Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2003, Page 20
20
FIMMTUDAGUR 27. MARS 2003
Við biörqum bví
sem bjargaö verður
Góð
þjónusta
í50ár
EFNALAUG
ÞVOTTAHUS
Háaleitisbraut 58-60 • Sími 553 1380
Skrifborðsstólar
Villa stgr. 11.500.- Uniform stgr. 8.900.- Power stgr. 5.500.-
Mikið úrval
af hæðarstillanlegum stólum
í mörgum litum
Net stgr. 27.900.-
Duka stgr. 3.900.- Disco stgr. 26.000.- Libero stgr. 16.600.-
Armar á Uniform, Libero og Villa kosta 2.950,-
lm
YÍFlOlR
m
HUSGAGNAVERSLUN
REYKJAVÍKGRVEGI 66 HAFNARFIRÐI SÍMI 565 4100
feé&Þ Smáauglýsingar
byssur, ferðalög, ferðaþjönusta,
fyrir ferðamenn, fyrir veiðimenn,
gisting, golfvörur, heilsa, hesta-
mennska, Ijósmyndun, líkamsrækt,
safnarinn, sport, vetrarvörur,
útilegubúnaður...tÓIT1StundÍr
550 5000
agasin
Hvað ætlar þú að gera
um helgina:
Latínumessa
og Langholts
kirkjukór
„Dagskráin hjá mér þessa helgi er
mjög svo klippt og skorin," segir sr.
Jón Helgi Þórarinsson, sóknarprest-
ur í Langholtskirkju. „Ég er að fara
i árlegar æfingabúðir í Munaðarnes
með Langholtskirkjukórnum sem
ég syng með. Við erum að æfa verk
sem verður frumflutt um páskana
en það er eftir Hildigunni Rúnars-
dóttur. Þetta er fimm þátta verk.
Við erum aðeins komin með fyrstu
fjóra en ég vona að við fáum að sjá
þann fimmta fyrir helgi,“ segir sr.
Jón Helgi og það heyrist á rödd
hans að hann hefur ekki raunveru-'
legar áhyggjur af því.
„Það er alger skyldumæting í
þessar æfingabúðir," segir Jón
Helgi, „því að þær jafnast á við
margra vikna æfingu. Það verður
mikið æft og mikið lært. Þetta er
Þessar búðir jafnast á við margra vikna æfingar,
segir sr. Jón Helgi Þórarinsson
verk sem verður
flutt á latínu og
vonum við að þetta
eigi eftir að njóta
mikilla vinsælda
hér á landi sem og
annars staðar. Kost-
ur þess að verkið er
á latínu er náttúr-
lega það að hægt er
að flytja það hvar
sem er I heiminum. Þetta verk er
messa sem mun taka um klukku-
tíma í flutningi."
Langholtskirkjukórinn réð
Hildigunni til að semja messu í til-
efni af 50 ára afmæli kórsins sem
var 23. mars síðastliðinn. Kirkjan
sjálf átti 50 ára afmæli í fyrra.
„Verk Hildigunnar hefur gamalt
ívaf en einnig er í því djasstaktur,
Hildigunnur hefur sótt svolítið i
hann. Laugardagskvöldið fer svo í
árshátið kórsins og verður hún
einnig haldin i Munaðamesi. Þegar
ég fer svo heim seinni partinn á
sunnudeginum hugsa ég að ég eigi
bara eftir að eyða tíma með fjöl-
skyldunni en það er enginn sunnu-
dagsmessa hjá mér.“ -AÞÁ
Tónlistin í hlustunum:
Kynslóðirnar
og ColdPlay
„Segja má að ColdPlay sé í eftirlæti hjá mér þessa stundina. Ég sótti
hvora tveggju tónleika sveitarinnar sem voru haldnir hér á landi í
fyrra, flnnst sveitin vera fersk og lagasmíðamar jafnframt skemmtileg-
ar,“ segir Öm Kjartansson, framkvæmdastjóri Kringlunnar. „Einnig
er nýja platan með Norah Jones fin og mér fmnst þægilegt að hafa þá
tónlist í hlustunum yfir góðum kvöldmat.“ Öm á tvær dætur og segir
hann þá eldri - sem er sjö ára - mikið hlusta á Birgittu Haukdal og
írafár.
„Þannig kemst ég ekki hjá því að hlusta á þá poppmúsík sem er vin-
sælust í dag. Og líkar bara nokkuö vel. Sonur minn, sem er 16 ára, sér
síðan um að kynna mér það sem er nýtt fram undan í rokkheiminum,
þannig að hver kynslóð velur sína tónlist og líklega má telja mig, sem
er fæddur 196,6, til hinnar svonefndu diskókynslóðar.“ Af öðrum tón-
listarmönnum sem gjaman verða fyrir valinu hjá Emi, nefnir hann
meðal annars Elton John og jafnvel Moby eða Red Hot Chili Pepper ef
svo ber undir. „Mér finnst nánast öll músík skemmtileg og telst líklega
til alætuflokksins á tónlist," segir Öm og bætir við:
„Konan mín er síðan forfallinn Abba-aðdáandi svo plötur þeirrar
sænsku sveitar setur hún oft undir geislaspilarann á heimilinu en
maður veröur bara að taka því.“ -sbs
Vegalínur og
Jónas fró Hriflu
„Undanfarið hef ég verið að glugga í Vegalínur, smásagnasafn Ara
Trausta Guðmundssonar, sem komu út fyrir síðustu jól. Bókin hefur
komið skemmtilega á óvart en þarna skoðar höfundurinn heiminn og
ólikar aðstæður og segir frá í vel skrifuðum sögum. Allar eru þær
þannig að fróðleiksfús íslendingurinn er i aðalhlutverki og þannig get-
ur maður auðveldlega samsamað sig sögunum og persónum þeirra," seg-
ir Guðfinna B. Kristjánsdóttir, upplýsingastjóri Garðabæjar.
Guðfinna kveðst helst lesa skáldsögur - og nefnir þar meðal annars
bækur Amalds Indriðasonar. Meðal annars Röddina, nýjustu bókina
sem kom út fyrir síðustu jól. „Ég er búinn með ýmsar fleiri bækur Arn-
alds, eins og til dæmis Mýrina og Þögnina. Mér finnast sögumar fara
batnandi frá ári til árs,“ segir Guðfinna sem kveöst að öðm leyti vera
nánast alæta á fagurbókmeniitir.
„Svo er ég að komast á þann aldur að hafa gaman af ævisögum. Núna
í allmörg ár hef ég haft þriggja binda sögu Guðjóns Friðrikssonar um
Jónas frá Hriflu viö höndina. Mér tekst hins vegar seint að klára þær.
En þegar það verður loks afstaðið verður gaman að leggja til atlögu viö
aðrar bækur sem Guöjón hefur skrifað, svo sem sögur Einars Benedikts-
sonar og nú síðast Jóns Sigurðssonar forseta." -sbs
Bækurnar á náttbordinu:
„Sögur Arnalds fara batnandi frá ári
til árs,“ segir Guðfinna B. Kristjáns-
dóttir, upplýsingastjóri Garöabæjar.
„Mér finnst nánast öli músík
skemmtileg og telst líklega tll alætu-
flokksins á tónlist,"
seglr Orn Kjartansson.