Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2003, Page 33
LAUGARD AGU R II. JANÚAR 2003
Helgarbloö X>"V"
33
Landsbyggðarvargar
í stórborginni
Ágúst Ármann Þorláksson, skólastjóri og
organisti, er ein aðalsprautan í Sólstrandar-
veislu sem sýnd verður á Broadway eftir
viku. Segja má að þar geri sveitavargurinn
innrás í höfuðborgina.
Næstkomandi föstudags-
kvöld mun hópur tónlist-
armanna úr Fjarðabgggð
troða upp á Broadwag í
Regkjavík og flgtja lög
sem útskgra af hverju
sumarið er tíminn. DV
ræddi við einn af for-
sprökkum hópsins, Ágúst
Armann Þorláksson, um
ferðina til Regkjavíkur,
menningu fgrir austan og
hans eigin poppsögu.
„Það verður sífellt erfiðara að finna nýja titla
fyrir sýningamar okkar,“ segir Ágúst Ármann,
eða Aggi eins og hann er yfirleitt kallaður, þegar
ég spyr hann um tilurð „sólstrandarveislunnar“
sem brátt verður sett upp í höfuðborginni. „Við
reynum alltaf að fmna þema eða titil sem er athygl-
isverður, eða auglýsingavænn líkt og stundum er
sagt. í þetta sinn ákváðum við að flytja tónlist sem
fólk tengir við sumarið. Lögin eru eftir Brian Wil-
son og Beach Boys, Gypsy Kings og aðra sem hafa
verið hugfangnir af sólinni,“ segir Aggi og kemur
sér betur fyrir í sófanum, hálfur undir teppi.
Þetta er í þrettánda sinn sem tónlistarmenn i
Fjarðabyggð setja upp sýningu af þessu tagi en þær
eru að öllu jöfnu frumsýndar fyrsta vetrardag og
eru orðnar jafn fastur þáttur í tilveru íbúa Fjarða-
byggðar og Menningamóttin er höfuðborgarbúum.
í fyrra vom Evróvisjónkeppninni gerð skil og árið
þar á undan vom flutt lög eftir skemmtikrafta sem
frægir voru fyrir að troða upp í Las Vegas, menn
eins og Frank Sinatra, Elvis Presley og Tom Jones.
Áður hafa Bítlamir verið teknir fyrir, Stuðmenn,
soul og fleira og fleira. Sýningamar vekja ávallt at-
hygli og óhætt að fullyrða aö flestir íbúar Fjarða-
byggðar, hvort sem það eru Norðfirðingar, Reyð-
firðingar eða Eskfirðingar, sjá sér fært að mæta.
Þaðan fer sýningin til Reykjavíkur þar sem brott-
fluttir Austfirðingar og áhugafólk um tónlist fjöl-
mennir. Á næsta ári stendur svo til að fara utan,
nánar tiltekið til Færeyja og Grænlands.
Skenimtun úr grasrótinni
Það sem er mest töfrandi við þessa skemmtun er
án efa sú staðreynd að hún er alfarið sprottin upp
úr grasrótinni. Fæstir sem koma að sýningunni
em atvinnutónlistarmenn og standa því á sviðinu
af hreinni tónlistarást. Norðfjörður hefur í mörg ár
verið þekktm- fyrir öflugt tónlistarlíf og Aggi fuil-
yrðir að sýningamar hafi vakið athygli á þessari
sérstöðu fjarðarins. „Þær hafa vakið athygli tón-
listarmanna og reyndar allra landsmanna á staðn-
um,“ segir Aggi. „Og það skiptir ekki síður máli að
aörir staðir víðs vegar um landið hafa fetað í fót-
spor okkar og sett upp sýningar af svipuðum toga.“
Tónlistarhefðin á Norðfirði er einstök og ég spyr
Agga hvort það séu einhveijar haldbærar skýring-
ar á þessu.
„Ein er vafalaust sú að hér hefur verið rekinn
öflugur tónskóli í mörg ár,“ svarar Aggi en hann
er einmitt skólastjóri Tónskólans i Neskaupstað og
kirkjuorganisti staðarins. „Við höfum aldrei haft
neina fordóma gagnvart popptónlist og leggjum
ríka áherslu á að kenna nemendum þá tónlist sem
þeir hafa sjáifir áhuga á. Önnur skýring á þessu er
hijómsveitarmenningin. Síðustu fimmtíu árin hafa
alltaf verið hljómsveitir starfandi á Norðfirði þar
sem ungir tónlistarmenn hafa fengið tækifæri til
að þróa kunnáttu sína í samspili við aðra sem er
auðvitaö allt annað en að sitja einn inni í herbergi
og gutla,“ útskýrir hann.
„Þar fyrir utan gátu Austfirðingar náð útvarps-
stöðvum frá Evrópu sem spiluðu nýjustu rokktón-
listina,“ heldur Aggi áfram og á þar við Radio
Caroline og fleiri stöðvar sem sendu út frá Lúx-
emburg.
„Ég man að ég spilaði í hljómsveit á útihátíð í
Atlavík sumarið 1967 ásamt hljómsveitinni Dúmbó
og Steina. Nokkrum dögum fyrir hátíðina pikkuð-
um við upp All You Need Is Love með Bítlunum,
sem þá var glænýtt, og spiluðum það á fyrsta
kvöldinu, degi áður en það var frumflutt í íslenska
útvarpinu.“ Það þarf vart að taka það fram að
Dúmbó og Steini horfðu á Austfirðingana furðu
lostnir.
