Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.2003, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.2003, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 2. JANÚAR 2003 x>v Fréttir DV-MYND HARI Fyrsta barniö á höfuðborgarsvæðinu Berghildur Fanney Hauksdóttir og Elís Másson eru foreldrar fyrsta barns ársins á höfuðborgarsvæðinu. Með þeim á myndinni er dóttir þeirra, Anna Guðný, 2 ára. Fyrsta barn ársins: Gæslumenn skoða spænska eftirlitsflugvél: Ekki enn á dag- skrá að endurnýja 27 ára Fokkerinn 19 marka stúlkubarn „Ég var sett á 2. janúar en okkur grunaði að þetta gæti vel farið svona,“ segir Berghildur Fanney Hauksdóttir, móðir fyrsta bamsins sem fæddist á nýju ári á höfuðborgarsvæðinu, 14 marka og 51 cm stúlku sem skaust í heiminn kl. 14.50 í gærdag. Fyrsta bam ársins á landinu fæddist hins vegar i Vestmannaeyjum rétt fyrir kl. 10 í gær- morgun, 19 marka stúlka, og em for- eldrar hennar Ása Ingibergsdóttir og Sigmundur Rafhsson. Þegar ljósmynd- ari DV leit inn á Landspítalann, hjá þeim Berghildi og Elis, voru ættingjar að streyma að til að líta á krílið. Þetta er annað bam þeirra en fyrir eiga þau 2 ára gamla dóttur, Önnu Guðnýju. Fjölskyldan er búsett á Vopnafirði, þar sem hún stundar loðdýrarækt á Hrís- um, en hefur verið í höfuðborginni síð- an á Þorláksmessu og beðið eftir bam- inu. „Þetta er hreinn Austfirðingur þó hún sé fædd hér i Reykjavík," upplýsir Berghildur og bætir við að þar sem fæðingardeildin á Egilsstöðum sé lokuð fannst henni hún alveg eins geta farið tfi Reykjavíkur eins og til Norðfjarðar til þess að fæða. -snæ 14 útköll á nýársnótt Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út fjórtán sinnum á nýársnótt. Öll voru þessi tilvik þó minni háttar. Aðallega var um að ræða eld í blaðagámum og rusla- tunnum en einnig voru tvö útköll vegna flugelda sem skotist höfðu inn um glugga á íbúðarhúsnæði. Á nýársdag fékk slökkviliðið svo 10 útköll og var þar sama sagan og á nýársnótt - ekkert af þeim tilvikum reyndist alvarlegt. -snæ - nýtt varðskip gengur fyrir, segir forstjóri Gæslunnar Starfsmenn Landhelgisgæslunnar skoðuðu fyrir skömmu spænska eft- irlits- og herflutningavél af gerðinni Casa C-295 sem er nýjasta tegund eft- irlitsflugvéla EADS-flugvélaverk- smiðjanna á Spáni. Flugvélin var á leið úr kynningarferð í Bandaríkjun- um en strandgæslan þar i landi gekk nýverið frá kaupum á 25 slíkum vél- um. Að mati starfsmanna Landhelgis- gæslunnar er Casa-vélin álitlegur kostur fyrir stofnunina þegar farið verður að huga að endurnýjun Fokker-flugvélar Landhelgisgæslunn- ar sem er orðin 27 ára gömul. Casa- vélin eyðir t.d. helmingi minna elds- neyti og tækjabúnaðurinn er eins og best verður á kosið. Talið er að slík vél fullbúin tækjum kosti á bilinu 2,5 til 3 milljarða króna og þykir ódýr miðað við vélar af svipuðum toga. Hafsteinn Hafsteinsson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, sagði í samtali við DV að þeir væru alltaf opnir fyr- ir að skoða góða kosti. Kaup á nýrri vél hefðu þó ekki verið sérstaklega rædd og ekki á dagskrá, enda gengur fyrir að huga að smiði á nýju varð- skipi. Það mál er á því stigi að næsta skref er að bjóða út smíði skipsins sem á að verða um 3.000 tonn að stærð. Þess má geta að yngsta skip Gæslunnar, Týr, er jafngamall Fokker-vélinni eða um 27 ára og að- eins 1.300 tonn að stærð. Hafsteinn segir Gæsluna fylgjast vel með nýj- ungum, ekki síður í flugmálunum. Þar sé einnig horft til þess ef mögu- leiki