Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2003, Síða 25
FIMMTUDAGUR 27. MARS 2003
25
,, agasín
Búi& er áb velja nýjan „Bachelor^
- afar vandlátur 27 ára piparsveinn sem mun erfa gríáarlega mikil auáæfi
Forsvarsmenn ABC-
sjónvarpsstöðvarinnar í
Bandaríkjunum eru bún-
ir að velja næsta pipar-
sveininn í hinn vinsæla
sjónvarpsþátt The
Bachelor. Þættimir hafa
verið sýndir hér á landi á
Skjá 1 við miklar vin-
sældir.
Næsti piparsveinn
heitir Andrew Firestone.
Langafi hans er enginn
annar en Harvey Fire-
stone, stofnandi dekkja-
fyrirtækisins vinsæla og
Andrew mun koma til
með að erfa stóran hlut í
fyrirtækinu.
Andrew er 27 ára gam-
all, menntaður í háskól-
anum í San Diego, og hef-
ur ekki hingað til verið á
biðilsbuxunum. Móðir
hans segir að hann sé enn
á lausu vegna þess ein-
faldlega hvað hann sé
vandlátur. „Sonur minn
er mjög myndarlegur
maður og ég vil að hann
eignist góða konu. Þrátt
fyrir að hann sé mjög
vandlátur er ég ekki í
nokkrum vafa um að
hann mun fmna fallega
og góða konu,“ segir móð-
irin og er stolt af syni sín-
um.
Upphaflega leituðu for-
svarsmenn ABC til bróð-
ur Andrews. í ljós kom
fljótlega að hann var gift-
ur tveggja barna faðir og
kom því ekki til greina.
Hann benti ABC-mönn-
um á bróður sinn og þeir
voru ekki lengi að ákveða
sig. En hvað þarf væntan-
leg eiginkona hans að
hafa til að bera? „Hún
þarf að hafa gott skop-
skyn, áhuga á að lifa fjör-
ugu og skemmtilega
krydduðu lífi og ekki
spillir fyrir ef hún er
hæfílega stjómsöm,“ seg-
ir Andrew.
Fyrsti þátturinn af The
Bachelor var sýndur á
ABC sjónvarpsstöðinni
sl. miðvikudagskvöld og
þeir em eflaust margir
sem bíða spenntir eftir
því að sjá þættina á Skjá
1 þegar þar að kemur.
Andrew Firestone er fjallmyndarlegur og
erfingi mikilla auöæfa í Bandaríkjunum.
Rem á
móti stríói
Bandaríska hljómsveitin
Rem hefur sett lag á móti
stríði á heimasíðu þeirra á
Netinu sem ber heitið The
Final Straw. „Við urðum að
senda eitthvað út núna. Við
biðjum og vonum að allir
þeir sem tengjast stríðinu á
einhvern hátt, hermennirn-
ir, íraska fólkið, flóttamenn,
fjölskyldur hermannanna,
þeir saklausu, séu öruggir og
óhultir,“ segir Michael Stipe,
forsprakki hljómsveitarinn-
ar, í samtölum við fjölmiðla
vestanhafs.
Tvöfaldur
í roöinu
Karlkynskeppandi 1 þýsku
Pop idol-keppninni fer inn á
lista yfir kynþokkafyllstu
konurnar. Daniel Kuebl-
boeck varð i þriðja sæti í
þessum vinsælu þáttum sem
hafa verið sýndir á RTL-sjón-
varpsstöðinni í Þýskalandi.
í þáttunum viðurkenndi
maðurinn, sem er sautján
ára, að hann væri tvíkyn-
hneigður. Hann notaði
grannt vaxtarlag sitt og axla-
sitt hárið þegar hann ákvað
að syngja lag sem uppruna-
lega var flutt af kvenkyns-
söngvara. Þá var hann í pilsi
þegar hann söng eitt af lög-
um sínum.
Núna troða aðdáendur
hans honum áfram á listan-
um yfir kynþokkafyllstu
konur heims í þýsku útgáf-
unni af FHM-tímaritinu.
Hann er nú þegar kominn of-
ar á lista en Danii Minogue
og Anastacia og er í 84. sæti.
Vatnsbyssur
bannaðarí
Taílandi
Aflmiklar vatnsbyssur hafa
verið bannaðar í Taílandi í
tilefni komandi áramóta.
Nýju ári er fagnað í Taílandi
sex daga 1 apríl og hefðin
krefst þess að fólk skvetti
vatni á vini og ættingja. Sá
gusugangur á að vera tákn-
rænt kall til æðri máttarvalda
sem biðja góðrar rigningar á
hrísgrjónaárstiðinni sem er
fram undan.
En ekki er allt sem sýnist í
Taílandi. Hefðin þar í landi að
skvetta vatni á vini og kunn-
ingja hefur þróast í að fara í
ofbeldisfulla vatnsslagi sem
felast í að nota sterkar vatns-
byssur sem nú hafa verið
bannaðar.
o
Select
Gæðagrill á frábæru verSi,
samsett eða ósamsett - þitt er valið!
mboö
Broil Mate gæÓagasgrill 8,8 kW,
með tvöfölaum H-brennurum
úr ryðfríu stáli á stórkostlegu verði
;V 19.70'