Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.2003, Blaðsíða 28
fimmtudagur
—k—
—
16/1
•Krár
■Tvelr fxrir einn á Spotlight
Á Spotlight veröa Tomml White & Dj Ingvi
viö stjórnvölinn í kvöld. 500 kall inn og
happy hour frá kl. 21-24 sem þýðir tveir
fyrir einn. Opiö alla fimmtudaga frá 21-
01.
■Atli á Glaumbar
Atli skemmtanalögga leikur plötur sínar
fyrir gesti Glaumbars í kvöld.
•Tónleikar
■Fimmtudagsforleikur i Hinu
húsinu
Á Fimmtudagsforleik Hins hússins á
Loftinu I kvöld munu hljómsveitirnar Sans
Culot og XanaX leika listir sinar. Á meö-
an bæöi lágstemmt og hástemmt rokk
leikur lausum hala veröa óvæntar list-
rænar uppákomur á boðstólum. XanaX
mun hefja leikinn stundvíslega kl. 20 en
er hljómsveitin hefur lokið sér af mun
Sans Culot stíga á sviö. Allir- 10- árerog
eldri eru velkomnir.
■Hip hop á Vídalín
Þaö eru hörkutónleikar meö Sesar A,
XXX Rotweiler, Messíaz MC, Forgotten
Lores, DJ Magic, Dj Wiz og Dj Bobba
vandræöagemsa á Vídalín í kvöld. Aö-
gangseyrir 500,-kr.
•Klassík
■Frumflutnlngur á nvium ís-
lenskum flautukonsert!
Á tónleikum Slnfóníuhljómsveitar íslands
í kvöld verður frumfluttur flautukonsert
eftir Hauk Tómasson. Konsertinn samdi
hann sérstaklega fyrir Sharon Bezaly,
flautuleikara frá ísreal sem kom til lands-
ins í gær og æfir nú með Sinfóníhljóm-
sveitinni í Háskólabíói. Hugmyndin aö
þessu samstarfi kom frá útgáfufyrirtæk-
inu BIS en meiningin er aö hljóðrita
flautukonserts Hauks í sumar fyrir vænt-
anlega útgáfu. Allar frekari upplýsingar
má finna á http://www.sinfonia.is
•Leikhús
■Me6 fullrl reisn i Þjóðleikhús-
inu
Söngleikurinn Meö fullrl reisn er sýndur á
stóra sviöi ÞJóðleikhússins í kvöld klukk-
an 20 örfá sæti laus.
•Opnanir
■Tumi svnlr í Kúlunni
Fyrsta opnun ársins hjá Listasafni Reykja-
víkur er sýningaröðln Kúlan í Ásmundar-
safni þar sem þrír listamenn vinna verk
inn I kúluna sem er elsti hluti byggingar
Ásmundarsafns. Fyrst í sýningarööinni er
verk Tuma Magnússonar en sýning hans
veröur opnuö í dag, 16. janúar, kl. 17.00
og stendur til 16. febrúar.
■Blátt og rautt á Mokka
Friörik Tryggvason Ijósmyndari opnar
sýningu á Mokka kaffi í dag. Á sýning-
unni, sem Ijósmyndarinn kallar Blátt og
rautt, gefur aö líta sex Ijósmyndirí stærö-
inni 50x60 sm. Sýningin stendur til 15.
febrúar og er opin á afgreiöslutíma kaffi-
hússins. Friörik Tryggvason, f. 1979, út-
skrifaðist frá Lorenzo di Medici I Flórens
voriö 2002. Þetta er fyrsta einkasýning
hans en einnig hefur hann tekiö þátt í
nokkrum samsýningum hérlendis og er-
lendis.
•Uppákomur
■Sóngvakeppni i Salnum
Ki. 20 veröur Söngkeppni félagsmiö-
stööva ÍTK haldin í Salnum, Kópavogi.
Sjá nánar.www-kopavogur.is.
•Fundir og
fyrirlestrar
■Menntadagur______Iðnaðarins
haldinn i fvrsta sinn
Samtök iönaöarins og Samiðn boöa til
málþings um iðn-, verk- og tæknimenntun
á Menntadegi iðnaöarins sem verður
haldinn í fyrsta sinn í dag. Guömundur
Árnason, ráöuneytisstjóri menntamála-
ráðuneytisins, flytur ávarp. Þingmennirnir
Bryndís Hlööversdóttir, Hjálmar Árnason,
Kjartan Ólafsson, Kolbrún Halldórsdóttir
og Margrét Sverrisdóttir greina frá stefnu
sinni og flokka sinna I iðn-, verk- og
tæknimenntun. Aðrir framsögumenn eru
Sveinn Hannesson, Finnbjörn Hermanns-
son og Haraldur Friöriksson sem greina
frá áherslum iðnaöarins í menntamálum.
