Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2003, Síða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2003, Síða 29
MIÐVTKUDAGUR 26. MARS 2003 29 DV Ig' jgWf y Tryggvi iim fyrir Heiðar Framheijinn Heiðar Helguson, sem liösþjálfari valið Tryggva Guðmunds- leikur með Watford I ensku 1. deildinni, son, framherja Stabæk, í staðinn fyrir hefur dregið sig út úr landsliðshópnum Heiðar. fyrir leikinn gegn Skotum vegna Tryggvi hefur leikið 29 landsleiki og meiðsla og hefur Atli Eðvaldsson lands- skorað í þeún átta mörk. -ósk Rofpostur: dvsport@dv.is son verður í stöðu vinstri bakvarðar. Undirritaður hefur áður lýst yfir þeirri skoðun sinni að Amar Þór sé ekki nægilega sterkur vamarlega til að standast áhlaup sterkari liða - nokkuð sem hefur berlega komið í ljós i síðustu landsleikjum - en hann er hins vegar góður að bera upp bolt- ann og í raun meiri kantmaður held- ur en bakvörður. Ef Atli stiilir upp fimm manna varnarlínu aukast möguleikar hans á að koma framar á völlinn þegar við sækjum án þess að skilja eftir svæði á bak við sig. Atli heldur væntanlega tryggð við Bjarna Þorsteinsson í hægri bak- verðinum þrátt fyrir að Bjami hafi ekki heillað marga með frammistöðu sinni gegn Skotum og Litháum. Bjarni er öflugur í loftinu, harður og fylginn sér og mun hagnast á því ef Atli spilar með fimm manna vöm. Bjarni er hins vegar afar slakur í því að koma boltanum í spil en Atli mun væntanlega freista þess að láta Am- ar Þór sjá um þá hlið mála á hinum vængnum. Gylfi Einarsson virtist, ef marka má leikinn gegn Andorra, ekki vera tilbúinn og Indriði Sig- urðsson er senniiega of reynslulítill til að leysa Amar Þór af vinstra megin, jafnvel þótt Indriði sé sterk- ari vamarlega en Arnar Þór. Þarf aö sanna sig Með Guðna i miðverðinum verða væntanlega ívar Ingimarsson og Lár- us Orri Sigurðsson. ívar hefur öðlast nýtt líf hjá Brighton og kemur vænt- anlega fullur sjálfstrausts til leiks. Hann náði sér ekki á strik í lands- leikjunum síðasta haust en mun, eins og Bjami, hagnast á því að hafa Guðna fýrir aftan sig sem stjóm- anda. ívar er sterkur í loftinu og grimmur, virkaöi taugaóstyrkur í leikjunum síðasta haust en það er vonandi liðin tíð. Láras Orri þarf að sanna sig í landsliðinu á nýjan leik. Hann dró sig út úr hópnum eftir Skotaleikinn í fyrra vegna atviks á skemmtistað í Reykjavík og hlýtur að ætla að sýna mönnum hvað í honum býr. Láras Orri spilaði að mínu mati þokkalega gegn Ungverjum og Skotum og það má alltaf ganga út frá því sem vísu að hann gefi sig allan í það verkefni sem hann tekur sér fyrir hendur. Hann er hins vegar enginn stjóm- andi frekar en ívar og mun njóta góðs af tilkomu Guðna. Þrír eöa fjórir á miðjunni? Það er síðan spuming hvemig Afli stillir upp miðjunni - hvort hann verður með þrjá eða fjóra menn þar. Það er öraggt að Brynjar Bjöm Gunnarsson verður í byrjun- arliðinu. Hann er ótrúlegur baráttu- jaxl, er í mun betra formi heldur en síðasta haust þegar hann var nýstig- inn upp úr meiðslum og það er eng- inn betri í íslenska liðinu að vinna návígi inni á miðjunni. Allt útlit er fyrir að Atli ákveöi að spila ekki með kantmann vinstra megin. Amar Þór er sókndjarfur og Atli hefur margoft sagt að hann vfiji halda vinstri kantinum opnum fyrir Eið Smára sem hefur tiiluieigingu til að fara þangað og sækja síðan inn á miðju. Það er í raun aðeins einn leikmað- ur sem kemur til greina ef Atli spil- ar með kantmann hægra megin, Þórður Guðjónsson. Þórður er eld- fljótur, með góðar fyrirgjafir en vandamálið með hann likt og bróður hans, Jóhannes Karl, er að þeir vilja frekar spila á miðjunni heldur en kantinum, verða oft óþolinmóðir og halda ekki nægilegri breidd til að nýtast sem best. Jóhannes Karl hef- ur hins vegar sýnt með Aston Villa, þegar hann hefúr náð hemja skap sitt, að hann er öflugur miðjumaður sem getur bæði unnið boltann og komið honum frá sér til samherja. Líklegt byrjunarlið íslands gegn Skotum Amar Grétarsson, sem hefur ver- ið að spila skínandi með Lokeren í vetur, er mjög vel spilandi en hann hefur átt það til að týnast þegar mik- ill hraði er í leikjum íslenska liðsins, nokkuð sem hægt er að vera viss um að verður uppi á teningnum á laug- ardaginn. Þá er ótalinn Rúnar Kristinsson, fyrirliði liðsins. Hann hefur verið hjartað og sálin í íslenska iiðinu