Misst niarga frábæra tónlistarmenn
Fyrir nokkrum árum stofhaði áhugafólk um tónlist
á Norðfirði Blús-, rokk og jassklúbbinn á Nesi (Biján)
sem heldur reglulega félagskvöld í húsnæði sínu,
Blúskjallaranum. Þar hafa fremstu tónlistarmenn
þjóðarinnar troðið upp, menn eins og Bjöm Thorodd-
sen, Gunnar Þórðarson og fyrr á þessu ári kom sjálf-
ur Chicago Beau og skemmti Norðfirðingum með æsi-
legri og ekta blústónlist. „Markmiðið með stofnun
Biján var upphaflega að flytja reglulega tónlist með
heimamönnum en seinna meir höfúm við lagt jafh
mikla áherslu á að flytja inn þekkta tónlistamenn."
Síðustu ár hefúr Biján haft umsjón með uppsetn-
ingu rokksýninganna og fyrir vikið er félagsskapur-
inn nú handhafi menningarverðlauna Sambands
austfirskra sveitarfélaga. „Við erum afskaplega
ánægð með verðlaunin. Þau sýna að fólk er þakklátt
fyrir störf okkar,“ segir Aggi grobbinn.
Flest bendir til þess að það muni fjölga hratt og
mikið í Fiarðabyggð á næstu árum með tilkomu ál-
versins. Aggi segir að þetta muni virka sem vítamín-
sprauta fyrir tónlistarlífið. „Fólksfækkun er það
versta sem getur komið fyrir tónlistarmenn," segir
hann. „Maður fmnur strax fyrir því þegar fólki fækk-
ar, bæði koma færri til að hlusta og síðan höfúm við
auðvitað misst marga frábæra tónlistarmenn suður
til Reykjavíkur."
Eilífðarunginennið Aggi
Aggi hefúr verið með ólæknandi tónlistardellu frá
því að hann man eftir sér. Hann er alinn upp á
Skorrastað í Norðfjarðarsveit þar sem mikið var
sungið og snemma lærði hann á hijóðfæri. Þegar bylt-
ing Bítlanna hófst, fyrir tæplega fjörutíu árum, breytt-
ist allt hjá honum eins og svo mörgum ungum tón-
listamönnum á þessum tíma. Aggi er og verður einn
mesti Bítlaaðdáandi á íslandi þó að hann hafi ekki op-
inberaö delluna með jafii áberandi hætti og Ingólfúr
Margeirsson. „Þeir eru einfaldlega bestu lagasmiðir
poppsins," fúllyrðir Aggi, „og bandið var svo þétt að
það var ekki hægt að smeygja títuprjóni á milli
þeirra," segir hann og talar nú af svo miklum þunga
að ég færi mig örlítið fjær honum. Auðvitað eru fleiri
hljómsveitir í uppáhaldi: Stones, Beach boys, Crosby,
Stills og Nash og svo auðvitað Hljómar og Trúbrot.
Hann skellir nýju safhplötunni með Trúbroti á fóninn
og spilar nokkur vel valin lög til að færa sönnur á þá
fullyrðingu að Gunnar Jökull hafi verið besti
trommuleikari í heimi. Ég kinka kolli til samþykkis.
Aggi var sjálfur í hljómsveitarbransanum í mörg
ár. Frægust þeirra hljómsveita sem Aggi hefur spilað
í er án efa stórsveitin Amon Ra en í henni steig söngv-
arinn Eiríkur Hauksson sín fyrstu skref og í henni
var líka álrisinn Smári Geirsson sem söng og blés í
saxófón. Hljómsveitin starfaði frá 1970 til 1981 og spO-
aði lög af ýmsum toga en það leynir sér ekki að stolt-
astur er hann af djassrokkinu í anda Blood, Sweat
and Tears og Chicago sem þeir fluttu af mikilli innlif-
un. Hljómsveitin starfaði eingöngu á Norðfirði yfir
sumartímann og náði því aldrei að „meika það“ á
landsvísu. Ég spyr Agga hvort hann sé ekki með
neinn „aldrei fór ég suður-komplex"?
„Nei,“ svarar Aggi um hæl. „Við vorum aldrei all-
ir í Reykjavík á sama tíma þannig að það var ekkert
um það að ræða að slá í gegn.“ Málið er útrætt og við
slúttum viðtalinu. Næstu klukkutímana læt ég fara
vel um mig á heimili Agga og hlusta á litríkar hljóm-
sveitarsögur sem hann dælir úr sér af mikilli snilld.
Allir sem þekKja gamla hljómsveitartöffara vita hvað
ég er að tala um. - JKÁ
Ódýrt til
útlanda
Terra Nova-Sól heldur
áfram að bjóða
íslendingum ódýr fargjöld
til Evrópu í samvinnu við
erlend flugfélög sem
viðurkennd eru fyrir gæði
og góða þjónustu.
Neðangreind verð eru
pr. flugsæti með flugvallasköttum.
UN
Dusseldorf
Verö frá
27.500 kr.
Munchen
Verð frá
27.500 kr.
^EROIiOVD
Berlín
Verö frá
27.500 kr.
Vín
Verð frá
29.500 kr.
® Condor
Frankfurt
Verð frá
27.500 kr.
Munchen
Verð frá
27.500 kr.
París
Verð frá
27.800 kr.
NÁNARIUPPL ÝSINGAR
HJÁ SÖLUFÓLKI
M TERRA
NOUA -^ol
y -SPENNANDI VALKOSTUR-
Stangarhyl 3A • 110 Reykjavik
Sími: 591 9000 - wwww.terranova.is