Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2003, Blaðsíða 28
28
FIMMTUDAGUR 27. MARS 2003
M
agasm
DV
Bíómolar
Fáir sáu Óskar
Leita þarf
allt að 50 ár
aftur í tímann
til að finna
jafn lága tölu
yfir þá Banda-
ríkjamenn sem
lögðu það á sig
að horfa á ósk-
arsverðlaunaathöfnina og í Los
Angeles á sunnudag. Samtals
sáu 33,1 milljón manna hátíðina
í Bandaríkjunum en ástæða þess
að áhorfið hrundi um 8 milljónir
manna er að margir munu frek-
ar hafa kosið að fylgjast með
fréttaflutningi af stríðinu í írak.
Aldrei hafa færri fylgst með há-
tíðinni síðan Nielsen markaðs-
rannsóknarfyrirtækið hóf að
mæla áhorf árið 1974. Fyrra met-
ið átti hátíðin árið 1987 þegar
Platoon vann verðlaun sem
besta mynd þess árs, og þá
horfðu þó 39 milljónir manna á.
Bölvuð kvikmynd
Kynbomb-
an Shannon
Élizabeth er
nýjasta við-
bótin við leik-
aralið Cursed
sem hryllings-
leikstjórinn
Wes Craven
mun gera innan skamms. Áður
höfðu Christina Ricci og Scott
Foley samþykkt að ieika í mynd-
inni. Myndin íjallar um baráttu
þriggja ókunnugra einstaklinga
gegn varúlfi í Los Angeles og
þau einkenni sem þeir bera.
Elizabeth mun leika Becky sem
stundar ötullega næturklúbba í
Hollywood. Auk þess að hafa
leikið í Jay & Silent Bob Strike
Back og Scary Movie er hún lík-
legast hvaö þekktust fyrir hlut-
verk sitt í American Pie-mynd-
unum.
Campbell stripar
Ofurfyrir-
sætan Naomi
CampbeU hef-
ur samþykkt
að takast á við
hlutverk nekt-
ardansmeyjar
í kvikmynd-
inni Go-Go
Tales sem mun gerast í nektar-
klúbbi í New York. Drea De
Matteo, sem leikur í Sopranos-
þáttunum, mim einnig leika
stórt hlutverk í myndinni sem
gæti vel orðið að sjónvarpsþátt-
um, slái kvikmyndin í gegn.
Campbell ætti sist aö vera feim-
in að koma fram á evuklæðun-
um einum enda vel vön sviðs-
ljósinu.
Madonna sú allra
versta
Hin árlegu
rifsberjaverð-
laun voru af-
hent við há-
tíðlega athöfn
í Hollywood á
laugardags-
kvöldið eins
og venjan er,
kvöldið fyrir sjálf óskarsverö-
launin. í þetta sinn stóð
Madonna uppi sem sigurvegari
og vann bæði verðlaun fyrir leik
í aðalhlutverki, fyrir Swept
Away og í aukahlutverki, fyrir
Die Another Day. Myndin var
einnig valin sú versta og eigin-
maður Madonnu, Guy Ritchie,
versti leikstjórinn. Madonna
þurfti þó að deila verðlaununum
fyrir leik í aðalhlutverki með
Britney Spears sem fór á kostum
í Crossroads. Madonna kórónaði
kvöldið með því að vera valin
ásamt mótleikara sínum, Adri-
ano Giannini, versta kvik-
myndapar ársins. Með þessu hef-
ur hún, ásamt Sylvester
Stallone, hlotið flest rifsberja-
verðlaun í sögunni, eða 9 talsins.
Sigur Adriens Brody á óskarnum kom kvikmyndaheiminum i opna skjöldu:
Stórleikari sinn
ar kynslóðar
Þeir eru eflaust fáir sem hefðu
fúlsað við því að fá að leika aðal-
hlutverk í mynd eftir Roman Pol-
anski. Enda lagði Adrien Brody ým-
islegt á sig fyrir hlutverk píanistans
Wlasyslaw Szpilman í The Pianist,
eins og að létta sig um 14 kíló og jú,
læra að spila á píanó. Og hann sáði
greinilega vel, því uppskeran var
ansi ríkuleg: sjáíf óskarsverðlaunin
fyrir bestan leik i aðalhlutverki,
þvert á allar spár.
The Pianist var frumsýnd hér á
landi fyrir nokkru og má búast við
að aðsókn á myndina hafi aukist
nokkuð því ásamt Chicago var hún
án efa sigurvegari óskarshátíðar-
innar. Auk verðlauna Brodys fékk
leikstjórinn Roman Polanski óskar-
inn fyrir bestu leikstjórn og Ronald
Harwood fyrir besta handrit, byggt
á áður birtu efni.
