Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2003, Side 22
22
FIMMTUDAGUR 27. MARS 2003
M,
agasm
Innlifun og léttleiki. Jó-
hanna V. Þórhallsdóttir,
stjórnandi kvennakórsins
Léttsveitar Reykjavíkur,
lifir sig inn í hlutverkið
enda verkefnlð ærið,
tvennir tónleikar þann
29. mars.
Léttsveit Reykjavíkur
með vortónleika:
Fljóð og fun-
heit tónlist
„Tónleikamir bera yflrskriftina Flóö og funi og tónlistin er funheit
eins og nafnið gefur til kynna,“ segir Jóhanna V. Þórhallsdóttir, stjóm-
andi kvennakórsins Léttsveitar Reykjavíkur. Vortónleikar kórsins
verða haldnir í Austurbæ þann 29. mars. Verða tvennir tónleikar þann
dag, bæði kl. 17 og 20.
Nikka og píanó
Dagskráin spannar allt frá finnskum tangóum til kórs sígarettustúlkn-
anna úr Carmen. Með kómum koma fram nokkrar gestastjömur; Snorri
Wiium tenór syngur einsöng, Wilma Young spilar á fiðlu, Matti Kallio á
harmóniku, Tómas R. Einarsson á kontrabassa og Aðalheiður Þorsteins-
dóttir, útsetjari og sérlegur píanóleikari kórsins, stjómar hljómsveitinni
og spHar á píanó.
Af íslenskum tónskáldum, sem koma við sögu á tónleikunum, má
nefna snillinga eins og Gunnar Þórðarson, Oddgeir Kristjánsson og
Tryggva Baldvinsson og af erlendum getum við nefnt Bizet og Dvorak.
Voðalega skemmtilegt
„í Léttsveitinni, sem var stofnuð 1995, eru 120 konur,“ segir Jóhanna.
„Við höfum æft stíft i allan vetur og erum ósmeykar aö blanda alls kyns
tónlist saman, Hljómasyrpu og Vínartónlist, eða brasiliskri sambatón-
list, frönskum dægurlögum og ástardúettum Dvoraks. Það má segja að
við syngjum á allra þjóða tungum. Annars emm við svo heppnar að kon-
ur í kómum okkar hafa samið texta við lögin okkar, þannig að efnis-
skráin er með fleiri íslenska texta en oft áður. í heildina verður efn-
isskráin fjölbreytt og okkur finnst hún voðalega skemmtileg líka,“ segir
Jóhanna að lokum.
-lrb.
I>V
Hesíaþáttur í DV-Magasíni:
hestasportto
Umsjón: Guðmundur Guðlaugsson - ek@ek.is
Stórkostleg
hestasýning
Vikuna 8.-16. mars var hald-
in hestasýning í Essen í Þýska-
landi sem heitir Equitana. Sýn-
ing þessi er haldin á tveggja ára
fresti og er þriðja stærsta sýn-
ing þar í landi. Áhorfanda-
fjöldi þessa viku er um 500-
700.000 manns.
Undirritaður átti leið þarna
um og skrapp tvisvar á sýning-
una. Undrun mín var mikil þeg-
ar ég sá hversu stórt sýningar-
svæðið var og hve fjölbreytnin
var mikil. Þó var búið að segja
mér frá þessu áður. Sýningar-
svæðið samanstendur af mörg-
um samliggjandi höllum og
stórri sýningarhöll. Stanslausar
sýningar eru 1 gangi og þar
koma fram flest öll ef ekki öll
hestakyn í heiminum. Þama
voru allar gerðir af hestum, frá
þvi að vera á stærð við stóra
hunda og upp í risastóra drátt-
arhesta. Arabískir hestar voru
þama og margir hestar voru
svo fallegir að maður gapti af
aðdáun. Vöraúrvalið var ótrú-
legt og þama áttaði maður sig
fyrst á því hversu mikill áhugi
er á hestamennsku í heiminum
og hversu stór þessi iðnaður er.
Ætli maður að skoða allt mjög
vel og spá í hlutina er lágmark
að koma þama í svona þrjá
daga.
Ég sá ótrúlega sýningu þar
sem nokkur ungmenni sýndu
frábæra reiðhæfileika á amer-
ískum „kúrekahestum". Þau
Mynlr frá hestasýningunnl í Essen í Þýskalandi.
hleyptu hestunum á harða-
stökki á meðan þau ýmist
héngu utan á þeim, stóðu ofan á
þeim eða skelltu sér í jörðina og
á bak aftur á fullri ferð. Gam-
an var að sjá hve hestamir
voru vel tamdir. Mikið var um
sýningaratriði á mótssvæöinu
þar sem hestakyn voru kynnt.
Islenski hesturinn
var meé
íslenski hesturinn var auðvit-
aö þama og nokkrir íslenskir
aðilar vora með bása þarna í
höll sem tileinkuð var töltandi
hestakynjum sem era, að ég
held, tvö eða þrjú fyrir utan ís-
lenska hestinn. Ekki veit ég
hvemig þessum aðilum gekk en
mér fannst ekki alveg eins mik-
ill fólksstraumur í þessa höll og
hinar en hún var reyndar í
minna lagi miðað við aörar
hallir. Þó var greinilegt að
þegar hestarnir voru sýndir
vöktu þeir mikla athygli. Básar
íslensku fyrirtækjanna voru
áhugaverðir og ég haföi gaman
af að skoða myndir sem þeir
sýndu af hestaferðum á íslandi.
Mekka hestamennskunnar
Ég tel að íslenskir hestamenn
ættu að skoða það að skella sér
á næstu sýningu sem verður
haldin árið 2005 í Essen. Þetta
er ótrúlega skemmtilegt fyrir
sanna áhugamenn um hesta-
mennsku og víkkar sjóndeildar-
hringinn.
Heimasíða sýningarinnar er
www.equitana.de
Skautahöllinni í Reykjavík 5. apríl.
ístölt 2003
Miðasala hefst
sunnudaginn 30.
mars í versluninni
ístölti.
iáöH
BÆJARLIND 2 • KÓPAVOGI
SÍMI 555 1100
Smáauglýsingar
tómstundlr og afþreying
550 5000