Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2003, Blaðsíða 24
24
FIMMTUDAGUR 27. MARS 2003
M
agasm
DV
Árinu eldri
Barði Frið-
riksson, fv.
framkvæmda-
stjóri VSÍ, er
81 árs 28.
mars. Hann er
norðan úr
Núpasveit,
nam lög við HÍ
og var í áratugi í eldlínunni, m.a.
í störfum fyrir atvinnulífið og í
pólitíkinni. Hann kom að ýmsum
fleiri málum, svo sem stanga-
veiði, og var formaður Stanga-
veiðifélags Reykjavikur um tíma.
Ingvar
Gíslason, fv.
ráðherra, er
77 ára 28.
mars. Hann er
Norðfírðingur
að uppruna en
haslaði sér
völl fyrir norð-
an. Þingmaður Framsóknar á
Norðurlandi eystra var Ingvar
lengi og menntamálaráðherra um
hríð. Síðast ritstjóri Tímans.
Jón Hnefill
Aðalsteinsson
fræðimaður er
76 ára 29.
mars. Fyrr á
árum var Jón
m.a. blaðamað-
ur og prestur á
Eskifirði. Hef-
ur nú í mörg ár helgað sig fræði-
störfum og er manna best kunn-
ugastur kristnitökunni fyrir 1003
árum.
Þór Vigfús-
son er 67 ára
2. apríl. Hann
var einn af
æskumönnun-
um sem fóru
að leita ævin-
týra í komm-
únisma aust-
ursins. Þegar heim kom gerðist
Þór menntaskólakennari og var
um hríð borgarfulltrúi. Síðast
skólameistari í
fæðingarsveit
sinni á Sel-
fossi.
Laufey
Steingríms-
dóttir næring-
arfræðingur er
56 ára 29. mars. Hún er víð-
menntuð í þeim fræðum er lúta
að hollum mat og hefur verið
óþreytandi að berjast fyrir skyn-
semi í mataræði. Þjóðin er alltaf
að velta þvi fyrir sér hvað sé best
að borða, þannig að baráttan ber
árangur.
Gerrit
Schuil pianó-
leikari er 53
ára 27. mars.
Hann er hol-
lenskur en hef-
ur búið og starf-
að hér á landi í
nokkirn ár. Hef-
ur getið sér gott orð sem tónlist-
armaður - til dæmis sem konsert-
píanisti en ekki síður sem með-
leikari vinsælla söngvara.
Jóhannes
G. Bjarnason,
íþróttakennari
á Akm'eyri, er
41 árs 31.
mars. Hann er
kominn af
traustu kyni í
höfuðstað
Norðurlands. Hefur lengi kennt
íþróttir og verið þjálfari hjá KA,
nú síðast meistaraflokki í hand-
bolta. Bæjarfulltmi Framsóknar.
Orri Hauks-
son verkfræð-
ingur er 32 ára
28. mars. Hann
var um skeið
starfsmaður
óskabarns
þjóðarinnar,
Eimskips, uns
hann gerðist aðstoðarmaður Dav-
íðs Oddssonar í forsætisráðu-
neytinu. Nú einn af helstu stjóm-
endum Simans.
Hera Björk
Þórhallsdóttir
söngkona er 31
árs 29. mars.
Hefur sungið í
áraraðir, enda
með íðilfagra
rödd. Stjórnaði
um hríð vinsæl-
um sjónvarpsþætti. Nú búsett norð-
ur á Daivík þar sem hún syngur fyr:
ir Norðlendinga, vinnur við útvarp
og er húsmóðir.
r
Nafn: Gisli Gíslason.
Aldur: 47 ára - fæddur 9. júlí 1955.
Maki: Hallbera Fríður Jóhannesdótt-
Börn: Magnús Kjartan, fæddur 1976,
verkfræðingur og eðlisfræðingur; Jó-
hannes, fæddur 1982 - háskólanemi í
Vermont; Þorsteinn, fæddur 1984 - nemi
í FVA; Hallbera Guðný, fædd 1986 - nemi
ÍFVA.
Menntun og starf: Lögfræðingur og
héraðsdómslögmaður. Bæjarstjóri á
Akranesi frá 1987.
