Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2003, Qupperneq 8
8
FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2003
DV
Fréttir
Jarðfræðingar hafa áhyggjur af mögulegu gosi í Goðabungu:
Mýrdalsjökull og landslagiö undir honum
Þessa einstæðu myndir, vann Helgi
Björnsson hjá Raunvísindastofnun
Háskólans, ásamt félaga sínum,
Finni Páissyni, í kjölfar mælinga
áriö 1991. Goðabunga er við
vestanverða Kötluöskjuna og
gos þargeta haft veruleg áhrif
á Þórsmerkursvæðið. Hlaup
sem hugsanlega myndast
við bráðnun jökulsins myndi
hlaupa niður dalina
og enda í Markarfljóti.
Efri myndin sýnir jökulyfir-
borðið og neðri myndin
landslagið undir jöklinum.
G»ti revnst hattu-
legt fferðamönnum
Jarðfræðingar óttast að ef gos
yrði vestan í Goðabungu, vestast í
Mýrdalsjökli, gæti það skapað
mikla hættu fyrir ferðamenn á
svæðinu. Erfitt geti reynst að var-
ast skyndilegt flóð vegna jökul-
bráðnunar sem falli þá niður
brattar hlíðamar og endi í Mark-
arfljóti. Samkvæmt heimildum DV
er verið að skoða hvemig haga
beri viðbúnaði varðandi feröa-
mannastrauminn í sumar.
Ragnar Stefánsson jarðfræðing-
ur segir stöðugt fylgst með Kötlu
gömlu, og þá sérstaklega með
Goðabungu í vestanverðum Mýr-
dalsjökli. Hann segir jarðfræðinga
hafa áhyggjur af málum, ekki síst
í ljósi mikils ferðamannastraums í
Þórsmörk og víðar á svæðinu.
Jarðskjálftar undanfarin tvö ár
hafa að verulegu leyti átt upptök
vestan undir Goðabungu og ein-
kenni þeirra gætu bent til að
næsta gos á Mýrdalsjökulssvæð-
inu yrði þar. Þvi er ekki fylgst síð-
ur með þessu svæði en virkni nær
miðbiki jökulsins, undir Kötlu-
öskjunni sjálfri. Ragnar segir ekki
dæmi um svo óyggjandi sé að gos-
ið hafi þama vestan í Goðabungu
þó vitað sé um hlaup frá vestur-
hluta jökulsins til suðurs. Ekki sé
þó hægt að útiloka að þama hafi
gosið og hlaup farið til norðvest-
urs i kjölfarið, en litil byggð hafi
verið á þessu svæði og því sjálf-
sagt fáir til frásagnar ef slíkt hafi
gerst frá því land byggðist.
„í sjálfu sér er ekki mikil hætta
í byggð af gosi í Goðabungu. Hins
vegar er ótti varðandi ferðamenn.
Það er að jafnaði mikið um jeppa-
menn og annað ferðafólk í Þórs-
mörk og víðar á þessu svæði.
Hlaup vegna bráðnunar jökulsins
í Goðabungu verða væntanlega
ekki mjög stór. Þama er lítill jök-
ulís yfir til að bráðna. Hins vegar
er mjög bratt þama niður og erfitt
yrði að varast, í næsta nágrenni,
skyndileg hlaup í slíku gosi.“
Ragnar reiknar með að hugsan-
legu gosi í Goðabungu gæti fylgt
mikið öskufall.
Stööug skoöun
Jarðfræðingar hafa vaktað svæðið
náið undanfarin misseri en Ragnar
segir þó skorta fjármagn til að koma