Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2002, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2002, Page 6
LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 2002 Fréttir DV Læknir á slysadeild segir hópbarsmíðar færast í vöxt: Ofbeldi grimmara en áður - segir Sveinbjörn Berentsson sjúkraflutningamaöur Deilt er um hvort ofbeldi sé að aukast á íslandi. Margir eru á þvi að ofbeldi nú á dögum sé jafh al- gengt og það var áður en aðrir segja að ofbeldi hafi aldrei verið meira en einmitt nú. Þó eru flestir sammála um það að ofbeldi sé alltaf að verða grimmara. Sveinbjörn Berentsson hefur verið sjúkraflutningamaður síðan árið 1993. Sveinbjörn er einn þeirra sem segja að síðustu ár hafi ofbeldi verið að aukast en komi þó í bylgjum. „Ég veit ekki hvers vegna ofbeldisöldur koma öðru hvoru en mér finnst þær gera það. Ég er alveg sannfærður um að ofbeldi er einnig að verða grófara og miskunnarlaus- ara og má kenna, að einhverju leyti sjónvarpinu, svo ekki sé talað um tölvuleikina, um þessa þróun,“ seg- ir Sveinbjöm. Þá segir Sveinbjörn að fréttir hafi einnig breyst. „í gamla daga, þegar ógeðfelldar myndir voru í þann mund að vera sýndar í fréttum, var fólk varað við. i dag þarf maður að stökkva á sjón- varpið og slökkva svo börnin sjái ekki viðbjóðinn sem viðgengst um allan heim. Þetta eru m.a. ástæð- urnar fyrir því að ofbeldisverk eru grimmari í dag en áður,“ segir Sveinbjöm. Ofbeldiö harkalegra Þótt ekki séu allir á því aö ofbeldi hafi aukist eru fiestir á því aö þaö hafi oröiö grimmara síðustu ár og er ofbeldi í kvikmyndum og tölvuleikjum oft kennt um þá þróun. Leita eftir áflogum Þegar Sveinbjöm er spurður að því hvort mikið sé um það að sama fólkið sé að lenda í bílunum hjá þeim svarar hann að það komi fyr- ir. „Við gerum þó ekki greinarmun á fólki og skiptum okkur lítið af því hvert fólkið sé eða hvað það gerði. Við hjálpum þeim sem þurfa á hjálp að halda. Við reynum alveg að halda okkur utan deilna og viljum halda því þannig," segir Sveinbjörn. Á sínum ferli sem sjúkraflutninga- maður hefur Sveinbjöm einu sinni lent i að ráðist var á hann. Sá at- burður gerðist ekki alls fyrir löngu og enda þótt Sveinbjöm vilji ekki tjá sig um það sérstaklega segir hann að það hafi orðið til þess að menn fóru að líta mjög alvarlegum augum á öryggi sjúkraflutninga- manna við störf sín og hvort sak- laust fólk sé í meiri hættu nú en áður. „Það kemur fyrir, og er lík- lega að aukast, þó svo maður fái ekki alltaf að heyra allan sannleik- ann hjá fólki um hvað gerst hefur, að sumir hópar leitist eftir áflogum við fólk sem hefur ekki gert neitt á þeirra hlut,“ segir Sveinbjöm. árum. Það er líka svo að þótt við séum miklu fleiri á vöktunum nú en áður er álagið í dag helmingi meira Miskunnsemi í sa KuJ Annar hlutl Hópbarsmíðar algengari Theodór Friðriksson, sérfræðing- ur á slysadeild Landspitala í Foss- vogi, segir að ofbeldi hafi klárlega aukist síðustu ár. „Síðastliðin tvö ár hef ég verið á slysadeild en ég var einnig hér fyrir 12 áram. Það er mun algengara að ég sjái fólk með alvarlega áverka nú en fyrir 12 en áður á slysadeildinni. Það sem mér finnst einnig hafa aukist til muna eru hópbarsmíðar. Ég hef það á tilfinningunni að hópar gangi um götur og berji á