Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2003, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2003, Blaðsíða 12
12 Helgarblað Ástæðan fyrir búta- morðinu enn óljós Miöbærinn í Halmstad þar sem Marcus Norén hitti morðingja sinn. íbúar í einu fjölbýlishúsanna við Söderlingsveg í bænum Halmstad i Sviþjóð hafa ekki átt sjö dagana sæla síðan á fóstudaginn í síðustu viku, en þá voru tveir menn, annar 46 ára gamail leigjandi í húsinu, sem er í eigu sveitafélagsins, og hinn 28 ára gamall vinur hans, handteknir grunaðir um svokallað „bútamorð" á hinum 22 ára gamla Marcusi Norén sem saknað hafði verið síðan fyrir jól. Vitneskjan um að morð heföi ver- ið framið í húsinu var næg til þess að valda íbúunum hugarangri en við það bættist að ekki var flóafrið- ur fyrir ágengum fréttamönnum sem vildu heyri sögu nágrannanna og hvað þeir hefðu að segja um mál- ið. Getgátur um vampírumorð Það voru tvö systkini, tíu ára drengur og þrettán ára telpa, sem þann 30. desember fundu höfuð Marcusar frosið fast í svellið á Nissanánni, sem rennur í gegnum Halmstad, og í kjölfarið fundust aðr- ar líkamsleifar í nálægum lækjar- farvegi. í upphafi voru uppi getgátur um það að morðið tengdist svokölluðum hlutverkaleik um vampírur, en þar er um að ræða eftirlíkingu af þekktu borðspili sem yfirfært er á lifandi leikmenn, svokallaða „spila- kalla“, en sá leikur hefur verið vin- sæll hjá spilaklúbbum ungs fólks í Halmstad. Raunveruleg morð í slíkum leikj- um eru ekki óþekkt og nýjasta dæm- ið um slíkt er frá Bandaríkjunum þegar sextán ára drengur myrti for- eldra vinkonu sinnar og hlaut fyrir það lífstíðardóm. Talið var hugsanlegt að Marcus Norén væri fórnarlamb slíks leiks þar sem vitað var að hann hefði lengi lagt stund á hann með félögum sinum í spilaklúbbi í bænum, en „þykjustuleikurinn" gengur meðal annars út á það að drekka blóð hinna dauðlegu, keppa við aðrar vampíruklíkur um völdin meðal hinna ódauðlegu og loks ná tökum á skepnunni í sjálfum sér eða berjast gegn eðlishvötinni og frelsast af blóðþorstanum. Það sem svo tengdi höfuðfund- inn aðallega við vampíruleikinn var að ein aðferðin sem mælt er með til að koma vampíru örugglega fyrir kattamef var einmitt að höggva af henni höfuðið. Lögreglan kemst á sporið Það sem kom lögreglunni á spor- ið var ábending frá ónefndum ná- granna á fimmtudaginn í síðustu viku, eftir að hann hafði séð blóð á gólfl stigagangsins fyrst á miðviku- dagskvöld, og beindist þá strax grunur að mönnunum tveimur. „Ég hélt fyrst að einhver hefði fengið blóðnasir," sagði maðurinn. Lögreglan beið þó átekta á meðan fyrsta rannsókn fór fram og var húsið vaktað og vel fylgst með öll- um ferðum félaganna. Á fostudagsmorgun höfðu þeir heimsótt föðursystur þess yngri, þar sem þeir drukku kaffi á meðan þeir lásu um morðmálið í blöðun- um. Föðursystirin sagði í viðtali við eitt sænsku dagblaðanna að eldri maðurinn hefði allt í einu sagt: „Það var ég sem myrti hann. Ég missti al- gjörlega stjóm á mér og stakk hann með hnífl.