Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.2003, Síða 32
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Viðbótarlífeyrissparnaður
Allianz®
Loforð er loforð
FIMMTUDAGUR 2. JANUAR 2003
Sími: 533 5040 - www.allianz.is
Loksins kaldur
vetrarmorgunn
Nokkuð eðlilegur vetrarmorgunn
^ rann upp í morgun á Austurlandi,
þar var 8 stiga frost á Egilsstöðum
og víðar í nágrenninu en stillilogn.
Hægviðri var um mestallt landið
snemma í morgun og léttskýjað
norðanlands og austan en lítils hátt-
ar súld eða rigning suðvestan til, að
sögn Veðurstofu Islands.
í Reykjavík heilsaði fyrsti vinnu-
dagur fólks með logni og einnar
gráðu hita sem lofar góðu fyrir dag-
inn. Á hálendinu var 9 gráða frost á
Hveravöllum en á Akureyri var 7
gráða frost. Hlýjast var á Stórhöfða í
Vestmannaeyjum, 2 gráða hiti. -JBP
Skólaus og á
náttfötunum
Þriggja ára telpa fannst ráfandi á
náttfotunum í Kópavogi á gamlárs-
dagsmorgun. Vegfarandi kom
stúlkunni til lögreglunnar en hún
var ekki einu sinni í skóm og var
orðið nokkuð kalt. Lögreglan í Kópa-
vogi hafði fljótlega uppi á foreldrum
stúlkunnar, sem voru í vinnu, en
þau töldu stúlkuna vera heima hjá
eldri bróður sínum. Er talið að
stúlkan hafi farið út þegar hún
vaknaði og hélt að hún væri ein í
íbúðinni þar sem bróðir hennar var
sofandi. Ekki varð stúlkunni meint
af þessari morgungöngu. -snæ
Bílvelta á
Vatnsendavegi
Bíll valt á Vatnsendavegi, við
Salaveg í Kópavogi, rétt eftir klukk-
an þrjú í nótt. Tveir voru í bílnum
og sakaði þá ekki. Að sögn Lögregl-
unnar í Kópavogi var hálka á vegin-
um og virðist sem ökumaður hafi
misst stjórn á bifreið sinni sem varð
til þess að hún valt. Þá segir lögregl-
an að ekki hafi verið um drykkju að
ræða en varar við hálku á þessum
slóðum og biður hún fólk um að fara
varlega. Áð ööru leyti var rólegt hjá
Lögreglunni í Kópavogi þennan
fyrsta dag ársins 2003. -ss
Tvær líkamsárás-
ir kærðar
Tvær líkamsárásir hafa verið
kærðar til lögreglunnar í Reykjavík
eftir nýársnóttina. Hópur unglinga
réðst á dreng í Grafarvogi og gekk í
skrokk á honum. Hann leitaði á
slysadeild, marinn og særður. Málið
er í rannsókn en ekki er vitað hverj-
ir voru þama að verki og virðist
árásin hafa verið tilefnislaus. Hin
Ifkamsárásin var í Vesturbænum
en þar var maður sleginn niður af
tveimur árásarmönnum sem við-
komandi þekkti ekki. Árásarmenn-
irnir eru ófundnir. -snæ
PBTTA Et^
EKKERT GRIN!
DV-MYND HARI
Hetjur hafsins hefja nýtt ár í Nauthólsvík
Félagar í Sjósurdfélagi lögreglunnar tóku árlegt nýárssund með trompi. Sjö manns stungu sér I hrollkaldan sjóinn í Nauthóls-
vík. Að sögn formanns félagsins, Jóns Otta Gíslasonar, var sundið rosalega hressandi - og ekki til betri leið að byrja nýtt ár.
Fyrirtæki kaupa flugvallarsvæðið á Selfossi. Völlurinn í hættu:
Skelfileg aðför að
uppbyggingarstarfi
hirða flugvöllinn bótalaust, segir formaður Flugklúbbsins
„Þetta er skelfileg aðfór peninga-
manna að þrjátiu ára uppbygginga-
starfi okkar í fluginu á Selfossi. Þeim
mun hryggilegra er þetta fyrir þeirra
hluta sakir að flugklúbburinn átti
hærra tilboð í svæðið en þessir aðil-
ar,“ segir Sigurður Karlsson, verk-
taki á Selfossi og formaður Flug-
klúbbs Selfoss, í samtali við DV.
