Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2002, Blaðsíða 45
LAUGARDAGUR 20. JÚLÍ 2002
Helgarblaö 33V
53
Steinar Berg ísleifsson
forstjóri Steinsnars ehf. og Langspils ehf verður fimmtugur á morgun
Steinar Berg ísleifsson framkvæmdastjóri, Fossa-
túni, Borgarfjaröarsveit, verður fimmtugur á morg-
un.
Starfsferill
Steinar fæddist í Keflavík og ólst þar upp fyrstu sjö
árin en síðan í Reykjavík. Hann lauk verslunarprófi
frá Ví 1971.
Steinar var verslunarstjóri í hljómdeild Faco
1972-75, stofnaði fyrirtækið Steinar hf. 1975 og rak
það til 1993, stofnaði Spor ehf. og var framkvæmda-
stjóri þess til 1998 er hann tók að sér framkvæmda-
stjórn tónlistardeildar Skífunnar hf. og síðar Norður-
ljósa hf. Hann lét af því starfi sl. vor, stofnaði Stein-
snar ehf. og veitir því forstöðu, ásamt Langspili ehf.
Steinar hefur starfað að innflutningi og útgáfu tón-
listar óslitið í rúm þrjátíu ár, hefur m.a. haft forstöðu
um útgáfu á meira en fimm þúsund íslenskum lögum
og starfað með flestu af vinsælasta tónlistarfólki
landsins. Hann hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum
fyrir Samband hljómplötuframleiðenda og Samband
flytjenda og hljómplötuframleiðenda, var formaður
beggja sambandanna um árabil, gegndi einnig trúnað-
arstörfum fyrir Samtök myndabandaútgefenda, þ. á
m. formennsku og situr nú í stjórn Bókabúða Máls og
menningar hf.
Fjölskylda
Steinar kvæntist 2.12. 1972 Ingibjörgu Pálsdóttur, f.
1.2.1952. Foreldrar hennar: Páll H. Pálsson, fyrrv. for-
stjóri Happdrættis HÍ, og Bryndís Guðmundsdótir.
Þau eru búsett í Reykjavík.
Börn Steinars og Ingibjargar: Páll Arnar, f. 14.6.
1973; Alma, f. 29.8. 1981; Dagný, f. 25.10. 1987.
Systkini Steinars: Ólafur, f. 28.8. 1953, bílamálari í
Reykjavík; Alma, f. 21.11. 1954, skrifstofumaður í
Reykjavík; Guðbergur, f. 11.11. 1960, verslunarmaður
í Reykjavík.
Foreldrar Steinars: ísleifur Runólfsson, f. 24.4. 1927,
d. 2.9. 1998, verslunarmaður og fyrrv. framkvæmda-
stjóri Vöruflutningamiðstöðvarinnar og Iðnverks hf.,
og k.h., Ólafia Guðbergsdóttir, f. 4.12. 1931. Þau
bjuggu í Keflavík til 1959 en síðan í Reykjavík.
Ætt
ísleifur er sonur Runólfs, b. að Kornsá í Vatnsdal,
Björnssonar, alþm. að Kornsá, Sigfússonar, pr. Jóns-
sonar. Móðir Runólfs var Ingunn Jónsdóttir, rithöf-
undur frá Melum í Hrútafirði. Móðir Björns var Sig-
ríður Oddný Björnsdóttir Blöndal, frá Hvammi
Björnssonar, ættföður Blöndalsættar, Auðunssonar.
Móðir ísleifs var Alma Alvilda Anna Möller, Jó-
hanns G. Möllers, kaupmanns á Blönduósi, Christians
Ludvigs Möllers, kaupmanns í Reykjavík. Móðir
Ölmu var Alvilda M. Thomsen, Williams Thomsens,
kaupmanns á Vatnseyri, og Anne Margrethe Knud-
sen.
Pétur Jónsson
fyrrv. vélgæslumaður
Pétur Jónsson, fyrrv. vél-
gæslumaður, Fljótaseli 34,
Reykjavík, er sjötíu og fimm
ára i dag.
Starfsferill
Pétur fæddist á Hólmavík
og ólst þar upp. Hann flutti
sextán ára til Akraness, var
háseti á báti frá Haraldi
Böðvarssyni og var síðan í
málningarvinnu hjá Sighvati
Bjarnasyni málarameistara.
Pétur vann hjá byggingarfyrirtækinu Brú í
Reykjavík 1953-55 og var síðan til sjós frá Akranesi á
Keili AK og Höfrungi II AK. Hann stofnaði síðan,
ásamt fjórum kunningjum sínum, fiskvinnslufyrir-
tækið Haförn hf. 1963 og starfaði þar við vélgæslu til
1996 er hann hætti störfum og flutti til Reykjavíkur.
Pétur tók matreiðslupróf sem sjókokkur. Hann hef-
ur verið félagi í Frímúrarareglunni frá 1981.
