Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2003, Page 17
16
FIMMTUDAGUR 27. MARS 2003
FIMMTUDAGUR 27. MARS 2003
17
I>V
„Eift þa& fyrsta sem ég man eftir mér vi& störf hér er árib 1978 þegar ég var
tíu ára. Þá var Lada Sport að koma á markaé og daglangt stóö
ég við áb skenkja viöskiptavinum kaffi. Síöan þetta var
eru liéin mörg ár og líklega hef ég unniö
flest störf sem hér falla til, —
nema kannski á
verkstæéinu.
við stýrið
w
Erna Gísladóttir, framkvæmdastjóri hjá
B & L, um vióskiptalífiö, draumabílinn og
lífsins bestu stundir meó fjölskyldunni
„Ég er ekki þeirrar skoöunar að viö-
skiptalífið sé lokaö konum. Með auk-
inni menntun, vilja og hæfileikum
komast þær í stjórnunarstöður. Kon-
um á toppnum mun fjölga ört á næstu
árum. Vissulega er bílabransinn
nokkuð karllægur og við erum fáar
sem erum í þessum geira viðskiptalífs-
ins. En þá verður maður að sanna sig
og geta talað af þekkingu um bíla og
helstu hugtök í því sambandi," segir
Ema Gísladóttir, framkvæmdastjóri B
& L og formaður Bílgreinasambands-
ins.
Meö puttann á púlsinum
I höfuðstöðvum fyrirtækisins við
Grjótháls í Reykjavík er konan við
stýrið. Við sitjum á skrifstofu Emu á
annarri hæð, en þar er gluggi sem gef-
ur gott útsýni yfir sölusalinn á jarö-
hæö. Spánnýir og spegilbónaðir bílar í
tugatali em um öll gólf.
„í starfl mínu flnnst mér nauðsyn-
legt að vera ekki eingöngu við skrif-
borðið. Það er gott að geta gripið í sem
flest störf hér innan fyrirtækisins.
Einnig gefur það mér tilfmningu fyrir
hlutunum að fara stundum niður í sal
og taka tali fólk sem kemur hingað og
er í bílahugleiðingum. Þegar ég sé út
um gluggann að fólk er niðri og biðröð
er eftir afgreiðslu fer ég stundum nið-
ur og tek það tali. Þannig fæ ég tæki-
færi til að hafa puttann á púlsinum,"
segir Ema.
Moskvits, Rússar og Volga
B & L er í grunninn fjölskyldufyrir-
tæki, stofnað snemma á sjöunda ára-
tugnum af Guðmundi Gíslasyni, afa
Emu, og viðskiptafélögum hans. Fyr-
irtækið flutti, til að byrja með, eink-
um inn bíla frá Sovétríkjunum. Fyrst
komu til landsins 100 stykki af Po-
bedu. í kjölfarið komu Moskvits,
Rússajeppar og Volga.
Síðan kom Ladan, en í áratugi var
B & L er aö stofni tii fjölskyldufyrirtæki og Erna var kornung
þegar hún var farin aö starfa þar. „Ég var snemma farin aö vinna hér í
fyrirtækinu. Ólst hér upp aö nokkru leyti.“
innflutningur hennar kjölfestan í
rekstri fyrirtækisins. Tugir þúsunda
Lada-bíla vom fluttir inn. Almennt
má segja um hina sovésku bíla að þeir
voru ódýrir og það átti sinn þátt í vin-
sældum þeirra.
Skenkti kaffi á
Lödu-kynningu
„Ég var snemma farin að vinna hér
í fyrirtækinu. Ólst hér upp að nokkru
leyti," segir Ema og kímir. „Eitt það
fyrsta sem ég man eftir mér við störf
hér er árið 1978 þegar ég var tíu ára.
Þá var Lada Sport að koma á markað
og daglangt stóð ég við að skenkja við-
skiptavinum kaffl. Síðan þetta var eru
liðin mörg ár og líklega hef ég unnið
flest störf sem hér falla til, nema
kannski á verkstæðinu. En ég hef ver-
ið á skiptiborðinu, skrifstofunni og
söludeildinni, svo ég nefni eitthvað.
