldrei heyrt talað um frjálsan lífeyrisspamað?" spurði konan og augu hennar uröu eins og undirskálar. Niðurlútur maðurinn játaði að hafa heyrt af frelsinu en „Þvilík guðsgœfa að ráð- gjafinn skyldi koma í heimsókn, “ hugsaði hann með sér. Hann sló á lœri sér í hrifningu og krafðist þess að fá eitt- hvað til að skrifa undir. þess að fá eitthvað til að skrifa und- ir. Honum fannst vissara að gera samningana sem fyrst. Það var aldrei að vita hvað gæti gerst í fall- valtri tilverunni. Skrifað undir Ráðgjafmn bað um númerið á Visakortinu hans og rétti siðan fram eitt eyðublaðið af öðru sem hjónin skrifuðu undir. „Það liggur við að maður fái sinaskeiðabólgu af öllum þessum skrifum,“ sagði mað- urinn og það kumraði í honum þeg- ar hann bætti við að það skipti auð- vitað ekki máli. „Nú verð ég loks- ins ríkur hvort sem ég lifi eða dey,“ sagði hann og ráðgjafmn samsinnti honum mildilega. Eitt andartak skaut niður þeirri hugsun að hann þyrfti að vita hversu háar greiðslur hann þyrfti að inna af hendi. „Hvað verður þetta mikið á mánuði?" spurði hann ráðgjafann. Augu hennar skutu gneistum þegar hún leit á hann. „Treystirðu mér ekki?“ spurði hún og maður- inn dauð- skamm- aðist sin

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.