Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2003, Page 6
6
LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2003
DV
Fréttir
Ólafur hættir
Ólafur Öm Haraldsson alþingis-
maður hefur ákveðið að hætta þing-
mennsku í vor.
Mun hann því
ekki skipa sæti á
lista Framsókn-
arflokksins í
kosningunum í
vor.
Ólafur nefndir
þrjár ástæður
fyrir þessari
ákvörðun siimi. I
fyrsta lagi segir
hann þessum áfanga í lífi sínu lokið
og tími til komninn að snúa sér að
þeim næsta en hann hefur gjaman
viljað skipta lífsferli sinum í áfanga.
í öðru lagi er ákvörðunin vegna per-
sónu- og einkamála. Og í þriðja lagi
segir Ólafur Öm að hann finni vilja
meðal borgarbúa að ungt fólk bjóði
sig fram í í stjómmálum og vonar
að ákvörðun sín skapi þeim yngri
svigrúm.
Þrátt fyrir þetta ætlar Ólafur Öm
áfram að styðja framsóknarmenn i
kosningabaráttimni. -hlh
Reykjanesbær:
213 án vinnu
Atvinnuleysi
er að verða mikið
vandamál í
Reykjanesbæ, og
á Suðumesjum
öllum, en íbúar
em órólegir
vegna stöðunnar
sem fer versn-
andi. 312 manns
eru nú á atvinnu-
leysisskrá eða
3%. Einn af viðmælendum DV segir
að verslunum fari fækkandi og ger-
ist það hratt en Suðumesjabúar
sækja meira í höfuðborgina, í
Smáralindina og í Hafnarfjörðinn
til að versla. Fjölmörg hús í bænum,
þar sem einu sinni voru verslanir,
standa nú auð. Ketill Jósefsson, at-
vinnuráðgjafi bæjarins, segir að
konur séu í miklum meirihluta af
þeim sem atvinnulausir em
„Það eru þó aðeins þrír af þessum
312 sem hafa verið atvinnulausir í
meira en sex mánuði og er þvi ekki
um langtímaatvinnuleysi að ræða
sem verður að teljast jákvætt en
mikil hreyfmg er á atvinnumark-
aðnum," segir Ámi Sigfússon, bæj-
arstjóri Reykjanesbæjar.
Ámi segist þó hafa áhyggjur af
því að það muni fjölga í hópi þeirra
sem hafa verið atvinnulausir í
meira en sex mánuði. „Sveitarfélag-
ið þarf að huga að þeim sem upplifa
langtímaatvinnuleysi en við erum
undir það búin. Við stefnum við aö
því að hella 800 milljónum króna út
i samfélagið, ráða fólk til timabund-
inna átaksverkefna," segir Ámi -ss
Árnl Slgfússon.
Sýknaður fyrir kynferðisafbrot gagnvart stjúpdóttur sinni:
Málinu áfrýjað
til Hæstaréttar
Ríkissaksóknari hefur áfrýjað
máli manns, sem sýknaður var í
Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir
kynferðisbrot gagnvart stjúpdótt-
ur sinni, fæddri 1983, til Hæsta-
réttar. Maðurinn var ákærður fyr-
ir að hafa frá árinu 1988 eða 1989,
er stúlkan var fimm til sex ára, til
ársins 2000, er hún var tæplega 18
ára, nær daglega nauðgað henni.
Dómarar í málinu voru Valtýr Sig-
urðsson dómsformaður, Logi Guð-
brandsson og Pétur Guðgeirsson.
Meirihluti dómara, tveir af þrem-
ur, taldi að sannanir fyrir sekt
mannsins væm ekki nógar til að
sakfella hann. Valtýr Sigurðsson
Héraösdómur Reykjavíkur
Kynferöisbrotamáil hefur veriö
áfrýjaö til Hæstaréttar.
vildi hins vegar sakfella manninn
og segir hann í dómnum að þegar
allt sé virt telur dómurinn sannað
með vitnisburði stúlkunnar, sem
fær stoð af vitnisburðum sem rakt-
ir hafa verið og öðrum gögnum
málsins, en gegn neitun ákærða,
að hann hafi gerst sekur um að
hafa haft við hana samræði eða
önnur kynferðismök með þeim
hætti og á þeim stöðum er í ákæra
greinir. Eru brot hans réttilega
heimfærð til refsiákvæða. Þeir
Pétur Guðgeirsson og Logi Guð-
brandsson voru á öðru máli og var
maðurinn því sýknaður í Héraðs-
dómi. -ss
Ótrúlegt veður
Þaö gerist ekki oft aö verslunarmenn geti látiö fötin standa úti á slá í janúarmánuöi án þess aö snjói á þau. Þaö var
hins vegar hægt í veöurblíöunni í gær en hitinn fór upp í átta gráöur í Reykjavík. Veturinn hefur veriö meö eindæmum
góöur og nýliöinn desembermánuöur var meö þeim hlýjustu síöan mælingar hófust áriö 1749.