fólki án nokkurrar ástæðu," segir Theodór. Afengi og eiturlyf stór þáttur Theodór segir að í mjög mörgum tilfellum ofbeldisverka eigi áfengi og eiturlyf hlut að máli. „Ef áfengi og eiturlyf væru ekki notuö væra helgamar eflaust jafn rólegar hjá okkur og hinir dagarnir. Ástæðan fyrir auknu og grimmara ofbeldi er eflaust þessi ofbeldisdýrkun sem á sér stað í þjóðfélaginu. Ofbeldi er alls staðar, í bíómyndum, í fréttum og í tölvuleikjum. Þá hef ég einnig orðið vitni að því, þó svo það sé ekki endilega algengt, að menn sem hafa verið að æfa sjálfsvamaríþrótt- ir og box hafa notað það gegn and- stæðingum sínum, sem er bannað, en hefur orðið til þess að andstæð- ingamir hafa verið að koma stór- slasaðir til okkar. Ástæður ofbeldis eru þó mismun- andi og alltaf munu verða svartir sauðir innan um sem veröa alltaf til vandræða," segir Theodór Friðriks- son. -ss Gatnaframkvæmdir: Trufla leikfélagiö Bæjarráð hefur ákveðið að fresta framkvæmdum við fyrirhugaðar gatna- og lagnaframkvæmdir í Hafn- arstræti við Samkomuhúsið, hús Leikfélags Akureyrar. Ástæðan er að Þorsteinn Bachmann leikhús- stjóri hefur ritað bænum bréf þar sem hann bendir á að nýtt leikár sé hafið og því myndu framkvæmdirn- ar valda verulegri röskun á starf- seminni. Búið var að bjóða út verk- ið en vegna þess sem bæjarráð kall- ar breyttar forsendur hafnar ráðið fram komnum tilboðum í verkið og ákveður að það skuli boðið út að nýju í byrjun næsta árs. -BÞ Fyrirhugaðar verðhækkanir á eggjum: Tekist á um skiptingu verðsins og fráleit leið að fara í buddu neytenda, segir formaður Neytendasamtakanna Eins og lesa mátti í DV í gær er búist við nokkurri hækkun á eggjum á næst- unni, eða allt að 20-40%. Heildsalar segjast vera minnka afslátt til smásöluað- ila og segja afkomu eggja- bænda hafa verið afspymulé- lega á undanfórnum árum. Þess má geta að eggjaverð frá framleiðendum hækkaði um 20% í maí en smásöluaöilar segja aö þeirri hækkun hafi Jóhannes Gunnarsson. eggjabændur og matvöru- keðjumar að takast á um skiptingu á hluta verðsins til sin og mér finnst fráleitt að það lendi á neytendum," segir Jóhannes Gunnars- son, formaður Neytenda- samtakanna. „Egg eru óút- skýranlega dýr hér borið saman við nágrannalöndin þannig að það er fráleit leið að fara í matarbuddu neyt- enda. Því er fráleitt að ekki verið hleypt út í verðlagið. Ný hækkun nú myndi hins vegar lenda af fullum þunga á neytendum. „Samkvæmt mínum heimildum eru hækka verðið þrátt fyrir einhvem slag þar á milli.“ Hann segir þá hækkun sem varð í maí út úr kortinu líka og minnir á þá gríðarlegu samþjöppun sem orðið hef- ur bæði á smásölumarkaði matvöru og eggjamarkaði. „Ef menn ætla að fara að nota samþjöppunina svona, að komast á beit í buddu neytenda þarf að grípa inn í. Ég hafha aÚri hækkun á neytendur, keðjumar og framleið- endur þurfa að leysa sín mál á annan hátt.“ Kristín Færseth, deildarstjóri hjá Samkeppnisstofnun, segir að þessar fyrirhuguðu hækkanir á eggjum hafi ekki komið inn á borð stofiiunarinn- ,Við munum hins vegar fylgjast ar. með og ef eða þegar eitthvað gerist munum við skoða málið og taka á því ef ástæða er til.