Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2002, Side 30
30
Helgarbloö 1Z>V LAUGARDAGUR 24. ÁGUST 2002
Allt of margir
miðaldra karlar
Svanfríður Jónasdóttir hefur nokkuð óvænt
tilkynnt að hún hygqist hætta þinqmennsku
næsta vor, eftir tvö kjörtímabil. Hún vill sjá
róttækar breytinqar á þinqliðinu oq vill
ekki enda lífið sem þinqmaður.
I viðtali við DV kemur þinqkonan víða við
oq ræðir m.a. Siqbjörnsmálið, pólitískan
hroll niður bak oq muninn á hlutskipti
Steinqríms J. oq Össurar.
Hvað ber hæst þegar þú lítur til baka sl. tvö kjör-
tímabil?
„Mér finnst merkilegast að hafa tekiö þátt í þessari
uppstokkun sem orðið hefur á vinstri vængnum. Hún
hefur verið látlaus frá árinu 1995. Frá þeim tíma hef ég
setið í fjórum þingflokkum - fyrst hjá Þjóðvaka, síðan
hjá þingflokki jafnaðarmanna og svo tveimur þing-
flokkum Samfylkingarinnar. Ég er með myndir af
þessum þingflokkum öllum á skrifstofunni minni og
finnst gaman að sjá hve hópurinn hefur sífellt stækk-
að.“
- En það hefur gengið á ýmsu:
„Já, eðlilega. Þetta er ekkert áhlaupaverk og þess
vegna er ekki hægt að leyfa sér mikla óþolinmæði.
Menn hafa verið djarfir í yfirlýsingum og leyft sér að
segja aö þetta gangi ekki en slíkt tal er fráleitt. Það er
í raun með hreinum ólíkindum hve margt hefur gerst
á þessum stutta tíma.
Við sameiningu sveitarfélaga hefur heyrst aö fækk-
un fyrirmanna í héraði sé oft erfiðasti þröskuldurinn.
Það er svipað í þingpólitík. Það er erfitt að taka flokka
og stofnanir og ætla aö skáka stöðu manna og breyta."
Fyrir tveggja flokka kerfi
- Það hefur orðið þér áfall þegar Steingrímur og fé-
lagar kusu að fara sína leið:
„Auðvitað vorum við að vonast til að við gætum
búið til flokk eins og breska Verkamannaflokkinn
þannig að pláss væri fyrir alla vinstrimenn innan
sömu hreyfingar. Ég held að það hefði verið mjög gott
fyrir íslenska pólitík að fá hreina valkosti."
- Ertu fyrir tveggja flokka kerfi?
„Já, ég er fyrir það að menn segi fyrir kosningar
hvað þeir ætli að gera og svoleiðis háttar til í tveggja
flokka kerfinu. Það væri lýðræðislegra og heiðarlegra
gagnvart kjósendum ef hægt væri að segja þeim fyrir
kosningar að þeir væru að velja milli tveggja ríkis-
stjórna í stað þess að menn hafi jafnvel staðið uppi
með að kjósa flokk sem fer í ríkisstjórn og gerir allt
aðra hluti en kjósendur ætluðust til. Ég er meira fyrir
sainninga fyrirfram en að samið sé eftir á.“
- Væri allt öðruvísi umhorfs í íslensku samfélagi í
dag ef ykkur hefði tekist að sameina alla vinstrimenn
undir einn hatt?
„Ég veit ekki hvort það hefði breytt miklu á þessu
kjörtímabili en ég er alveg klár á að íslenskt samfélag
væri öðruvísi ef jafnaðarmenn hefðu sameinast í stað
þess að hér hafi verið tvær vinstri liðsheildir lengst af,
allt frá árinu 1930.“
Alin upp í útgerð
- Þú ert langiðnust íslenskra þingkvenna að tala og
skrifa um sjávarútvegsmál. Hefur sá áhugi tengst
stöðu þinni sem þingmaöur í sjávarútvegsbyggð eða
hefurðu raunverulegan brennandi áhuga á þessum
málaflokki?
„Ég hef rosalegan áhuga á þessum málaflokki og hef
haft lengi. Það er ugglaust sprottið af því að ég er alin
upp í sjómanna- og útgeröarfjölskyldu þar sem mikið
var rætt um fiskirí. Þegar ég fór i bæjarstjórn á Dal-
vík árið 1982 áttaði ég mig á að ef ég ætlaði að verða
gjaldgeng yrði ég að setja mig vel inn í alla hluti og þ.á
m. valdapólitíkina í sjávarútveginum."
- Heldurðu að þessar rætur þínar hafi orðið til þess
aö þú sért öðruvísi þingmaður en margir aðrir?
„Ég veit það ekki en þessi sjávarútvegspæling og sú
Bráðræðisbréf Össurar liafa verið erfið en það er svo skrýtið að leiðtogar sem hafa fest sig í sessi hafa komist
upp með svona bréf. En vissulega geruni við kröfur til þess að okkar formaður vandi sig aðeins rueira en for-
maður Sjálfstæðisflokksins.
þátttaka sem ég hef átt í umræðum um sjávarútveg
hefur auðvitað haft áhrif á viðhorf mín gagnvart efna-
hagslífinu og hvernig við stýrum þessu samfélagi."
- Þú minnist þess sem sagt að ekki sé sjálfgefið að
við lifum jafn hátt og raun ber vitni:
„Já, maður er alltaf með það í höfðinu og þess vegna
hef ég e.t.v. aðra sýn en sumir þingmenn þegar við
ræðum t.d. stækkun ríkiskerfisins."
