Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2002, Page 29

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2002, Page 29
LAUGARDAGUR 24. AGÚST 2002 HeÍQorhloö H>"Vr „Það hefur einkennt félagið að þjálfarar liafa sjaldan enst lengi í starfi og ég var því dálítið óöruggur um hvernig þetta yrði. Það sem gerði útslagið var að það komu tveir menn inn í klúbbinn, annar í stjórnina og hinn sein starfsmaður, sein ég þekkti mjög vel og treysti mikið á. Þegar ég vissi af þeiin sló ég til.“ Eftir tímabilið 1992 söðlaði Teitur um og tók að sér að sjá um íþróttasýningu fyrir fyrrnefndan Arne Mökk- elpost, sem þá hafði tekið að sér rekstur stórrar sýn- ingarhallar. Hann vann við það í eitt ár og eftir að sýningunni lauk fékk hann tilboð frá Lilleström og þjálfaði það árin 1994 og 1995. „Fyrra tímabilið gekk mjög vel og liðið endaði í öðru sæti á eftir Rosenborg. Seinna tímabilið vorum við í toppbaráttunni en því miður endaði það með rifrildi milli mín og stjórnar- manna og í kjölfarið hætti ég einum og hálfum mán- uði áður en þvi lauk.“ Laiidsliðsþjálfari Eistlands Eftir að Teitur hætti þar fékk hann athyglisvert til- boð - að taka að sér starf landsliðsþjálfara Eistlands. „Ég hafði lítinn áhuga á að taka þetta að mér til að byrja með en þegar við fórum að ræða þetta í fjöl- skyldunni fannst okkur þetta ekki svo galið. Það var ekkert vafamál að þetta var dálitið öðruvísi en mað- ur var vanur en okkur fannst að þetta gæti verið spennandi dæmi og það varð úr að ég tók þetta að mér.“ Teitur segir þetta starf hafa verið mjög sérstakt. „Það var nánast enginn fótbolti til meðal eistneskra leikmanna á þessum tíma heldur aðeins rússneskir. Það voru aðeins 22 leikmenn með eistneskt vegabréf þegar ég kom þangað og úr því áttum við að búa til landslið sem spila átti i undankeppni EM og HM. Við hófum þarna mikla og skemmtilega uppbyggingu sem fólst í því aö þefa uppi eistneska leikmenn og gefa þeim möguleika á að æfa. Á þessum fjórum árum sem ég var í Eistlandi byggðum við upp 25 dótturklúbba af félaginu Flora, sem var eina knattspyrnufélagið í Eistlandi, og ég þjálfaði það félag líka. Þegar ég hætti var eistneska knattspymusambandið með 70 þjálfara í fullu starfi sem heyrðu undir Flora. En þessi tími var mjög skemmtilegur og við náðum að koma lands- liðinu úr 140. sæti á heimslista FIFA í 68. sæti.“ Landsliðið stóð sig með prýði, fyrst í undankeppni HM 1998 og síðan enn betur í undankeppni EM 2000. „Við lékum þá hreinan úrslitaleik við Skota á heima- velli í síðasta leik undankeppninnar. Ef við hefðum unnið hefðum við komist í umspil við Englendinga á Wembley um sæti á EM. Því miður endaði leikurinn með markalausu jafntefli en við vorum mjög óheppn- ir, áttum allan leikinn og áttum m.a. tvö stangarskot auk þess sem þeir björguðu einu sinni á línu. Við gát- um því varla komist nær þvi að komast í umspilið.“ Að lokinni undankeppninni haustið 1999 stóð Teiti til boða að halda áfram með landsliðið í tvö ár í við- bót og var Teitur ekki fráhverfur því. „Það voru hins vegar ýmis vandamál, m.a. átti eistneska knatt- spyrnusambandið í fjárhagsvandræðum og það var því ekki ljóst hvort uppbyggingin gæti haldið áfram á sama hátt og verið hafði. Ég fékk síðan tilboð frá Brann i ágúst sem mér fannst áhugavert en ég tók ekki ákvörðun um að taka því fyrr en seinna um haustið þegar ég var búinn að sjá hvemig ástandið var í Eistlandi.