Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2003, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2003, Blaðsíða 27
FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2003 Portúgalar án Ferreira? Svo gæti farið að Portúgalar verði án síns besta markmanns í leiknum gegn íslendingum í kvöld. Carlos Ferreira heitir markvörðurinn en hann meidd- ist í leiknum við Katar í fyrra- kvöld þegar hann lenti í sam- stuði. Hann hljóp út úr markinu með fyrrgreinum afleiðingum og í gær leit ekki út fyrir að hann yrði í leikhæfu ástandi í kvöld. Mats Olsson, aðstoðarþjálfari portúgalska liðsins, sagði við DV að hann hefði af þessu töluverð- ar áhyggjur en allt yrði gert til að Ferreira yrði með enda mikil- vægur hlekkur í liðinu og erfitt aö spila gegn íslendingum án hans. -JKS Fréttamönnum vísað út Ekki er laust við að taugatitr- ings sé farið að gæta í B-riðlinum í Viseu. íslenskum fréttamönnum var vísað út úr íþróttahöllinni þegar þýska landsliðið hóf þar æf- ingu síðdegis í gær. Fréttamenn- imir voru við vinnu sína uppi á pölium þar sem þeir hafa sýn yfir völlinn. Þegar æfing þýska liðsins var að hefjast kom liðsstjórinn upp á pallana og bað fréttamennina vin- samlegast að yflrgefa svæðið þcir sem þýska liðið ætlaði að fara yíir nokkur leikatriði sem það vildi að gert yrði fyrir luktum dyrum. Þess má geta að Þjóðverjar mæta Islendingum í lokaleik riðilsins á sunnudag og má segja að taugastríð sé byrjað. -JKS DV Okkar menn í Portúgal Javier Garcia Questa, þjálfari Portúgala, segir allt geta gerst í kvöld í leiknum Jón Kr/sf/án Sigurðsson milli Portúgala og íslendinga. DV-mynd Hilmar Pór blaðamaöur_________________________ Hilmar Pór Guömundsson, Ijósmyndari ALLhandbolta Vidjf handbolta HANDBQLTI J TIJ COED 0 fPdMKMálíf- ísland mætir Portúgal á heimsmeistaramótinu í handknattleik í kvöld: Leggjum allt undir - sagði Mats Olsson, aðstoðarþjálfari portúgalska landsliðsins Mikil eftirvænting er fyrir leik ís- lands og Portúgals í B-riðli á heims- meistaramótinu í handknattleik sem hefst klukkan 19 í kvöld. Þjóðimar hafa unnið báða leikina sína í riðlin- um þannig að í kvöld mætast stálin stinn enda griðarlega mikið í húfi upp á framhaldið í keppninni. Mikil áhugi er fyrir leiknum og seldust aðgöngu- miðar upp í forsölu fyrir tveimur vik- um. ísland og Portúgal hafa mæst tvisvar á síðustu þremur stórkeppn- um, Portúgal vann á EM í Króatíu 2000 en íslendingar á HM í Frakklandi ári síðar. Lykilleikur beggja liða Portúgalar æfðu tvívegis í gær og eftir seinni æfinguna hitti DV þá Carcia Cuesta, þjálfara Portúgala, og aðstoðarmann hans, Svíann Mats Ols- son. Olsson, sem er íslenskum hand- boltaáhugamönnum að góður kunnur, en hann var á tímabili besti markvörð- ur heims og gerði oft íslendingum líflð leitt með sniildarmarkvörslu sinni. „Þetta verður lykilleikur beggja liða í riðlinum og við leggjum allt undir tii að knýja fram sigur. Ég veit vel að þetta verður gríðarlega erfiður leikur og það hjálpar okkur í barátt- unni að við höfum áhorfendur að baki okkur og þeir munu styðja vel við bakið á liðinu. Við verðum að eiga toppleik til að vinna íslenska liðið, markvarsla, sóknar- og vamarleikur verður að vera í hávegum, þannig að ekki má mikið út af bera til að illa fari. Ég þekki íslenska liðið vel og veit að það verður við raman reip að draga en þegar liðin eru borin saman hafa íslendingar vinninginn. „Ég sagði á dögunum, og setti dæmi upp þannig, að ef þjóðirnar léku tíu leiki í röð þá myndu íslendingar vinna átta leiki. Islendingar eru sterk- ari, en á góðum degi, þegar allir hlut- ir ganga upp hjá okkur, eigum við möguleika," sagði Mats Olsson aðstoð- arþjálfari í samtali við DV. í