Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2003, Síða 6
6
FIMMTUDAGUR 27. MARS 2003
M
agasm
X>V
Nýtt bílablað D\ hefur
göngu sína um helgina:
F )• •• I jol breytn in
verbur okkar
sérstaba
segir Njáll Gunnlaugsson umsjónarmaáur
Á fóstudaginn kemur út nýtt bila-
blað á vegum DV sem dreift verður
m.a. á allar bflasölur, bflaumboð og
bensínstöðvar og mun liggja þar
frammi frítt. Að auki mun það fylgja
Helgarblaði DV til áskrifenda. „Sér-
staða bílablaðs DV verður íjölbreytnin.
Ætlunin er að fjalla meira um mótor-
sport sem DV hefur sinnt mjög vel í
DV-Sporti hingað til líka. Einnig er
reynsluakstur nýrra bila stór hluti af
umfjöllun DV og enginn annar prent-
miðill jafnstór í þeim efnumsegir
Njáll Gunnlaugsson í samtali við DV
Magasín. Hann verður annar tveggja
umsjónarmanna blaðsins. Hinn er Geir
A. Guðsteinsson.
Fréttir og fróðleikur
Bílablaðið verður 24 siður að öflu
jöfnu og jafnvel stærra þegar svo ber
undir. Þannig hefur DV á ári hverju
gefið út nokkur aukablöð um bfla og
mótorsport. Verður því haldið áfram
eins og tilefni þykir til. „í bílablaðinu
ætlum við okkur að leggja áherslu á
fréttir, innlendar og erlendar. Einnig
verður umfjöllun um notaða bíla og
fleira," segir Njáll.
Að sögn Njáls verður bílablaðið fyr-
ir fleiri en þá sem helteknir eru af bfla-
dellu. „Við viljum nálgast meira þarfir
hins almenna lesanda sem stundum
hefur gleymst í umíjöllun um bíla hér
á landi. Við munum við efnisöflun
vegna þessa blaðs verða í góðu sam-
bandi við grasrótina."
Bíll ársins
Spáð er mikifli aukningu í bílasölu á
næstunni - og fer það saman við að
margt spennandi er að gerast i bfla-
menningunni um þessar mundir. Nýj-
ar tegundir koma til dæmis inn á
markaðinn og spáð er mikifli aukn-
ingu í bflasölu á næstunni.
„Þessa dagana er ég að prófa sér-
búna útgáfu af 7-línu BMW sem er al-
gjört tækniundur," segir Njáll. „Það
styttist líka í stóra útgáfu blaðsins sem
kemur í stað hins árlega aukablaðs um
bflamarkaðinn. Þar er farið vel ofan í
markaðinn og tfl dæmis birt tafla sem
inniheldur upplýsingar um hvem ein-
asta nýjan bfl sem er á markaði hverju
sinni. Einnig munum við velja bfl árs-
ins á næstunni sem DV haíði frum-
kvæði að hérlendis fyrir tveimur ár-
um.“ -sbs
Bílablaðamenn DV. Njáll Gunnlaugsson og Geir A. Guðsteinsson hafa umsjón með bíiablaði DV sem nú er að fara af stað.
„Vlð viljum nálgast meira þarfir hins almenna lesanda sem stundum hefur gleymst í umfjollun um bíla hér á !andi.“
Upplýsingar veitir auglýsingadeild í síma 550-5000.
Á föstudaginn kemur út nýtt
bílablað á vegum DV sem dreift verSur
m.a. á allar bílasölur, bílaumboð og bensín-
stöðvar og mun liggja þar frammi frítt. Að auki mun
það fylgja Helgarblaði DV til áskrifenda.