Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2003, Side 18
18
FIMMTUDAGUR 27. MARS 2003
M
agasm
DV
Veiðiþáttur í DV-Magasíni:
Umsjón: Stefán Kristjánsson
Gott úrvcil af hnýtingarefni
Hnýtingarkrókar
Tvíkrækjur
Gull 390 kr. 10 stk.
Silfur 370 kr. 10 stk.
Svart 370 kr. 10 stk.
Jv ALLT FYRIR
J VEIÐIMANNINN
Mörkin 6 • 108 Reykjavík • Simi (354) 568 7090 • Fax (354) 588 8122
Það koma margar skemmtileg-
ar veiðisögur upp í hugann
núna þegar veiðitímabilið nálg-
ast óðfluga. Menn hafa svo sem
ekki haft mikið annað aö gera
síðustu mánuöina en að ylja sér
við skemmtilegar sögur og
hnýta sér flugur fyrir komandi
átök.
Veiðifélagar mínir tveir voru
oftar en ekki við veiðar
í Laxá á Refasveit sem
er skemmtileg og falleg
veiðiá nokkurn veginn
mitt á milli Blönduóss
og Skagastrandar.
Veiðin haföi gengið
betur hjá öðrum þeirra
en hinum eins og geng-
ur. Sá sem hafði sett í
fleiri laxa var skiljan-
lega borubrattari en
hinn og var farinn að
gera að gamni sínu við
félagann.
„Nú skulum við
byrja í Göngumanna-
hylnum eftir hvíldar-
tímann og ég skal segja
þér nákvæmlega
hvernig þú átt að fara
að þessu. Og ég get full-
vissað þig um að eftir
skamma stund verður
þú kominn í hópinn,“
sagði veiðimaöurinn
borubratti.
Veiðifélaginn hló aö þessum
gorgeir félagans en saman héldu
þeir þó í átt að Göngumanna-
hylnum strax og hvíldinni lauk.
Þeir höfðu veitt þama deginum
áður og séð nokkuð mikið af laxi
í hylnum. Lítið vatn var í ánni
og bjartviðri og því erfitt að
komast að fiskinum með flugu á
þessum viðkvæma stað. Laxinn
hafði bunkað sig ofarlega í hyln-
um og það var falleg sjón sem
blasti við veiðifélögunum.
„Núna ferð þú upp fyrir hylinn
og rennir maðkinum varlega
niður með klettinum. Lætur
hann síðan berast varlega neðar
og neðar og fyrr en varir verður
þú kominn með fisk á,“ sagði
aflaklóin.
Félaginn gekk í góðum sveig
frá hylniun og hvarf upp eftir.
Skömmu síðar kom hann niður
að ánni fyrir ofan veiðistaðinn
og kom sér fyrir á lítilli klöpp.
„Gerðu nú nákvæmlega eins og
Eftir nokkurn tíma tók veiði-
maðurinn að lyfta stönginni
hægt og rólega og viti menn:
Hann var á og þetta var greini-
lega lax af stærri gerðinni.
Eftir snarpa baráttu var laxin-
um landað og reyndist hann
vera 12 pund. Fallegur fiskur,
eins og raunar allir laxar þegar
þeir eru komnir á land.
ég sagði þér. Láttu maðkinn síga
hægt og rólega niður með klett-
inum og þá tekur hann í fyrsta
kastinu," sagði félaginn sem
fylgdist með. Veiðimaðurinn
brosti en fór i einu og öllu að
fyrirmælunum. „Nú fer hann að
taka. Vertu bara rólegur og
gefðu honum tíma þegar hann
byrjar að narta," sagði aflaklóin.
Ekki hafði hann lokið viö síð-
ustu setninguna þegar stangar-
toppurinn fór að titra. „Held-
urðu að þetta sé bleikjutittur?"
hrópaði félaginn en veiðimaöur-
inn lét sér hvergi bregða. Hristi
aðeins hausinn í mótmælaskyni.
„Þetta sagði ég þér. Það getur
verið gott að vera á veiðum með
mönnum sem vita hvað þeir eru
að segja,“ sagði félaginn. Veiði-
maðurinn var alsæll og hló mik-
ið að félaga sínum. Auðvitað var
þetta allt sagt í gríni. Léttleikinn
réð för og er alltaf nauðsynlegur
fylgifiskur í veiðitúrum. jÞessi
skemmtilega saga frá Göngu-
mannahylnum líður mér seint
úr minni. Fátt er betra en eiga
góða veiðifélaga að þegar kemur
að því að eyða dýrmætum tíma
við íslenskar veiðiár. Um það
verður frekar fjallað síðar.
skí&niagasin.is
Þríkrækjur
Gull 530 kr. 10 stk.
Silfur 470 kr. 10 stk.
Svart 470 kr. 10 stk.
Vlb Göngumannahyl í Laxá á Refasveit.
„Læknar kæra sig kannski ekki um að koma meira fram. Ef þeir hvetja
til aukins heilbrigöis fækkar iæknastöövum. Að margra áliti versnar
heilbrigöiskerfiö viö þaö,“ segir Hallgrímur.
Hallgrímur Magnússon læknir breytir ^
hugarfari og heilsu ó Djúpavogi:
Læknirinn sem fer
sínar eigin lei&ir
„Gríska orðið doktor þýðir sá sem
uppfræðir. Að mínu áliti er þetta það
sem læknar eiga að gera; fræða fólk
svo að það geti haldið heilbrigði sínu.
Þetta á einnig skylt við kínverska
heimspeki, en þar í landi fengu lækn-
ar einungis laun fyrir þá sem voru
frískir. Þegar einhver veiktist var
dregið af launum þeirra. Þetta er sú
sýn sem ég hef í lækningum," segir
Hallgrímur Magnússon, læknir á
Djúpavogi.
