Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.2003, Side 12
12
Útlönd
FIMMTUDAGUR 2. JANÚAR 2003
DV
Flak Tricolors
Tvö skip hafa tekiö niöri á flakinu úti
fyrir ströndum Kent á síöustu
tveimur vikum.
Annað skipið tek-
ur niðri á flakinu
Tyrkneska tankskipið Vicky, með
um það bil 70 þúsund tonn af
eldfimri gasolíu innanborðs, tók í
gærkvöld niðri á ílaki norska bíla-
flutningaskipsins Tricolor, sem
sökk úti fyrir ströndum Kent á
Ermarsundsströnd Englands um
miðjan síðasta mánuð með um 3000
japanskar lúxusbifreiðar innan-
borðs, eftir árekstur við flutninga-
skipið Kariba.
Vicky, sem í fyrstu stóð fóst en
losnaði síðan af sjálfsdáðum, er
annað skipið, sem tekur þar niðri á
flakinu síðustu tvær vikurnar, en
tveimur dögum eftir að Tricolor
sökk tók flutningaskipið Nicola
niðri á flakinu.
Verið er að kanna hugsanlegar
skemmdir á botni Vickys, en það
var á siglingu með gasolíufarminn
frá Antwerpen í Belgíu til New
York.
Að sögn siglingayfirvalda í Eng-
landi kom strandið í gær mjög á
óvart þar sem svæðið er bæði merkt
og vaktað af eftirlitsskipi.
Fyrsta mannaða
geimfar Kínverja
Kínverk stjómvöld hafa tilkynnt
að þau vonist til þess að geta sent
sitt fyrsta mannaða geimfar út í
geiminn ekki seinna en í lok ársins.
Kínverjar yrðu þar með þriðja
þjóðin til að senda eigin geimfara út
í geiminn á eftir Bandarikjamönn-
um og Rússum.
Að sögn Yuan Jie, talsmanns kín-
versku geimferðastofnunarinnar,
sem aðsetur hefur í Shanghai, er
undirbúningur á lokastigi og verið
að þjálfa tilvonandi geimfara.
ísraelar biðja um
milljarða aðstoð
ísraelsk sendinefnd undir forystu
Dovs Weisglass, starfsmannastjóra
Ariels Sharons forsætisráðherra, er
væntanleg til Washington í vikunni
til viðræðna við bandaríska ráða-
menn um milljarða dollara efna-
hagshjálp til handa ísraelum.
Að sögn talsmanns Hvita hússins
er búist við því að sendinefndin
mun fara fram á allt átta milljaröa
dollara hernaðaraðstoð, auk átta til
tíu milljarða dollara tryggingalof-
orðs vegna væntanlegra lána.
Talið er að bandarísk stjórnvöld
setji þau skilyrði fyrir efnahagsað-
stoðinni að hún verði ekki nýtt tO
frekari uppbyggingar á landtöku-
svæðunum, en stefna Sharons er að
auka verulega við fjárframlög til
þeirrar uppbyggingar.
Bandarísku herliði
fjölgar í Persaflóa
- írakar segja einn látinn eftir skotárásir bandamanna
Bandaríski herinn hefur sent 15
þúsund hermenn, hið svokallaða
Þriðja fótgöngulið, sem hafa verið
sérþjálfaðir í stríðsrekstri í eyði-
mörk til Persaflóa. Mun það vera í
fyrsta heila deildin sem er ílutt á
staðinn í undirbúningi Bandaríkja-
manna fyrir hugsanleg átök og inn-
rás í írak.
Greinilegt er að þrátt fyrir að rík-
isstjóm George W. Bush Bandaríkja-
forseta ítrekar að stríðsrekstur í írak
sé ekki ákveðinn fyrir fram, em þeir
að búa sig undir það aiira versta.