“ „Ég trúði honum ekki og sagði honum að vera ekki með þessa þvælu,“ sagði konan. „Þið horfið allt of mikið á amerískar glæpa- myndir og eruð orðnir eitthvað ruglaðir sagði ég við þá,“ hélt kon- an áfram og bætti við að bróðurson- ur hennar hefði búið hjá þeim eldri af og til að undanfömu. „Þó að þeir séu báðir slæmir og kannski sjálfum sér verstir þá hefði ég aldrei trúað þeim til þess að fremja morð. Það hlýtur að hafa verið slys,“ sagði konan. Hryllileg aðkoma Eftir það yfirgáfu þeir heimili konunnar og hélt sá eldri til heimil- is síns við Söderlingsveg sem er að- eins spölkom frá þeim stað þar sem afhöggvið höfuð Marcusar fannst í ánni. Lögreglan hafði fylgst með þeim allan tímann og lét nú til skarar skríða klukkan hálftvö á föstudag. Það sem blasti við lögreglumönn- um var víst hryllilegt því blóðslett- ur voru enn út um alla íbúð. Við húsleit fannst síðan restin af lík- amsleifum fórnarlambsins í baðher- bergi íbúðarinnar, pökkuðum inn í plast, og var það nóg til þess að sannfæra lögregluna um að morð- inginn væri fundinn. Sá eldri viðurkennir morðið Um það bil sem lögreglan upp- götvaði hryllinginn í íbúðinni birt- ist yngri maðurinn fyrir utan húsið og spurði einn blaðamannanna sem þar beið hvað hefði gerst. „Er verið að handtaka einhvem? spurði hann mig,“ sagði blaðamaðurinn. Ekki hafði maðurinn lengi staðið við þegar hópur óeinkennisklæddra lögreglumanna umkringdi hann og setti hann í jám. Skömmu síðar var eldri maður- inn leiddur í jámum, með jakka yf- ir höfðinu, út í lögreglubíl og þeir báðir fluttir til næstu lögreglustöðv- ar til yfirheyrslu. Við yfirheyrslur viðurkenndi eldri maðurinn að hafa myrt Marcus en sagðist hafa gert það í sjálfsvörn eftir að Marcus hefði fyrst ráðist að sér með hnífi. Þeir hefðu hitt hann í miðbænum og hann síðan komið með þeim heim. Maðurinn viðurkenndi einnig að hafa bútaö líkið niður og losað sig við hluta af því. í framhaldinu var maðurinn úr- skurðaður í gæsluvaröhald til 21. janúar, sakaður um morð og mis- þyrmingu á líkinu en ástæða morðs- ins var þó enn óljós. Sá yngri neitaði aftur á móti allri aðild að morðinu og sagðist hvergi hafa komið nálægt verknaðinum en sannanir gegn honum þóttu nægar til þess að saka hann um hlutdeild í morðinu með því að leyna því og að hjálpa til við likskurðinn. Faðirinn grunaður um aðild Faðir yngri mannsins var einnig yfirheyrður á laugardaginn en hann mun grunaður um að hafa hjálpað til við að hreinsa burt blóð og önn- ur ummerki í ibúðinni þar sem leifar af líkamsleifum Marcusar fundust. Það hefur þó ekki enn þá fengist staðfest frekar en vitnisburð- ur annarra sem yfirheyrðir hafa verið vegna málsins. I blaðaviðtali sagði faðirinn að hann hefði komið í íbúðina skömmu eftir morðið og að þá hefði líkið leg- ið á miðju gólfi í stofunni og blóð út um allt, svo mikið að það hefði runnið alla leið fram á gang. „Mér lá við yfirliði og hljóp í burtu," sagði maðurinn og bætti við að hann hefði lánað þeim yfir- breiðslu til að fela líkið undir. Að sögn sænskra blaða ríkti mik- ill ótti meðal íbúa hússins í garð yngri mannsins en hann þykir í meira lagi ofbeldishneigður og hefur að minnsta kosti hlotið einn dóm fyrir vopnað rán þar sem hann not- aði ísöxi við verknaðinn. Að sögn ættlinga á hann við geð- ræn vandamál að glíma og mun að- eins fjórum dögum fyrir morðið hafa verið fluttur rænulaus á sjúkra- hús vegna sálrænna vandamála. Eldri maðurinn, sem er svokallað- ur góðkunningi lögreglunnar vegna áfengissýki, mun ekki hafa hlotið dóm en þykir af þeim