væri á að samnýta slíka vél, t.d. með Flugmálastjórn íslands. Vel búin flugvél Casa C-295 er sérstaklega hönnuð sem eftirlits-, leitar- og herflutninga- flugvél. Hún hefur mikla burðargetu, 12 klst. flugþol, góða fluggetu og af- CASA C-295 séð að ofan. ragðs stuttbrautareiginleika og þarf fulllestuð aðeins um 844 metra langa flugbraut til flugtaks og 680 metra til lendingar. Aftan á vélinni eru stórar innkeyrsludyr sem hægt er að opna á flugi. Þær auðvelda mjög lestun og losun á stærri hlutum, eins og bör- um, björgunarbátum, vélsleðum, brettum, bílum og öðrum björgunar- búnaði. CASA C-295. Vélin er vel búin tækjum. Þar má t.d. nefna innrauða mynd- bandsupptökuvél og mengunarratsjá sem skynjar olíu í sjó sem mannsaugað nemur ekki, auk þess sem rat- sjáin reiknar út áætlað magn olíu í sjónum. Hvíldar- og eða farþega- rými er fyrir sex til átta manns. Allur búnaður vélarinnar er í færan- legum einingum þannig að auðvelt er að breyta henni eftir eðli verk- efna. Til að mynda má setja í hana sæti fyrir allt að 71 mann eða 24 börur. Casa er þekkt merki á sviði eftirlits- og strandgæsluflugvéla og meðal þjóða sem nota Casa til strandgæslu eru Svíar, Pólverjar, Spánverjar, Bandaríkjamenn og Irar. Þeir eru með fjórar Casa C-235 til strandgæslu í lögsögu sinni sem er þó töluvert minni en 200 sjómílna fiskveiðilögsaga okkar Islendinga. -HKr. „Kyrkja Köttinn“ í Ólafsfirði enn í sviðsljósinu: Trommuleikarinn ekki 1 Solargangur o\ REYKJAVIK AKUREYRI Sólarlag í kvöld 15.46 15.05 Sólarupprás á morgun 11.17 10.00 Síödegisflóö 18.12 00.34 Árdegisflóö á morgun 12.11 16.33 Fremur hæg suðvestlæg eða breytileg átt veröur ríkjandi. Skýjað verður með köflum, rigning eða slydda vestaniands og norðanlands þegar líður að kveldi. Veður fer hlýnandi og hiti verður víða O til 5 stig. Rigning eða slydda Gert er ráð fyrir suðvestan- og vestanátt, 3-8 m/s. Skýjaö verður með köflum en dálítil rigning eða slydda öðru hverju norðan og vestan til. Hiti verður 0 til 6 stig. Veöriö n msmm Mánudagur Ww5 Hití O" tii 0” Laugardagur Híti -1" til -6° Sunnudagur Hiti -1" til -6° Vintfur: Vindur: Víndur: 5-10 n|/s 5-10*:'/* 5-10 ">/s t Gert er ráö fyrir Stöku skúrír eba Slydda eöa suöaustanátt og él veröa rígning veröur stöku skúrum suövestan til. ööru hverju eöa éljum - en Annars staöar sunnan og annars veröur veröur skýjaö austan til en suölæg eöa meö köflum og annars þurrt aö breytileg átt. vindar blása úr mestu. Hitl Yfirleitt frost- suörí. veröur I kríngum laust vlö strönd- frostmark. Ina. m/s Logn 0-0,2 Andvarí 0,3-1,5 Kul 1,6-3,3 Gola 3,4-5,4 Stinningsgola 5,5-7,9 Kaldl 8,0-10,7 Stinningskaldi 10,8-13,8 Allhvasst 13,5-17,1 Hvassviöri 17,2-20,7 Stormur 20,8-24,4 Rok 24,5-28,4 Ofsaveöur 28,5-32,6 Fárviöri >= 32,7 böggaður" af sýslumanni - fréttir meira og minna rangar eða rangtúlkaðar, segir sýslumaður Sýslumaðurinn í Ólafsfirði, Ástríður Grimsdóttir, hefur óskað eftir því að DV birti athugasemdir vegna skrifa DV um aðför að hljóm- sveitinni „Kyrkja Köttinn“ í Ólafs- firði. „Að undanförnu hafa verið mikil skrif um „aðfór“ sýslumannsins í Ólafsfirði að ofangreindri hljóm- sveit. Fréttaflutningur þessi hefur verið í æsifréttatón og er meira og minna rangur eða rangtúlkaður. Rangt er að trommuleikari hljóm- sveitarinnar sé „böggaöur" af sýslu- manni fyrir að spila í Glaumbæ, sýslumaður hefur ekki haft nein af- skipti af umræddum dreng, rangt er að sýslumaður hafi kært veitinga- mann í bænum vegna spilamennsku 16 ára drengs