Fjölskylda
Pétur kvæntist 14.5. 1949 Rögnu Guðmundsdóttur,
f. 12.10. 1930, húsmóður. Hún er dóttir Guðmundar
Jónatanssonar, vörubílstjóra á Isafirði, og Daðeyjar
Guðmundsdóttur húsmóður.
Sonur Péturs frá því áður er Garðar, f. 10.10. 1948,
sjómaður í Vestmannaeyjum, kvæntur Ragnheiði
Víglundsdóttur og eiga þau tvö börn.
Börn Péturs og Rögnu eru Daðey María, f. 7.12.
1949, d. 3.9. 1953; Erlingur, f. 22.3. 1952, kvæntur Mar-
gréti Sigurlásdóttur og eiga þau þrjú börn; Guðmund-
ur Daði, f. 27.9.1955, veitingamaður, kvæntur Herdísi
Hrönn Gísladóttur og eiga þau þrjú börn; Viktor, f.
18.9. 1962, flokksstjóri, kvæntur írisi Guðmundsdótt-
ur og eiga þau þrjú böm; Bryndís Hulda, f. 3.1. 1969,
húsmóðir, gift Ingvari Helga Guðmundssyni og eiga
þau fjögur börn.
Systkini Péturs: Björgheiður, f. 19.11. 1916; Ása, f.
5.8. 1917, látin; Sigríður, f. 8.12. 1920, látin; Bjarni, f.
19.8. 1922; Sigurbjörg, f. 19.8. 1922; Guðrún, f. 12.3.
1924; Hulda, f. 16.6. 1930, látin; Gylfi, f. 25.5. 1933.
Foreldrar Péturs: Jón Ottósson, f. 14.6. 1891, d. 26.5.
1970, sjómaður í Hólmavík, og k.h., María Bjarnadótt-
ir, f. 25.5. 1893, d. 7.11. 1971, húsmóðir.
Pétur verður að heiman.
Halldór K. Jakobsson
útgerðarmaður á Raufarhöfn
Halldór Karel Jakobsson út-
gerðarmaður, Vesturvegi 7,
Þórshöfn, er sextugur í dag.
Starfsferill
Halldór fæddist á Sauðár-
króki og ólst þar upp. Hann hóf
sjómennsku fimmtán ára og var
mest á togurum til 1983 hóf
síðan útgerð á eigin bát 1983 og
hefur stundað hana síðan. Jafn-
framt var hann bóndi um hrið,
fyrst á Sveinsstöðum og síðan í Bjarnastaðahlið í Skaga-
firði.
Halldór er formaður smábátafélagsins Fonts frá 1997.
Hann lærði söng á unglingsárum hjá Eyþóri Stefánssyni
tónskáldi.
Fjölskylda
Halldór hóf sambúð með Birnu Guðmundsdóttur, f. 1.7.
1941. Þau skildu.
Seinni sambýliskona hans, frá 1983, er Steinunn Björg
Björnsdóttir, f. 10.11.1952, starfsmaður á dvalarheimilinu
Nausti á Þórshöfn. Foreldrar hennar voru Björn Krist-
jánsson, vitavörður og bóndi Skoruvík á Langanesi, og
k.h., Steinunn Guðjónsdóttir.
Börn Halldórs með fyrri sambýliskonu: Sigurlína
Hrönn, f. 18.3.1962, búsett í Nesi í Fnjóskadal, gift Gunn-
ari Valtýssyni; Ragnhildur Hulda, f. 9.5. 1965, búsett í
Varmahlíð, gift Valdimar Bjarnasyni; Rósa Borg, f. 20.9.
1966, búsett á Húsavik, gift Þorgrími Friðrik Jónssyni;
Sigríður Margrét, f. 28.5.1968, búsett á Akureyri, gift Sig-
urþergi Konráðssyni; Luðvig Alfreð, f. 19.1. 1973, búsett-
ur í Varmahlíð, kvæntur Lindu Reynisdóttur.
Hálfsystkini Halldórs, samfeðra: Reynir Jakobsson, f.
22.11. 1936; Gréta Jakobsdóttir, f. 30.1. 1938; Hilmar
Jakobsson, f. 18.3. 1940.
Hálfbróðir Halldórs, sammæðra: Stefán Pedersen, f.
7.12. 1936, ljósmyndari á Sauðárkróki.
Alsystkini Halldórs: Lárus Fjeldsted, f. 5.1.1945, d. 26.6.
1996; Herdís G. Fjeldsted, f. 16.2. 1947; Gréta Fjeldsted, f.
7.6. 1950; Karólína Sigurrós, f. 12.5. 1956, d. 12.3. 2001.
Foreldrar Halldórs voru Jakob Líndal Jósefsson, f.