Aðrar vísbendingar um uppbygg-
ingu bandaríska hersins í Persaflóa
era meðal annarra risasjúkrahússkip
sem mun víst leggja af stað til svæðis-
ins á alira næstu dögum. Sjóherinn
hefur einnig skipað flugmóðurskipi
sem var á leiðinni heim frá Persaflóa
að vera til taks en búist er við að ails
verði 6 slík reiðubúin til taks á svæð-
inu innan nokkurra vikna.
Bandarískar og breskar herflug-
Vopnaeftirlit í írak
Starfsmaöur vopnaeftirlits
Öryggisráðs SÞ viö störf í Irak í gær.
vélar skutu í gær á íraskan flugrad-
ar sem hafði flogið inn á bannsvæð-
ið í suðurhluta landsins og var
hætta á því að tækið gæti rekist á
aðra flugvél á svæðinu, eftir því
sem kemur fram í yfirlýsingu frá
bandaríska hernum. írösk yfirvöld
segja að flugvélarnar hafi ráðist á
borgaralegar byggingar og einn hafi
látist. Ekkert var minnst á álíka at-
vik í bandarísku skýrslunni.
Vopnaeftirlitsmennimir byrjuðu
nýja árið í gær með því að skoða
fjóra staði, þeirra á meðal eldflauga-
verksmiðju og ölgerð, með tilliti til
efnavopnaframleiðslu. Eftirlits-
mennimir sögðust í gær ætla að
fara að nota þyrlur til að auka um-
svif sín í landinu. írakar segjast
ætla að fara að þessari bandarisku
ósk og vinna með þeim þó svo að ut-
anríkisráðuneytið hafl lýst yfir
óþökk vegna þess að koma með
beiðnina á nýársdag sem er opinber
frídagur í landinu.
REUTERSMYND
Páfi flytur áramótaávarp
Jóhannes Páli páfi flutti í gær sitt venjubundna áramótaávarp þar sem hann kallaöi meðal annars eftir langþráöum
friöi í Mið-Austurlöndum. Hér á myndinni sjáum viö páfa í bakgrunni í miöri ræöu þar sem hann horfir á styttu af
Jesúbarninu í jötunni.
S-Kóreumenn og Kínverjar
ræðast við vegna N-Kóreu
Suður-Kóreumenn sendu erind-
reka sinn til Kína í gær til að reyna
að sannfæra helsta bandamann N-
Kóreu, Kínverja, um að reyna að fá
þá fyrrnefndu til að láta af hvers
kyns kjarnorkuáætlunum. í morgun
hittust svo aðstoðarutanríkisráð-
herra S-Kóreu, Lee Tae-shik, og kín-
verskur kollegi hans, Wang Yi, til
að ræða ástandið, þá sérstaklega þá
spennu sem ríkir milli N-Kóreu og
Bandaríkjanna. Mun fundurinn
hafa staðið yfir í tvo tíma.
N-Kórea hefur aftur sett í gang
kjarnorkuver sem legið hafa í dvala
siðan 1994 en þar er það mögulegt
að framleiða plútóníum, nothæft í
vopn. Þeir hafa um leið rekið eftir-
litsmenn Sameinuðu þjóðanna úr
landi sem hafa haft eftirlit með
starfseminni. Yfirvöld hafa að und-
anförnu hvatt þjóðiina til aö byggja
REUTERS
Samúöarfullur Bush
Þrátt fyrir leiöindi í Noröur-Kóreu
munu Bandartkjamenn áfram senda
neyöarmatarpakka til landsins.
upp „öfluga þjóð“ og einnig ná-
granna sina í suðri til að ganga í lið
með sér til að berjast gegn banda-
rískri yfirgangsemi.
Yfirvöld í Pyongyang, höfuðborg
N-Kóreu, hafa heimtað beinar við-
ræður við yfirvöld í Washington og
samkomulag um að vera ekki með
stríðsrekstur hver í annarra garð.
Bandaríkjamenn hafa svarað þeim
þreifingum alfarið neitandi þar sem
það sé ekki þeirra stefna að verð-
launa menn fyrir slæma hegðun.