Myndin segir frá áðumefndum
Szpilman sem var uppi á tima síðari
heimsstyrjaldarinnar í Póllandi.
Hann þótti einn besti píanóleikari í
sínu heimalandi, og þótt víðar væri
leitað. Hann var einnig af gyðinga-
ættum og átti því ásamt öðrum
pólskum gyðingum að vera fluttur í
fangabúðir í Þýskalandi. Honum
tókst þó að forða sér frá útlegðinni
og mátti hann hafast við við illan
leik i gyðingagettóum Varsjár.
Francis Ford Coppola
Brody er einungis 29 ára gamall
og því nánast á sama aldri og
Szpilman var þegar síðari heims-
styrjöldin hófst. Hann er frá New
York, nánar tiltekið frá Queens-
hverfinu, og gerði sér snemma
grein fyrir að hann vildi leggja leik-
listina fyrir sig. 12 ára var hann
byrjaður að koma fram í barnaaf-
mælum sem töframaður og fyrir
hvatningu móður sinnar sótti hann
námskeið í leiklist. 15 ára fékk hann
sitt fyrsta hlutverk í sjónvarps-
myndinni Home at Last sem var
gerð af PBS sjónvarpsstöðinni og
strax á næsta ári lék hann í New
York Stories, mynd í þremur hlut-
um í leikstjórn þeirra Woodys
Allens, Martins Scorseses og Franc-
is Ford Coppola og lék hann í hluta
síðastnefnda leikstjórans. Samhliða
því sótti hann hinn virta leikskóla
Academy of Dramatic Arts og var
svo valinn úr stórum hópi umsækj-
enda til að sækja School of Perform-
ing Arts í Lincoln-setrinu. Þá hafði
hann einnig kynnst því að leika í
sjónvarpi en árið 1988 lék hann i
gamanþáttaröðinni Annie McGuire
þar sem Mary Tyler Moore var í að-
alhlutverki.
Steven Spielberg
Eftir skólagönguna var komið að
því að koma undir sig fótunum í
kvikmyndaheiminum. Fyrsta mynd-
in sem hann lék í að útskrift lokinni
var King of the Hill í leikstjóm
Steven Soderbergh og komst hann
vel frá því hlutverki. Hann virtist
eiga fremur auðvelt með að finna
sér vinnu og undir lok áratugarins
var hann orðinn einn af þeim leik-
urum sem allir bjuggust við að yrði
heimsfrægur innan skamms. Hann
var til að mynda einn af þeim karl-
kyns fyrirsætum sem prýddu forsíð-
ur Vanity Fair árið 1999 ásamt því
að leika i tveimur þekktum mynd-
um, The Thin Red Line eftir Steven
Spielberg og Summer of Sam eftir
Spike Jones.
Eitthvað lét frægðin eftir sér bíða
þó svo að hann lék í nokkrum
þekktum myndum árin 2000 og 2001,
svo sem The Affair of the Necklace
og Harrison’s Flowers. En hann
beið enn eftir stóra tækifærinu.
Roman Polanski
Roman Polanski hafði lengi lang-
að til að búa til mynd um helfórina
í Póllandi þar sem hann sjálfur er
pólskur og komst lífs af í gettóunum
í Varsjá á stríðsárunum. Hann vildi
þó ekki að kvikmyndin fjallaði um
sjálfan sig og eftir að hafa lesið sögu
Szpilman, sem fór eins og eldur i
sinu um heiminn árið 1998, var ekki
efi í hans huga, myndin yrði gerð
eftir sögu bókarinnar.
Hann boðaði til áheyrnarprufa í
London þar sem hann leitaði að hin-
um eina og rétta manni í hlutverk
Szpilman. Þrátt fyrir að hann gerði
ekki þá kröfu að leikarinn yrði að
líkjast Szpilman sjálfum stóð hann
tómher.tur eftir að hafa séð 1400
manns mæta í prufumar. Hann reri
því á önnur mið og leit til Banda-
ríkjanna, og eftir að hafa séð nokkr-
ar af myndum Adriens Brodys vissi
hann að þar hefði hann fundið pí-
anistann sinn.
Það reyndist því vera sannur
happdrættisvinningur að fá simtal
frá Polanski því í dag vita allir kvik-
myndaunnendur hver Adrien Brody
er. Þakkarræðan hcms á afhendingu
óskarsverðlaunanna glymur sjálf-
sagt enn í eyrum Hollywood-fólks,
enda ekki á færi hvers sem er að
þagga niður í hljómsveit hússins
eftir að hún byrjaði að spila í miðri
ræðunni. Staðfesta hans er greini-
lega mikil og frægðin langþráða
loksins búin að skila sér í hús.
-esá
Adrien Brody í hlutverki sínu í The Pianist.