Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2002, Síða 11
LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 2002
11
Skoðun
umar ekki að koma?“ spurði mill-
inn með reglubundnu millibili.
Siðprúðar súlumeyjar
Það var farið að nálgast miðnætti
þegar leigubifreiðin renndi í hlað
þar sem Norðmennimir stóðu allir
á veröndinni og biðu. Inni hafði að-
stoðarmaðurinn undirbúið komu
kvennanna. Engin súla var í kofan-
um svo að hann hafði tekið stærstu
veiðistöngina og klambrað saman
fæti undir hana. Stöngin stóð eins
og jólatré á miðju gólfinu og beið
þess að fá nýjan tilgang sem var sá
helstur að hemja konur en ekki lax.
Hinn endanlegi tilgangur var þó
hinn sami, sigur veiðimanns yfir
bráð sinni.
Þegar súlumeyjamar tipluðu á
háum hælum inn í veiðihúsið var
spennan í hámarki. Miilinn hófst
þegar handa og reyndi að þukla
eina þeirra sem sló hann umsvifa-
laust utan undir. Þegar veiðistöng-
in lóðrétta blasti við harðneituðu
þær að dansa.
fyr-
ir-
staða.
Aðalat-
riðið væri
að hlutir
gerðust strax.
íslendingur-
inn hafði ekki ár-
angur sem erfiði
þrátt fyrir að hafa
náð sambandi við lyk-
ilmenn í súlugeiran-
um. Hann leitaði ráða
hjá rafvirkjanum sem
sagðist ekki koma ná-
lægt einhverju rugli.
„Konur og laxveiði
eiga ekki samleið,
lagsmaður,“ sagði
hann. Eftir nokkr-
ar örvæntingar-
fullar hringingar
náði hann loks
sambandi við
mann sem hafði
meyjar til ráð-
stöfunar.
„Sendu mér
átta stykki í
hvelli," sagði
aðstoðarmað-
urinn svo
ákafur að
hann var
næstum
búinn að
missa
maðka-
boxið.
„Ég á
bara
þrjár.
Hinar eru
í veiðihúsi á Norðurlandi," svaraði
súlukóngurinn.
Niðurstaðan varð sú að þrjár
yrðu að duga og að dansararnir
kæmu i leigubifreið í snarhasti.
Norðmennimir sungu ættjarðar-
lög og sögðu veiðisögur þess í milli
að beðið var. Stöðug umgengni var
um sendiferðabarinn og svo sannar-
lega var glatt á hjalla. „Eru stelp-
Boðið upp á bala
„Við þurfum stálstöng sem er
fost i báða enda,“ sagði fyrirliði
kvennanna. Hvorki millinn né
aðstoðarmaðurinn kunnu nein
ráð til að fá slíka stöng auk þess
sem þeir töldu mikla óvissu
ríkja um það hvort mögulegt
væri að festa hana.
„Getið þið notað bala?“ spurði að-
stoðarmaðurinn og visaði til þess
að þegar nektarsýningar vora að
ryðja sér til rúms á íslandi hefði
dönsk sálfræðimenntuð kona baðað
sig í bala og fengið gríðarlega að-
sókn um allt land. Meyjamar
brugðust ókvæða við og þær lýstu
því að þetta væri tómt rugl. „Við
látum ekki bjóða okkur þetta,“
sagði ljóshærð þéttvaxin stúlka sem
stundað hafði nektardans í nokkur
ár frá því hún hætti að vinna í ham-
borgarasjoppu á Suðurlandi. „Þetta
er listform sem kallar á rétta um-
gjörð og innviði," sagði hún um leið
og hún hrinti millanum frá sér þar
sem hann hafði náð taki á annarri
rasskinn hennar. „Við erum lista-
menn en ekki vændiskonur," æpti
hún og hljóp eins hratt og háhælað-
ir fætumir drógu. Hin stansaði ekki
fyrr en við svokallaðan Myrkhyl.
í veiðikofanum rikti upplausnar-
ástand. Norðmennirnir voru fjúk-
andi reiðir við aðstoðarmanninn
sem hafði fært þeim siðprúðar súlu-
meyjar í stað þeirra einu sönnu ís-
lensku kvenna sem lýst hafði verið
í erlendum blöðum. Aðstoðarmað-
urinn var svo miður sín yfir því
ástandi sem skapaðist að hann
týndi ánamöðkunum. Þegar Norð-
mennimir liðu út af undir morgun
höfðu súlumeyjamar tvær komið
sér fyrir í forstofunni en sú þriðja
var enn við Myrkhyl. Aðstoðarmað-
urinn gekk þungum skrefum til
hvílu og grét sig í svefh, heiöri rú-
inn.