Hins vegar sagði George W. Bush
Bandaríkjaforseti i vikunni að
ástandið væri diplómatiskt, ekki
hemaðarlegt. „Ég lit á ástandið í N-
Kóreu þannig að hægt verði að leysa
með diplómatískum leiðum," sagði
Bush. Alþjóða kjamorkumálastofn-
unin í Vínarborg býst við skýrslu
um ástandið 6. janúar næstkomandi.
Rabbani aftur fram
Fyrrverandi forseti
Afganistan, Burha-
nuddin Rabbani, hef-
ur sagt að hann og
Jamiat-e-Islami fylk-
ing hans muni bjóða
fram í forsetakosning-
unum á næsta ári.
Hann tapaði fyrir Hamid Karzai
þegar sá síðarnefndi var kjörinn
forseti til bráðabirgða.
Sveigjanlegur vinnutími
Bretar myndu frekar vilja eiga
þess kost að hafa vinnutíma sveigj-
anlegan eða fá afnot af fyrirtækisbíl
eða meðlimakort í líkamsræktar-
stöð I stað launahækkunar frá
vinnuveitEmda sínrnn, eftir því sem
fram kemur í nýlegri könnun.
28 létust í Mexíkó
Ólöglegur sölubás með flugeldum
sprakk í loft upp á mánudag með
hrikalegum afleiðingum. Eftir nokk-
urt þóf hafa yfirvöld gefið út tölu
látinna sem 28, en áður höfðu borist
fregnir um að sú tala væri hærri.
Bandaríkjamenn kæra
Bandaríska utanríkisráðuneytið
hefur kært Hughes rafmagnsfyrir-
tækið og flugvélaframleiðandann
Boeing fyrir að hafa deilt viðkvæm-
um upplýsingum um geimferðir
með Kínverjum á 10. áratugnum
sem heföi getað gert Kínverjum
kleift að fmstilla eldflaugar sínar.
Japanir hylla keisara
Þusundir Japana uröu vitni aö hinu
hefðbundna ára-
mótaávarpi Jap-
P /'****' iM anskeisara á nýárs-
\ dag í Tókíó og er
það fyrsta opinbera
verk hans síðan
hann greindist með
krabbamein í síðasta mánuði.
Landsmönnum létti að sjá hinn 69
ára gamla keisara léttan í lund og
hressan í skapi.
Óvissa um 3700 manns
Eftir að fellibylur skall á eyjum í
suðurhluta Kyrrahafs fyrir 5 dögum
var ekki vitað um afdrif 3700 manns
sem þar búa. Þó glæddust vonir í
morgun þegar ástralskar flugvélar
flugu yfir svæðið og sáu að líf var
með eyjaskeggjum, þó svo að eyði-
legging væri mikil.
Mubarak hitti Blair
Forsætisráðherra
Breta, Tony Blair,
hitti Hosni
Mubarak, Egypta-
landsforseta í gær
og áttu þeir í óform-
legum viðræðum og
snæddu saman í um
2 tíma. Mun um-
ræðuefni þeirra hafa verið um
ástandið í Miðausturlöndum.
Bæklingum dreift
Bæklingum hefur verið dreift í
Afganistan þar sem lýst er eftir og
varað við Osama bin Laden, talibön-
unum og þeirra fylgismönnum.
Verkfallsmenn fá sér frí
Leiðtogar verk-
fallsaðgerðanna í
Venesúela lýstu
gærdaginn og dag-
inn í dag hvíldar-
daga en um leið
boðuðu þeir til
mikilla átaka um
helgina í baráttu
þeirra gegn Hugo Chavez forseta og
hans mönnum. Milljónir manna
hafa farið í verkföll og mótmælt en
Chavez hefur engan bilbug látið á
sér finna og er ekki að sjá aö hann
muni gefa eftir í náinni framtíð.