Þegar launafulltrúinn hér fer í frí
leysi ég hana af. Svona er hægt aö
halda áfram. Ég held að í flestum fyr-
irtækjum, ekki síst þar sem eigend-
umir eru stjómendur, sé þetta svona.
Sem betur fer er ísland ekki svo stétt-
skipt þjóðfélag en þetta þykir ekki
sjálfsagt erlendis."
Tímarnir fram undan
bjartir
I dag er málum þannig háttað hjá B
& L að í brúnni eru fjórir aðalstjóm-
endur. Faðir Emu, Gísli Guðmunds-
son, er starfandi stjómarformaður.
Jón Snorri Snorrason er forstjóri og
Ema framkvæmdastjóri. Bróðir henn-
ar Guömundur er markaðsstjóri.
Verkaskipting er sú að Ema sér
meðal annars um samskipti við fram-
leiöendur þeirra bifreiða sem fyrir-
tækið hefur söluumboð fyrir hér á
landi. Á síöustu árum hefur sala
nýrra bifreiða hér á landi verið í lægð
- en er nú aftur að aukast.
„Salan fór í fyrra og hittifyrra niður
um nærfellt 50% frá því sem var. Þetta
var mikill samdráttur og raunar dýpri
dýfa en á samdráttarárunum 1992 til
1994. Bjartari tímar eru nú fram und-
an,“ segir Ema. í því sambandi bend-
ir hún meðal annars á að nú séu á göt-
unum um 37 þúsund bílar sem em
fimmtán ára eða eldri og þar af leið-
andi komnir á tíma.
Margir þeirra segir hún að séu frá
1986 til 1988, sem vom mikil upp-
gangsár á íslandi.
Hver man til dæmis
ekki eftir árinu
1987, sem var tekju-
skattsfrítt. Þá unnu
íslendingar baki
brotnu myrkranna
á milli og keyptu
sér nýja bíla fyrir
inntektina!
Getum gengió
út í búö
Islendingar leggja
talsvert upp úr því
að eiga og aka um á
góðum bílum, segir
Ema. Hún segir þetta meðal annars
helgast af aðstæðum og samgöngum
hér á landi. Fólk vilji líka geta komist
ferða sinna þegar hentar og þarf.
Þannig geti vakningardagar, þegar
fólk er hvatt til að nota ekki einkabíl-
inn, líka haft þann tilgang að leiða
fólki fyrir sjónir að einkabíllinn sé,
þegar allt kemur til alls, þarfasti
þjónninn á íslandi.
„Ég trúi þvi lika að ágætt sé að
hvetja fólk til hreyflngar,“ segir Ema.
„Við getum alveg gengið út í búð. Það
er ekki heldur alltaf nauðsynlegt að
skutla krökkunum með bO í skólann
eða á íþróttaæfmgar, heldur geta þeir
alveg gengið eða tekið strætó.“
Sjálfskiptir og jepplingar
BilamcU'kaður í hverju landi hefur
sín einkenni, að sögn Emu. Hér eru
þau meðal annars að Qórhjóladrifsbíl-
ar em algengari en víðast hvar annars
staðar. Tæplega þriðjungur allra
seldra bila er þannig. Sjálfskiptir bilar
njóta einnig mikilla vinsælda meðal
íslendinga.
„Helsta breytingin sem hefur orðið
á markaðinum síðustu árin er að æ
fleiri kaupa sér litla jeppa; jepplinga
sem eru kallaðir svo. Þeir hafa í rik-
um mæli komið i stað skutbíla sem áð-
ur voru algengir og margir keyptu.“
Milljón þræ&ir
Ema stundaði hagfræðinám í Há-
skóla íslands en allan sinn starfsferil
hefur hún unnið hjá B & L, að
undanskildum þeim tíma sem hún var
starfsmaður í fjármálaráðuneytinu, í
ráðherratíð Ólafs Ragnars Grimsson-
ar. Þar starfaði hún meðal annars við
Undir stýri. „í starfi mínu finnst mér nauösynlegt aö vera ekki eingöngu viö skrifboröiö. Þaö er gott aö geta gripið í sem flest störf hér innan fyrirtækisins.