á veitingastað hans, rangt er að sýslumaður hafi hótað veitingamanninum sviptingu á rekstrarleyfi hans ef umræddur drengur spilaði hjá honum á annan i jólum, rangt er að sýslumaður hafi gefið grænt og rautt ljós á að hljóm- sveitin mætti spila áfram, rangt er að hljómsveitinni hafi verið bannað Astríður Grímsdóttir. að spila á skemmtistaðnum Glaumbæ á ann- an í jólum og rangt er að sýslu- maður hafl gefið eftir og látið spil þeirra afskipta- laust, sýslumað- ur frétti um um- ræddan dansleik í DV þann 28. desember sl. og rangt er að stofnuð hafl verið nefnd til að skoða þessi mál, er það tilbúningur veitinga- mannsins. Sýslumaður skilur ekki hvað veitingamanninum gengur til með slíkum ósannindum og fréttamanni að birta slíkt án þess að kanna hvort fótur sé fyrir slíkum fullyrð- ingum. Hið rétta í þessu máli er að í byrjun október sl. benti sýslumað- ur umræddum kráareiganda að gefnu tilefni á að óheimilt væri að hafa börn í vinnu á milli kl. 24.00 til 04.00 á nóttunni. Umræddur kráar- eigandi er með gilt skemmtanaleyfi og rekur sinn stað á eigin ábyrgð. Ákveði kráareigandi að ráða ekki ung- menni í vinnu vegna ákvæða í lögum um aðbún- að og hollustu- hætti á vinnu- stöðum kemur það sýslumanni ekkert við. Hans hlutverk er ein- ungis sem lögreglustjóra að fylgjast með að farið sé að lögum.“ Athugasemd blaðamanns Samkvæmt orðum sýslumanns er ekki annað að skilja en þarna séu flölmargir aðilar máls hreinlega að ljúga og mistúlka lög og reglur sem þama koma við sögu. Þar er m.a. um að ræða trommuleikarann, Hauk Pálsson, sem málið snýst aðal- lega um, og móður hans, Þórhildi Þorsteinsdóttur. Einnig Braga Ólafsson, forsprakka hljómsveitar- innar Kyrkja-Köttinn, Jakob Agn- arsson, forsvarsmann Café Glaum- bæjar á Ólafsfirði, og Þorstein Hjaltason, lögfræðing á Akureyri, og túlkun hans á lögum og reglum. Sýslumaður segist vera að fara að lögum samkvæmt sinni túlkun sem henni beri að fara eftir og orðrétt tilvitnun DV í viðkomandi lög um hollustuhætti og öryggi á vinnu- stöðum þýði ekki endilega að þau orð séu meining laganna. Þá segir sýslumaður að þetta mál snúist ein- göngu um að viðkomandi krá fari að lögum. Þetta snúist því ekki um hvort hljómsveitin fái að spila þarna eða ekki þó það hafi verið til- efni frétta DV. Sýslumaður segist því leggja að jöfnu hvort viðkom- andi unglingur undir lögaldri starfi þarna á staðnum í trássi við túlkun sina á lögunum þó hann sé í fylgd foreldra sinna eða hvort hann sé af- greiddur með áfengi á bar staðarins. Þama standa því orð sýslumanns gegn orðum allra þeirra sem DV hefur rætt við um þetta sérkenni- lega deilumál á Ólafsflrði. -HKr. Haukur Pálsson. mmm.- AKUREYRI heiöskirt 7 BERGSSTAÐIR skýjað -6 BOLUNGARVÍK skýjaö 0 EGILSSTAÐIR hálfskýjaö -8 KEFLAVÍK skýjað 1 KIRKJUBÆJARKL. alskýjaö 0 RAUFARHÖFN heiðskírt -4 REYKJAVÍK rigning 1 STÓRHÖFÐI léttskýjað 2 BERGEN alskýjað 0 HELSINKI kornsnjór -24 KAUPMANNAHÖFN snjókoma -2 ÓSLÓ kornsnjór -9 STOKKHÓLMUR -7 PÓRSHÖFN snjóél 0 ÞRÁNDHEIMUR léttskýjað -21 ALGARVE skýjaö 16 AMSTERDAM alskýjað 9 BARCELONA heiðskírt 15 BERLÍN rigning 6 CHICAGO alskýjaö -1 DUBLIN súld 6 HALIFAX alskýjaö -1 HAMBORG súld 2 FRANKFURT skýjað 11 JAN MAYEN hálfskýjað 1 LONDON alskýjað 9 LÚXEMBORG rigning 10 MALLORCA heiöskírt 13 MONTREAL léttskýjað -10 NARSSARSSUAQ NEW YORK rigning 3 ORLANDO skýjaö 14 PARÍS rigning 14 VÍN rigning -1 WASHINGTON alskýjað 5 WINNIPEG alskýjaö -8

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.