Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2003, Qupperneq 11
11
MIÐVKUDAGUR 15. JANUAR 2003
DV
Utlönd
Aukin andstaða við beina hernaðaríhlutun gegn írökum:
Stuðningur við Bush fer
hraðminnkandi heimafyrir
Bush Bandaríkjaforseti sagði i gær
að tíminn sem Saddam Hussein Iraks-
forseti hefði til þess að afvopnast væri
að renna út. „Hingað til hef ég ekki
séð neinar sannanir fyrir því að hann
hafi sýnt vilja tO þess að afvopnast og
ég er orðinn leiður á leikjum hans og
blekkingum,“ sagði Bush.
í kjölfarið bárust skýr andsvör frá
höfuðstöðvum Evrópusamhandsins í
Brussel þar sem varað er við of skjótri
hernaðarlegri íhlutun og þess krafist
að vopnaeftirlitið fái þann tíma sem
þurfl til að ljúka eftirlitinu.
Javier Solana, utanríksmálastjóri
ESB, sagði í gær að ef Blix þyrfti
meiri tíma þá ætti hann að fá hann.
Solana sagði einnig að önnur ályktun
Öryggisráðsins gæti orðið nauðsynleg
tO þess að réttlæta hernaðaraðgerðir
og tók þar með undir fram komna
skoðun Gerhards Schröders kanslara
Þýskalands á málinu.
Bush Bandaríkjaforseti
Stuöningur viö Bush heimafyrir er
nú 58% en var mestur 90% eftir
hryöjuverkaárásirnar.
„Ég er ekki sammála því að vopna-
eftirlitinu eigi að ljúka 27. janúar. Það
er dagurinn sem Blix á að gefa Örygg-
isráðinu fyrstu skýrsluna um stöðu
mála en hann á aftur að gefa skýrslu
í mars,“ sagði Solana.
Kofi Annan, aðalframkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, tók undir orð
Solana og sagði í gær að vopnaeftir-
litssveitimar væru nú loksins komn-
ar á skrið og ættu skOyrðislaust að fá
tíma tO þess að vinna sín verk.
Þá sagði Mohamed A1 Baradei, yfir-
maður Alþjóða kjarnorkumálastofn-
unarinnar, sem ásamt Hans Blix fer
með stjóm vopnaeftirlitsins í írak, að
Irakar yrðu að sýna meiri sam-
starfsvOja. „Við þurfum meiri upplýs-
ingar og verðum að fá að ræða við
fleiri sem málið varðar. Við þurfum
meiri efnislegar sannanir fyrir því að
gjöreyðingarvopnum hafi verið eytt,“
sagði E1 Baradei.
Andstaðan gegn beinni hemaðar-
íhlutun Bandaríkjamanna í írak
hefur stöðugt verið að aukast, jafnt
erlendis sem heimafyrir, og hafa
fjöldamótmæli farið fram víða um
land að undanförnu.
Þá sýna nýjar skoðanakannanir að
stuðningur þjóðarinnar við Bush fer
hraðminnkandi og mælist nú aðeins
58% eftir að hafa farið mest í um 90%
eftir hryðjuverkaárásirnar þann 11.
september 2001.
Sumir kenna þó versnandi
efnahagsstöðu um fylgishrunið og
segja mikinn meirihluta þjóðarinnar
styðja hernaðaraðgerðir.
Að sögn eins stjórnmálaskýranda
virðist fólk óánægt með það að for-
setinn skuli eyða öOu púðrinu í
íraksmálið á meðan flestir heimafyrir
hafi meiri áhyggjur af efnahagnum og
hvað koma muni í pyngjuna.
REUTERS
Hugsanleg ódæöistilraun
Franska lögreglan þurfti í gær aö rýma Sacre-Coeur kirkjuna í París þegar feröamaöur uppgvötaöi þar grunsamiegan
pakka með þremur litlum gasbrúsum, fjórum flöskum af bensíni og enn öörum flöskum meö ónefndu eldfimu efni
límdum saman. Um 8 milljónir feröamanna heimsækja kirkjuna á hverju ári.
Ört vaxandi stuðningur
Norðmanna við ESB-aðild
Þrátt fyrir ört vaxandi stuðning
Norðmanna við aðOd að Evrópusam-
bandinu ætlar ríkisstjórnin ekki að
hvika frá málefnasamningi sinum
sem kveður á um að umræður um að-
Od séu ekki á dagskrá rikisstjómar-
innar.
Tveir af þremur stjómarflokkum,
KristOegi þjóðarflokkurinn og Vinstri
flokkurinn, eru báðir andvígir aðOd
að ESB en stærstu flokkar landsins,
með stjómarflokkinn Hægri í forystu,
eru fylgjandi aðOd að sambandinu.
Síðasta skoðanakönnun GaOup sýndi
að 58% landsmanna em fylgjandi að-
Od en aðeins 29% andvíg.
Það vakti mikla athygli í könnun-
inni hve margir tóku afstöðu tO aðOd-
arinnar. Aðeins 11% voru óákveðin
og 2% aðspurðra neituðu að svara.