Á gamlársdag gengu landeigendur
í Sandvíkurhverfi í Árborg, þ.e.
skammt neðan við byggð á Selfossi,
frá sölu sinni á um 70 ha. svæði þar
sem Selfossflugvöllur er í dag. Kaup-
endur eru tvö fyrirtæki á Selfossi.
Annað þeirra er Fossmenn ehf., en
það hefur síðustu ár verið að skipu-
leggja og selja lóðir á Selfossi, á
svæði á bökkum Ölfusár sem liggur í
átt að flugvellinum. Hitt fyrirtækið
er Ræktunarsamband Flóa og
Skeiða.
Flugklúbbur Selfoss hefur haft um-
rætt land á leigu í nærfellt þijá ára-
tugi. Hefur þar verið byggður upp
flugvöllur og tilheyrandi aðstaða.
Einkaflugmenn fljúga frá vellinum og
nokkuð er um kennslu- og leiguflug,
Guðmundur
Sigurösson.
Sigurður
Karisson.
„Við töldum mikið í húfl að eignast
landið þegar við fregnuðum að tilboð
hefði borist," segir Sigurður Karls-
son. „Sérstaklega töldum við hags-
muni mikla í ljósi þess að í leigu-
samningi okkar við landeigendur,
eru engin ákvæði um að okkur beri
bætur fyrir mannvirki. Því er staðan
sú að þessi fyrirtæki geta með þyi að
kaupa landið eignast völlinn bóta-
laust og við þyrftum að fjarlægja okk-
ar mannvirki; flugturn og skýli. Þetta
er rosalega staða því ekki er fjar-
stæða að virða völlinn og byggingar á
200 millj. kr. Okkar tilboð var upp á
54 millj. kr.“
Sigurður Karlsson sagði að vissu-
lega væri í þessu máli komin upp
viðsjárverð staða. Leitað yrði ásjár
hjá bæjaryfirvöldum í Árborg sem og
rikisins um að ganga inn í kaup enda
væri mikið í húfi. Minnti hann’á að
margsinnis hefði komið upp sú um-
ræða að flytja kennsluflug frá
Reykjavík í rikari mæli á Selfossflug-
vöh.
í samtali við DV sagði Guðmund-
ur Sigurðsson, framkvæmdastjóri
Fossmanna, að hugsun kaupenda
vallarsvæðisins væri að þar risi
íbúðabyggð í „fjarlægri framtíð" eins
og hann komst að orði.
Guðmundur benti á að völlurinn
væri ekki á skipulagi „og eins og
staðan er í dag þá er hann ekki fyrir
neinum. En þarna hlýtur að koma
íbúðabyggð enda er byggðin á Sel-
fossi að teygja sig sífellt nær þessu
svæði. í því ljósi tel ég að ekki færi
vel á því að flytja til dæmis æfmga- og
kennsluflug hingað austur. Hins veg-
ar er þetta mönnum að meinalausu í
dag þegar völlurinn er mest notaður
af áhugaflugmönnum." -sbs
Tekist á um tónlistina sem notuð var í áramótaskaupinu:
Sexy Loverboy stoliö
- segir indverska prinsessan Leoncie
„Þú stalst tón-
listinni minni úr
laginu Sexy
Loverboy, sem ég
samdi sjálf.
Hvemig vogarðu
þér?“ segir ind-
verka prinsessan
Leoncie meðal
annars í harð-
orðu bréfi til Vil-
hjálms Guðjónssonar tónlistar-
manns sem sá um tónlistina í ára-
mótaskaupinu sl. gamlárskvöld.
Indverska prinsessan segir að
margir hafi haft samband við sig
eftir skaupið til að láta sig vita að
lagið hennar, Sexy Loverboy, hefði
verið notað þegar fjallaö hefði verið
um kosningarnar 2002. Lagið hefði
verið sagt vera eftir Vilhjálm Guð-
jónsson.