Málþingiö er milli kl. 10-12 í Versölum,
Hallveigarstíg 1.
■Rabbfundur um geðslag
Rannsóknastofa í kvennafræöum, í sam-
vinnu viö mannfræöiskor Háskóla ís-
lands, stendur fyrir opnum rabbfundi milli
kl. kl. 12 og 13 í stofu 101 i Lögbergi.
Fyrirlesari er dr. Emily Martin, prófessor í
mannfræði viö New York University. Hún
kynnir nýjustu rannsókn sína en þar skoö-
ar hún geöslag (mood)
út frá mannfræöilegu sjónarhorni. Fyrir-
lesturinn nefnir hún „Cultures of mania:
Toward an anthropology of mood" og fer
hann fram á ensku. Dr. Emily Martn er
heimskunn fræðikona og hefur skrifaö
fjölda greina um viðfangsefni sín í bækur
og tímarit. Rabbfundir Rannsóknastofu í
kvennafræöum eru öllum opnir og að-
gangur ókeypis.
•Krár
■Gelrmundur i Kópavogi
Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar leikur
fyrir dansi á Catalínu alla helgina.
■Baddi rugl á Spotlight
Þaö er happy hour á Spotllght í kvöld frá
kl. 21 ogtil miðnættis. Baddi rugl sér um
tónlistina. 20 ára aldurstakmark, 500
kall inn e. kl. 1.
Elekrolux er að fara í stutt vetrarfrí til að safna orku fyrir ærslagang sum-
arsins. En áður en að því kemur verður haldin miðvetrar-hátíð ElektroLux á
föstudagskvöld á Gauknum. Stjarna kvöldsins er Sander Kleinenberg en
hann ætti að vera flestum klúbbagestum vel kunnugur enda ekki að koma
hingað í fyrsta sinn, en hann spilaði á rómuðu ElekroLux-kvöldi seinasta
sumar.
Hollensk súper-
stjarna á ElektroLux
Kleinenberg er kemur
frá Haag sem er ekki að-
eins aðsetur stjórnsýslu
Hollands heldur líka
óformlegar höfuðstöðvar
danstónlistar-framleiðslu
landsins. Þar ér sándið
naumhyggið, kröftugt, kúl
og sexý.
Sander var aðeins 15
ára, 1987, þegar hann fann
fyrstu ást lífs síns; plötu-
snúningana. Áður en á
löngu leið var hann orð-
inn einn aðalskífuþeytir
Niðurlandanna og var
m.a. orðinn húsplötusnúð-
ur á ROXY í Amsterdam,
staður sem skipar svipað-
an sess í hugum íbúa
A’dam og Rósen-
berg/Tunglið gerir í hug-
um íslenskra djammara.
Upp úr því hóf hann að
leggja land undir fót og
núna í dag hefur hann
spilað á flestum mikilvæg-
um og merkilegum
skemmtistöðum á hnettin-
um, til dæmis Rex í París,
Space á ibiza og Cream í
Liverpool.
Hann er samt ekki bara
þekktur sem plötusnúður
heldur líka sem pródúser.
Fyrir utan DJ mix-geisla-
plötur fyrir Global Und-
erground og fleiri, hefur
hann gefið út tónlist hjá
nokkrum plötufyrirtækj-
um beggja vegna Atlants-
hafsins, og er eitt af lögum
hans „My Lexicon" senni-
lega eitt mestaselda og
langlífasta klúbbalag
seinni ára!
Ómissandi hús-búggí
veisla, sett saman af DJ úr
heimsliðinu! Miðverð er
1.500 kr. og húsið opnar
klukkan 23:30. Grétar G.
hitar upp.
Sander Klelnenberg hlakkar til að skemmta Islend-
ingum um helgina.
■Tónlist á 22
Syncro sér um fjöriö niöri á 22 og Andri
kyndir efri hæöina. Skjávarpagóðgæti á
þriöju hæö. Muniö góöa skapiö, stúd-
entaskírteinin og ekkert rugl. Tilboö á bar
til eitt.