Það þykir ekki síður fréttnæmt við
könnunina að bæði bændur og fisk-
vinnslufólk færir sig í auknum mæli
tO liðs við fylgjendur aðOdar. Þá hef-
ur stuðningur íbúa Norður-Noregs við
aðOd að sambandinu farið vaxandi og
forystumenn Sama, á Samaþinginu,
hafa hvatt tO þess að viðræður um
Kjell Magne Bondevlk
Bondevik, forsætisráöherra Noregs,
treystir á stuöning nágrannanna í
viöræöunum viö ESB.
aðild að Evrópusambandinu verði
teknaruppsem skjótast. IhúarNorð-
ur-Noregs og Samar voru þeir sem
harðast börðust gegn aðOd í þjóðarat-
kvæðagreiðslunum 1972 og 1994 þar
sem þjóðin hafnaði aðOd að ESB.
Á sama tíma og norska þjóðin lýs-
ir yfir vOja sínum, í hverri skoðana-
könnuninni af annarri um inngöngu
í ESB, leggur ríksistjórnin áherslu á
að ná toOasamningum við EES. Bæði
Jan Petersen utanríkisráðherra og
Bondevik forsætisráðherra treystu á
stuðning frá Svíum, Dönum og Finn-
um í viðræðum sínum um verðmið-
ann á viðskiptapakkanum við EES.
Sá stuðningur brást algerlega þegar
Göran Persson, forsætisráðherra Sví-
þjóðar, sagði í fjölmiðlum í gær að
Norðmenn, sem gjarnan segjast vera
ríkasta þjóð í Evrópu, væru ekkert of
góðir til að borga 41 mOljarð ísl.
króna sem sambandið krefðist fyrir
aðgang að mörkuðum þess.
Persson sagðist bjóða Norðmenn
velkomna í Evrópusambandið en ef
þeir ætluðu sér fullan aðgang að innri
markaði þess yrðu þeir að borga það
sama og t.d. Sviar sem eru í sam-
bandinu.
Bondevik er ekki sammála starfs-
bróður sínum í Svíþjóð og ætlar að
biðja hann um að skýra sjónarmið
sín betur. -GÞÖ
Ungmenni féll í
átökum í Bólivíu
Eitt ungmenni féO og meira en
100 manns voru handteknir í
átökum kókabænda og hermanna í
Bólivíu. Aðgerðir hersins voru liður
í því að koma í veg fyrir ræktun
hinna ólöglegu kókalaufa en úr
þeim er kókaín unnið.
Að sögn ráðherra í ríkisstjórn
landsins lést hinn 18 ára gamli
drengur þegar hermenn reyndu að
ryðja úr vegi vegahindrunum sem
bændumir hefðu sett upp. Meira en
20 manns hafa dáið síðasta ár eða
svo í mótmælum gegn útrýmingu
kókalaufa.
Bændur segja að laufin séu eina
tekjulind þeirra.
John Lee Malvo
Réttaö veröuryfir táningnum sem
fullorönum einstaklingi.
Gæti fengið
dauðarefsingu
Ákæruvaldið í Virginíufylki í
Bandaríkjunum færði í gær rök fyr-
ir því að táningurinn John Lee Mal-
vo, sem er annar tveggja grunaðra
um launmorðin í kringum höfuð-
borgina Washington í haust, ætti að
sæta réttarhöldum og refsingu sem
fuOorðinn einstaklingur. Saksókn-
arinn tengdi hann beinlínis við fjög-
ur morð en aOs voru 10 myrtir af
tvíeykinu og 3 tO viðbótar særðir.
Fyrst verður þó réttað yfir félaga
Malvo, John AOen Muhammad, í
Prince WOliam-sýslu í Virginíu.
Hann mun líklega i október næst-
komandi sæta ákærum fyrir morðið
á Dean Harol Meyers sem átti sér
stað við bensínstöð þann 9. október
síðastliðinn.
Koizumi sniðgeng-
inn af S-Kóreu
Kim Dae-jung, forseti S-Kóreu,
hefur aflýst fundi sínum með Jun-
ichiro Koizumi, forsætisráðherra
Japans, í kjölfar heimsóknar sinnar
í japanskt minningarskrín um
fallna hermenn, þeirra á meðal
dæmda stríðsglæpamenn. Heim-
sóknin hefur vakið mikla reiði S-
Kóreumanna sem sættu miklu harð-
ræði af hendi japanskra hermanna
á fyrri hluta tuttugustu aldarinnar.
Húsbréf
Innlausn
húsbréfa
Frá og með 15. janúar 2003 hefst innlausn
á útdregnum húsbréfum i eftirtöldum flokkum:
1. flokki 1991
3. flokki 1991
1. flokki 1992
2. flokki 1992
1. flokki 1993
3. flokki 1993
1. flokki 1994
1. flokki 1995
1. flokki 1996
2. flokki 1996
3. flokki 1996
44. útdráttur
41. útdráttur
40. útdráttur
39. útdráttur
35. útdráttur
33. útdráttur
32. útdráttur
29. útdráttur
26. útdráttur
26. útdráttur
26. útdráttur
Innlausnarverðið er aó finna í Morgunblaðinu
þriðjudaginn 14. janúar.
Innlausn húsbréfa fer fram hjá íbúðalánasjóði, í bönkum,
sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum og liggja þar einnig
frammi upplýsingar um útdregin húsbréf.
íbúðalánasjóður
Borgartúni 21 I 105 Reykjavík I Sími 569 6900 I Fax 569 6800 I www.ils.is