Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2003, Page 4
4
FIMMTUDAGUR 27. MARS 2003
M
agasm
Óboðnir gestir í rúminu
Sænskur 38 ára gamall karlmaður missti stjóm á skapi sinu
þegar hann kom heim til sín á dögunum. Kærasta hans, 51 árs,
stundaöi þá ástarleiki af kappi með þremur ókunnugum mönn-
um í rúmi kærustuparsins.
Svíinn, sem hafði verið aö skemmta sér á næturklúbbi í
Malmö réðst að mönnunum með hnífi og slasaði einn þeirra.
Hinir tveir gestimir og kærastan náðu að flýja. Þegar lögregl-
an kom á staðinn neitaöi kærastinn að opna og urðu verðir lag-
anna að brjóta upp hurð til aö komast inn. Karlmennimir
fimm og konan voru ofurölvi þegar þetta átti sér stað.
Nýtt heimsmet í spilakassa
25 ára gamall karlmaður frá Los Angeles mun seint
gleyma því er hann reyndi fyrir sér á dögunum í spilakassa
í anddyri hótels í Las Vegas.
Bandaríkjamaðurinn var búinn að eyða rúmum sjö þús-
und krónum í spilakassann þegar mikil óhljóð tóku aö ber-
ast frá apparatinu. Hinn ungi spilari hafði unnið 3,5 millj-
arða króna og er það hæsti vinningur í spilakassa sem vit-
að er um í heiminum til þessa. Maðurinn sem er kerflsfræð-
ingur að mennt ætlar að láta sem ekkert hafi gerst og halda
áfram í vinnu sinni.
Grasib gott á kenderíi
Belgískur ökumaður var handtekinn af lögreglu í ná-
grenni bæjarins Aalst. Ökumaðurinn hafði yfirgefið bifreið
sína, skriöið á fjórum fótum inn á grasflöt við vegarkantinn
og var á beit þegar lögregluna bar að garði eins og hvert
annað húsdýr.
Ökumaðurinn reyndist ölvaöur. Fyrir rétti sagði hann að
sér þætti fátt betra en að bíta gras þegar hann væri á kend-
eríi. Þá smakkaðist grasið eins og spínat. Belginn missti
ökuréttindin í 45 daga og var sektaður um rúmlega 86 þús-
und krónur.
í Helgarblaði DV á laugar-
daginn veröur fjallað um
vændi á íslandi og mismun-
andi birtingarform þess síð-
ustu 100 árin eða svo.
Rætt verður við Jón A.
Baldvinsson, nýkjörinn
vígslubiskup á Hólum, sem
fékk embættið með úrskurði
ráðherra eftir hnífjafna kosn-
ingu.
DV ræðir við Guðjón Arn-
ar Kristjánsson, formann
Frjálslynda flokksins sem
nýtur vaxandi gengis í könn-
unum.
Rifjaður er upp ferill og
helstu verk uppreisnarseggs-
ins Michaels Moores sem
gerði allt vitlaust við afhend-
ingu óskarsverðlaunanna.
Einnig er fjaUað um frels-
un Bush Bandaríkjaforseta
frá óreglu og endurfæðingu
hans i Kristi og hvernig trúin
mótar stefnu hans og viðhorf.
ítarlega er fjaUað um vís-
indi ástarinnar sem ræna
okkur sjálfstæðum vilja og
stjórna okkur með hormón-
um, boðefnum og ýmsum
hræringum af því tagi.
wmm
,Mér flnnst alltaf skemmtilegast að sauma úr bláum efnum. En þegar þú nefnlr þaö kemur auövltað líka alveg tll grelna aö sauma flík úr grænum og rauð-
um llt sem eru elnkennlslltir Vlnstri grænna, flokksins sem ég er í framboði fyrir,“ segir Þórey Edda Elísdóttir.