24.4. 1917, d. 27.12. 1993, bifreiðastjóri á Sauðárkróki, og
Sigrlður Sigurlína Halldórsdóttir, f. 24.4. 1919, d. 6.10.
1962, húsmóðir.
Ólafía er dóttir Guðbergs, sjómanns í Reykjavik,
Kristinssonar, steinsmiðs í Reykjavík, Ásgrímssonar,
b. og lausamanns, Guðmundssonar, smiðs á Reykjum
í Ölfusi, Jakobssonar, smiðs á Húsafelli, Snorrasonar,
ættföður Húsafellsættar, Björnssonar. Móðir Guð-
bergs var Ólafía S. Jónsdóttir, b. á Bala í Grímsnesi,
Oddssonar og Guðbjargar Halldórsdóttur.
Móðir Ólafiu var Steinunn, systir Steins Steinarr
skálds og Hjartar, skólastjóra Laugarnesskóla. Stein-
unn var dóttir Kristmundar, b. á Laugalandi við
Djúp, Guðmundssonar, b. í Bessatungu í Saurbæ,
Guðmundssonar, b. i Hvítadal, Jónssonar. Móðir Guð-
mundar í Bessatungu var Þórunn Ormsdóttir, ættföð-
ur Ormsættar, Sigurðssonar. Móðir Kristmundar var
Kristín Eggertsdóttir, b. í Sauðhúsum í Laxárdal,
Jónssonar. Móðir Steinunnar var Etelrlður Pálsdótt-
ir, formanns við Djúp, Andréssonar, járnsmiðs á ísa-
firði, Magnússonar, b. í Hvitadal, bróður Sólveigar,
móður Páls Jónssonar, skálds og pr. í Viðvík, afa
Matthíasar yfirlæknis, föður Louisu listmálara. Páll i
Viðvík var einnig afi Páls í Kaupangi og afi Sólveig-
ar, móður Einars Olgeirssonar alþm. Þá var Páll í
Viðvík, afi Páls Einarssonar, fyrsta borgarstjóra
Reykjavíkur.
Höfuöstafir
Við byrjum í dag á breiðhendu eftir Ólaf Runólfs-
son. Hann er farinn að slá sér til rólegheita í lífinu
eins og sjá má af vísunni:
Vœrö í húsi víst ég lofa,
viö að hvílast er ég natinn.
Til hádegis ég helst vil sofa
og halla mér svo eftir matinn.
Ég var um síðustu helgi staddur vestur í Dölum,
nánar tiltekið á Eiríksstaðahátíð á Eiríksstöðum í
Haukadal. Á laugardagskvöldið var kveikt þar í bál-
kesti og safnaðist hópur manna og kvenna saman við
eldinn til að syngja og skemmta sér. Út úr háreysti
söngs og hlátra barst eftir krókaleiðum til mín vísa,
en mér tókst aldrei að finna út hver flutti hana né
heldur hver væri höfundurinn. Hún var augsýnilega
flutt að gefnu tilefni þarna við bálið:
Þetta á ekki að þamba af stút,
þetta er sterkur fjandi.
þetta á aö þynna út
meö þar til geröu blandi.
Ef einhver sem þarna var viðstaddur gæti gefið upp-
lýsingar um vísuna væri það vel þegið. Auk þess má
benda á að vísa þessi er tilvalið stef í samskiptum
fólks á komandi útihátíðum.
Næst er vísa sem varð til á Akureyri veturinn 1963-
64. Hagyrðingar sátu á kaffihúsi og sömdu svokallað-
an lausavísnaþátt fyrir skólablaðið. Kaffidrykkja var
mikil og klósettferðir tíðar og að lokum orti Friðrik
Guðni Þórleifsson:
Kvœöamenn kveöa enn
kátt spé.
Viröist mér vinsælt hér
WC.
Bragarháttur þessarar vísu mun ekki eiga sér hlið-
stæðu meðal rimnahátta enda er hann að líkindum of
knappur til að rímnaskáld hefðu treyst sér til að nota
hann. Þar að auki hygg ég að vegna þess að 2. braglið-
ur í ójöfnum línum er stýfður sé ekki til neitt rímna-
lag sem hentar við þennan hátt. Leiðrétti mig kvæða-
menn ef ég fer með rangt mál.
Sveinn Björnsson bóndi í Hvammi í Dölum orti
nýlega óð til þeirra sem stýra þessu landi og virð-
ist ekki vera fyllilega sáttur við stjórnina:
Aumt nú gerist aldarfar,
einkavæöing hér og þar.
Illa þokkuó er og var
íhaldsstjórn og framsóknar.
Lokavísan er líka eftir Svein í Hvammi.
Hún leynir nokkuð á sér og ég bendi lesend-
um á að hyggja vel að því hvernig á að lesa úr
síðustu braglínunni:
Allur þessi asaþys
eykur spennu, magnar slys.
Látum ekki glaum og glys
glepja okkur.is
Umsjón