Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2002, Side 16
16
Helgarblað
LAUGARDAGUR 20. JÚLÍ 2002
Tn-fy
lært mikið af Shakespeare og Walter Scott.
Hann sagði: „í hvert sinn sem ég hitti Englend-
ing lít ég á það sem skyldu mína að vera vin-
gjamlegur við hann því að það er hluti af skuld
minni við Shakespeare og Walter Scott.“
Fáir rithöfundar hafa verið afkastameiri en
Dumas og hann hafði góðar tekjur af verkum
sínum en hann var síblankur. Samt lifði hann
ekki hátt. Hann drakk hvorki né reykti og
stundaði ekki fjárhættuspil en var mikill mat-
maður. Óreiða var á fjármálum hans og hann
lenti í því að borga sömu reikningana allt að
sex sinnum vegna þess að hann hafði ekkert
eftirlit með þeim. Menn lágu yflr honum með
sníkjum og örtröð var iðulega á heimili hans.
Stundum þekkti hann ekkert til fólksins sem
borðaði með honum kvöldmat heima hjá hon-
um.
Barist í anda Dumas
Alexandre Dumas lést árið 1870 og hvílir i
heimabæ sínum. Villers-Cotterets. íbúar þar
láta nú i sér heyra vegna áætlunar um að flytja
líkamsleifar Dumas til Parísar. Þeir segja þetta
hrokafulla og stórborgaralega áætlun og kenna
Chirac forseta um en hann undirritaði tilskip-
unina. „Þetta er lítilsvirðing við ibúa bæjarins.
Forsetinn hefur niðurlægt okkur,“ segir
Francois Angot, forseti Dumas-félagsins i bæn-
um. Angot vísar í orð Dumas sjáifs en skömmu
fyrir dauða sinn árið 1870 sagðist rithöfundur-
inn vilja hljóta hinstu hvílu í heimabæ sínum.
Eins og hann orðaði það þá vildi hann vera
graflnn „í hinum töfrandi kirkjugarði sem lík-
ist fremur blómagarði þar sem börn eru á leik
en kirkjugarði sem geymir lík“.
í dag hvílir Dumas við hlið foreldra sinna í
litla blómakirkjugarðinum. Bærinn hefur
nokkrar tekjur af starfsemi sem tengist nafni
rithöfundarins. Krukkur með Dumas-kexi eru í
gluggum bakarísins og lítið safn geymir nokkra
hluti úr eigum Dumas.
Margir íbúa Villers-Cotterets hafa skrifað
undir mótmælaskjal og bæjarstjórnin reyndi að
bregða fyrir sig lögum frá 1887 sem veita mönn-
um leyfi til að velja sér eigin greftrunarstað.
Bæjarstjórnin gafst hins vegar upp þegar
franska stjórnin lofaði henni bronsstyttu af
Dumas í staðinn fyrir líkið. Tilboð sem var
ekki hægt að hafna, fannst bæjarastjórninni.
Bæjarstjórinn, Renaud Belliere, lýsir þó yfir
vonbrigðum með að lík Dumas skuli vera flutt
til Parísar. „Þetta eru vonbrigði. Það hefur tek-
ið okkur meira en öld til að fá Dumas viður-
kenndan og nú á að taka hann frá okkur,“ seg-
ir hann.
Það er hins vegar ekkert uppgjafahljóð í bar-
áttumanninum Angot sem segir: „Bæjarstjór-
inn getur gefist upp en baráttan mun halda
áfram í anda Dumas.“ Andi Dumas er, eins og
þeir vita sem lesið hafa Skytturnar þrjár, „allir
fyrir einn og einn fyrir alla“. Hótelstýra staðar-
ins segir: „Panthéon er of lítið fyrir Dumas.
Mesti heiður sem við getum veitt honum er að
virða óskir hans og hann vildi vera graflnn
hér.“ Angot segist vongóður um aö hægt sé að
koma í veg fyrir flutninginn á líkamsleifum
Dumas sem fyrirhugaður er í október. Baráttan
heldur því áfram.
Baráttatt
um Dumas
I Frakklandi stendur yfir mikil barátta um llkamsleifar
Alexandre Dumas. Franska ríkið vill að hann hvíli í
Panthéon en íbúar f heimabæ Dumas vilja hafa sinn
mann heima.
