Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2002, Page 23
28
FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2002
M
agasm
A góð tutt-
ugu ór eftir
- segir Anna Björg Björnsdóttir,
Þrótti, sem líklegast var
markahæsti á Islandi sl. sumar
Anna Björg Björnsdóttir er
einungis 21 órs. Hún ó samt
fjögurra óra strók, var að
kaupa sér íbúð, stundar nám
af kappi og skoraði 40 mörk
fyrir Þrótt á síðasta tímabili í
1. deild kvenna í knatt-
spyrnu. Líklega er hún
markahæsti leikmaður nýlið-
ins sumars í meistaraflokkum
karla og kvenna yfir allt
landið.
fara yfir í efstu deildar lið í fyrra en
ég ákvað að vera hjá Þrótti enda líð-
ur mér vel þar. Svo ætla ég að klára
skólann og fara kannski í lögfræði í
Háskólanum."
En hvað áttu mikið eftir í boltan-
um?
„Ég á fullt eftir, það var ein að
spila hjá okkur í sumar sem var fer-
tug þannig að ég á góð tuttugu ár
eftir.“
Hvað ætlarðu að skora mörg
mörk í efstu deild?
„Á ég að fara að spá í það. Það er
erfltt. Jú, ég ætla að skora átta
mörk fyrsta árið. Það er loforð.“
Anna Björg Björnsdóttlr er markaskorari af guös náð. Hún skoraði 40 mörk fyrir 1. deildarlið Þróttar í sumar leið
og er líklegast markahæsti leikmaður meistarafiokks yfir landið í ár. Magasín-mynd E.ÓI.
Það er ekki slæmt að vera með
leikmann eins og Önnu Björgu
Bjömsdóttur i sínu liði. Þessi knái,
dökkhærði sóknarmaður skoraði 40
mörk fyrir Þrótt í 1. deild kvenna í
ár og á því næsta mætir hún til
leiks í deild hinna bestu. En hver
þessi Anna sem skorar svona
grimmt?
„Ég er 21 árs og er á hagfræði-
braut í Fjölbraut í Ármúla. Ég bý
með kærastanum mínum og á eitt
bam, strákinn Axel Andra sem er
fjögurra ára gamall. Algjör engill.“
Hvar hófst knattspyrnuferillinn?
„Ég var að spOa með Fylki í Ár-
bænum í þijú ár. Þeir lögðu svo nið-
ur kvennaliðið vegna manneklu og
þá ákváðu nokkrar að fara úr Fylki
i Þrótt sem var að koma á legg
kvennadeild. Reyndar endaði það
þannig að það var bara ég sem fór
yfir.“
En hvemig ferðu að því að skora
svona grimmt?
„Ég veit það ekki. Bara með því
að vera í góðu liði og spilar vel sam-
an. Annars veit ég það ekki, spái
ekkert í það. Ég geri bara það sem
ég get með liðinu."
En þetta hefur ekki alltaf verið
dans á rósum?
„Nei, í september 2000 vonun við
að spila úrslitaleik um hver myndi
spila í efstu deild við Grindavik. Ég
var í sókn og var að skora þegar
markmaður þeirra fór út á móti
mér og lenti illa á mér. Ég tvífót-
brotnaði og þurfti að fara út af. Við
komust ekki upp það ár. Ef ég hefði
ekki lent í þessu þá hefði ég ömgg-
lega skorað meira og við hefðu farið
upp.“ ’
Nú emð þið uppi, hver eru mark-
miðin?
„Aðallega að halda sér í efstu
deild. Það er gríðarmikill styrk-
leikamunur milli deilda og við verð-
um að leggja okkur allar fram til að
halda okkur uppi. Þetta er allt ann-
að dæmi að komast upp en það verð-
ur gaman að mæta sterkum liðum.“
Viltu komast til útlanda að spila?
„Það er draumurinn hjá öllum
sem standa í þessu. Atvinnumanna-
deildin í Bandaríkjunum heillar en
maður verður að sanna sig heima
fyrst. Það er mikill munur á milli
deilda og hvað þá þegar út er kom-
ið.“
Hver eru áhugamálin?
„Ég æfi stíft og það fer mikill tími
í það. Ég æfi mikið í World Class
með fótboltanum til að halda mér i
formi. Svo hef ég gaman af því að
djamma. Þróttarahópurinn er sam-
heldinn og fórum við oft saman út á
lífið eða gerum eitthvað skemmti-
legt.“
Hvemig er framtíðin?
„Framtíðin er björt hjá Þrótti. Ég
vil vera þar áfram og spila, það er
miklu skemmtilegra að vera í liði og
spila en að vera á bekknum hjá ein-
hverju ööru liði. Mér var boðið að
\fmælis-tiIboó/
I tilefni 60 ára afmælis okkar bjóðum við
ffábærar steypuvinnuvélar á tilboði.
Vélar frá Stow, Technoflex og Fast Verdini.
Líttu við og skoðaðu úrvalið, tilboðið
stendur til áramóta. *
Vibrasleðar
\ ffá kr: 142.500.-stgr. m/vsk
'Plötuslípivélar q
bensín og rafmagns,
verð ffákr: 201.800.
stgr. m/vsk
IVibraréttskeiðar
verð frá kr: 73.000.
stgr.m/vsk
Steinsagir með blaði
verð frá kr. 292.500.- stgr, m/vsk
Víbratorar með
barka og haus
verð frá kr: 64.900.- stgr. m/vi
Jarðvegsþjöppuí^^P^
verð ffá kr:.212.350.-stgr m/vsk
ffiSV VERDINll
..»....■■■■■■■-111 . iii— i ■■■cpif
‘ECHSIOFLEX
l>. ÞORGRÍ MSSON &CO
Ármúla 29-108 Reykjavík 5538640 - www.thco.is
■w