Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2002, Page 35

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2002, Page 35
LAUGARDACUR 24. AGÚST 2002 Helcfarhlað DV 30 Demantar Demantarnir á myndinni eru um 120 karöt. Myntin á mvndinni er einhvers staðar milli krónupenings og fimm krónu penings að stærð. Verðmæti dem- anta veltur á mörgum þáttum. Talað er um C-in þrjú: Cut - skurður, Clarity - tærleiki, Color - litur og Carat - karöt. Liturinn skiptir rnáli en litlausir (hvítir) demantar teljast bestir þó sjaldgæfir litir á borð við föl- bleika og -bláa séu mjög eftirsóttir. Ef demanturinn er sprunginn rýrir það verðið því tærleikinn er minni. Réttur og nákvæmur skurður er afar mikil- vægur þar sem ljósbrotið veltur á honum. Loks eru stærri demantar eðli- lega inargfalt verðmætari en minni og inargfaldast verðið á hvert karat eftir því sem dcmanturinn er stærri. Endanlegt verð fer eftir því liversu góður demanturinn er að öllu þessu virtu en flóknar reikni- og mæliaðferðir eru notaðar til að gefa demöntum einkunnir fyrir hvern þátt. Nefna má dæmi: Fullkominn eins karata demantur (100 punkta skurður, 0,2 grömm), með hæstu einkunn hvað varðar lit, skurð, tærleika, kostar eitthvað um 15 þús- und dollara eða um 1,3 milljónir króna. Fullkominn fimm karata demantur um 272 þúsund dollara, rúinar 23 milljónir króna. Demantarnir frá Karen og Rocky fara til suður-afríska ríkisins sem selur þá áfram til dcmantakeðja, cinna helst stórfyrirtækisins De Beers sem í raun „á“ demantabransann í heiminum og stýrir honum, meðal annars framboð- inu, til að halda verðinu háu. í raun, segir Karen, eru demantar alls ekki svo sjaldgæfir heldur er framboðinu haldið lágu til að tryggja hátt verð. Stærsti demanturinn á myndinni var seldur á 50 þúsund dollara, af því fengu Karen og Rocky tæplega helming. Fullunninn er hann milljóna doll- ara virði. auka eignarhlut svartra i suður-afrisk- um fyrirtækjum. Samkvæmt þessari stefnu eru atvinnurekendur skyldugir að lögum til að hafa svarta meðeigend- ur að fyrirtækjum sinum. Því miður hefur þessi aðferð gert það að verkum að sums staðar eru hinir svörtu með- eigendur aðeins áskrifendur að laun- unum sínum. Þeir sinna ekki fyrirtæk- inu heldur sitja heima öruggir um að ekki er hægt, eða að minnsta kosti afar örðugt um vik, að reka þá eða þvinga með öðrum hætti til að sinna störfum sínum. Stefna þessi var komin til fram- kvæmda þegar hjónin komu úr skútu- siglingu sinni, sem segir frá á eftir. Karen segir að því miður hafi svartir meöeigendur þeirra í fyrirtækinu sem þau stofnuðu þá ekki einu sinni komið á námastaðina eða skipt sér með nokkrum öðrum hætti af fyrirtækinu. Þeir fá því laun fyrir ekki neitt og kannski er það ágætt dæmi um hvem- ig fer þegar ríkisvaldið reynir að „lag- færa“ stöðu einhvers tiltekins hóps með slíkum aðgerðum. Misréttið snýst bara við því maðurinn er breyskur, óháð ytri einkennum eða kynþáttum. Allt þetta gerir það að verkum að demantaköfún fyrir ströndum S-Afr- íku er langt frá því að vera einhver „guiináma", ef hægt er að komast svo að orði. Allt að einu segir Karen að hún hafi elskað stariið og árin fimm áður en andvirði skútunnar var „í höfn“: „Þetta er mjög fallegt svæði, 35 kfló- metra löng, villt strönd. Það er aðeins hægt að kafa þegar stillt er i sjóinn en það er alls ekki alltaf gott veður þama og verður stundum afar hvasst. Þegar sjórinn rauk upp og fór að brima við ströndina var auðvitað ekki hægt að vinna. Þann tíma nýttum við til að fara á brimbretti, sem við höfum mjög gaman af, svo segja má að þetta hafi verið gaman og gott hvemig sem veðr- ið var. Þessi fimm ár vom yndisleg. Og okkur gekk vel að safna demöntunum líka.