I næstu viku eru 200 ár frá fæðingu franska
rithöfundarins Alexandre Dumas en hann er
þekktastur fyrir skáldsögur sínar, Skytturnar
þrjár og Greifann af Monte Christo, sem eru
enn lesnar upp til agna og hafa verið kvik-
myndaðar svo oft að vart verður tölu á komið.
Franska ríkisstjómin hyggst halda upp á af-
mælið með veglegum hætti og á dagskrá er að
arum semna var
hann orðinn þekkt-
ur leikritahöfund-
ur. Hann er einn af-
kastamesti höfund-
ur sögunnar, skrif-
aði hundruð leik-
rita, skáldsagna og
ferðabóka, auk þess
sem hann skrifaði
reglulega í tímarit.
Frægastur er hann
fyrir sögulegar
skáldsögur sínar
þar sem hann fór iðulega frjálslega með sann-
leikann til að gera söguna betri. Hann hafði að-
stoðarmenn við skriftimar og í lifanda lífi var
mikið um það rætt hversu mikinn hluta
bókanna Dumas hefði skrifað og hversu mikið
væri verk aðstoðarmanna. Dumas lét sér á
sama standa um þær vangaveltur.
Söguþráðurinn í verkum Dumas er ekki sér-
lega gáfulegur en hann hafði sérstaka hæfileika
til að skapa minnisstæðar persónur. Samtöl
hans eru lifandi og skemmtileg og hann hafði
næmt auga fyrir dramatík. Dumas sagðist hafa
Alexandre Dumas. Þessi afkastamikll og stórskemmtllegi höfundur hefðl orðiö
200 ára í næstu viku.
Afköst Og
aðstoðarmenn
Áður en vikið er
að baráttunni um
líkamsleifar Dumas
er rétt að fara
nokkrum orðum
um höfundinn sjálf-
an. Hann er einn
vinsælasti rithöf-
undur bókmennta-
sögunnar, skemmti-
lega reyfarakennd-
ur sem hefur valdið
því að hann þótti
áratugum saman
ekki nógu „flnn“ til
að hvíla í Panthéon.
Dumas fæddist
árið 1802 í Villers-
Cotterets sem er um
40 kílómetra fyrir
utan Paris. Hann
flutti tvítugur til
Parísar og fimm
grafa upp líkams-
leifar höfundarins,
sem hvíla i heima-
bæ hans, og koma
þeim fyrir í Pant-
héon í París. Þar
hvíla meðal ann-
arra Voltaire, Vict-
or Hugo og Marie
Curie. Það er því
mikill heiður fyrir
Dumas að komast í
þann friða flokk,
sennilega mesti
heiður sem franska
ríkið getur veitt
nokkrum manni.
Ákvörðunin hefur
þó kallað á mót-
mæli.
Ljóð vikunnar________
Arafrœdi
- eftir Þórarin Eidjérn
Hanr Ari var fróður, svo feiknlegur sjóður
af frœðum að útyfir tók.
Og biskupum þótti hann svo þarfur og góður
að þeir fóru að rella um bók.
Og Ari greip fjöðrlna og sendl þelm sýni
og Sœmundi af spaklegri mennt.
Með hávœrum kröfum um heimildarýni
var handritið endursent:
- Stórvirkur ertu að stela og safna
með stálminnl og rúmgóðan haus,
en vandinn er mestur að vetja og hafna
og vera ekki dómgreindariaus.
En Ari hann var ekki öidungis geldur
og aðferðin þróaðist hratt:
- Það sem sannara reynist það höfum við
heldur
ef hvorugt er satt.
Listamenn orðsins
Hallgrimur Thorsteinsson útvarpsmaöur segir frá
eftirlætisbókum sínum
Uppáhaldsbækumar mínar upp á síðkastið eru
eftir skoska rithöfundinn Ian M. Banks. Hann
skrifar jöfnum höndum skáldsögur (og sleppir þá
M-inu í nafni sínu) og vísindaskáldsögur og það
eru frekar þær síðarnefndu sem ég hef verið að
týna mér í hin seinni ár. Heimur Banks og fram-
tíðarsýnin hjá honum bjóða upp á fullkominn
escape-isma. Öll pólitísk deilumál hafa verið leyst
eða leyst af hólmi með tækn-
inni og sá hluti mann-
kyns sem Banks
fjallar
býr i
anarkiskum
vellystingum
innan menning-
arheildarinnar
The Culture, til ei-
lífðarnóns þess
vegna, ef það vill.
