Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2003, Qupperneq 8
8
FIMMTUDAGUR 27. MARS 2003
DV
Konan
ba
Um miðjan fimmta
áratuainn var
Ingria Bergman
skærasta stjarnan í
Hollywood. Ekkert
lát virtist ætla crð
verba á vinsældum
hennar og hún var
ímynd hinnar full-
komnu konu. En jpá
olli hún óvæntasta
hneyksli í sögu
Hollywood og var
úthrópuð sem spillt
og siolaus kona.
Ingrid fæddist árið 1915 í Stokk-
hólmi og var skírð í höfuðið á sænsku
krónprinsessunni. Hún var þriggja
ára þegar þýsk móðir hennar lést úr
lifrarsjúkdómi. Ingrid ólst upp hjá fóð-
ur sínum, var miðpunktur lífs hans og
hann örvaði listgáfur hennar og ein-
staklingseinkenni. Hann lést úr
krabbameini þegar hún var þrettán
ára. Föðursystir Ingridar tók þá við
uppeldi hennar en lést sex mánuðum
seinna. Ingrid ílutti þá til frænda síns
og fjölskyldu hans. Hún var feiminn
og viðkvæmur unglingur sem lokaði
sig inni tímunum saman og lék ímynd-
uð hlutverk í einrúmi. Þegar hún
hafði aldur til fór hún í konunglega
leiklistarskólann en hætti ieiklistar-
námi til að gerast kvikmyndaleikkona.
Hún giftist tannlækni, Petter Lind-
ström.
Frægð í Hollywood
Tuttugu og þriggja ára hafði Ingrid
leikið í ellefu myndum. Hún fékk til-
boð frá Hollywood og fluttist með eig-
inmanni sínum og ungri dóttur til Los
Angeles og lék þar á næstu árum í
fjölda mynda. Frægust er Casablanca
en Ingrid fékk óskarsverölaun fyrir
leik sinn í myndinni Gasljós og vakti
einnig mikla athygli i myndum Al-
freds Hitchcock, Spellbound og Notor-
ious.
Ingrid varð ekki einungis ein
þekktasta kvikmyndaleikkona Banda-
ríkjanna heldur einnig ein sú virtasta.
Hún þótti skera sig úr hópi leikkvenna
í Hoflywood fyrir fegurð og tilgerðar-
leysi og varð imynd hinnar hrein-
lyndu og saklausu konu. Opinberlega
lék hún hina trygglyndu eiginkonu en
raunveruleikinn var allt annar. Hjón-
in áttu lítið sameiginlegt, Ingrid var
vansæl í hjónabandinu og átti í ástar-
samböndum utan þess.
Örlagaríkf bréf
Árið 1948 skrifaði Ingrid ítalska
leikstjóranum Roberto Rossellini og
sagðist vilja gera mynd með honum.
Rossellini hélt til fundar við hana í
Bandaríkjunum og bauð henni hlut-
verk í Stromboli sem var tekin upp á
ítölsku eyjunni. Ingrid og Rossellini
urðu ástfangin og Ingrid skrifaði
manni sínum og bað hann um skilnað.
Hún hikaði við að senda bréflð og það
var Rossellini sem þreif það af henni
til að koma þvi i póst en áður sýndi
hann það vinum sínum. Og þannig
láku fréttimar af skilnaði til italskra
blaða. Hafnir Stromboli fylltust af bát-
um með blaðamönnum og ljósmyndur-
um. Fjölmiðlar ærðust siðan þegar
fréttist að Ingrid væri barnshafandi.
Ingrid náði ekki að skilja við eigin-
mann sinn áður en hún fæddi son
þeirra Rossellinis. Skömmu eftir fæð-
inguna kvaddi þingmaður sér hljóðs á
Bandaríkjaþingi og fordæmdi Ingrid
fyrir að hafa yfirgefið mann sinn og
dóttur og sagði að henni ætti aldrei
framar aö leyfast að stíga á banda-
ríska jörð. Henni bárust þúsundir
bréfa viðs vegar að þar sem menn ann-
að hvort fordæmdu hana eða lýstu yf-
ir stuðningi. Stuðningsbréf bárust
meðal annars frá Cary Grant, Emest
Hemingway, George Simenon og John
Steinbeck. Á tæpu ári voru rúmlega
38.000 blaðagreinar skrifaðar i Banda-
ríkjunum um skilnað Ingridar og sam-
band hennar við Rossellini.
Lindström fékk forræði yfir Piu
dóttur þeirra. Úrskurðurinn var kveð-
inn upp eftir að Pia sagði dómara að
hún vildi vera hjá foður sínum, hún
elskaði ekki móður sína heldur kynni
vel við hana og saknaði hennar ekki.
