Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2003, Qupperneq 5
FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2003
DV
5
Fréttir
íslandsbanki ráðleggur fjárfestum:
Stjórnmálamenn settir
á „athugunarlista"
- staða efnahagsmála ráðist af niðurstöðum kosninga
Almar
Guömundsson.
Greiningardeild
íslandsbanka ráð-
leggur fjárfestum
að hafa í huga, að
úrslit næstu þing-
kosninga muni
hafa áhrif á
hvernig til tekst
við hagstjóm
næstu ára - en
nefhir ekki hvaða
ríkisstjórn hún
telji að yrði þeim til mestra heilla.
í markaðsyfirliti bankans um efna-
hagsmál segir meðal annars að fjár-
festar verði að taka kosningamar
með í reikninginn þegar metið sé
hvort takast muni að koma í veg fyr-
ir gengislækkun og atvinnuleysi þeg-
ar stóriðjuframkvæmdum lýkur.
Almar Guðmundsson, forstöðu-
maður greiningardeildarinnar, bend-
Útflutningsverð-
mæti tvöfaldast
Norsk-íslenska síldin skilaði út-
flutningsverðmæti upp á um þrjá
miUjarða króna á síðasta ári og er
það um það bil tvöfalt meira en árið
áður þegar útflutningsverðmætið
nam 1,6 milljörðum.
Þetta er niðurstaða samantektar
Fiskifrétta en í henni kemur einnig
fram að verðmætaaukninguna megi
einkum rekja til aukins afla vinnslu-
skipa. Vinnsluskipin skiluðu um 1,5
milljarða króna útflutningsverðmæti
1 fyrra samanborið við um 600 millj-
ónir árið áður. í Fiskifréttum kemur
fram að verðmætaaukningin skýrist
almennt af meiri afla á nýliðnu ári
en árið á undan, auk þess sem mun
stærra hlutfall af aflanum fór í
vinnslu til manneldis en áður.
Um 127 þúsund tonn veiddust af
norsk-íslensku sildinni í fyrra sem
eru um 96% af úthlutuðum aflaheim-
ildum. Árið 2001 nam veiðin um 78
þúsund tonnum. -vb
ir á að erlendis sé alþekkt að kosn-
ingaúrslit skipti máli og valdi jafnvel
skjálfta á mörkuðum. „Og ef við ber-
um árið í ár saman við 1999 þá er
meiri óvissa í stjórnmálum núna,
stjómarskipti em líklegri nú og við
höfum ekki alveg skýra mynd af því
hvemig menn ætla sér að taka á efna-
hagsmálum," segir Almar.
En greiningardeildin segir fjárfest-
um ekki hvaða ríkisstjóm komi fjár-
festum best hvað þetta varðar. „Nei,
við höfum ekki allar forsendur til að
meta það núna,“ segir Almar. „En við
teljum að meiri hræringar séu í
stjómmálum, líkur á breytingum séu
meiri en á sama tíma fyrir síðustu
kosningar, og þar af leiðandi þurfl
fjárfestar að hafa hugsanleg úrslit
kosninganna í huga.“ -ÓTG
Krónan ofmetin?
í nýjasta tölublaði
tímaritsins The
Economist er birt at-
hugun blaðsins á gjald-
miðlum heims með
hamborgaravísitölunni
svokölluðu. Borið er
saman verð á Big Mac
hamborgara víðs vegar
um heim og út frá því
metið hvort gjaldmiðill
viðkomandi lands sé vanmetinn eða
ofmetinn gagnvart dollara. Útgangs-
punktur athugunar blaðsins liggur í
kenningum hagfræðinga um kaup-
máttarjafnvægi og er verð á þessari
ákveðnu vöru kannað samhliða
gengi viðkomandi gjaldmiðils.