■Cadillac á Kringlukránni
Hljómsveitin Cadillac leikur á Kringiu-
kránni í kvöld. Hljómsveitina skipa þeir
Vilhjálmur Guöjónsson, Þórir Úlfarsson
og Magnús Kjartansson. Þrátt fyrir aö
þeir félagar hafi marga fjöruna sopiö er
furða hversu hressir og kátir þeir eiga
þaö til aö vera. Hljómsveitin leikur aöal-
lega rokk og kántrýtónlist í bland viö eig-
in lög og sígilda standarda.
■Danssveifla á Leikhúskiallar-
anum
Lelkhúskjallarinn hefur opnaö aftur eftir
breytingar og í kvöid verður syngjandi
danssveifla aö hætti hússins. Ókeypis
inn.
■Tvö dónaleg haust á Amster-
óam
Hin stórskemmtilega hljómsveit, Tvö
dónaleg haust, með sjarmörinn Gumma I
broddi fylkingar gerir allt vitlaust
á Café Amsterdam í kvöld og langt fram
undir morgun.
■Wiz og Magic á Vídalín
Dj Wiz og Dj Magic spila á Vídalín í
kvöld. Frítt inn.
■Karma á Plavers
Þaö er boöiö upp á alvörudansleik á
Players í Kópavogi I kvöld þegar hljóm-
sveitin Karma stígur þar á stokk.
■Tommi White á Vegamótum
Hinn ágæti plötusnúður Tommi Whlte
skemmtir gestum veitingastaöarins Vega-
móta í kvöid. Hér veröur öllu til tjaldaö.
■Hot N Sweet á Chamnions
Þessa helgina mun hljómsveitin Hot N
Sweet ásamt Hermanni inga koma sam-
an á ný eftir eftir þriggja ára hlé á
skemmtistaðnum Champions viö Stór-
höföa 17.
Hljómsveitin Hot N Sweet starfaöi viö
góðan oröstír frá 1998 til 2000 og sendu
meöal annar frá sér lagiö Lífið sem hljóm-
aöi talsvert á öldum Ijósvakans.Hot N
Sweet stígur á stokk klukkan 23.00.
■Valíum á Ara í Ögri
Þeir HJörtur og Halli, sem kalla sig Valí-
um, skemmta á Ara í Ögri, Ingólfsstræti
3, í kvöld.
■Di Benni á Hverfisbarnum
Þaö er enginn annar en Dj Benni sem
verður viö völd á Hverfisbarnum í kvöld.
Öllu til tjaldaö.
• K1 úbbar
■303 á Flauel
Þaö er 303-kvöld á Fiauel í kvöld. Plötu-
snúöar kvöldsins eru DJ Bjössi, DJ Arnar
og DJ Frímann.
■Sander Kleinenberg á_________EÞ
ektr.oLux á Gauknum
Stjarna kvöldisns á ElektroLux á Gaukn-
um í kvöld er Sander Kleinenberg en
hann ætti aö vera flestum klúbbagestum
vel kunnugur enda ekki aö koma hingaö í
fyrsta sinn, spilaöi á rómuöu ElekroLux
kvöldi seinasta sumar. Þarna er boöiö
upp á ómissandi hús-búggí veislu, sett
saman af DJ úr heimsliðinu! Miðverð er
1500 kr. og húsiö opnað klukkan 23:30.
Grétar G. hitar upp.
•Klassík
■Tónleikar i Palvíkurkirkiu
Tónleikar meö léttri og skemmtilegri
franskri tónlist verða haldnir í Dalvíkur-
kirkju í kvöld klukkan 20. Flytjendur eru
Guido Baeumer saxófónleikari og Aladár
Rácz píanóleikari. Almennt miðaverð er
1.200 kr. en eldri borgarar og nemar
greiöa 800 kr. Ókeypis er fyrir 16 ára og
yngri.
• S veitin
■Snútnik á Pakkhúsinu á Sel-
fossi
Hressu strákarnir í Spútnik æra lýöinn á
Selfossi í kvöld þegar þeir leika fyrir
dansi á Pakkhúsinu.
■Buff í Borgarfirði
Hin síkáta hljómsveit, Buff, leikur við
hvern sinn fingur á Mótel Venus, Borgar-
firöi.