Þannig fæ ég tækifæri til aö hafa puttann á púlsinum," segir Erna hér í viötalinu. Magasín-myndir GVA
fjárlagagerö og kynntist því hvemig
hið risastóra ríkiskerfi starfar og virk-
ar.
„Það var mjög lærdómsríkt að
kynnast þessu kerfi sem er býsna flók-
ið. Fjárlögin em i raun það sem allur
ríkisreksturinn byggist á og milljón
þræði þarf að tengja saman við þessa
lagagerð. Þama lærði ég meðal annars
talsvert í áætlanagerð og það hefur
komið sér mjög vel í því starfi sem ég
gegni nú. Áður fyrr var það svo að
bílaumboðin gátu ekki gert neinar
áætlanir eða spár um sölu nema út frá
þorskkvótanum. I dag er íslenskt hag-
kerfl og atvinnulífið hins vegar orðið
mun fjölþættara og taka þarf mið af
miklu fleiri þáttum.“
Nýjar tegundir komió til
Sem áður segir voru bílar fluttir inn
frá Sovétríkjunum það sem starfsemi
B & L byggðist á. Nú er innflutningur
þaðan úr sögunni en nýjar tegundir
hafa komið til.
Fyrir rúmum áratug kom Hyundai
frá Kóreu inn á markaðinn. Þá hefur
fyrirtækið umboðið fyrir Renault frá
Frakklandi og BMW frá Þýskalandi.
Árið 1996 bættist umboðið fyrir Land
Rover-jeppana viö. Sala á þeim hafði
þá legið í láginni hér á landi í nokkur
ár en nú eru þessir bílar til í þúsunda-
tali á íslandi.
Bernskubrek í Bröttu-
brekku
„Ég hef aldrei átt bOa aðra en þá
sem fjölskyldufyrirtækið flytur inn.
Með þeim fyrstu sem ég eignaðist var
Lada Sport, pabbi vildi að ég væri á
þungum og stórum klumpi því þannig
kæmist ég ekki hratt og færi mér ekki
að voða. Einhverju sinni tókst mér þó
að koma bílnum í 130, þegar við vor-
um nokkrir krakkar að fara niður
Bröttubrekku, á ferðalagi vestur í
Dali,“ segir Ema og hlær þegar þessi
bemskubrek ber á góma. Hún segir
bílinn þó alltaf hafa staðið fyrir sínu
og komið sér á áfangastað í vetrarum-
ferðinni. Fyrir það hafi mikið verið
gefandi.
Nú ekur hún um á Renault Lagxma,
árgerð 2002. Hún lætur vel af bílnum
sem er sjálfskiptur, með mjúk og góð
sæti og útvarpið er fjarstýrt. „Það er
nokkuð sem ég gæti varla verið án,
eftir að ég hef vanist slíkum þægind-
um. En líklega er þó Range Rover-
jeppi draumabíllinn minn,“ segir hún.
Afstressast í sumarbústað
Eiginmaður Emu er Jón Þór Gunn-
arsson heildsali og eiga þau tvö böm.
Dóttirin er Bessí Þóra sem er átta ára
og þriggja ára er sonurinn Einar Öm.
Samvera með fjölskyldunni segir Ema
að sé auðvitað sitt helsta áhugamál.
„Við gerum mjög mikið að því að
fara saman í sund,“ segir hún. „Síðan
flnnst okkur afskaplega gott að fara í
sumarbústað. Það er mjög þægilegt, og
raunar bráðnauðsynlegt, að eiga
svona athvarf fyrir utan borgina þar
sem hægt er að endumærast. Eitthvað
sem ég gæti tæplega verið án. En þá er
líka um að gera að njóta slíkra stunda
og forðast áreitið sem nóg er af í borg-
inni. Ég tek aldrei fartölvu með mér
og síðan er það sem mestan friðinn
gefur; að slökkva gjaman á gemsan-
um.“
-sbs
Á fáki fráum. „Viö getum alveg gengið út í búö. Þaö er ekki heldur alltaf nauösynlegt aö skutla krökkunum
meö bíl í skólann eöa á iþróttaæfingar heidur geta þeir alveg gengiö eöa tekiö strætó.1