Það er skemmst frá því að segja
að i könnuninni, sem
birt er á vef Economist,
er gengi krónunnar of-
metið gagnvart dollara
um 107%, evra ofmetin
um 8% og pund ofmetið
um rúmlega 20%. Meðal
vanmetinna gjaldmiðla
eru jenið (16%), eist-
neska krónan (27%) og
argentínski pesóinn
(55%). Niðurstöður athugunar
blaðsins má ekki taka of hátíðlega.
Krónan hefur lengi verið ofmetin á
þessum mælikvarða. Ýmislegt veld-
ur því að aðferðafræðin heldur illa í
raun og hefur hún ekki heldur
reynst vel í spám um þróun gjald-
miðla. -vb
Lausnin er í Brimborg
- leigðu nýjan verðlaunabíl frá Ford
Taktu Ford á
rekstrarleigu
Hafðu strax samband við ráðgjafa okkar og fáðu Nú getur Brimborg boðið alla verðlaunabílana
nánari upplýsingar um hagstæðu rekstrarleigu frá Ford á einstaklega hagstæðum rekstrar-
Brimborgar. leigukjörum.
Hlutverk okkar hjá Brimborg er að bjóða
einstaklingum og fyrirtækjum framúrskarandi
þjónustu fyrir heimsþekkt merki sem skara framúr:
Settu öryggi og þjónustu ofar öllu öðru. Vertu í hópi
með þeim sem vita hvað góð hönnun er - vertu í
Ford hópnum; leigðu nýjan verðlaunabíl frá Ford.
Misstu ekki af tækifærinu. Komdu í Brimborg.
Ford Fiesta
frá kr. 24.950
á mánuði í 36 mánuði.
Ford Focus
frá kr. 27.950
á mánuði í 36 mánuði.
V£rta*ny'aíí1 v---
Ford Mondeo
frá kr. 33.950
á mánuði í 36 mánuði.
HEILDARVÍÐSKIPTI 6.306 m.kr.
Hlutabréf 1.847 m.kr.
Húsbréf 2.910 m.kr.
MEST VIÐSKIPTI
íslandsbanki 504 m.kr.
Baugur 295 m.kr.
Kaupþing 257 m.kr.
MESTA HÆKKUN
O Grandi 3,3%
©ÍAV 3,0%
I © Samherji 1,5%
MESTA LÆKKUN
©Marel 2,8%
© Kögun 1,9%
© Búnaðarbanki 1,4%
ÚRVALSVÍSITALAN 1.341
- Breyting -0,08%
(ár
brímborg
Brimborg Reykjavík sími 515 7000 • Brimborg Akureyri sími 462 2700 • Bílavík Reykjanesbæ sími 421 7800 • brimborg.is
Skattabæklingur
Skattabæklingur Pricewaterhouse-
Coopers 2002-2003 er kominn út. Þar
er að finna allar helstu upplýsingar
sem einstaklingar og fyrirtæki þurfa
á að halda við gerð skattframtals árið
2003 og við staðgreiðslu ársins 2003.
Má nefna upplýsingar um tekjuskatt,
íjármagnstekjuskatt, eignarskatt,
vaxtabætur, barnabætur og opinber
gjöld, auk fleiri gagnlegra upplýs-
inga. í bæklingnum er einnig umfiöll-
un um reiknað endurgjald sjálfstætt
starfandi aðila, uppgjör í erlendri
mynt, afnám verðbólgureiknings-
skila og yfirfærslu einstaklings-
rekstrar í einkahlutafélag.
Bæklingurinn er gefinn út í sam-
starfi við Landsbanka íslands, Spari-
sjóð vélstjóra, Sjóvá-Almennar trygg-
ingar og Verðbréfastofuna. Hægt er
að nálgast eintak í útibúum þessara
fyrirtækja og á skrifstofum PwC.
Efni skattabæklingsins er enn frem-
ur að finna á heimasíðu PwC,
www.pwcglobal.com/is.
Rekstrarleiga m. v. mánaðarlegar greiðslur í 36 mánuði og er háð breytingum á gengi erlendra mynta og vöxtum þeirra.
Smur- og þjónustuskoðanir eru innifaldar í leigugreiðslu