“ Teitur var þó tregur til að binda sig til lengri tíma hjá félaginu. „Það hefur einkennt félagið að þjálfarar hafa sjaldan enst lengi í starfi og ég var því dálítið óöruggur um hvernig þetta yrði. Það sem gerði út- slagið var að það komu tveir menn inn í klúbbinn, annar í stjórnina og hinn sem starfsmaður, sem ég þekkti mjög vel og treysti mikið á. Þegar ég vissi af þeim sló ég til.“ Mörg stór vaxidaniál Árangurinn 2000 og 2001 var ágætur en í sumar hef- ur liðið verið í vandræðum. „Ég var ráðinn til félags- ins m.a. til að takast á við nokkur stór vandamál. Fé- lagið hafði þá verið rekið með tapi upp á 30 milljónir norskra króna (um 300 milljónir íslenskra króna) og ætlunin var að reyna að snúa þessari þróun við á fimm árum. Það hefur gengið ágætlega og í ár verður tapið um 2,5 til 3 milljónir (um 30 milljónir islenskra króna). Stefnan er síðan að reksturinn standi á sléttu á næsta ári. En til þess að geta gert þetta urðum við að selja okkar bestu leikmenn og síðan við urðum í öðru sæti í deildinni árið 2000 eru sextán leikmenn famir. Liðið í dag er byggt upp á ungum og efnileg- um strákum en þeir hafa enga reynslu. Ég tel að það yrði mjög góður árangur ef við náum að vera með þetta liö um miðja deild á þessu tímabili, sérstaklega í ljósi þess að við þurftum í vor að selja þrjá af okk- ar bestu leikmönnum, þ. á m. markakóng norsku deildarinnar síðustu tvö árin.“ Hvernig finnst þér boltinn hafa verið i Noregi í sumar? „Klúbbarnir hér vinna mjög skipulega, það er mik- 0 nýliðun í hópunum og meiri fjármunir eru komnir inn í félögin. En boltinn hér í Noregi hefur ekki ver- ið alltof skemmtilegur. Flest liðin hafa tekið upp þann bolta sem norska landsliðið hefur spilað sem er að mínu áliti ömurlegur. Rosenborg hefur verið flagg- skip Noregs og spilað frábæran fótbolta og því fmnst mér synd að fleiri lið skuli ekki hafa tekið það eftir. Það góða við deildina í sumar er að hún hefur ekki veriö svona jöfn í mörg ár. En ástæðan fyrir því er fyrst og fremst sú að Rosenborg hefur ekki staðið undir væntingum. Reyndar hafa nokkur lið sem hafa verið rétt á eftir þeim lagt mikla fjármuni í að byggja upp góð lið og dæmi um það er Molde sem er með rik- an eiganda sem dælir peningum nánast endalaust í liðið. Ég held samt sem áður að Rosenborg eigi eftir að vinna deildina enn eitt árið.“ Bjánalegt verkfall Nú fóru leikmenn norsku deildarinnar í verkfall í sumar. Hvað fannst þér um það? „Mér fannst þetta hreint og beint bjánalegt. Oft kemur til verkfalla þegar verið er að ræða um launa- mál en það var ekki uppi á teningnum núna heldur fyrst og fremst tryggingamál. Svona mál finnst mér að eigi að vera hægt að leysa á annan hátt en að fara i verkfall. Þetta er bara bjánalegt." Teitur er ánægður með frammistöðu íslendinganna i Noregi. „Margir þeirra hafa staðið sig mjög vel. Ég hef líka alltaf haldið því fram að íslenskir knatt- spyrnumenn sem vilja komast í atvinnumennsku hefðu gott af því að spila 2-3 tímabil í Noregi áður en þeir fara í sterkari deOdir. Með því móti verða við- brigðin ekki eins mikil og menn fá að kynnast því hvernig það er að hafa knattspymuna sem fulla at- vinnu.