“ Engir milljónamæringar Aðspurð sirka hversu mikið þau hafi haft upp úr demantaköfúninni vfll Karen ekki fara út í tölur en segir þau hafa lifað ágætu lífi, farið til Cape Town um helgar, aflað sér nauðsynja og gert sér dagamun en lifað þess í rnilli kyrrlátu lífi fjarri alfaraleið við hina afskekktu strönd. Demantamir vom litlir, flestir innan við karat að stærð - karat er um það bil 0,2 grömm en mælieiningin á fyrst og fremst við skurðpunktana á demantinum þegar búið er að vinna hann, einu karati er skipt í 100 punkta og því er demantur með 75 punkta tfl dæmis 0,75 karöt. „Við urðum engir milljónamæring- ar af þessu. Eftir fimm ára starf held ég að við höfum verið heppin að geta selt fyrirtækið og látið drauminn okk- ar um skútuna rætast. Við fengum nóg af peningum til þess og sá sem seldi okkur snekkjuna hafði átt svo erfitt með að losna við hana að við fengum hana á um 20 þúsund dollara. Það var dálítið mikið og kannski dálítið bijál- æði fyrir fólk sem hafði ekki siglt nema smábátum áður að kaupa stóra seglskútu.“ Eftir fimm ára búsetu, fyrst í hjól- hýsi og tjaldi og þá litlum skúr á hinni afskekktu vesturströnd S-Afríku, hafði þeim með sparsömu lífemi og striti við demantaköfunina tekist að öngla saman nógu miklu fé til að kaupa skútu. Þau héldu því til Gíbraltar og keyptu gamla þriggja mastra seglskútu sem þau gerðu upp og lagfærðu og gerðu gangfæra úr mjög bágu ástandi á þremur mánuðum. Síðan sigldu þau skútunni til Kanaríeyja. Karen og Rocky era ástríðufúllt brimbrettafólk og vora áfangastaðimir valdir eftir því hvar öldumar era mestar og bestar. Á Kanaríeyjum eyddu þau einu ári við leik og störf en færðu sig því næst yfir Atlantshafið tfl Trinidad og Tobago. „Þar fúndum við paradís;" segir Karen og augun Ijóma. „Við lögðum skútunni rétt fyrir utan rif á Tobago og duttum inn í eyjalífsstílinn, unnum fyrir okkur við hitt og þetta, vorum mikið á brimbretti - öldumar þama Karen Franklin. „Við urðum engir milljónamæringar af þessu. Eftir fimm ára starf held ég að við höfum verið heppin að geta selt fyrirtækið og látið drauminn okkar um skútuna rætast.“ eru ótrúlegar - og kynntumst eyjar- skeggjum sem era yndislegir. Við vor- um þama í fimm ár, miklu lengur en við ætluðum okkur upphaflega, án þess einu sinni að fá vegabréfsáritun!" Snúið aftur í stærri demanta Á endanum lentu Karen og Rocky í því að eyðileggja vélina í snekkjunni, næstum þrjátíu ára gamla af Rolls Royce gerð. Þau björguðu skipbrots- fólki úr snekkju sem var að sökkva og drógu snekkjuna tæpa þijá kílómetra áður en hún sökk endanlega. „Það drap vélina okkar. En í næstum ár eftir þetta sigldum við um karabíska hafið fyrir seglunum einum, skutluð- umst á milli eyjanna og lögðumst við akkeri þar sem við vildum stoppa. Mað- urinn minn er mjög stoltur af því að hafa gert þetta á hefðbundna rnátann." Eftir sjö og hálft ár á skútunni höfðu Karen og Rocky ekki komist nema rétt fyrsta legginn á heimssiglingunni sem plönuð var vegna þess