- Ertu sátt við þá lendingu sem náðst hefur í sjávar-
útvegsmálum?
„Nei, ég er ekki sátt við hana. Mér finnst hún ekki
enn hafa fært okkur nær því markmiði að viðurkennt
sé í stjórnarskrá að sjávarauðlindin sé þjóðareign. Ég
vil sjá staðfest í stjórnarskrá að til sé þjóðareign þar
sem takmörkuð gæði geti ekki verið í einkaeign ein-
hvers fámenns hluta íslendinga. Sumar þjóðir geta
e.t.v. leyft sér svoleiðis en við þolum það ekki fámenn-
isins vegna. Menn gleyma því stundum að litil þjóð
þolir verr mikla efnahagslega mismunun og mér finnst
mikilvægt að við náum allsherjarsamkomulagi um þá
niöurstöðu auðlindanefndar að þjóðareignin verði
stjórnarskrárbundin og farið sé með hana í anda jafn-
ræðis. Menn mega ekki hafa það sífellt á tilfinning-
unni að útvöldum hópi einstaklinga sé sífellt skammt-
að úr takmarkaðri sameign þjóðarinnar á meðan aðr-
ir sitja hjá. Það er óþolandi mismunun.1'
Erfiðir kvöldfundir
- Var sú ákvörðun þín að hætta þingmennsku erfið?
„Nei, hún var ekki erfið. Það hefur blundað í mér að
mennta mig meira og ég er þeirrar skoðunar að mjög
farsælt sé að skipta um starfsvettvang tvisvar til
þrisvar á ævinni ef menn eiga kost á slíkum forrétt-
indum. Mér fannst að ef ég ætlaði að skipta á annað
borð væri rétti tíminn núna. Ég vildi ekki ljúka lífinu
sem stjórnmálamaður."
- Hvort vegur þyngra, þegar þú lítur aftur, argaþras-
ið í þinginu og sólarhringarnir löngu eða hið jákvæða
og skemmtilega?
„Þetta skemmtilega vegur miklu þyngra. Ég hef átt
mjög erfitt með vinnulagiö á Alþingi, er mjög kvöld-
svæf og einhverra hluta vegna lenda „karlamálin",
sem ég tek iðulega þátt í, oftar á kvöldin og það á bölv-
anlega viö mig. En þrátt fyrir það er hið skemmtilega
manni ofar í huga. Ég lít jákvætt á hlutina."
- Sumir velta því fyrir sér hvort kjördæmabreyting-
in og óvissa þingmanna hafi átt þátt í að þú hættir
núna - að bakland þitt hafi ekki verið nógu sterkt:
„Nei, það var ekki þannig. Hins vegar hefur kjör-
dæmabreytingin sennilega flýtt fyrir þessari ákvörð-
un. Það er býsna mikil vinna að setja sig inn í alla
nýja hluti og því var lag núna. I óbreyttri kjördæma-
skipan hefði ég hugsanlega setið eitt kjörtímabil enn.“
Vandi „Sigbjömsmálsins"
- Nú kom upp leiðindamál fyrir síðustu þingkosn-
ingar á Norðurlandi eystra, svokallað „Sigbjörnsmál".
Margir töldu flokkinn hafa skaðast eftir að Sigbjörn
Gunnarsson dró sig í hlé þrátt fyrir að hafa sigrað í
umdeildu prófkjöri. Voru réttar ákvaröanir teknar þá,
svona eftir á að hyggja?
„Vandi okkar fólst ef til vill í því að vegna bernsku
flokksins voru þessi mál dálítið losaraleg. Stjórnmála-
flokkur með bakbein lendir miklu síður í svona klúðri
því þá er til einhver stofnun sem getur tekið á málun-
um. Vandi okkar var að við höfðum enga slíka stofn-
un og bæöi aödragandi prófkjörsins, prófkjörið sjáift
og eftirleikurinn bar allt saman merki um að það vant-
aði festu í málin. Flokkurinn var ekki til. Þetta var
bara kosningabandalag með hólfaskiptum framboðum.
Slikt býöur auðvitað upp á ákveðna erfiðleika.“
- En sitjið þið Sigbjörn teboð saman í dag og eruð
sátt?
„Við þekktumst nú ekki mikið áður. Það vill hins
vegar svo til að systurdóttir Sigbjörns er orðin tengda-
dóttir mín og mér finnst ég hafa mætt afar góðu við-
móti frá fjölskyldunni eftir að fjölskyldur okkar tengd-
ust með þessum hætti.“
Ekkert grín að vera Össur
- Þá yfir í aðra sálma. Oft heyrist að hinir flokkarn-
ir njóti sterkari leiötoga en Samfylkingin. Hverju
svararðu því?
„Þegar menn leggja mat á leiðtoga fer það eftir því
að hverju menn leita. Það er ekkert grín að taka að sér
að verða formaður í flokki sem verður til úr öðrum
flokkum. Staða Össurar Skarphéðinssonar hefur verið
mjög erfið og flókin. Staða Steingríms J. Sigfússonar
var t.d. miklu auðveldari. Eins og Jón Baldvin orðaði
það þurfti Steingrímur ekki að taka gamalt brotasilfur
og hnoða því saman eins og varö hlutskipti bæði Mar-
grétar Frímannsdóttur og Össurar.“
- Hvernig finnst þér Össuri hafa tekist til?
„Mér finnst honum hafa tekist vel til miðað við
kringumstæður. Flokkurinn hefur auðvitað lent í ýms-
um áföllum en mér finnst að eftir því sem á líöur hafi