STERÍÓ 895 OG MAGASÍN
KYNNA STERÍÓUSTANN TOPP 20
26. MARS - 01. APRÍL 2003
Nr. SfÐAST LAG FLYTJANDI VIKUR
1 (2) Slng for the moment Eminem 5
2 (D Tu Es Foutu In-Grid 7
3 (3) Blowing me up... JC Chazes 7
4 (6) Bump bump bump B2K & P. Diddy 6
5 (10) Bring me to life Evanescense 4
6 (4) L’italiano SiCilians 4
7 (13) Mesmerize Ja Rule feat. Ashanti3 3
8 (8) Sáþig Þórey Heiðdal 2
9 (9) Wreckoning Boomcats 4
10 (14) 1 drove all night Celine Dion 4
11 (nýtt) All 1 Have J. Lo. & L.L. Cool J 1
12 (17) Damaged TLC 4
13 (15) Drottningar Á móti sól 2
14 (18) Scandalous Mis-Teeq 2
15 (16) In Da Club 50 Cent 2
16 (5) Shape Sugarbabes / Sting 9
17 (nýtt) Being Nobody Liberty X & Richard X 1
18 (nýtt) Rock your body Justin Timberlake 1
19 (nýtt) Your a superstar Love Inc 1
20 (nýtt) Automatic Sarah Whatmore 1
ADDI ALBERTZ KYNNIR LISTANN
ÖLL MIÐVIKUDAGSKVÖLD KL 22:00
[www.sterio.is]
Haföu óhrlf á val llatans og veldu þín lög á www.8teiio.is
Stangarstökkvarinn Þórey Edda kemur á óvart:
Situr vib sauma
vélina í laumi
Stangarstökkvarinn Þórey Edda El-
ísdóttir býr yfir fleiri og meiri hæfi-
leikum en almennt hafa verið kunnir.
Flestum á óvart kom hún fram á sjón-
arsviðið fyrir skemmstu sem skelegg-
ur frambjóðandi Vinstrihreyfingar-
innar - græns framboðs. Nú bætir
hún enn um betur - og sýnir enn eina
nýja hlið á sér. Á menningarkvöldi
flokksins á veitingahúsinu A Hansen
í Hafnarfirði, sem verður nú á föstu-
daginn, er hún gestgjafi og sýnir föt,
hönnuð og saumuð af henni sjálfri.
Auk þessa verða svo á dagskrá marg-
vísleg önnur atriði.
Pils úr gömlum gallabuxum
„Mér hefur alltaf fundist gaman að
sauma og gríp í það eins og tök leyfa.
Stundum sauma ég kannski þrjár flík-
ur á viku en þess á milli ekkert í lang-
an tíma þegar annriki er, eins og hef-
ur verið undanfarið," segir Þórey
Edda.
Hún kveðst hafa fengist við að
sauma dragtir, buxur og raunar ótal-
margt fleira. Mest segist hún leggja
upp úr því aö fatnaðurinn sé sterkur
og endingargóður .. og að flíkin
hangi saman. Mér finnst nákvæmnin
ekki skipta öllu máli,“ bætir hún við
og hlær.
I saumaskap sínum kveðst Þórey
Edda fylgja ýmsum grunnsniðum sem
til eru. „Ég hef hins vegar ekki þolin-
mceði til að fylgja þeim nákvæmlega
og útfæri þau eftir minu höfði. Hef til
dæmis búið til þrjú pils úr gömlum
gallabuxum sem ég átti og þar spilaði
ég þetta bara eftir eyranu."
Engin minnimáttarkennd
Þórey Edda kveðst hafa numið nátt-
úruna til þess að fást við saumaskap
meðal annars frá móðurömmu sinni,
Brynhildi Kristinsdóttur. Þá hafi
langamma hennar, Ráðhildur Björns-
dóttir, verið mikfl hannyrðakona og
af þeim báðum hafi hún mikið lært -
og sem stelpa hafi hún og systkini
hennar gjarnan gengið í fótum saum-
uðum af þeim.
„Þó ég grípi oft í að sauma mín eig-
in fót og gangi oft og tíðum i þeim er
slikt þó alls ekki algilt. Ósjaldan fer ég
út i búð og kaupi tilbúin fót. Og oft
finnast mér fótin sem ég sauma sjálf
standast samkeppnina. Að minnsta
kosti er ég ekki með neina minnimátt-
arkennd," segir saumakonan, fram-
bjóðandinn og stangarstökkvarinn
Þórey Edda.
Saumað úr bláu
Lífið allt hefur sín sérstöku svip-
brigði og liti sem eru ótal fleiri en
þeir sem mynda regnboga himinsins.
„Mér fmnst alltaf skemmtflegast að
sauma úr bláum efnum. En þegar þú
nefnir það kemur auðvitað líka alveg
til greina að sauma flík úr grænum og
rauðum lit sem eru einkennislitir
Vinstri grænna, flokksins sem ég er í
framboði fyrir. Að minnsta kosti er
hugmyndin góð og vel þess virði að
hugleiða hana.“
-sbs