Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.2003, Blaðsíða 23
I
FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2003
23
I>V
agasm
Kárahnjúkamynd Ómars Ragnarsson vel tekið í Bíóborginni:
Pósturinn skiptir sér
ekki af innihaldinu
„í þessari mynd er ég í raun eins
og pósturinn: kem bréflnu til við-
takanda en skipti mér ekki af inni-
haldinu. Reyni hins vegar að draga
fram kosti og galla virkjunar við
Kárahnjúka og þeirra óafturkræfu
umhverfisáhrifa sem framkvæmdin
mun hafa,“ segir Ómar Þ. Ragnars-
son fréttamaður.
Stærsta mál samtímans
í fyrrakvöld var í Bíóborginni við
Snorrabraut sýnt kvikmyndaefni
sem unnið hefur verið undir vinnu-
heitinu Á meðan land byggist. Það
samanstendur annars vegar af
myndum af virkjunarsvæði Kára-
hnjúkavirkjunar og hugsanlegu
þjóðgarðssvæði norðan Vatnajök-
uls. Hins vegar er um að ræða
myndir úr ferðum um tuttugu þjóð-
garða og tólf virkjanir i Kanada,
Bandaríkjunum og Noregi og víðar
frá.
„Enginn fjölmiðlamaður getur
látið hjá líða að fjalla um stærsta
mál samtímans, eins og ég tel að
virkjun við Kárahnjúka svo sannar-
lega sé,“ segir Ómar. „Þetta er stór
ákvörðun og margfalt stærri en þær
sem menn eru að taka alla jafna nú
um stundir. Ákvörðunarefnin
snerta gjaman aðeins daginn 1 dag
og okkar kynslóð og nánasta um-
hverfl en stórvirkjun eystra er hins
vegar nokkuð sem kemur við allar
ókomnar kynslóðir. Skilgreining á
því hvað sé óafturkræft i náttúr-
unni þarf því öllum að vera ljós.“
Krinqilsárrani og Kára-
hnjúlcar
f myndinni sjást svæði á Austur-
landi sem ekki hafa birst kvikmynd-
ir af áður opinberlega svo vitað sé.
Má þar nefna Desjarárdal, norður,-
bakka Jöklu innan Kárahnjúka,
Kringilsárrana, fossaröð Jökulsár i
Fljótsdal og ár í kringum Snæfell.
Þá er í myndinni velt upp hvað séu
umtalsverð umhverflsáhrif og hvað
ekki.
Gestir kunnu vel að meta mynd
Ómars sem var hylltur með
langvarandi lófataki að sýningu lok-
inni. Hann segist ljúka við endan-
lega gerð myndarinnar á næstu dög-
um. Yflrmenn sínir hjá RÚV hafi
sýnt áhuga á að verkinu ljúki sem
fyrst svo hægt verði að taka ákvörð-
un um endanlegan sýningardag í
Sjónvarpinu. -sbs
Bornar saman bækur. Systurnar Kolbrún og Sigrún Halla Halldórsdætur á tali viö Steingrím Hermannsson,
fyrrverandi forsætísráöherra.
Maðurinn meö hattinn. Hallgrímur Helgason
rithöfundur í upphafi sýningar - einbeittur aö
skrifa SMS-skeyti.
Magasín-myndir Hari
Gestir ganga í hús. Helgi Hjörvar varaborgarfulltrúi og Þórhildur Elín Elín-
arsdóttlr mæta a svæöiö og er vel fagnaö af Omarl.
Feögar meö fyrrverandl förseta Islands. Þorfinnur Omarsson, Vigdís
Finnbogadóttir og Omar Ragnarsson.
- vddu aöeins það besta
BPGoodrích Hjólbarðaverkstæði Nesdekk • Seltjarnarnesi Bílaþjónustan • Húsavík
Bílabúðar Benna • Reykjavík Dekk og smur • Stykkishólmi Smur og Dekk • Höfn Hornafirði
Umboösaðilar: Hjólbarðaverkstæði Léttitækni • Blönduósi IB Innflutningsmiðlun • Selfossi
Sigurjóns • Reykjavík Höldur • Akureyri