„Ég hef ekki séð nægilega mikið af
henni til að geta raunverulega elskað
hana. Pabbi hefur aðallega séð um
Með fyrsta eiginmanni sínum, Petter Lindström. Hann var stjórnsamur í
sambandlnu, þau voru gjörólík og hún átti í nokkrum ástarsamböndum
utan hjónabands áöur en þau skildu.
Frægasta hlutverk Ingridar var í myndlnni Casablanca þar sem mótleikari hennar var Humphrey Bogart. Myndin
þykir enn meðal bestu rómantísku mynda sem geröar hafa verið.
mig. Ég var mest með honum,“ sagði
Pia.
Ingrid og Rossellini gifust og eign-
uðust þijú böm. Þau unnu saman að
sex myndum sem allar fengu vonda
dóma og dræma aðsókn. Fjárhagur
þeirra var bágborinn og Rossellini
bannaði Ingrid að vinna með öðrum
leikstjórum en honum. Hann var ráð-
ríkur í sambandi þeirra og afar mis-
lyndur. Auk þess var hann sjúklega af-
brýðisamur og var henni ekki trúr.
„Gjöfult lífy/
í óþökk ráðríks eiginmanns ákvað
Ingrid að taka að sér hlutverk
Anastasíu í samnefndri mynd um
rússnesku keisaradótturina sem átti
að hafa sloppið lifandi frá bolsévikum
(sem síðar sannaðist að hún hefði ekki
gert). Ingrid fékk óskarsverðlaun fyrir
leik sinn.
„Mér finnst líf mitt hafa verið dá-
samlegt," sagði Ingrid Bergman þegar
hún sneri til Bandaríkjanna eftir sjö
ára fjarveru til að taka við verðlaun-
um gagnrýnenda fyrir leik sinn í
Anastasíu. „Ég hef gert það sem mér
hefur fundist vera rétt. Ég fékk hug-
rekki í vöggugjöf og allnokkra ævin-
týraþrá og það hefur fleytt mér áfram
ásamt skopskyni mínu og nokkru af
heilbrigöri skynsemi. Þetta hefur ver-
ið gjöfult líf.“
Þingmaður stóð upp á Bandaríkja-
þingi og sagði tímabært að biðja
Ingrid Bergman afsökunar á þeirri for-
dæmingu sem hún hefði orðið fyrir,
hún myndi alltaf eiga pláss í hjörtum
Bandaríkjamanna sem einn besti leik-
ari samtímans.
Ingrid og Rossellini skildu eftir sjö
ára stormasamt hjónaband og Ingrid
giftist sænskum leikhúsframleiðanda,
Lars Schmidt. Þau slitu samvistum
eftir sautján ára hjónaband.
Lifaö fyrir vinnuna
Ingrid sagði vini sínum eitt sinn að
Ingrid í hlutverki Maríu í Hverjum klukkan glymur. Hún sóttist ákaft eftir
hún heföi meiri áhuga á að fá orðið
„leikkona" letrað á legstein sinn en
orðin „eiginkona" eða „móðir“. Henni
þótti vænt um böm sín en þau höfðu
ekki forgang i lífi hennar fremur en
eiginmenn hennar og ástmenn. Einn
ástmanna hennar, harmónikuleikar-
inn Larry Adler, sagði um hana:
„Maður hreifst af fegurð hennar en
manni fannst eins og hún hefði aldrei
lesið bók. Hún hafði engan áhuga á
þjóðfélagsmálum. Ég held að Ingrid
hefði tekið að sér hlutverk í góðri
kvikmynd fyrir hvem sem var, jafnvel
fyrir nasista. Hún var mjög ákveðin
kona. Hún lifði fyrir vinnu sína. Og ég
held að enginn einstaklingur hafi ver-
ið henni jafn mikils virði og vinnan.“
Ingrid hóf nú Hollywoodferil að
nýju og lék í fjölmörgum kvikmyndum
og einnig á sviði. Þriðju óskarsverð-
launin hlaut hún fyrir leik sinn í
Morðinu í Austurlandahraðlestinni og
vann einn sinn stærsta leiksigur í
Haustsónötu Ingmars Bergmans. Þá
var hún fárveik af krabbameini en
heyrðist aldrei kvarta.
Örfáum dögum fyrir dauða sinn
sagði hún: „Ég er ekki hrædd við að
deyja. Líf mitt hefur verið auðugt. Ég
er sátt.“ Ingrid Bergman lést á 67. af-
mælisdegi sínum. -KB