Morguninn eftir vaknaði hann
við að millinn stóð þungbúinn yflr
honum og heimtaði að meyjamar
yrðu látnar fara. „Við viljum ekkert
siðleysi hér,“ sagði hann. Rafvirk-
inn kom til skjalanna og tók upp
farsímann. Klukkustund siðar lenti
þyrla á hlaðinu. Aðstoðarmaðurinn
sótti súlumeyjuna sem sat skjálf-
andi við Myrkhyl og smalaði síðan
öllum þremur upp í þyrluna. Þegar
hún tók sig til lofts var enginn á
hlaðinu og þögnin ein var innadyra.
Á sendiferðabamum var dauflegt
um að litast. Flestir kassamir vora
tómir og í einu hominu vora þrír
laxar, afrakstur flmm daga veiði-
ferðar til íslands.
undir uppistöðulón svo virkja
mætti af sem mestum krafti. „Það
hefði mátt sleppa laxi í lónið og
gera þannig hálendi íslands aðlað-
andi,“ sagði Norðmaðurinn og hafði
örfá orð um það hve sorglegt væri
að Norðmenn hefðu hrokkið frá ál-
vershugmyndinni.
Norðmennimir stunduðu veið-
arnar næstu dagana. Nýjar veiði-
græjur virkuðu ágætlega en álag á
þeim var lítið. Sendiferðabarinn
var vinsælli en árbakkinn en þeir
vora þó í vöðlunum allan tímann.
Að kveldi næstsíðasta dags vaknaði
hjá þeim þörf til að njóta félags-
skapar kvenna.
Þrjár meyjar
Aðstoðarmaðurinn stökk þegar
til og hafði samband við helstu
súlustaðina á landinu í gegnum far-
síma sinn. „Strax, strax," sagði
norski milljarðamæringurinn ákaf-
ur og lýsti því að peningar væru
engin
Ráðherra talar
Ræða Guðna Ágústssonar land-
búnaðarráðherra á Hólahátíð um
síðustu helgi vakti að vonum
nokkra athygli. Ráðherrann dró
upp frekar dökka mynd af íslensku
viðskiptalífi með þeim hætti sem
honum er einum lagið. Því miður
sökk Guðni Ágústsson í fúlan pytt,
sem stjórnmálamenn öfundar,
sundrungar og tortryggni eru fastir
í og komast ekki upp úr.
Guðni Ágústsson beindi spjótum
sínum að athafnamönnum, sem
áður hefðu verið kallaðir athafna-
skáld. í stað þess að gleðjast yfir vel-
gengni margra í viðskiptum kaus
ráðherrann að gera þá tortryggilega
og gaf í skyn að nauösynlegt væri
fyrir ríkisvaldið að grípa inn í með
afgerandi hætti.
Ekki er hægt að skilja orð ráð-
herrans öðruvísi en svo að hann sé
hvatamaður að því að umfangsmik-
il eignaupptaka fari fram til að
koma i veg fyrir of mikla auðsöfn-
un, allt undir fögram hatti jafnaðar.
Ráðherrann vék í engu að þeim sem
efnuðust á árum áður í skjóli ríkis-
afskipta - skjóli sem gerði þeim
kleift að græða óeðlilega fjármuni á
kostnað almennings og neytenda.
Miklu fremur lítur Guðni Ágústs-
son stoltur um öxl þar sem aflvaki
„framfara á síðustu öld lá ekki sist
í styrk fjöldans sem var hvati fram-
fara og dugnaðar í landinu".
Ekki ætla ég að gera lítið úr sam-
vinnuhreyfingunni sem ráðherrann
er að vísa til, þó ekki telji hann rétt
að nafngreina hana (furðulegt!).
Mörg framfaraverk vora unnin und-
ir forystu samvinnuhreyftngarinn-
ar og kaupfélaganna á árum áður.
En Guðni Ágústsson i nostalgíu
sinni má ekki gleyma því að sam-
vinnuhreyfmgin óx og dafnaði í
skjóli pólitískrar spillingar þar sem
forréttindi hinna fáu vora tryggð í
pólitískum hrossakaupum. Saga
kaupfélaganna, sem er í mörgu
glæsileg, er einnig saga misnotkun-
ar og ofbeldis gegn einyrkjanum
sem Guðna Ágústssyni virðist svo
annt um í dag.