Nýju útliti DV vel tekið
- blaðið uppselt víða um land
Lesendur DV hafa eflaust tekið
eftir því aö útlitsbreytingar hafa
veriö gerðar á útsíðum blaðsins og
var það selt á 100 krónur alla síð-
ustu viku. Blaöið rokseldist og ekki
bar á öðra en lesendur tækju breyt-
ingunum vel. Þórir Sigurbjömsson
er eigandi verslunarinnar Vísis.
„Fólk hefur tekið þessum útlits-
breytingum DV mjög vel og íinnst
blaðið vera framandi en um leið
spennandi. Þá hefur fólk sérstak-
lega glaðst yfir því hvað blaðið hef-
ur veriö á góðu verði í vikunni enda
hefur það rokið út,“ segir Þórir, en
blaðið seldist upp hjá honum í gær.
Blaðið seldist vel víöa um land og
segir Dóra Torfadóttir, verslunar-
stjóri London, í Austurstrætinu, að
DV hafi klárast á klukkutíma í
verslun hennar og hafi hún þurft að
panta meira. „Útlitið er grípandi og
fólk var hrifið, svo ekki sé talað um
verðið sem fólk var alsælt með,“
segir Dóra. Blaðið seldist upp víða
um landið og þurftu fjölmargar
verslanir að panta meira. -ss
DVWYNDIR E.ÓL
Þurftu aö panta meira.
Lesendur DV hafa eflaust tekiö eftir útlitsbreytingu á útsíöum blaösins. Lesendur tóku breytingunum vel enda blaöiö
uppselt víöa á landinu.
Iz&hiSjZíMjlLLt og
REYKJAVÍK AKUREYRI
Sðlariag í kvöld 16.08 15.30
Sólarupprás á morgun 11.02 11.07
Síödegisflóö 12.44 17.17
Árdeglsflóð á morgun 0124 05.57
Veöríö
&-y|Jil
ý4-<£)v v
vs-ÍS
,-gs
»
V
Svalast norðaustan til
Suölæg átt, víða 5-10 m/s og dálítil
rigning eða súld en styttir upp
austanlands í nótt. Hiti 0 til 9 stig,
svalast norðaustan til.
Fremur hæg breytileg átt, skýjaö og
rigning eða slydda með köflum,
einkum norðan til. Hiti 0 til 6 stig.
I^rij
Mánudagur Þriðjudagur
Miðvikudagur
’W
Hiti I
til 3'
Hiti 0°
til 5"
Vindur: vindur: Víndur:
5-10 ">/s 3-8«™/* 5-10 mA
* * w
Suöaustan 5-10 Suðvestan 3-8 Norölæg eða
m/s og slydda m/s og skúrir breytlleg 6tt,
noróan til en eða él sunnan snjókoma eða él
annars suð- og vestan tll, en norðan til, en
vestanátt, viða léttskýjað skýjað með
8-13 m/s og norðaustan- og köflum og
rigning eða austanlands. úrkomulítlö
skúrir. Kólnandi veður. sunnan til.
Hlti 0-6 stig. Katt f veðri.
Tlfjilijjuij
m/s
Logn 0-0,2
Andvari 0,3-15
Kul 1,6-3,3
Gola 3,4-5,4
Stlnnlngsgola 5,5-7,9
Kaldl 8,0-10,7
Stinningskaldi 10,8-13,8
Allhvasst 13,9-17,1
Hvassvlöri 17,2-20,7
Stormur 20,8-24,4
Rok 24,5-28,4
Ofsaveöur 28,5-32,6
Fárviöri >= 32,7
psHKí
AKUREYRI alskýjaö 5
BERGSSTAÐIR skýjaö 4
BOLUNGARVÍK úrkoma í gr. 8
EGILSSTAÐIR léttskýjaö 1
KIRKJUBÆJARKL. rigning 4
KEFLAVÍK rigning 7
RAUFARHÖFN alskýjaö 3
REYKJAVÍK súld 7
STÓRHÖFDI rigning 7
BERGEN skýjaö 2
HELSINKI heiöskírt 23
KAUPMANNAHÓFN léttskýjaö -4
ÓSLÓ alskýjaö -6
STOKKHÓLMUR -10
ÞÓRSHÖFN skúr 6
ÞRÁNDHEIMUR snjóél -4
ALGARVE léttskýjaö 9
AMSTERDAM alskýjaö -3
BARCELONA skýjaö 9
BERLÍN kornsnjór -5
CHICAGO alskýjað -4
DUBLIN skýjaö 4
HALIFAX alskýjað -8
FRANKFURT snjókoma -4
HAMBORG mistur -5
JAN MAYEN skafrenningur -7
LONDON léttskýjaö 5
LÚXEMBORG léttskýjaö -6
MALLORCA súld 9
MONTREAL alskýjaö -17
NARSSARSSUAQ skýjaö 9
NEW YORK léttskýjað 6
ORLANDO hálfskýjaö 12
PARÍS snjókoma -2
VÍN snjókoma -6
WASHINGTON hálfskýjaö 4
WINNIPEG heiöskírt -19