og sá leikmaður sem skapar mest. Hann er mjög vel spilandi og það er lykil- atriði fyrir íslenska liðið að hann nái sér á strik í leiknum. Hann átti sennilega sinn daprasta landsleik frá upphafi gegn Skotum síðasta haust og vm væntanlega kveða þann draug niður. Rúnar verður annaðhvort á miðri miðjunni eða fyrir framan miðjumennina þrjá og virkar þá sem tenging á miili miðju og og okkar eina sóknarmanns, Eiðs Smára Guðjohnsens. Þarf aö eiga toppleik Til þess að íslenska liðið eigi mögmeika í leiknum gegn Skotum þarf liðið á því að halda að Eiður Smári eigi toppleik. Hann er eini leikmaður liðsins sem hægt er að kalla stórstjömu og jcifhframt sá eini sem getur unnið leiki upp á eigin spýtur. Landsliðið þarf Eið Smára í þvi formi sem hann var í síðari hálf- leik gegn Litháen. Það þarf hann í allar níutíu mínútumar gegn Skot- um, á fúllri ferð til að eygja mögu- leika á sigri, ekki kafla og kafla eins og raunin hefur verið í síðustu leikj- um. Skoska liðið, sem kom til íslands í október, lét lítið fyrir sér fara á pappírunum. Liðið var sært eftir jafntefli gegn Færeyingum, fjölmiðl- ar þar ytra kepptust við að minnka væntingamar til liðsins og það brást við á réttan hátt. Skoska liðið var mun betra en það íslenska í leikn- um, mun skipulagöra og með mikið til meira sjálfstraust heldur en það íslenska. Skoska liöiö er sterkara nú Liðið sem mætir íslendingum á laugardaginn er sterkara því í hóp- inn hefur bæst framherjinn Don Hutchinson frá West Ham. Hann hef- ur látið lítið fyrir sér fara í ensku úr- valsdeildinni en hefur haft þann vana að spila alltaf vel með skoska landsliðinu. Þar spilar hann sem framherji og því ætti að vera meiri ógn í skosku sókninni heldur en í síðasta leik. Skotar munu að öllum líkindum spila með sömu þriggja manna vöm- ina og gegn íslendingum með þá Steven Pressley, Christian Dailly og Lee Wilkie. Gary Naysmith verður á vinstri vængnum en óvíst hver leys- ir Maurice Ross, sem er í banni, af á hægri vængnum. Paul Lambert og Barry Ferguson ráða rikum á miðj- unni og frammi verða væntanlega þeir Stephen Crawford og Don Hutchison þó Kenny Miller, sóknar- maður Wolves, gæti hugsanlega komið inn fyrir Crawford. Þetta lið er ekki samansafn bestu knattspyrnumanna í heimi - þvi er langur vegur frá - en liðið er vel skipulagt og baráttuglatt. Helstu veikleikar liðsins era svæðin á milli vamarmannanna og vængmann- anna sem eiga það til að vera opin. Það nýttu írar sér með góðum árangri í leik liðanna í síðasta mán- uði og spuming hvort Atli Eðvaldsson hefúr dregið einhvern lærdóm af því. Enn á byrjunarreit Þegar öllu er á botninn hvolft þá stendur Atli frammi fyrir því vanda- máli að hann er enn á byrj- unarreit enda þótt leikur- inn gegn Skotum sé þriðji leikur liðsins í und- ankeppni EM. Vamarleik- urinn hefur ekki verið traustvekjandi, miðjan hef- ur átt í vandræðum með að koma boltanum frá sér, kantspilið hefur verið ósýnilegt og langar send- ingar fram á sóknarmenn liðsins hafa engu skilað. Atli þcirf að byrja upp á nýtt og með þrjá daga til stefnu er eins gott fyrir hann að bretta upp ermam- ar og byija að púsia liðinu saman strax þegar það hittist á flugvellinum í Glasgow i dag - ekki veitir af. Árangur síöustu þriggja ára: fr landsliðið á íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu er nú að hefja fjórða ár sitt undir stjórn Atla Eðvalds- sonar, landsliðsþjálfara. Atli tók við liðinu af Guðjóni Þórðarsyni í ársbyrjun 2000 og liðið náði frábærum árangri í upphafi undir hans stjórn en eng- inn landsliðsþjálfari hefur stjórn- að landsliðinu í fyrstu fimm leikj- unum án þess að tapa. tslenska liðið vann fjóra leikir og gerði 1 jafntefli í fyrstu 5 leikjunum und- ir stjóm Atla. Eftir þetta fyrsta ár hefur gengi liðsins verið á hraðri niðurleið eins og sést vel á gröfunum hér fyrir neðan og aðeins 33% árangur náðist í fyrra. -ÓÓJ Arangur islenska landsliösins 2000 Sigurhlutfail Urslit leikja Sigrar____________J5 Jafntefli__________1 lÖR_____________3... Markatala 13-10 Árangur íslenska landsliösins 2001 Sigurhlutfall Urslit lelkja Sigrar ...__JL Jafntefli_______2 löe_____________5 Markatala 17-19 Arangur islenska landsliösins 2002 Sigurhlutfall J. Urslit leikja Jafntefli 2 Töp 5 Markatala 8-14

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.