“ Teitur á marga landsleiki að baki fyrir íslands hönd og lék þann fyrsta árið 1971. „Sá sem er kannski hvað minn- isstæðastur er 2-1 sigurinn á Austur-Þjóöverjum á Laug- ardalsvellinum 1975. Sá leikur lifir lengi í minningunni enda gríðarlega stór sigur.“ Og Teitur er sáttur við stöðu landsliðsins í dag. „Möguleikamir á að komast í lokakeppni stórmóts ættu að vera fyrir hendi þó að við séum lítil þjóð. Við erum með marga góða knattspymumenn í sterkum deildum í Evrópu og þar af leiðandi sé ég ekki af hverju landsliðiö ætti ekki að hafa einhverja möguleika. Riðillinn sem lið- ið er í núna dregur ekki úr þessum möguleikum en lið- iö verður líka að hafa heppnina með sér til að ná ár- angri.“ Teitur reynir að fylgjast með knattspymunni á ís- landi, einkum í gegnum Ólaf bróður sinn, sem nú þjálf- ar Skagamenn. „Mig hefur alltaf langað til að sjá leiki í deildinni en mér hefur bara aldrei tekist það. Aðstaða okkar hefur verið þannig að við höfum getað kíkt tölu- vert eftir leikmönnum á íslandi en þaö em að verða vandræði með það líka vegna þess að það kostar pen- inga. Bosman-dómurinn hefur haft þau áhrif að við fáum fjöldann allan af leikmönnum hingað sem kosta ekki neitt en áður fýrr var það ódýrara að fá leikmenn frá ís- landi en annars staðar. Deyfðin sem er búin að vera á leikmannamarkaðinum í sumar er ekkert annað en angi af þessu Bosman-máli.“ Teitur er í miklu uppbyggingarstarfi hjá Brann og er bjartsýnn á að það muni skOa árangri á næstu árum. „Ef stjómin leyfir þessu að vinnast í friði og ró mun Brann geta bitið frá sér eftir 2-3 ár. Brann er eina félagið í Nor- egi sem á vöUinn sinn og það kostar 12 mUljónir norskra króna á ári aö reka harrn. Það er enginn annar klúbbur í Noregi sem getur þetta. Við erum lika sá klúbbur í Nor- egi sem hefur haft hvað flesta áhorfendur. Það þyrfti að fá stuðningsaðila utan frá tO að snúa fjárhagnum við. Klúbburinn hefúr ekki unnið neitt síðan 1963 og það er því langt síðan hann hefur staðið sig almennOega en það kemur tU af því að það hefur verið endalaust rót á hon- um í gegnum tíðina. Við erum einnig að byggja upp ung- lingaliðið i klúbbnum og það er að byrja að skOa sér; við unnum t.d. stóra unglingakeppni þar sem öU bestu liðin í Noregi senda unglingalið sín.“ Það er ekki hægt að kveðja Teit án þess að spyrja hann um hvemig honum lítist á nýjustu íslensku viðbótina í norska boltann, Guðjón Þórðarson, sem nú er tekin við Start. „Þetta er alls ekki auðvelt verkefni. Þetta félag hef- ur verið i vandræðum síðustu ár og flakkað mikið á mUli tveggja efstu deUdanna. Þeir keyptu töluvert af leik- mönnum fyrir tímabUið og töldu sig eiga góða möguleika á að halda sér í deUdinni en þetta hefur ekki gengið eins vel og búist var við. Það er alveg ljóst aö Guðjón fær nóg að gera það sem eftir er tímabUsins en það er hugsanlegt að hann hafi það sem tU þurfi tU að rífa klúbbinn upp. Það em margir ungir og efnUegir leikmenn í þessu Uði en þetta verður ekki létt verkefhi og hann gerir sér ör- ugglega grein fyrir því sjálfur." -HI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.