heimsklassa Hann sagði að ef Ólafur Stefánsson og Patrekur Jóhannesson næðu sér á strik yrði mjög erfitt að ráða við ís- lenska liðið. „Þetta eru leikmenn í heimsklassa og burðarásar liðsins að mínu mati. íslenska liðið náði frábærum árangri á Evrópumótinu í fyrra og mér sýnist liðið ekki vera síðra núna. Leikreynsl- an er meiri núna og hún ætti og á að nýtast liðinu í þessari keppni. Portúgalska handknattleikssam- bandið er með langtímamarkmið í höndunum og stefiian er að koma landsliðinu í fremstu röð innan fimm ára. Ekkert verður til sparað í þeim efnum. Markmiðið hjá okkur hefur verið, leynt og ljóst, að komast inn á Ólympíuleikana í Aþenu og væri ósk- andi að það gengi eftir og myndi hjálpa okkur í uppbyggingarstarfinu. Til að það gangi eftir verðum við að standa okkur í þessari keppni á eigin heimavelli,“ sagði Mats Olsson. Bjartsýnn að eölisfari Carcia Cuesta, aðalþjálfari liðsins, tók undir orð Olssons og sagði leikinn i kvöld jám í jám. Hann sagði þetta mikilvægasta leikinn í riðlinum og allt kapp yrði lagt á að vinna sigur. „Ég tel að við eigum jafna mögu- leika á sigri og íslenska liðið. Þetta verður gífurlega erfiður leikur í öllu falli og mínir menn verða að sýna sín- ar allar bestu hliðar ef takmarkið á að nást. Ég hef lengi hlakkað til þessa leiks og ég er bjartsýnismaður að eðl- isfari og það er engin breyting í þeim efnum fýrir leikinn í kvöld,“ sagði Javier Garcia Cuesta í samtali við DV í gær. -JKS Stórleikur hjá íslenska parinu Stefán Amaldsson og Gunnar Viðarsson, milliríkjadómarar, dæma sannkallaðan stórleik á heimsmeistaramótinu í kvöld. Þeir hafa verið settir á leik Rúss- lands og Króatíu í C-riðli sem fram fer á eynni Madeira. Þetta er annar leikur félaganna í mót- inu en þeir dæmdu áður viður- eign Argentínu og Króatiu í fyrstu umferð en sátu síðan yfir í annarri umferð. Þessi leikur skiptir Rússa og Króata miklu máli upp á framhaldið að gera, Rússar hafa þrjú stig í riðlinum og Króatar tvö en þeir töpuðu óvænt fyrir Argentínu í fyrsta leik. -JKS Borga úr eigin vasa Bandaríska dómaraparið Tucomir Anusic og Thomas Boj- sem, sem dæmir á heimsmeist- aramótinu, leggur mikið á sig til að halda sér í æfingu. Verkefnin heima fyrir eru ekki næg en þar dæma þeir í Ameríkubikarnum og i álfukeppninni. Þetta er ekki nóg til að halda sér í formi og hafa þeir brugðið á það ráð að dæma deildarleiki í Evrópu. Til þess fá þeir engan stuðning og hafa þurft að borga öll ferðalög úr eigin vasa. Þeir hafa m.a. dæmt deildarleiki á íslandi, fimm leiki á síðasta tímabili og sL haust komu þeir aftur í sömu erindagjörðum. Þeir hafa síðan dæmt í öðrum Evrópulöndum og einnig á alþjóðlegum mótum. Báðir eru þeir fyrrverandi hand-. boltaleikmenn, Anusic er Króati og Bosjem er Dani en báðir eru þeir búsettir vestra og hafa bandarískt vegabréf. -JKS Þrír áttu afmæli í gær Guðmundur Hrafnkelsson, landsliðsmarkvörður í hand- knattleik, varð 38 ára gamall í gær en hann er bú- inn að leika með lands- liðinu í 15 ár. Stefán Amaldsson milliríkja- dómari, sem Guömundur dæmir á Hrafnkelsson heimsmeist- aramótinu, varð 45 ára í gær. Þýski landsliðsmaðurinn Daniel Stephan, sem leikur með Lemgo, átti einnig afmæli í gær en þá varð hann 26 ára. Hann leikur hins vegar ekki með lið- inu í keppninni vegna meiðsla sem hann hlaut skömmu fyrir mótið og er útlit fyrir að hann leiki ekkert meir á þessu tíma- bili. Hann lýsir leikjum þýska landsliðsins á heimsmeistara- mótinu í sjónvarpi. -JKS w------------------- Svíinn frægi Mats Olsson er aðstoöarþjálfari portúgalska liösins og hefur löngum reynst íslenska liðinu erfiöur. DV- mynd Hilmar Þór

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.