Ovenjulegar leiðir
í gegnum tíðina hefur Hallgrímur
Magnússon vakið athygli fyrir óvenju-
legar leiðir í heilbrigðismálum. Þær
hafa vissulega á stundum verið um-
deildar, rétt eins og verða vill þegar
fetaðar eru ótroðnar slóðir.
Hallgrímur lauk læknaprófi frá Há-
skóla íslands 1976, stundaði fram-
haldsnám við Sahlgrenska sjúkrahús-
ið í Gautaborg og aflaði sér þar sér-
fræðiréttinda í svæílngum og deyfmg-
um. Árið 1987 opnaði hann læknastofu
á Seltjamamesi þar sem hann lagði
áherslu á að meðhöndla verki með
deyfmgum, nálastungum og fleiri að-
ferðum. Síðan kynnti hann sér - og
fyrir öðrum - aðferðir sem hægt er að
nota til þess aö flýta fyrir því að sjúk-
lingar nái bata. Má þar nefna meðferð
með bætiefnum, breyttu mataræði,
sýn á gildi hugsunar og hreyfmgar,
nudd og fleira.
Apótekið hætti rekstri
Síðustu þrjú ár hefur Hallgrímur
verið læknir í Djúpavogslæknishér-
aði. Margt hefur breyst eystra fyrir
hans tilverknað. Það var fyrir tilstilli
Hallgrims að flestar konur staðarins
reimuðu á sig íþróttaskóna. Læknir-
inn dreif þær daglega með sér út að
ganga í tengslum við heilsuátak sem
hann kom af stað. Einnig efndi hann
til funda varðandi mataræði og kom á
framfæri upplýsingum tengdum góöri
heilsu.
Margt leiddi af þessu heilsuátaki.
Sala á ýmsum vörum ýmist dróst sam-
an eða jókst til muna. Mjólkursala
snarminnkaði, sala rjóma jókst og
Snickers-súkkulaði varð gjaman upp-
selt í kaupfélaginu. Heilsuátaksdöm-
umar skyldu framvegis nota rjóma út
á hafragrautinn og fá sér Snickers
þegar vantaði sætindi og orku.
Apótek staðarins hætti rekstri
nokkru eftir komu Hallgríms á stað-
inn. Það er vissulega réttmæt spum-
ing hvort það hafi verið óbeint af hans
völdum, en inntakið í lækningastefnu
Hallgrims er að nota aðferðir við
lækningar - fremur en lyfjagjöf.
Fækkar læknastöðvum
„Við eigum að fræða einstaklinga
um hvað þeir geti gert til þess að við-
halda heilbrigði. Öll erum viö einstak-
lingar og það er ekki hægt að skipta
okkur í parta eins og nútíma læknis-
fræðin gerir. Að einn læknir sjái um
lungun, annar um magann og þannig
fram eftir götunum,“ sagði Hallgrímur
í samtali við DV-Magasín.
En em læknar nægilega gildandi í
þjóðfélagsumræðunni? Þurfa þeir ekki
að gera meira að þvi að hvetja fólk til
heilbrigðs lífemis? „Þeir kæra sig
kannski ekki um að koma meira fram.
Ef þeir hvetja til aukins heilbrigðis
fækkar læknastöðvum. Að margra
áliti versnar heilbrigðiskerfið við
það,“ segir Hallgrímur.
Berum sjólf óbyrgó
„Lyf em efni sem framleidd em í
verksmiðjum; em það sem náttúru-
læknisfræðin kallar dauö efni og geta
því aldrei komið okkur að neinu vem-
legu gagni. Það er kannski hitt að þeg-
ar viö fáum lyf er það trú okkar að
þau kalli fram virkni. Maður verður
að gefa einstaklingnum sem slíkum
gaum þegar hann biður um hjálp og
það em til margar leiðir," segir Hall-
grimur og heldur áfram:
„Mínar aðferðir era þær aö reyna
að leiða einstaklingnum fyrir sjónir
að það er hann sem ber ábyrgð á
heilsu sinni. Ég get lítið annað gert en
að veita honum leiðsögn."
Heilsufarið hefur batnaö
Heilsufar og sjúkdómar fólks aust-
ur á Djúpavogi em hinir sömu og ger-
ist annars staöar á landinu, segir Hall-
grímur. „Heilsufar fólks hér eystra er
sist verra en á öðrum stöðum á land-
inu. Ég held meira að segja að það hafi
batnað eftir að ég kom,“ segir Hall-
grímur.
Spurður um andlega sjúkdóma seg-
ir hann þá vissulega fyrirfinnast
eystra eins og annars staðar, „...en
þeir læknast ekki heldur með lyfjum.
Mataræði hefur mikil áhrif þar á, til
dæmis fituneysla, bakteríuflóran í
þörmunum og fleira."
Söngur og tilfinningar
Systir Hallgríms er sú fræga ópera-
söngkona Sigríður Ella Magnúsdóttir.
Ég spurði héraðslækninn hvort stund-
um kæmu til hans sjúklingar, bugaðir
á sál og sinni, og hann hvetti þá til að
syngja og létta á hjartanu.
„Já, ég hef fengið til mín sjúklinga
sem ég hef hvatt til þess að taka lagið.
Söngur er bara ein aðferð til þess að
láta tilfinningar í ljós. Einnig verðum
við að muna að hláturinn lengir lífið
og hugsun er til allra hluta fyrst. Mál-
ið snýst um árangur yfir lengri tíma -
og allt er undir hugaifari komið.“
-HEB