sem til þekkja mjög óábyrgur. LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2003 23 farast í Tel Aviv Tveir palestínskir sjálfsmorðsliðar létu til skarar skríða í tveimur aðskildum árásum í miðborg Tel Aviv á sunnu- dagskvöld með þeim afleiðingum að 23 lágu í valnum. Meira en 100 manns slösuðust í sjálfsmorðsárásunum sem eru þær fyrstu í ísrael síðan í nóvember sl. ísraelsher svaraði árásunum með hertum aðgerðum gegn palestínskum hryðjuverka- mönnum, meðal annars á Gaza- svæðinu. N-Kórea lætur ekki undan Kjarnorkuframleiðsla N-Kóreu hefur valdið miklu fjarðafoki und- anfama viku en nú síðast í gær- morgun ákváðu þarlend stjórnvöld að segja upp aðild að alþjóðlega NPT-samkomulaginu um takmark- anir á útbreiðslu kjarnavopna. Eftir fund yfirvalda í Washington með fulltrúum Japans og S-Kóreu féllust yfirvöld þá á að ræða við N- Kóreu en því boði hefur enn ekki verið svarað. N-Kórea óskaði hins vegar eftir viðræðum við nágranna sína í suðri en þar kom saman ör- yggisráð landsins á skyndifundi í kjölfar fyrmefndar ákvörðunnar N- Kóreustjómar. Blix biður um þolinmæði Hans Blix, formað- ur vopnaeftirlits- nefndar SÞ og Mo- hamed E1 Baradei, forstjóri Alþjóða kjarnorkumálastofn- unarinnar, hittu Ör- yggisráð SÞá fimmtudag og sögðu þar að eftirlitsmennirnir hefðu enn ekki fundið nein sönnunargögn um gereyðingarvopnaeign Iraka en kvörtuðu hins vegar undan skýrslu íraka um vopnaeign sína. Þeir sögðu að í henni hefði mörgum spurningum ekki verið svarað. Bandaríkjamenn segjast hins vegar hafa áreiðanlegar upplýsingar fyrir vopnaeign íraka og hafi því nóg til þess að ráðast inn í landið og af- vopna íraka. Þjóðverjar mótmælu þessu hins vegar sterkt og Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, lagði til í vikunni að fresta hugsan- legu stríði fram á haustmánuði. Vísindamenn yfirheyrðir Hans Blix sagði í gær að áform væra uppi um að vopnaeftirlitsmenn í írak yfirheyrðu íraska vísindamenn um vopnaeign íraka. Bandaríkja- stjóm hefur ávallt haldið því fram að þær yfirheyrslur séu gagnslausar ef fulltrúar íraksstjórnar fylgist með þeim í írak og hefur lagt til að þeir verði fluttir úr landi til að fram- kvæma viðtölin. Time Maga-zine greindi frá því á fimmtudag að áform væra uppi um að flytja þá til Kýpur, en ekkert slíkt var staðfest af Blix. 100 fórust í flugslysum 100 manns fórust í 3 flugslysum í vikunni, þar af 2 í Tyrklandi. Það fyrsta var þó í N-Karólínufylki í Bandaríkjunum þar sem 21 maður fórst þegar farþegaflugvél fórst skömmu eftir flugtak frá Douglas- flugvellinum í Charlotte. 75 fórust þegar farþegaflugvél brotlenti í þokuveðri við flugvöllinn í borginni Diyarbakir í suðausturhluta Tyrk- lands á miðvikudag. Aðeins nokkrum klukkustundum síðar fór- ust fjórir flugmenn þegar tvær F-4 herþotur skullu saman vegna slæmra skilyrða í æfingaflugi. Sharon sagður spilltur ísraelska blaðið Haaretz sakaði Ariel Sharon, forsætisráð- herra Israels, og tvo syni hans um að vera flæktir í mútu- og fjársvikamál vegna vafasamrar fjármögnunar kosningabaráttu og mútugreiðsla. Hann neitaði þessu alfarið en Likud-bandalagið, sem Sharon, leiðir, hefur hrunið í fylgiskönnunum, tveimur vikum fyrir kosningar. Noregur Svíþjóð Halmstad
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.