að þau kunnu svo vel við sig í karabíska hafinu. Þau vora samt orðin peningaþurfi og fannst nóg komið í bili svo þau ákváðu að stofna fyrirtæki með sugubátum á Tobago til að vinna við ýmsar fram- kvæmdir neðansjávar. Karen skrapp heim að heilsa upp á fjölskylduna og Rocky fékk fljótlega tflboð um að sigla skútu frá Cape Town tfl karabíska hafs- ins svo hann kom f kjölfarið. Örlögin höguðu því svo þannig að þau fóra aftur út í demantaköfunina. „Gamail skólabróðir minn kom að máli við mig og spurði hvort við vær- um til í að halda áfram á nýjum stað á vesturströndinni, ennþá norðar en við höfðum verið. Við höfðum aldrei ætlað að flytja frá S-Afríku fyrir fullt og allt, vildum bara sigla um óákveðinn tíma, og við ákváðum strax að fara út í dem- antaköfunina á ný. Staðurinn er í átta klukkustunda fjarlægð frá Cape Town og umhverfið er dálítið eins og eyði- mörk. Við höfum verið þar í þijú ár, gengur vel og höfúm komist að því að demantamir þar era mun stærri en á hinum staðnum." Á opnunni má meðal annars sjá mynd með nokkrum sýnishomum af stórum demöntum sem hjónin hafa fundið síðan þau hófu aftur að kafa. Demantana á myndinni fundu þau 11. september í fyrra, á þeim alræmda degi. Karen segir þó mjög mismunandi hvemig gengur milli mánaða. Síðasta mánuð fengu þau einn ellefu karata stein og nokkra aðeins minni, samtals 79 karöt. Mánuðinn þar á undan ekki neitt því sjórinn var svo úftnn að ekki var hægt að kafa. Það er því ljóst að sama gfldir um demantaköfun í S-Afr- íku og sjóróðra á íslandi: Það er ekki á vísan að róa. -fin Bátur Þetta er báturinn sem Karen og Rocky nota við demantavinnsluna núna. Hann er stærri en sá sem þau áttu áður en þau keyptu snekkjuna. Á honum eru stórar sogslöngur, um tuttugu sentímetrar í þvermál, og vélknúnar pumpur á bátnuin. Sogkraft- urinn er gríðarlega mikill og getur stórslasað menn ef einhver líkamshluti lendir inni í slöngunni. Kaf- arinn kafar niður með pípuna og ryksugar botninn kerfisbundið. Það er sérgrein Rockys, að sögn Karenar: „Hann vinnur undir öldunuin, oft í mikl- um sviptingum, mjög nálægt landi á rifinu. Þetta er frekar hættulegt starf. Báturinn er festur við akkerí nánast alveg uppi í landi og hainagangurínn er oft mjög mikill þegar einhver öldugangur er. Kafararn- ir vinna þar sem öldurnar róta upp setinu, ryksuga undir steinum á botninum og reyna að finna líklega staði. Þetta getur veríð ábatasaint starf en er mjög erfitt og frekar hættulegt. Þetta er ekld vel þekkt starfsgrein í S-Afríku. Fáir kafarar endast í þessu, annars vegar vcgna hættunnar og álagsins cn einnig vegna þess að flestir eru að vinna fyrir einhvern annan og eru eiginlega nokkurs konar „fallbyssu- fóður" sem vinna á prósentum og eru oft alls ekki vissir um að fá nokkuð borgað fyrir ómakið, annað hvort vegiia þess að árangurinn er enginn eða að eigandinn svíkur þá og hirðir allt. Ég og Rocky vinnum fyrir okkur sjálf og þannig tekst okkur að lifa af þessu.“ Þrímastraða snckkjan sem kostaði finim ára strit við demantaköfun. Fyrirhuguð hnattsigling hjón- anna endaði í Trinidad og Tobago þar sem þau kunnu svo vel við sig að þau bjuggu þar í fimm ár. Karen segir þó hnattsiglinguna aðeins vera „á pásu“. Karen, Rocky og vinir þeirra um borð í snekkjunni að loknum málsverði á dekkinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.