„Gerirðu þér grein fyrir hvernig
þú munt standa fyrir rétti?“ spyr
hún í bréfmu og bætir við að Vil-
hjálmur sé lagaþjófur. „Þú stalst
laginu mínu og lést hvíta íslenska
vini þína sem vinna hjá Ríkissjón-
varpinu gefa þér heiðurinn af þvi.
Ég mun aldrei fyrirgefa þér þetta.“
Leoncie segir enn fremur að sl. 17
ár hafi hún verið á svörtum lista og
lögð í einelti af íslenskum tónlistar-
mönnum og vinum þeirra vegna
klíkuskapar. Þeir hafi útilokað
hana frá öllum tónleikum hérlendis.
„Ég heimta skaðabætur,“ skrifar
hún Vilhjálmi, „og leiðréttingu í
ríkissjónvarpinu og útvarpinu og
textavarpinu." Og hún bætir við:
„Án mín er þetta land leiðinlegt,
það er klárt."
Ekki náðist í Vilhjálm Guðjóns-
son áður en blaðið fór í prentun í
morgun. -JSS
, DV-MYND PÉTUR S. JÓHANNSSON
Ánægjulegt
Báliö á Breiðinni laðaði að fjölmenni
frá Ólafsvík og Sandi og víðar að.
Allt í friði og spekt.
Slagsmál aflögð
í Snæfellsbæ!
Hin árlega áramótabrenna i Snæ-
fellsbæ var eins og vanalega á
Breiðinni en hún er á milli Ólafs-
víkur og Rifs og er góður brennu-
staður. Milli sex og átta hundruð
manns horfðu á brennuna i mjög
góðu veðri. Brennustjóri var eins og
vanalega Hjálmar Kristjánsson, út-
gerðarmaður á Rifi, og fórst honum
stjómunin vel úr hendi.
Brennan var af stærri gerðinni og
var henni komið upp af starfsmönn-
um Snæfellsbæjar.Þá voru björgun-
arsveitimar á Hellissandi og 1 Ólafs-
vík með glæsilega flugeldasýningu
við brennuna.
Hálftíma eftir miðnætti hófst svo
áramótadansleikur í Félagsheimil-
inu Klifi í Ólafsvik í boði bæjar-
stjórnar Snæfellsbæjar. Þar var
mikill fjöldi fólks að skemmta sér
við undirleik hljómsveitarinnar
Klakabandsins fram eftir nóttu.
Slagsmál í bæjarfélaginu á áramót-
um eru alveg aflögð að sögn lögregl-
unar, a.m.k. var ekkert sem kom
upp á hjá þeim og voru áramótin
hin rólegustu. -PSJ
Fasteignasjón-
varp hjá Stöð 1
Upplýsingasjónvarp, þar sem
hægt er að kynna sér ýmislegt í
boði á fasteignamarkaðnum, er nú
sent út allan sólarhringinn á rás 21
á Stöð 1 en dreifikerfí stöðvarinnar
nær til Faxaflóasvæðisins.
„Þetta er komið til að vera núna,“
sagði Hólmgeir Baldursson, for-
svarsmaður stöðvarinnar, við DV.
Hann segir kvikmyndir og ýmsa
þætti vera væntanlega hjá stöðinni
á næstunni en varðandi fasteigna-
sjónvarpið sé um að ræða samstarf
við tvær fasteignasölur í Reykjavík
sem heyra undir Remax. „Þetta er
fundið út samkvæmt ákveðinni for-
múlu, við erum búnir að vera að
prófa okkur áfram. Kynningarnar
eiga að vera lifandi og með sem
mestar upplýsingar um hverja
eign,“ sagði Hólmgeir. Búist er við
að dreifikerfi Stöðvar 1 nái einnig
til Eyjafjarðarsvæðisins síðar í jan-
úar. -Ótt
112
EiNN EINNTVEIR
NEYÐARLlNAN
LÖGREGLA SLÖKKVILIÐ SJÚKRALIÐ
SECUR
VELDU ÖRYGGIISTAÐ ÁHÆTTU!
Sími 580 7000 | www.securitas.is
,