Bifreið: Hyundai Santa Fe, árgerð
2002.
Fallegasta kona sem þú hefur séð
utan maka: Katrín Rós Baldursdóttir,
Skagakona og fyrrverandi ungfrú ísland.
Helstu áhugamál og hvað þú gerir í
frístundum: Iþróttir, trimm, fluguveiði,
trilluútgerð, bögusamsetning. Horfl mik-
ið á fótbolta. Enginn leikur svo leiðinleg-
ur að hann sé ekki þess virði að horfa á.
Uppáhaldsmatur: Kjöt í karrí að
hætti Hallberu. Einfalt og gott.
Uppáhaldsdrykkur: Drekk mest af
vatninu úr Akraflalli - hvergi betra
vatn.
Fallegasti staður á íslandi: Laxár-
dalur í Suður-Þingeyjarsýslu.
Eftirlætisstaður erlendis: Færeyjar.
Hvar sem er þar í landi - og ekki spillir
„Vandamálið er að þegar konan mín les barnabækurnar hennar hlær
hún svo mikið að ég fæ engan frið til lestrar," segir Gísli Gíslason,
bæjarstjóri á Akranesi. Magasín-mynd Blár
- segir Gísli Gíslason, bæjarstjóri ó Akranesi
gestrisnin.
Með hvaða liði heldur þú í íþróttum? Einarður og
traustur aðdáandi ÍA - en erlendis er það Liverpool. Nú
um stundir er mikilvægt að muna að „you’ll never walk
alone“.
Með hvaða bók ertu á náttborðinu: Nýlega búinn
með Stephan G. og Aldahvörf i Eyjum. Siðan er
Newsweek alltaf tU staðar.
Eftirlætisrithöflmdur: Enginn einn - en Kristin
Helga Gunnarsdóttir frænka mín er mér ofarlega í huga.
Vandamálið er að þegar konan mín les bamabækumar
hennar hlær hún svo mikið að ég fæ engan frið tU lestr-
ar.
Eftirlætistónlistarmaður: Margir koma tU greina
en einhvem veginn hugsa ég fyrst tU KK eða Kristjáns
Kristjánssonar. Hann er frábær tónlistarmaður og
merkUeg persóna.
Fylgjandi eða andvígur ríkisstjóminni: Ýmist,
fylgjandi ýmsu en ósammála öðm.
Hvaða þjóðþrifamáli á íslandi er brýnast að bæta
úr: Fátækt og bjargarleysi þeirra sem við það glíma.
Hvað ætlaðir þú að gera þegar þú yrðir stór: Ein-
hvern tima hafði ég áhuga á að verða fomleifafræðing-
ur en ákvað strax í menntaskóla aö fara í lögfræði. Hefði
það ekki lukkast hefði ég kannski getað orðið prestur.
Persónuleg markmið fyrir komandi mánuði: Apr-
Umánuður lítur vel út - núna - en markmiðið er að fara
að minnsta kosti tvisvar á Háahnúk á Akrafjalli, einu
sinni á sjóinn, horfa á nokkra fótboltaleiki og klára
nokkur ágæt verkefni sem liggja fyrir hjá Akraneskaup-
stað. Hitta eins oft og hægt er Leó Emi vin minn sem í
mars lærði að segja „Gísli“.
Hver em þín ráð til að krydda hvundaginn: Það er
grundvaUaratriði að gleyma ekki húmomum - ef maður
hefur ekki húmor fyrir umhverfi sínu og sjálfum sér er
maður farinn að fólna.
Lífsspeki: Aldrei að láta alvöru lífsins ráða of miklu.
Upphafið að ferlinum hefst hjá okkur
MitreCalsio st. 4
verð kr. 1.990.-
Adidas Funkster takka
St. 1 - 5,5 kr. 3.990.-
Adidas Funkster gerfigras
St. 1 - 5,5 kr. 3.990.-
Nike Total 90 gerfigras
St. 1 - 6 kr. 4.990.-
MitreCosmic st.4-5
verð kr. 3.990.-
Nike Total 90 takka
St. i - 6 kr. 4.990.-
Jói útherji
knattspyrnuverslun
Ármúla 36 • sími 588 1560
Sendum í póstkröfu
%