Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.2003, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.2003, Síða 18
18 Tilvera FIMMTUDAGUR 2. JANÚAR 2003 I>V 6 fyrstu blööin ókeypis og vönduö reiknivél aö gjöf... ef þú svarar innan 10 daga! Viöskiptablaöiö er sent til áskrifenda á hverjum miðvikudagsmorgni, stútfullt af traustum fréttum og fréttaskýringum úr íslensku og erlendu viöskiptalífi. Vönduö blaöamennska þar sem byggt er á margra ára reynslu og þekkingu. Tryggöu þér einstakt áskriftartilboö og fáðu fyrstu 6 blöðin ókeypis og vandaöa reiknivél aö gjöf ef þú tekur tilboöinu innan 10 daga! Hringdu strax i síma 5116622__________________________ eða skráðu þig á vb.ÍS! Film-Undur sýnir Halbe Treppe í Háskólabíói: ✓ Ahætta sem borgaði sig Næsta kvikmynd á vegum Film- Undurs er þýska kvikmyndin Halbe Treppe. Verður hún frumsýnd í Há- skólabíói í dag. Myndin er sérstök að því leytinu til að lagt var af staö án handrits. Handritshöfundar voru á tökustaö um leið og leikaramir og síðan var spunnið áfram. Halbe Treppe, sem er margverð- launuð, er á gamansömum nótum. Leikstjóri og handritshöfundur er Andreas Dresen. Framleiðandi er Peter Rommel, íslandsvinur sem hefur framleitt þrjár síðustu kvik- myndir Friðrik Þórs Friðrikssonar. Tóku þeir félagar talsverða áhættu með þessari kvikmynd, sóttu ekki um neina styrki, notuð aðeins fé sem þeir áttu inni fyrir síðustu kvikmynd. Sú áhætta borgaði sig því myndin hefur notið mikilla vin- sælda í Þýskalandi sem og víðar. í aðalhlutverkum eru Steffi Kúhnert, Gabriela Maria Schmeide, Thorsten Merten og Axel Prahl. Meðal verðlauna sem myndin hefur fengið má nefna Silfurbjörninn í Berlin fyrr á þessu ári sem besta kvikmynd. Á kvikmyndahátíðinni í Chicago var Andreas Dresden val- inn besti leikstjórinn og hann var tilnefndur til evrópsku kvikmynda- verðlaunanna á þessu ári. í myndinni segir frá tvennum vinalegmn hjónum á fertugsaldri sem búa í Frankfurt. Líf þeirra er í föstum skorðum en áfangastaðurinn er óljós. Önnur hjónin eru útvarps- maðurinn Chris og seinni konan hans Katrín sem hafa ekki mikið hvort við annað að segja. Vinur hans, Uwe, þrælar dag og nótt í pulsustandinum sínum og gleymir bæði bömum og Ellen, eiginkonu sinni. Engin furða að Ellen og Chris fari að draga sig saman. Þegar þau eru gripin glóðvolg vakna allir harkalega úr dvalanum. Hetjumar okkar neyðast til að endurskoða líf sitt gaumgæfUega og skyndilega kemur í Ijós að lítil kraftaverk geta gerst, jafnvel í borg á borð við Frankfurt, ef maður aðeins trúir á þau. Þeir Andreas Dresen og Peter Rommel hafa áður starfað saman. Vandræðaástand Steffi Kuhnert í hlutverki Ellenar. Gerðu þeir Nachtgesten árið 1999 sem gerist nóttina sem páfmn dvel- ur í þýskri stórborg. Var sú kvik- mynd mjög vinsæl í Þýskalandi og vann til margra verðlauna. Dresen fæddist 1963 og gerði sina fyrstu kvikmynd 1979. Vann síðan næstu árin sem hljóðmaður við leikhús, settist á skólabekk og lærði leik- stjórn frá 1986 til 1991 og hefur í tíu ár unnið sem handritshöfundur og leikstjóri. -HK VGK verkfræðistofa hf.: Styrkir sambýli VGK verkfræði- stofa hf. ákvað á síðasta ári að gefa árlega ákveðna fjárupphæð til góð- gerðarmála. Á síð- asta ári var styrk- ur veittur Mæðra- styrksnefnd, en nú í ár var ákveðið að styrkja Sambýlið Barðastöðum 35, sem tekið var í notkun nú rétt fyr- ir jólin, meö fjár- hæð að upphæð kr. 150.000. Það var Styrkurlnn afhentur Taliö frá hægri, Ragnar Kristinsson, stjórnarformaöur VGH, Líney Ólafs- dóttir forstööukona og Einar Gunn- laugsson, frá VGK verkfræöistofu. Ragnar Krist- insson, stjórn- arformaður VGK, sem af- henti Líneyju Ólafsdóttur for- stöðukonu styrkinn, sem veitti honum viðtöku fyrir hönd Sambýlis- ins. Sambýlið Barðastöðum 35 er fyrir fótluð böm og ung- menni 26 aðilar fengu styrk Úthlutað var samtals 3,9 milljón- um króna úr Menningar- og viður- kenningasjóði Kaupfélags Eyfirð- inga svf. Styrkþegar eru 26 talsins, þar af fékk 21 aðili styrk til ýmissa verkefna og einnig var úthlutað styrkjum til 5 einstaklinga, yngri en 25 ára, sem allir hafa unnið góð af- rek í sinum íþróttagreinum. Að þessu sinni bárust 107 umsóknir um styrki úr Menningar- og viðurkenn- ingasjóði KEA og voru 79 þeirra metnar af Fagráði KEA svf. Pops á Kringlukránni: Halda uppi kyndli gömlu meistaranna Sögufræg unglingahljómsveit, Pops, mun leika fyrir dansi á Kringlukránni um næstu helgi. Pops lék á Kringlukránni á síðasta ári við afbragðsgóðar undirtektir og ættu allir sem ekki náðu að berja þessa sögufrægu sveit augum að nota tækifærið núna og draga fram dansskóna því þeir félagar lofa sannkallaðri „sixties" sveiflu annað kvöld og laugardagskvöld. Ætla þeir að flytja alla smellina með Bítlun- um, Stones, Kinks, Small Faces o.fl. Stefnan er að halda kyndli hinna gömlu meistara dægurlagatónlistar- innar hátt á lofti á nýju ári. Ungir í anda Meölimir Pops hafa tekiö breytingum frá því þeir komu fyrst fram á sjöunda áratugnum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.