Leikur í sandkassa
Kosturinn við Guðna Ágústsson í
huga blaðamanns er að hann talar í
fyrirsögnum. Hann skreytir mál sitt
með hætti sem fáir geta eða hafa
hæfileika til. Hólaræða landbúnað-
arráðherra er engin undantekning:
„Eru nýjar aðalsstéttir að ná tökum,
hafa vaxtarverkir fylgt góðærinu
eða hafa erlendir samningar sem
við höfum gert haft áhrif á þessa
þróun, eru hlutafélögin öll með fal-
legu nöfnunum tæki til að safna
auði og ná í fjármagn í nýrri valda-
baráttu? Stundum fær maður á til-
finninguna að allt sé þetta leikur
stórra stráka i sandkassa. Við horf-
um á milljarða viðskipti í yfirtöku
og sameiningu fyrirtækja, við
skynjum að einyrkinn er homreka
og burtrækur úr aldingarði fjár-
sýslumannanna. Við heyrum og sjá-
um stór gjaldþrot þar sem þeir
minni eru féflettir. Við heyrum af
auði manna sem svo vel hafa hagn-
ast að þeir geta keypt banka, spari-
sjóði, fjölmiðla og allt milli himins
og jarðar. Hér áður óttuðust menn
kolkrabba og smokkfiska, en er ógn-
arskepnunum í undirdjúpunum ef
til vill að fjölga? Hér þarf nýjar og
skýrar línur, okkar samfélag þrifst
best sé auði og völdum dreift og að
eignaraðildin að auðsuppsprettunni
sé margra en ekki fárra.“
Hvorki ég né Guðni Ágústsson
höfum raunverulegar upplýsingar
um breytingar á auðsöfnun á Is-
landi undanfama áratugi. Hitt er
hins vegar ljóst að efnahagur al-
mennings hefúr batnað verulega og
fleiri en nokkru sinni stunda sjálf-
stæða atvinnustarfsemi. Auðvitað
er það hins vegar rétt að mörgum
hefur tekist að efnast vel á undan-
fornum árum og sumir hafa orðið
stórauðugir á islenskan mæli-
kvarða. En ættum við ekki fremur
að gleðjast yfir velgengni þeirra en
öfundast? Og að likindum hafa
aldrei verið til fleiri „auðmenn" hér
á landi en einmitt nú. Sumir hafa að
„Ekki er hægt að skilja
orð ráðherrans öðruvísi
en svo að hann sé hvata-
maður að því að um-
fangsmikil eignaupptaka
fari fram til að koma í
veg fyrir of mikla auð-
söfnun, allt undir fögrum
hatti jafnaðar. Ráðherr-
ann vék í engu að þeim
sem efnuðust á árum
áður í skjóli ríkisafskipta
- skjóli sem gerði þeim
kleift að grœða óeðlilega
fjármuni á kostnað al-
mennings og neytenda.“
vísu gengið of hratt um gleðinnar
dyr og ekki sést fyrir í takmarka-
lausri leit sinni að auöi en fyrr eða
síðar munu þeir gjalda þess án af-
skipta stjórnmálamanna. Takist
mönnum að efnast á heiðarlegan
hátt án forréttinda frá hinu opin-
bera eiga þeir hrós skilið en ekki
dylgjur frá ráðamönnum. Slíkir
menn ryðja brautina til bættra lífs-
kjara.
Ég hef oft í gegnum árin tekið til
máls í umræðu um íslenska at-
hafnamenn og þar er misjafn sauð-
ur eins og gerist. En langflestir eru
heiðarlegir, duglegir og útsjónar-
samir. Verst er að Guðni Ágústsson
skuli reyna að undirbúa jarðveginn
til að hefta athafnafrelsi þeirra með
þeim hætti sem hann lét að liggja í
Hólaræðunni.
í leiðara DV 3. ágúst árið 2000
sagði meðal annars um athafna-
menn: „Með áræðni, dugnaöi og
eljusemi eru mönnum í atvinnulíf-
inu flestir vegir færir. Það hefur
verið gæfa okkar íslendinga að til
skuli vera menn - kallaðir athafna-
skáld á hátíðarstundum - sem eru
reiðubúnir að hætta öllu sínu við að
byggja upp fyrirtæki. Og smátt og
smátt hefur viðhorf til þeirra sem
skara fram úr á sviði atvinnulífsins
vegna dugnaðar og útsjónarsemi
orðið jákvæðara. Að líkindum er
það ein mesta og besta breyting sem
orðið hefur á íslensku þjóðfélagi á
síðustu árum.
Því miður lifir enn í glæðum öf-
undar enda hafa margir stjómmála-
menn lifibrauð af því að ala á öfund
og tortryggni í garð þeirra sem
vegnar vel. Jafnvel forseti íslands
getur ekki setið á sér að gagnrýna
það sem hann kallar vaxandi mis-
skiptingu í þjóðfélaginu en lætur
hjá líða að benda á þá staðreynd að
hagur flestra hefur batnað stórkost-
lega á undanfomum árum. Kakan
sem til skiptanna er hefur stækkað.
Og kakan hefur stækkað vegna þess
að athafnaskáldin eru enn að verki
þrátt fyrir að einhverjir reyni að
gera verk þeirra tortryggileg."