Það vantar samt ekk-
ert upp á dökku hlið-
amar hjá Banks, og
skúrkarnir geta ver-
ið æði skrautleg-
ir, til dæmis
valdasjúk geim-
skip með ofur-
mannlega vit-
und sem geta
heitið nöfnum eins og: I Thought He Was with
You, Honest Mistake og Never Talk to Strangers.
Húmorinn er þannig með en aldrei aðalatriðið
eins og í sumum öðrum vinsælum en þreytandi
geimóperum nútimans.
Sá islenski höfundur sem ég les mest og missi
aldrei af bók eftir er Ólafur Gunnarsson. Hann og
Banks eru reyndar ekki ósvipaðir höfundar: frá-
bærir listamenn orðsins og skaparar mannlegra
örlaga af guðs náð.
Hér kemur svo listi yfir uppáhaldsbækur
minar:
Mother Night - Kurt Vonnegut
Under the Volcano - Malcolm Lowry
Catch-22 -Joseph L. Heller
Understanding Media: The Extensions of Man -
Marshall McLuhan
Fear and Loathing in Las Vegas - Hunter S.
Thompson
The Bridge - Ian M. Banks
The Heart of the Matter - Graham Greene
Vetrarferðin - Ólafur Gunnarsson
Guðbergur Bergsson - Flateyjar-
Freyr
The Presence of the Past:
Morphic Resonance & the
Habits of Nature - Rupert
Sheldrake
Hinn dularfulli
Byron
Byron lá-
varður, eitt
fremsta skáld
Breta, varð
einungis 36
ára gamall.
Hann var
gallagripur og
vart finnst sú
synd sem
hann ekki
drýgði. Hon-
um nægir því
ekkert minna en rúmlega 700 blað-
síðna ævisaga eigi að halda öllu til
haga. Ævisaga Benitu Eisler um
Byron er einstaklega dramatísk,
áhugaverð og skemmtileg lesning
þótt hún leysi ekki ráðgátuna um
Byron. Sennilega óskiljanlegur mað-
ur en stórbrotið viðfangsefni. Skáld
gerast ekki meira spennandi.
Sá sem elst upp
iðjulaus, hann er nœst
því að deyja cerulaus.
Jón Vfdalfn
Allar bækur
1. Islenska vegahandbókin.
Bókaútqáfan Stönq.
2. Kortabók Islands.
Örn Siqurðsson ritst.
3. Grafarþöqn. Arnaldur Indriðason.
4. Leggðu rækt við sjálfan þig.
Anna Valdimarsdóttir.
5. Mýrin. Arnaldur Indriðason.
6. Stangaveiðihandbókin.
Eiríkur St. Eiríksson.
7. Hálendishandbókin.
Páll Ásqeir Ásqeirsson.
8. Ferðakortabók.
Landmælinqar íslands.
9. Ást á rauðu Ijósi.
Jóhanna Kristjónsdóttir.
10. Dauðarósir. Arnaldur Indriðason.
Skáldverk
1. Grafarþögn.
Arnaldur Indriðason.
2. Myrin. Arnaldur Indriðason.
3. Ást á rauðu Ijósi.
Jóhanna Kristjónsdóttir,
4. Dauðarósir.
Arnaldur Indriðason.
5. Lokavitni. Patricia Cornwell.
6. Réttarkrufninq, Patricia Cornwell.
7. Napóleonsskjölin.
Arnaldur Indriðason.
8. Anna, Hanna & Jóhanna.
Marianne Fredriksson.
9. Þjóð bjarnarins mikla.
Jaen M. Auel.
10. Mammútaþjóðin. Jean M. Auel.
Metsölulisti Eymundsson 04.07.-10.07.
Kiljur
1. DIVINE SECRETS OF THE YA-YA
SISTERHOOD. Rebecca Wells.
2. A BEND IN THE ROAD.
Nicholas Sparks.
3. FACE THE FIRE. Nora Roberts.
4. THE WOMAN NEXT DOOR.
Barbara Delinsky.
5. HEMLOCK BAY. Catherine Coulter.
Listinn er frá New York Times