“ -ÓSB Vinningshafar í áskrifendapotti DV: Gleðilegt og óvænt - segir Kristín Mar, heppinn vinningshafi Fjórir heppnir áskrifendur DV voru dregnir úr áskrifendahópnum í þessari viku. Það voru þau Kristín Mar frá Reykjavík og Aðalsteinn Snæbjörnsson frá Ólafsvík sem unnu Fujitsu Siemens-tölvu og pitsuveislu fyrir átta manns á Pizza Hut fengu Margrét Sigmarsdóttir frá Reykjavík og Sigurður Rúnar Gunnarsson frá Reykholti. Kristín Mar starfar sem aðstoðar- leikskólastjóri og hefur verið áskrif- andi að DV i mörg ár. Hún segist hafa orðiö mjög ánægð þegar starfs- maður DV tilkynnti henni um vinn- inginn. „Tölvan kemur sér vel,“ seg- ir Kristín sem er að hefja fram- haldsnám í Kennaraháskóla ís- lands. „Ég ætlaði mér að nota ein- hverja gamla tölvu sem dóttir mín á og því var þetta mjög gleðilegt og kom mér skemmtilega á óvart,“ seg- ir hún. Kristín ætlar að sérmennta sig í kennslu fyrir tvítyngd böm og hefst skólinn á miðvikudag í næstu viku. Henni líst mjög vel á að setjast á skólabekk aftur eftir mörg ár. Kristín segist ekki vera þessi týpa sem sé sífellt að vinna í happdrætti. „Ég vann einu sinni í Happdrætti Háskóla íslands fyrir mörgum árum og þá fékk ég lægsta vinning. Þetta er kærkomin tilbreyting," sagði Kristín í samtali við DV. -JKÁ DV+iYND E.ÓL Gjafabréfið afhent Kristín Mar, áskrifandi DV, tekur viö gjafabréfmu úr hendi Jóhönnu Margrétar Ólafsdóttur, starfsmanns í þjónustuveri DV. REYKJAVÍK AKUREYRI Sóiarlag í kvöld 21.13 20.58 Sólarupprás á morgun 05.45 05.30 Síðdegisflóö 19.34 11-51 Árdegisflóó á morgun 07.49 00.07 .jíjZlB: Hlýjast noröaustanlands Vestan 3 til 8 metrar á sekúndu, stöku skúrir austanlands, en annars skýjað með köflum. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast norðan- og norðaustanlands. a <11° 13”(S ^<rx Cfí- <§r för J0 11° Vætusamt Suðlæg átt og vætusamt sunnan- og vestanlands en skýjað með köflum og þurrt að mestu noröaustantil. Vedriðiffi iiiff.rfr-Tii’-----------: Mánudagur Þriðjudagur Miðvikudagur «1 17° ti! 17° Vindur: Vindur: 3_ant/s 4-9«%/» t * Suölæg átt og Vestlægeöa vætusamt sunn- breytiteg átt og an- og vestan- skúrir lands en skýjaö noröanlands. meö köflum og Suölæg átt og þurrt aö mestu vætusamt noröaustantil. sunnan- og vestanlands. Vaxandl suöaustanátt meö rigningu síöla dags í dag. Fremur hlýtt í veöri. m/s Logn 0-0,2 Andvari 0,3-1,5 Kul 1,6-3,3 Gola 3,4-5,4 Stinnlngsgola 5,5-7,9 Kaldl 8,0-10,7 Stlnningskaldi 10,8-13,8 Allhvasst 13,9-17,1 Hvassvlöri 17,2-20,7 Stormur 20,8-24,4 Rok 24,5-28,4 Ofsaveður 28,5-32,6 Fárviöri >= 32,7 mmmm j -ÝZziS AKUREYRI skýjaö 17 BERGSSTAÐIR skýjað 14 BOLUNGARVÍK skýjaö 15 EGILSSTAÐIR skýjað 15 KIRKJUBÆJARKL. úrkoma í gr. 12 KEFLAVÍK rigning 12 RAUFARHÖFN skýjaö 14 REYKJAVÍK skúrir 13 STÓRHÖFDI skúrir 15 BERGEN léttskýjaö 25 HELSINKI léttskýjað 24 KAUPMANNAHÖFN léttskýjaö 26 ÓSLÓ léttskýjaö 27 STOKKHÓLMUR 26 ÞÓRSHÖFN alskýjaö 13 ÞRÁNDHEIMUR léttskýjaö 21 ALGARVE heiöskírt 23 AMSTERDAM skýjaö 20 BARCELONA skýjaö 26 BERLÍN léttskýjaö 28 CHICAGO rigning 21 DUBUN skýjaö 19 HAUFAX skýjað 14 FRANKFURT HAMBORG skýjaö 24 JAN MAYEN súld 7 LONDON rigning 20 LUXEMBORG skýjaö 22 MALLORCA léttskýjaö 28 MONTREAL 14 NARSSARSSUAQ rigning 7 NEW YORK alskýjaö 23 ORLANDO heiðskírt 25 PARÍS skýjaö 22 VÍN léttskýjað 25 WASHINGT0N skýjaö 27 WINNIPEG heiðskírt 17

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.