Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2002, Síða 23
LAUGAROAGUR 20. JÚLÍ 2002
HelQarblað 3DTV
23
...vandamál vikunnar
Þú ert úti í banka í hádegishléinu þínu og ert á hraðferð.
Eftir að hafa beðið í röð í 10 mínútur er röðin loksins kom-
in að þér. Þá kemur eldri kona með staf inn í bankann,
gengur beint að gjaldkeranum og hann byrjar að afgreiða
hana. Hvað gerir þú?
Þrír möguleikar í stöðunni
„Viö svona aðstæður koma þrjár leiðir til greina. I fyrsta lagi að kalla til öryggis-
verði bankans og láta þá fjarlægja
konuna, svona hegðun er ekki mönnum bjóðandi. í öðru mundi ég koma mér aftur
í vinnuna og reyna að ganga frá þessum málum
með hjálp heimabankans og farsímans. Og í þriðja og síðasta lagi er möguleikinn
sem maður velur vafalaust við svona aðstæður, láta sem ekkert sé og bíða eftir því að
sú gamla fái ellilifeyrinn sinn. Og treysta á það að æðri máttarvöld séu að fylgjast með
og ég skori stig á þeim bænum.“
Jón Þór Þorleifsson, pródúsent á Skjá einum
Myndi hrósa gjaldkeranum
„Ég brosi til hennar og gleðst yfir því innra með mér að enn sé til gamalt fólk sem
geri ráð fyrir því að þeir yngri séu kurteisir við það. Þegar hún er farin hrósa ég svo
gjaldkeranum fyrir að hafa ekki rekið hana aftast. Ef þetta væri hins vegar einhver
ungur durtur myndi ég gefa honum vænt spark í rassinn, segja honum að lufsast í röð-
ina og velta fyrir sér mannaslðum meðan hann bíði.“
Þóra Arnórsdóttir, fréttakona á RÚV
Góðverk dagsins
„í strætó í gamla daga voru myndir sem sýndu tvær gerðir af drengjum. Þeim sem
stóðu upp fyrir gömlum konum með bros á vör og þeim sem sátu sem fastast í sætinu
með fýlusvip. Þetta vandamál hér er í rauninni það sama og þá; hvor drengurinn er
ég? Algjör grundavallarspurning i lifi sérhvers manns. Ef maður sýnir ekki gömlum
konum með staf smá tillitssemi þá finnst mér nú manndómurinn vera ansi lítill. Þess
vegna myndi ég bara bíða örlítið lengur í biðröðinni með bros á vör og hreinsa sálina
með því að hugsa með mér: Nú hef ég gert góðverk dagsins! Svo myndi ég náttúrlega
nöldra í bankastarfsmanninum þegar konan væri á bak og burt. „
Freyr Eyjólfsson tónlistarmaður
...eítthvað fyrir þig?
Burt með brjóstahaldarasárin
Konur með þung bijóst kannast vel við það vandamál að fá sár á öxlum eftir brjóstahaldara.
Aðrar þekkja vel það vandamál að bönd á brjóstahöldurnum eiga það til að renna út fyrir axl-
irnar. Blaðamaður sá nýlega í Lyfju lausn á báðum þessum vandamálum á 713 krónur. Lausn-
in felst í gúmmístykkjum sem kallast Comft straps. Stykkjunum er komið fyrir á öxlunum og
böndunum á brjóstahaldaranum er smeygt í þau. Stykkin eru einungis til í einni stærð og er
hvert par margnota.
Skýrari og stilltari hugsun
Þegar vinnuálag og stress er alveg að fara með mann er ágætt að eiga eitt glas af Peach of
mind-olíunni frá Organic. Með því að bera 2 dropa af olíunni á hnakka, gagnauga og eyrna-
snepla á álagstímum finnur maður hvernig hugurinn stillist og skýrist og stressið minnkar. Frá-
bært að eiga glas af þessari olíu í vinnunni þegar verkefnin virðast vera óyfirstíganleg og mað-
ur veit ekkert hvar maður á að byija. Glasið kostar 1.440 krónur í Lyfju.
Taktu ákvöróun
Þaö getur oft verið erfitt að taka ákvarðanir í þessu lifi, hvort sem þær eru stórar eða smáar. Þá
er ekki óvitlaust að eiga „ákvörðunarteninga“ í fórum sér til þess að létta manni lífið og ákvarðan-
imar. í versluninni Fóu feykirófú á Skólavörðustígnum fást slíkir teningar á 210 krónur stykkið.
Teningamir em til í mismunandi útgáfúm. T.d getur maður kastað einum af þeim upp til þess að
fmna út hvað maður á að hafa í matinn. Annar hjálpar pörum að frnna út hvað þau eigi að finna
sér til dundurs og býöur hann t.d upp á möguleika eins og: horfa á video, rífast eða borða á sig gat.
Svona teningar ættu svo sannarlega að vera til á hveiju heimili á erfiðum ákvörðunarstundum.
SMÁAU5-
LÝSINGAR
Á NETINU!
► www.dv.is
DV
NYJARVORUR DAGLEGA! opið alla daga ki. 12
POPP-ROCK og HEIMSTÓNLIST - fjölbreytt flóra \
TÖLVULEIKIR í Úrvali - Dreamcast, Playstation, Gameboy ofl.
DVD mVndir °9 myndbönd - kvikmyndir og tónlist
SOMET
\e\Ktr a
999'